Þjóðviljinn - 02.02.1988, Page 1
Tilboð VSI
Þriðjudggur 2. febrúar 1988 25. tölublað 53. árgongur
Minna en á Isafirði
Gengur hvorki né rekur ísamningaviðrœðum VMSÍog VSÍ. Atvinnurekendur bjóða 13% kauphœkkun út árið.
Verkalýðsfélögá landsbyggðinni tekin að ókyrrast. FramkvæmdastjórnVMSÍ tekur ákvörðun um viðrœður í dag
Eftir tíðindalausar viðræður
atvinnurekenda og Verka-
mannasambandsins um helgina
gerðu atvinnurekendur VMSI
samningstilboð í gær, sem er nær
samhljóða Vestfjarðasamningn-
um. Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans hljóðar tilboð atvinnurek-
enda uppá 13% kauphækkun út
árið, - 8% í febrúar, 3% í aprfl og
2,5% í ágúst, en kaup þarf að
hækka um 13,5% fram til aprfl til
að kaupmáttur haldist óbreyttur.
VMSÍ hefur kynnt atvinnurek-
endum kröfur í samning til aprfl-
loka um 9-10% kauphækkun,
auk starfsaldurshækkana og ann-
arra lagfæringa.
Svo virðist sem tilboð atvinnu-
rekenda, hafi endanlega sett
samningaviðræðurnar í sjálf-
heldu. Framkvæmdastjórn
Verkamannasambandsins mun
ræða tilboð atvinnurekenda á
fundi í dag kl. 10, þar sem vænt-
anlega verður tekin ákvörðun um
hvort viðræðum verður slitið eða
framhaldið, en mikillar óanægju
er farið að gæta í verkalýðsfé-
lögum víða úti um land vegna
seinagangs í samningaviðræðun-
um.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans gera atvinnurekendur ráð
fyrir gengisfellingu uppá 5-6% í
mánuðinum og að verðlag hækki
um 18,7% á árinu, eða frá des-
Flugstöðin
24 milljónir í
fasteignaskatt
Miðneshreppur: Brunabótamatið 2,3
milljarðar. Fasteignamatið 1,9 milljarðar
króna
Miðað við 25% álag á skatt-
stofn atvinnufyrirtækja,
reiknast mér til að Flugstöðinni
beri að greiða Miðneshreppi
rúmar 24 milljónir króna í fast-
eignaskatt, segir Stefán Jón
Bjarnason, sveitarstjóri Miðnes-
hrepps við Þjóðviljann.
Fyrir stuttu var lokið við gerð
brunabótamats á Flugstöð Leifs
Einkssonar og er það 2,3
milljarðar króna. Fasteignamat
stöðvarinnar er hins vegar 1,9
milljarðar króna.
Að sögn Stefáns hefur hann
sent reikninginn til Péturs Guð-
mundssonar, flugvallarstjóra og
bjóst Stefán við að heyra frá hon-
um í vikunni. Eindagi fyrrihluta
greiðslu fasteignaskatts er 15.
febrúar nk. „Við höfum engar
áhyggjur af þessu máli enn sem
komið er, enda verður maður að
reikna með eðlilegum pótsburð-
artíma þegar hlutir eru sendir á
milli staða í pósti, og hann er enn
undir eðlilegum mörkum“, sagði
Stefán Jón, sveitarstjóri Miðnes-
hrepps.
-grh
Snjóflóð í Morsárdal
Fannst látinn
Fjölmenntlið björgunarsveitarmanna leitaði,
ásamt sex hundum og tveim þyrlum
Um hádegisbilið í gær fundu
björgunarsveitarmenn unga
manninn látinn, sem leitað hafði
verið að frá þvi seint á sunnudag,
eftir að hann varð fyrir snjóflóði í
Morsárdal. Hann var 16 ára gam-
all.
Fimm félagar úr íslenska Alpa-
klúbbnum höfðu verið við æfing-
ar í Morsárdal um helgina.
Snjóflóðið féll úr Skarðagili á
piltinn, þar sem hann ásamt fé-
lögum sínum fjórum höfðu sest
niður til að hvfla sig við Skarða-
tinda.
Fjölmennt björgunarsveitarlið
var mætt á slysstað strax í birtingu
í gær og til leitar voru ma. sex
hundar, ásamt þyrlu Landhelgis-
gæslunnar og þyrlu frá hernum á
Keflavíkurflugvelli. Slysið átti
sér stað í 500-700 metra hæð og
voru allar aðstæður til björgunar-
starfa mjög erfiðar.
-grh
ember í fyrra að telja til desemb-
er í ár.
Ýmsir forystumenn verka-
lýðsfélaga á landsbyggðinni, sem
Þjóðviljinn ræddi við í gær, lýstu
yfir óánægju sinni með seinagang
í viðræðum Verkamannasam-
bandsins við atvinnurekendur.
Ýmsir fulltrúar verkalýðsfélaga
af landbyggðinni í samninga-
nefnd VMSI telja hyggilegast að
vísa deilunni til ríkissáttasemj-
ara, þar sem sýnt er að ekki sé að
búast við niðurstöðu úr beinum
samningavirðæðum VMSÍ og
VSÍ í höfuðstöðvum atvinnurek-
enda í Garðastræti.
-rk
Jóhann í andbyr
Viktor Korchnoi hefur tekist hið ótrúlega: Hann vann tvær „síðustu" skákirnar í einvíginu við Jóhann
Hjartarson, og hefur því jafnað metin.
Þó svo að illa hafi tekist til hjá okkar manni undir lokin er engin ástæða til að draga fjöður yfir þann frábæra
árangur Jóhanns að halda jöfnu við annan eins fant við skákborðið og Korchnoi er; margsjóaður í einvígjum
meðan Jóhann er að tefla sitt fyrsta, og einn fremsti skákmaður heims í áratugi.
Sjá skýringar Helga Ólafssonar bls. 19.