Þjóðviljinn - 20.01.1988, Qupperneq 4
LEIÐARI
Kiinglan snýst
Nú er aö hefjast umræöa um fjárhagsáætlan-
ir í sveitarstjórnum vítt og breitt um landið. Að
baki fjárhagsáætlanagerðar liggur oft gífurlega
mikil vinna sem er mun tímafrekari en áætlana-
gerð í einkafyrirtækjum þar sem fáir menn taka
allar ákvarðanir.
í sveitarstjórnum sitja fulltrúar ýmissa starf-
stétta og mismunandi sjónarmiða. Flestir sinna
sveitarstjórnarstörfum samhliða öðrum dag-
legum skylduverkum. Víða leiða kosningar til
verulegra mannabreytinga og ávallt tekur nokk-
urn tíma fyrir nýtt fólk setja sig inn í málefni
viðkomandi sveitarfélags.
Við viljum fúslega greiða nokkurt gjald fyrir að
viðhalda lýðræði og ekki er fátítt að menn geri
mun meiri kröfur um lýðræðisleg vinnubrögð í
sveitarstjórnum en viðhöfð eru við landsstjórn-
ina. Það ber því ekki að kvarta þótt vinna við
fjárhagsáætlanagerð sveitarfélaga sé tímafrek.
Eigi svokallaðir sérfræðingar ekki að ráða
öllum málum til lykta án þess að ráðfæra sig við
aðra, verður að greiða lýðræðinu nauðynlegt
gjald í formi tíma og vinnu.
í dreifbýli eru nær allir íbúar þátttakendur í
málefnum hreppsins síns. Vel er fylgst með
opinberum framkvæmdum og ekki er grafinn
svo skurður á vegum sveitarsjóðs að almenn-
ingur viti ekki til hvers verkið er unnið. Oddviti
og hreppsnefndarmenn deila því sjálfkrafa
þekkingu sinni á málefnum sveitarfélagsins
með íbúum þess.
í stórum sveitarfélögum nær þekking hvers
íbúa aðeins yfir tiltölulega þröngt svið. Þar
reynir því mjög á það að sveitarstjórnarmenn
hafi gott og víðtækt samband við íbúana. í
stærstu sveitarfélögunum getur enginn haft
heildaryfirsýn nema sá sem eyðir öllum sínum
tíma í málefni sveitarfélagsins. Embættismenn-
irnir hafa því sérþekkingu fram yfir kjörna full-
trúa í sveitarstjórn.
í alstærstu sveitarfélögunum er því veruleg
hætta á að meiri völd séu í höndum embættis-
manna en samræmist hugmyndum almenn-
ings um lýðræði. Sé æðsti embættismaður í
stjórnkerfi sveitarfélags einnig oddviti pólitískr-
ar fylkingar, er enn meiri hætta á að lýðræðisleg
vinnubrögð séu fótum troðin. Samflokks-
mönnum verður það metnaðarmál að verja
gerðir embættismannsins og skiptir þá stund-
um ekki öllu hvort þeir eru í hjarta sér ánægðir
með allar hans gerðir.
Reykjavík hefur sérstöðu meðal íslenskra
sveitarfélaga. Hún er höfuðborg og stærðar
sinnar vegna er hún allt annarrar gerðar en
aðrir bæir hér á landi. Næststærsti kaupstaður-
inn, Kópavogur, er meira en sex sinnum minni
en Reykjavík.
í síðustu viku var lögð fram í borgarstjórn
Reykjavíkur fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi
ár. Athygli vakti hvað reiknað er með góðri af-
komu. Það leiðir hugann að fullyrðingum ým-
issa verkalýðsleiðtoga um að álagning útsvars
sé of há og að gjarnan mætti lækka taxtaverð
hitaveitu og rafveitu sem eiga að skila umtals-
verðum hagnaði til borgarsjóðs.
En mesta athygli hafa þó vakið þau bygging-
aráform sem sett eru fram í fjárhagsáætlun
Reykjavíkur. Ráðhúsið við Tjörnina er umdeilt
en borgarstjórinn ásamt pólitískum meirihluta í
borgarstjórn ætlar sér að koma því upp á núver-
andi kjörtímabili. En það á líka að hefja bygg-
ingu annars merkishúss í Reykjavík á þessu ári.
Það er veitingahús uppi á heitavatnsgeymum í
Öskjuhlið. Húsið á að hverfast um sjálft sig svo
að gestir geti notið útsýnis í allar áttir án þess að
hreyfa legg né lið.
Mikla undrun vekur að hitaveitunni skuli ætl-
að að byggja þetta 500 miljón króna vertshús.
Hitaveitan sleppur þó við að að fara út í
veitingarekstur. Það á að leigja út húsið. Til að
sá hálfi miljarður, sem tekinn er af almannafé í
bygginguna, ávaxtist á markaðskjörum, þyrfti
leigutaki að greiða um 5 miljónir í mánaðar-
leigu. Eitthvað kemur kaffibollinn til með að
kosta hjá honum.
Períkles, hæstráðandi til sjós og lands í hinni
fornu Aþenu, lét gera ótal fagrar myndastytturtil
að gleðja augu Aþeninga og sparaði ekki fé til
að fegra borgina. Opinber listaverk eru mun
geðþekkari minnsvarðar en tröllvaxin skoppar-
akringla í Öskjuhlíð.
KLIPPT OG SKORIÐ
Þriðiudagur 19. janúar 1988
iLPÍJUBLÍÐIÐ
Valdlmsr J4h«nn»s»on
IngöHjtf Msroerrsson
ÞortéKur Heiflsson
oreuarnenn Haukur Hotm. Ingibiorg Arnadi
og SigrtOur Þrúður sieiansaoil
Drelltnoarstlór< ÞOrdlS ÞOrlsdOlllr
lelnlng og umorot. Fllmur og prenl. Armúla 38.
Þremun: Blaðaprenl hl, SlOumúla 12.
TREYSTUM TEKJUÖFLUN -
BYGGJUM VELFEROARRÍKI
M ikill einhugur rlkli ð llokkssljórnarlundi Alþyðullokks
iis sem haldinn var um helglna: Sð einhugur kom ekki sfst
I samstöðu HolrUen'a-.<r "fh rOnhnrra fllhúrSn.
rikissljórn Þors | Guðmundur j „T
’ ylirleitt. Hin | ' "K
■ lekjuöflur
.. Karvet:
LOGDUAF
^WD / GÆR
breytingarn.
iðeraðsjállsv
ida sem sjðlfir gu
ta sé að linna. Til að .
með hærri Iramlærsluby,
ækkað um 6—8% og barnabo.
ata verlö gerðar sérstakar lagfæi.
em kemur barnmðrgum fjölskyldum
Irelslsmörk hala hækkað verulega.
Þessimiklalramþróunogumbyltlngl .
laginu. lyrstl raunverulegl vlsirinn að vellerðarrlkl
landl helur slður en svo mætt skilnlngi lélagshyggjullokk-
anna svonefndu. Á meðan splrur vellerðarrlklslns spretta
I Alþýðuflokknum, sprettur Ólalur Ragnar Grlmsson, lor-
maður Alþýðubandalagsins upp ð goskassa I Miklagarði
á kolrðngum lorsendum. og pingkonur Kvennalistans
spretta upp I ræðustól á Alþingl til að mótmæla skattkert-
isbreytingunni sem tryggir lélagslegt kerti og jölnuð I
þjóðlélginu. Fjármálaráöherra orðaðl gagnrýnl hlnna svo-
netndu lélagshyggjullokka, Alþýðubandalagsins og
Kvennallstans á þann veg. að þeir hefóu ekki botnað upp
é niður f hinum miklu umbðtum og nöldruðu I sfbylju
Fra flokktetfOmarlundl AlþyOullokktlne a HOIal SOflU. LjOtm. O.T.k.
Flokksstjórnarfundur AIþýðuflokkslns:
LÝST YFIR
STUDHINGI V'J _WT-
KERF'^"
' I BIDSTÖDU
segir Jrin rúll
Halldórssun, formaður
j'lnnu veilendasambands
t'est/jarða
. ‘■íyðslu og sóun forrétlinda-
lópanna veróur að slöðva.
• -o og óskynsamlegar fjár-
leslingar á ðllum sviðum.
Það er óviðunandi niðurslaða
ellir mesla góðæri I sögu
Þlóðarlnnar, aö sjóðir hennar
skuli vtra tðmlr.
Flokkssljðrn Alþýðuflokks-
, samnlngaviðræður
uambands Veslljarða
nuvoitendasambands
ijarða. Enginn fundahðld
°g enginn fundur hefur
i boðaður. f samiall við
Iþyðubiaðið sagði Jðn Pail
\ 'p'ó*harða
; i framhaldi af
---- -------„„ráðhena
FloKkssljórnln mlnnlr jat
Iramt á. að verölagseftirlit i
:in þýðingamesta kjarabðl
a launþega er að lakast
megl að ná verðbðlgunnl nið-
•rt eftlr að hún Iðr um bönd-
Byggðarlag fyrir austan var nýbulð að lá nýjan sðknar-
prost. Presturinn vlldl gjarnan ná vlnsældum og trausti
sðknarinnar og ákvað þvi að bjðða öllum börnunum I svei í-
fnnl heim tlf sfn. Eftir miklar veitingar og leiki.settist prest-
Jón hefur
gagnsókn
Formaður Alþýðuflokksins
vaknaði upp við vondan draum
eftir eril og klandur undanfarinna
vikna í ráðuneyti og alþingi. f
staðinn fyrir að bera hann á
höndum sér sem nýjan
mannkynsfrelsara fussaði al-
menningur við Jóni Baldvini,
bölvaði verðhækkunum á
lífsnauðsynjum og skundaði uppí
Miklagarð til að heyra hann og
Þorstein Pálsson verja hendur
sínar í kappræðu við Olaf Ragn-
ar.
Jón vildi síst þurfa að standa
berskjaldaður frammifyrir venju-
legu fólki uppá goskassa, en hann
sá að heldur hafði hallast á yfir
hátíðarnar og ákvað að hefja
gagnsókn.
Frá upphafi þessarar gagn-
sóknar er sagt í Alþýðublaðinu í
gær.
Velferðar-
ríkið verður til
Á forsíðu blaðsins segir frá því
að Jón telji að með matarskattin-
um og öðrum skattabreytingum
nú um áramótin hafi hann hvorki
meira né minna en lagt grunninn
að sjálfu velferðarríkinu.
Nú þurfi aðeins að byggja oná
grunninn, og þann arkitektúr
hefur Jón einnig lagt á ráðin um.
Meðal næstu verkþátta er að
senda eftirlitssveitir í verslanir til
að fylgjast með innheimtu á mat-
arskattinum, og ekki er síður
mikilvægt við fullkomnun vel-
ferðarríkisins að skylda smásölu-
kaupmenn til að hafa á búðar-
borðum sínum „viðurkennda,
innsiglaða vérslunarkassa“ til að
tryggt sé að matarskatturinn
renni rétta leið.
Enn mundi það gera greiðar
götur velferðarinnar „að færa til
skiladaga verslana varðandi sölu-
skatt með tilliti til mikillar notk-
unar greiðslukorta“. Að vísu þarf
að mörgu að hyggja þegar stórt er
byggt, og við verðum að sýna of-
urlitla biðlund, - greiðslukorta-
skiladagabreytingin varðandi
söluskatt er enn ekki komin
lengra en á pappírinn. Flinsvegar
lofar Jón að „við munum skoða
það mjög vandlega og taka
ákvörðun um það bráðlega.“
Hvít bók,
án söiuskatts
Einhvernveginn hefur almenn-
ingur misskilið þá miklu velferð-
arperestrojku sem Jón Baldvin
og ríkisstjórnin hafa staðið að nú
um áramótin, og vegna þess að
það er lítið gaman fyrir fólk að
búa í húsgrunni velferðarríkisins
án þess að vita neitt af er því
heitið á forsíðu Alþýðublaðsins
að hluta matarskattarins verði
varið til að gefa út sérstaka hvíta
bók um velferðarbyltinguna al-
veg á næstunni og á að dreifa
henni á hvert heimili á landinu, -
öllum að kostnaðarlausu og án
söluskatts.
Almenningur á að bíða rólegur
eftir þessari bók, enda er „bull-
andi kaupmáttur í þjóðfélaginu“
og „löng neikvæð reynsla“ af alls-
kyns kjarabaráttu, „verkföllum
og átökum á vinnumarkaði".
Svo eru þeir til líka sem ekkert
vilja bíða eftir hvítu bókinni, og
skilja hvorki upp né niður í ein-
hverjum merkustu umbótum sem
verið er að gera í þjóðfélaginu,
nöldra í síbylju tóma vitleysu
bæði dag og nótt og reyna að
vekja þjóðfélagið upp með and-
fælum af værum svefni. Pessara
gaura bíður sú framtíð eftir að
hvíta bókin er komin út að það
verður hlegið að þeim einsog að
köllunum sem komu ríðandi til
Reykjavíkur til að mótmæla sím-
anum.
Giæsilegur
sigur!
Þessi mikilfenglega gagnsókn
fjármálaráðherrans hófst núna
um helgina, og þegar er ein sig-
urfjöður komin í hatt Jóns Bald-
vins. Þótt einhver almenningur
skilji hvorki fram né aftur í „þess-
ari miklu framþróun og umbylt-
ingu til jöfnunar í þjóðfélaginu,
fyrsta vísinum að velferðarríki á
íslandi“, einsog það heitir í
leiðara sama Alþýðublaðs, eru
þó enn til á Fróni menn með
sanna karlmannslund, menn sem
ekki vilja láta taka sig í bólinu
Íiegar ársól velferðarinnar boðar
slendingum nýjan fögnuð.
Flokksstjórn Alþýðuflokksins
ætlar ekki að láta hlæja að sér
eftir að hvíta bókin er komin út,
og í Alþýðublaðinu er fyrsti sig-
urinn í gagnsókn fjármálaráð-
herrans kynntur á annarri síðu
með myndarlegri fyrirsögn:
Flokksstjórnarfundur Al-
þýðuflokksins: Lýst yfir
stuðningi við skattkerfisbreyt-
ingarnar
Nöldur dag
og nótt
En Jón á enn eftir nokkurt verk
við að sýna mönnum frammá að
nú séu þeir nauðugir viljugir
staddir í hinu stórkostlega vel-
ferðarríki. Á síðu þrjú í ennþá
sama Alþýðublaði eru þessar fyr-
irsagnir til marks um síbylju-
nöldrið og skilningsleysið í garð
viðurkenndra verslunarkassa,
eftirlitssveita og breytingarinnar
á skiladögum verslana varðandi
söluskatt með tilliti til mikillar
notkunar greiðslukorta:
Guðmundur J. og Karvel:
Lögðu af stað í gær
Sigurður T. Sigurðsson,
formaður Verkamannafélags-
ins Hlífar: Verkföll kunna að
verða nauðsynleg
Samningaviðrœður á Vest-
fjörðum: I biðstöðu
Kennarasamband íslands:
Kennarar í verkfall?
Þanniglagað
Eða einsog María Antonietta
sagði þegar Parísarlýðurinn
flykktist til Versala að heimta
brauð: Getur blessað fólkið ekki
borðað kökur?
-m
þJÓÐVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Mörður Árnason, ÓttarProppé.
Fróttastjóri: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Elísabet K. Jökulsdóttir, Guðmundur RúnarHeiðarsson,
Hrafn Jökulsson, HjörleifurSveinbjörnsson, Kristín Ólafsdóttir,
Kristófer Svavarsson, Logi Bergmann Eiðsson (íþróttir). Magnús H.
Gíslason, ólafur Gíslason, Ragnar Karlsson, Sigurður Á.
Friðþjófsson, Vilborg Davíðsdóttir.
Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir.
Ljósmyndarar: Einarólason, Sigurður MarHalldórsson.
Útlitsteiknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason, Margrót
Magnúsdóttir.
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Unnur Agústsdóttir, Olga Clausen, Guðmunda Krist-
insdóttir.
Símavarsla: Hanna Ólafsdóttir, Sigríöur Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Utbreiðslu- og afgreiðslustjóri: Hörður Oddfríðarson.
Útbreiðsla: G. Margrét Óskarsdóttir.
Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Björnsson.
Utkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 55 kr.
Helgarblöð:65 kr.
Áskriftarverö á mánuði: 600 kr.
4 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 20. janúar 1987