Þjóðviljinn - 31.01.1988, Blaðsíða 18
Nr. 602
BRIDGE
KROSSGÁTA
'f z 3 3 ¥ S~ 7 T~ 7 7 lö J/ 77—
JZ )3 ¥ 7 j¥ JíT )(o J7 7 18 )0 )i > Vo T~
)$ ZJ0 Zl 0 )3 )7 )0 3 22 ¥ 7 2
7 Zz zrr~ ¥ 8 V &> W 22 ¥ 7 to
z* R? )> ¥ u ¥ 7 20 U 20
)0 )i b 7 ZJ 10 Ib )? ¥ 7 /3 (o & T~
i\ )$ w J) 22 ¥ 3 ¥ 7 & ZJ )(o 28 7
T 2 W 7 ZbJ )(s> 7 2$ )0 (s> 16 7 Uo (d
(s> 7 á> Z°! )3 7 (s> ¥ W~ U ¥ 22 )(p 7 ) o
7- 7 13 <7 ? (o W~ 7 JT ZV T~ n 16
13 )0 rr ¥ z/ 7 *T 70 7 )( (l> 2<l 3
2 9 5— ¥- 12 T~ 7 )l )o $ 7 )3
)l U n 7 13 T~ 3) 7 2D jr )i 7 4/ 2 ¥
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá karlmannsnafn. Sendið
þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík,
merkt: „Krossgáta nr. 602“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til
vinningshafa.
)8 23 30 3 (2 10 W /¥ 2V 3
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lárétt eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komiö i stað á eða öfugt.
Margrét Kristjánsdóttir, Engjaseli 45,
Reykjavík fékk verðlaun fyrir
krossgátu númer 599. Lykilorðið var
Sighvatur. Hún fær senda bókina Úr
sálarkirnunni eftir Málfríði Einarsdótt-
ur.
Söngur
villiandarinnar
og fleiri sögur
Verðlaunin fyrir krossgátuna að
þessu sinni er smásagnasafn Einars
Kárasonar, Söngur villiandarinnar.
Mál og menning gaf bókina út.
Hverjir
sigra?
Úrslitakeppni Reykjavíkur-
mótsins í sveitakeppni, fjórar
efstu sveitirnar, er spiluð um
þessa helgi. í dag í Sigtúni 9 eru
undanrásir, sveit Verðbréfam-
arkaðar Iðnaðarbankans mætir
sveit Flugleiða og sveit Sam-
vinnuferða/Landsýnar mætir
sveit Pólaris. Sigurvegararnir í
þessum tveimur leikjum mætast
síðan á morgun (sunnudag) á
Loftleiðum í hreinum úrslitaieik.
Sá leikur verður sýndur á sýning-
artöflu (ramma) og verður að-
gangur ókeypis. Sýning mun eiga
að hefjast kl. 12.
Að öðru leyti urðu úrslit í
Reykjavíkurmótinu þessi (15
efstu öðlast rétt til þátttöku á ís-
landsmóti):
Verðbréfamarkaður Iðnaðar-
bankans, Samvinnuferðir/Land-
sýn, Pólaris, Flugleiðir, Jón Þor-
varðarson, Atlantik, Fataland,
Jón St. Gunnlaugsson, Sverrir
Kristinsson, Bragi Hauksson,
Sigurður Ámundason, Sigurður
Steingrímsson, Sigfús Örn Árna-
son, Delta og Sigmundur Stef-
ánsson. Til vara: sveit Fram.
Undanrásir íslandsmótsins í
sveitakeppni verða í Gerðubergi í
Breiðholti, 10.-13. mars ogverða
8 sveitir í riðli. Tvær efstu komast
í A-úrslit og tvær næstu í B-úrslit,
þannig að 16 sveitir munu keppa
til úrslita um páskana á Loft-
leiðum.
Skráningu í tvímennings-
keppni á Bridgehátíð lýkur
fimmtudaginn nk., kl. 16. Skráð
er á skrifstofu BSÍ. Skráningu í
Opna Flugleiðamótið, sem er
sveitakeppni opin öllu bridge-
áhugafólki, lýkur skömmu fyrir
mót. Bridgehátíð verður dagana
12.-15. febrúar á Loftleiðum.
Suðurlandsmótið í tvímenning
er spilað í dag. 34-36 pör taka þátt
í mótinu, sem spilað er á Flúðum.
Keppnisstjóri er Jakob Kristins-
son.
Opna Stórmótið á Akureyri,
tvímenningur, verður dagana
19.-20. mars.
Bridgefélag Menntaskólans á
Laugarvatni gengst fyrir Opnu
stórmóti í tvímenning laugardag-
inn 5. mars. Spilaður verður
barometer með afar veglegum
verðlaunum. Talað er um allt að
80.000 krónur í peningum auk
ýmisra aukaverðlauna. Skráning
í mótið verður á skrifstofu BSI
(Ólafur).
Bridgefélagið á Húsavík mun
standa fyrir opnu stórmóti með
sveitakeppnisfyrirkomulagi, dag-
ana 9.-10. apríl nk. Einnig þar er
talað um afar vegleg verðlaun. í
því sambandi hefur verið nefnt að
sigursveitin fái ferð til Svíþjóðar
á Tylösand-mótið, sem spilað
verður 30. júlí til 8. ágúst. Það er
einmitt þangað sem B.R.-menn
hafa í hyggju að efna til hópferð-
ar í sumar. Tilvalin fjölskyldu-
ferð og afar hagstæðir samningar
fyrir hendi við Flugleiða-menn.
Nánar síðar.
--------- ' s
ÓLAFUR
LÁRUSSON
Það helsta á dagskrá félaganna
í Reykjavík og nágrenni þessar
vikumar er: Hjá Bridgefélagi
Reykjavíkur er í gangi tvímenn-
ingskeppni og sveitakeppni á
víxl, lokað fyrir aðra en þá sem
hófu keppni í haust. Hjá kvenfé-
laginu stendur yfir sveitakeppni
og er lokið 8 umferðum af 11 (2
kvöld eftir). Hjá Breiðfirðingum
hófst „risatvímenningskeppni"
(barometer) sl. fimmtudag, með
þátttöku um 60 para. Hjá Skag-
firðingum stendur yfir aðal-
sveitakeppni, sem er hálfnuð.
Hjá Kópavogi stendur einnig yfir
aðalsveitakeppni, nýhafin. Bar-
ometerkeppni hefst á mánudag-
inn hjá Hafnfirðingum. Hjóna-
klúbburinn er með baromet-
er-tvímenningskeppni í gangi og
Breiðhyltingar eru með aðal-
sveitakeppni (16 sveitir) í gangi
þessa dagana. TBK er ekki starf-
andi. Önnur félögá Reykjavíkur-
svæðinu eru ekki í Bridgesam-
bandi íslands.
SKÁK
Frá Helga Ólafssyni í St, John
Áskorendaeinvígin
Fjörug og furðuleg skák
Dramatísk viðureign Speelmans
og Seirawans úr þriðju umferð
áskorendaeinvígjanna í Kanada
Hér á fer á eftir mjög athygli-
sverð viðureign úr þriðju umferð
áskorendaeinvígjanna með Eng-
lendinginn Jonathan Speelman í
aðalhlutverki. Afar einkennileg
barátta hans við Yasser Seirawan
sem enginn botnar neitt í. Þegar
ég spurði Speelman eftir skákina
hvað væri eiginlega á seyði,
kvaðst hann alltaf hafa verið með
betra tafl.
Hvítt: Speelman
Svart: Seirawan
Enskur leikur.
1. Rf3 Rf6
2. c4 e6
3. Rc3 Bb4
4. Dc2
(í fyrstu skákinni lék Speelman 4.
Db3. Eftir aðeins ellefu leiki
vann hann skiptamun en engu að
síður varð hann að gera sér jafn-
tefli aðgóðu: 4. ... c5, 5. a3 Ba5,
6. g3 Rc6,7. Bg2 0-0,8. 0-0 d5,9.
d3 d4,10. Ra4 b6. Seirawan lagði
þarna gildru fyrir Speelman en
féll á eigin bragði: 11. Re5+
Rxe5, 12. Bxa8, og nú hugðist
hann leika 12. ... Bd7, 13. Bg2
De8, en sér til skelfingar sá hann
14. Da2! Bxa4, 15. b4! og hvítur
vinnur mann til baka með vinn-
ingsstöðu.)
4. ... 0-0
5. a3 Bxc3
6. Dxc3 b6
7. g3 Bb7
8. Bg2 d5
9. cxd5 exd5
10. 0-0 He8
11. Hel c5
12. d4 Re4
13. Dc2 Rc6
14. dxc5 bxc5
15. b3 Db6
16. e3 Hab8
17. Hbl Ba8
18. Bd2 a5
19. Hedl d4
(Svartur hefur náð að jafna taflið
án verulegra erfiðleika en teygir
sig ef til vill heldur of langt. Nú
hefst afar skörp barátta á mið-
borðinu.)
20. Hel Rxd2
21. Dxd2 a4
(Með hugmyndinni 22. bxa4
Dxbl o.s.frv.)
22. exd4 Hxel+
23. Dxel axb3
24. d5 Rd4
25. Rxd4 cxd4
26. De7 h6
27. d6 Bxg2
28. Kxg2 Dc6+
29. Kh3
(Nú er komin upp geysilega at-
hyglisverð staða þarsem mögu-
leikar hvíts eru ef til vill heldur
betri. Seirawan var einnig kom-
inn í mikið tímahrak og var í of-
análag afar taugaóstyrkur.)
29. ... Hb7
30. Hcl!
30. ... Df3
(Margir héldu að þetta væri vinn-
ingstilraun af hálfu Seirawans og
að 30. Dxcl leiddi til jafnteflis.
En svo er ekki: 31. Dxb7 b2, 32.
d7 blD, 33. d8D+ Kh7, 34.
Dxf7! Dfl, 35. Kh4! De4+, 36.
g4 og hvítur vinnur.)
31. Hc7 Hb8
(Hér var jafntefli að fá með 31....
Hxc7, 32. dxc7 Df5+, 33. Kg2 b2
o.s.frv.)
32. d7 Kh7
(með hugmyndinni: 33. d8D
Hxd8, 34. Dxd8 b2, 35. Db8
Df5+ og svartur vinnur.)
33. Hcl b2
34. Hel Dd5
(Seirawan er enn að tefla til vinn-
ings. Það var hægt að fá jafntefli
með 34. ... blD, 35. Hxbl Df5+,
36. Kg2 Dxbl, 37. d8D Hxd8,38.
Dxd8 o.s.frv.)
35. De8 Dd6?
(Sigurvonin hefur leitt Seirawan í
ógöngur. Staðan er jafntefli eftir
35. ... blD, 36. Hxbl Df5 +
o.s.frv.)
36. Hbl Db6
(Seirawan teflir hrikalega illa í
tímahrakinu. Skást. var 36.
...De6+, 37. Dxe6 fxe6, 38.
Hxb2 Hd8 með einhverjum
j afnteflismöguleikum.)
37. Dxf7 Dd8
38. Df5+ Kh8
39. De6 d3
40. Hxb2!
og hér féll Seirawan á tíma en
staða hans er gertöpuð.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 31. janúar 1988