Þjóðviljinn - 31.01.1988, Qupperneq 15
Að svara
eða svara
ekki...
Úrslitjólagetraunar
Heygarðshornsins
í vikunni sem leið var dregið
úr réttum lausnum íjólapopp-
getraun Þjóðviljans. Getraun-
in virðist hafa orðið mörgum
erfið raun, því næsta fáir voru
með öll fimmtán svörin rétt.
En nokkrir voru það nú samt.
Fleiri reyndust með allt rétt í
einstökum liðum getraunar-
innar, og gátu þannig unniðtil
verðlaunafyrirþað. Eftirtaldir
fengu plötuverðlaun fyrir hina
ýmsu flokka getraunarinnar,
og er mér það bæði Ijúft og
skylt að geta þess að sumir
þeirra höfðu reyndar öll svörin
áhreinu....:
Fyrir íslensku spurningarnar:
Orri Harðarson Vogabraut 12,
Akranesi. Fyrir myndaspurning-
arnar: Sigurdór Guðmundsson
Borgarvík 2, Borgarnesi. Fyrir
erlendu spurningarnar: Indriði
H. Indriðason, Nökkvavogi 60,
Reykjavík. Þessir þrír aðilar
fengu allir fimm plötur hver. Auk
þeirra fékk Davíð Frank, Grettis-
götu 64, fimm plötur sem viður-
kenningu fyrir besta svar við
aukaspurningu. Það var vísu-
botninn, sem réði úrslitum þar.
Fyrriparturinn hljóðaði svo:
Það er ekki undarlegt,
ekki mikið skrýtið,
en eftir að Davíð hafði lokið sér
af leit vísan svona út:
Heímir Pétursson tekur við geislaspilaranum góða...
Það er ekki undarlegt,
ekki mikið skrýtið,
en þó pínulítið
sérkennilegt
í aðra röndina.
Svo mælti skáldið og fær tónlist
að launum. En þá er komið að
aðalverðlaununum, geislaspilar-
anum góða. Hann féll í hendur
Heimi Péturssyni, til heimilis að
Hringbraut 84 í Reykjavík. Það
þarf vart að taka það fram, að
hann var með öll fimmtán svörin
rétt.
Fyrir þá sem ekki voru eins vel
að sér í poppinu mun ég nú birta
lausnina....
Myndaspurningar
Á myndunum fimm birtust þau
Jarboe, söngkona hljómsveitar-
innar Swans, sem spilaði hér á
landi í vetur. Bleiku Bastarnir
voru þarna og Gaui líka, Ingi-
mundur spilaði á bassa og svo var
verið að veita (aðallega) Bubba
gullplötu fyrir Dögun, og platínu
fyrir Frelsi til sölu.
íslenskar spurningar
Önnur skífa Sykurmolanna á
Bretlandsmarkaði heitir Cold
Sweat, Johnny Triumph er öllu
þekktari sem Sjón, fyrsta breið-
skífa S.H. Draums nefnist Goð,
uppistaðan í stórsveitinni
mamma var rússi spilaði áður í
Fræbblunum og Q4U, og með
Bjartmari á plötu hans sungu þeir
Eiríkur Fjalar (Laddi) og Jakob
Magnússon, en Mezzofortingar
sáu um undirleik.
Erlendar spurningar
Robbie Robertson starfaði
áður í hljómsveitinni The Band,
Status Quo fengu menn upp á
móti sér með því að halda tón-
leika í S-Afríku, nánar tiltekið í
SunCity, Jeff Lynne, aðalmaður-
inn í E.L.O. var potturinn og
pannan í upptökum á nýjustu
plötu George Harrisons, sonur
Franks Zappa heitir Dweezil og
Michael Jackson hóf tónleikaferð
sína um heiminn í landi hinnar
rísandi sólar: Japan.
Það er nefnilega það, og ekki
annað eftir en að óska vinnings-
höfum til hamingj u og þakka Jap-
is fyrir sitt tillegg og útgáfufyrir-
tækjunum Steinum, Skífunni og
Gramminu fyrir sitt...
Johnny Triumph í ham.
Punklar af plasti
Johnny Triumph:
Stálnótt
Þrátt fyrir nafnið er Johnny
þessi hinn íslenskasti að allri
gerð. Eins og lesendur sjálfsagt
vita er þarna á ferðinni umbi Syk-
urmolanna, en nokkuð er síðan
hann fór að síga á stokk þeim og
öðrum til uppörvunar, og flytja
lag sitt Luftgitar á tónleikum
Molanna. Þótti mönnum svo vel
takast til að ekki þótti annað fært
en að skera þetta í plast og dreifa
á meðal almennings. Reyndar er
það umdeilanlegt, hvort hér er
um að ræða Sykurmolana með
Sjón, afsakið, Johnny Triumph
sem gestasöngvara, eða Johnny
Triumph með Molana sér til
halds og trausts. Þeir sjá um allan
undirleik og bæði Björk og Einar
eru áberandi sem bakraddir. Ein-
ar gerir reyndar meira en að
syngja bakraddir, því hann flytur
heilmikinn díalóg í upphafi Stáln-
ætur, sem er „hitt Iagið“ á plötu-
nni, auk þess sem hann öskrar
nokkra millikafla í Luftgitar. Allt
um það er þetta hinn
skemmtilegasti gripur. Fyrirbær-
ið, sem Johnny nefnir Luftgitar
er líklega flestum á aldrinum 15-
35 ára í fersku minni. Hér er, ef
einhver skyldi ekki vita það, fjall-
að um þá áráttu unglingspilta(l)
að handleika af mikilli fimi ím-
yndaðan rafgítar á dansgólfinu.
Þessi siður hefur löngum farið í
taugar fótfimra stúlkna, en vér
karlmenn höfum látið það sem
vind um eyru þjóta, og enn þann
dag í dag má sjá stráka á dansæf-
ingum félagsmiðstöðvanna með
aðra hönd á mjöðm og hina útí
loftið að apa upp ímynduð tilþrif
Van Helens, Santana, Richards
eða enn annarra gítarsnillinga.
Ósýnilegur gítarinn virðist verja
drengina frá þeirri auðmýkingu,
sem óneitanlega felst í því að
dansa eins og fífl, jafnframt því
að það bjargar honum frá því að
hafa of náin samskipti við döm-
una, sem hann er skítfeiminn við.
Þeir sem lengst hafa náð í þessari
list eru svo færir orðnir, að við-
staddir þykjast sjá heilu Strato-
casterhjarðirnar í lúkunum á
þeim. Er þetta að sönnu verðugt
yrkisefni og tími til kominn að
gera þessu jafn góð skil og hér er
gert. Vonast ég til að hinni
manngerðinni verði gerð jafn góð
skil innan tíðar, þ.e. þeim sem í
stað gítarins góða hafa alveg jafn
ósýnilega trommukjuða í hönd-
um. Mætti eflaust ráða margt af
þessu um framtíð viðkomandi
unglings. Luftgitar er í tveimur
útgáfum á plötu þessari, einni
styttri og annarri lengri, og mun-
ar þar mestu um innskot Einars.
„Hitt lagið“, Stálnótt, er mjög í
þeim anda, sem við er að búast
frá Johnny, eftir það uppeldi sem
hann hefur fengið hjá guðföður
sínum Sjón. Súrrealískur textinn
(afsakið klisjuna) er lesinn món-
ótónískri röddu við undarlegt
undirspil, en á undan fer hálfgeð-
veikislegur inngangur Einars
Arnar. Það eina, sem mér finnst
vert að minnast á varðandi þessa
plötu, sem ekki er henni til hróss,
og kannske ekki til hnjóðs held-
ur, er „söngstíll" Johnnys í
Luftgitar. Minnir hann mig
óþægilega mikið á Einar Örn Á la
Purrkur Pillnikk á köflum... Það
er Smekkleysa s.m. sem gefur
þessa skífu út, eins og plötur
Bleiku Bastanna og Sogbleta, og
er þetta vissulega ánægjulegt
framtak og smekklegt....
Sunnudagur 31. janúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
£Vf REYKJKIÍKURBORG II
Mr Aau&zri Stödwi
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur óskar eftir að
ráða eftirtalið starfsfólk:
Hjúkrunarfræðinga við heimahjúkrun, barna-
deild og heilsugæslu í skólum.
Sjúkraliða við heimahjúkrun bæði dagvakt og
kvöldvakt.
Aðstoðarmann við skólatannlækningar.
Bókasafnsfræðing við bókasafn Heilsuvernd-
arstöðvarinnar. 50% starf.
Sjúkraþjálfara við heimahjúkrun. 100% starf.
Meinatækni við Heilsugæslustöð Hlíðasvæð-
is, Drápuhlíð 14. 50% starf.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri heilsu-
gæslustöðva í síma 22400.
REYKJMIÍKURBORG
Sfödun
Gatnamálastjórinn í Reykjavík auglýsir tii
umsóknar nýjar stöður stöðuvarða.
í störfum þessum sem hentað geta jafnt kon-
um sem körlum felst:
1. Yfirmaður stöðuvarða sem annast dag-
lega stjórnun og skipulagningu.
2. Tveir aðstoðarmenn yfirmanns.
3. Stöðuverðir sem annast eftirlit með stöðu-
mælum borgarinnar, og umferðarlagabrotum
hvað varðar stöðu bifreiða, í samræmi við um-
ferðarlög sem taka eiga gildi 1. mars nk. Þeir
umsækjendur sem ráðnir verða sækja námskeið
hjá lögreglunni í Reykjavík til undirbúnings og
þjálfunar í starfinu.
Um launakjör fer eftir kjarasamningi St.Rv. og
Reykjavíkurborgar. Umsóknum á þar til gerðum
eyðublöðum skal skila til starfsmannastjóra
borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, fyrir 5. febrúar
nk., sem jafnframt veitir upplýsingar um starfið.
Hjúkrunarfræðingar
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsu-
gæslustöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar:
1. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu-
stöðina í Ólafsvík.
2. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu-
stöðina á Þingeyri.
3. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu-
stöðina í Reykjahlíð, Mývatnssveit.
4. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu-
stöð Suðurnesja í Keflavík.
5. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu-
stöðina á Skagaströnd.
6. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu-
stöðina á Þórshöfn.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf við hjúkrun sendist heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150
Reykjavík.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
26. janúar 1988
Skelltu hvorki
skuld á hálku
eða myrkur.
Þaö ert ftú sem situr viö stýriö.
ÚUMFHROAR
RÁÐ