Þjóðviljinn - 04.02.1988, Blaðsíða 12
Kennsla í
esperanto
20.30 Á RÓTINNI
í kvöld verður endurtekinn
fyrsta kennslustund í esperanto í
útvarpi Rót, sem þar hófst strax í
fyrstu vikunni á vegum íslenskra
esperantista. Þetta mun vera í
fyrsta sinn um alllanga hríð sem
tungumál er kennt í útvarpi.
Kennari á Rótinni er Árni
Böðvarsson og hefur hann tvo
nemendur í hljóðsmiðju. Við
kennsluna er stuðst við nýút-
komna kennslubók í esperanto
frá Máli og menningu.
Kennslan tekur hálftíma í senn
af umsjónartímum esperantista á
Rótinni, frá hálfníu á fimmtu-
dagskvöldum, en síðar er flutt
ýmislegt efni á esperanto, bæði
fyrir byrjendur og þá sem alm-
æltir eru á alþjóðamálið.
Þess má geta að vegna þess að
útsendingar Rótarinnar á esper-
anto brjóta formlega gegn
ákvæðum útvarpslaga um út-
sendingar á íslensku þótti ekki
annað við hæfi en að útvarps-
stjórinn ræddi málið við formann
útvarpsréttarnefndar, en ekki er
talið að nefndin sjái neitt athuga-
vert við Rótarþátt esperantista.
Böm
og umhverfi
13.05 Á RÁS 1
Á dagskrá Rásar 1 í dag er þátt-
urinn I dagsins önn sem ber
þemaheitið Börn og umhverfi.
Umsjónarmaður er Asdís Skúla-
dóttir.
í dagskrárkynningu með þætt-
inum segir að nú þegar hafi verið
rætt um börn andspænis líkam-
le'gu og andlegu ofbeldi og börn
andspænis drykkjusýki foreldra
sinna. í næstu þáttum verður
fjallað um börn andspænis skiln-
aði foreldra sinna og enn sem
áður verður málið skoðað út frá
sjónarhóli barnanna, tilfinning-
um þeirra, sársauka og við-
brögðum við þessari staðreynd.
Á eftir hverjum þætti gefst
hlustendum kostur á að hringja
og bera fram spurningar sem
vakna og reynt verður að fjalla
um þær eins og mögulegt er. f>átt-
urinn er síðan endurfluttur nk.
þriðjudagskvöld kl. 20.40.
Lengstur
dagur
22.00 Á STÖÐ 2
Fyrri bíómynd kvöldsins á Stöð
2 er óskarsverðlaunamyndin
Lengstur dagur (The Longest
day) frá árinu 1962. Kvikmynda-
handbók Maltin's gefur mynd-
inni hæstu einkunn, eða fjórar
stjörnur.
Kvikmyndin segir frá innrás
Bandamanna í Normandí í júní
1944. Aðalhlutverk leika John
Wayne, Robert Mitchum, Henry
Fonda, Robert Ryan og Rod
Steiger, ásamt fjölmörgum öðr-
um stórleikurum. Leikstjóri er
Ken Annakin. Góða skemmtun.
Bítlarog
Uómaböm
21.30 Á STÖÐ 2
f kvöld sýnir Stöð 2 fyrsta þátt-
inn af sjö um tónlist og tíðaranda
bítlaáranna. Stöð 2 hefur látið
gera þætti um „týndu“ kynslóð-
ina sem teknir eru innan lands
sem utan. f þáttaröðinni er leitast
við að draga upp mynd af tímabi-
linu og margir til kvaddir. Um-
sjónarmaður þáttanna er Þor-
steinn Eggertsson.
Fyrsta íslenska hljómsveitin
sem lék hina umdeildu tónlist
voru Hljómar frá Keflavík, en í
kjölfar hennar komu sveitir eins
og Tónar, Óðmenn og ótal fleiri.
Tónlistarbyltingunni fylgdi ekki
síður mikil bylting í klæðaburði,
útliti og hugsunarhætti ungling-
anna; strákar söfnuðu hári og
gengu í háhæluðum skóm og full-
orðið fólk kvartaði undan því að
geta ekki greint kyn unglinganna
eftir útliti.
©
06.45 Veöurfregnir. Bæn, séra Ingólfur
Guðmundsson flytur.
07.00 Fréttir.
07.031 moraunsáriö meö Ragnheiði Ástu
09.00 Fróttir.
09.03 Morgunstund barnanna: „Húsiö á
sléttunni" eftir Lauru Inaalls Wllder.
09.30 Dagmál. Umsjón: Sigrún Björns-
dóttir.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð. Hermann Ragnar
Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón: Anna Ing-
ólfsdóttir. (Einnig útvarpað að loknum
fréttum á miðnætti).
12.00 Fréttayfirlit. Tónlist. Tilkynningar.
12.20 Hádeglsfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tón-
llst.
13.05 í dagsins önn - Börn og umhverf I.
Umsjón: Ásdís Skúladóttir. (Einnig út-
varpað nk. þriðjudagskvöld kl. 20.40).
13.35 Miðdegissagan: „Óskráðar minn-
Ingar Kötju Mann“.
14.05 Piöturnar minar. Umsjón: Margrét
Blöndal. (Frá Akureyri).
15.00 Fréttir.
15.03 Þingfréttir.
15.20 Landpösturinn - Frá Norðurlandl.
Umsjón: Gestur Einar Jónasson.
16.00 Fróttir.
16.03 Dagbók. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið - Tölvutónlist.
Rætt við helstu tölvuhljóðfæraleikara
landsins. Umsjón: Vernharður Linnet.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á sfðdegi - Sibelius og
Mozart. a.
18.03 Torgið - Úr atvinnulffinu. Umsjón:
Jón Gunnar Grjetarsson. Tónlist. Tilkýnn-
ingar. /
18.45 Veðurfregnir. /
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar. Daglegt m61/ Endur-
tekinn þáttur frá morgni. Að utan. Frétta-
þáttur um erlend málefnir-
20.00 Aðföng. Kynnt nýtt efni í hljómplötu-
og hljómdiskasafni Utvarpsins. Umsjón:
Mette Fanö. Aðstoðarmaður og lesari:
Sverrir Hólmarsson. (Endurtekinn þátt-
ur frá sunnudegi).
20.30 Frá tónlelkum Sinfóniuhljóm-
sveitar íslands I Háskólablól — Fyrri
hlutl.
21.20 „Siðastl dagur sumars", smásaga
eftlr lan McEwan. Ástráður Eysteins-
son þýddi.
22.20 Lestur Passíusálma. Séra Heimir
Steinsson les 4. sálm.
22.30 Að leita sannleikans um fortfðlna.
Um heiðni og kristni í sögunum „Jörð"
og „Hvíta Kristi'' eftir Gunnar Gunnars-
son og Gerplu Halldórs Laxness. Um-
sjón: Halla Kjartansdóttir. Lesari: Páll
Valsson. (Áður flutt 28. mars i fyrra).
23.10 Frá tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands i Háskólablói - Siðari
hluti.
24.10 Samhljómur. Umsjón: Anna Ing-
ólfsdóttir. (Endurtekinn þáttur frá
morgni).
01.00 Veðurfregnir. Næturútvarp á sam-
tengdum rásum til morguns.
01.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í
næturútvarpi. Veðurfregnir kl. 4.30.
07.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaút-
varp með fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og
fréttum kl. 8.00. Veðurfregnir kl. 8.15.
10.05 Mlðmorgunssyrpa. Einungis leikin
lög með íslenskum flytjendum, sagðar
fréttir af tónleikum innanlands um helg-
ina og kynntar nýútkomnar hljómplötur.
Umsjón: Kristín Björg Þorsteinsdóttir.
12.00 A hádegi.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milll mála. Umsjón: Skúli Helga-
son.
16.03 Dagskrá. Megrunarlögreglan (holl-
ustueftirlit dægurmálaútvarpsins) vísar
veginn til heilsusamlegra lífs á fimmta
tímanum og Meinhornið verður opnað
fyrir nöldurskjóður þjóðarinnar klukkan
að ganga sex. Sem endranær spjallað
um heima og geima.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Kvöldtónar. Ókynnt tónlist af ýmsu
tagi.
22.07 Af fingrum fram. Snorri Már Skúla-
son.
23.00 Er eitthvað að? Spurningaleikur i
tvpimur þáttum.
24:10 Vökudraumar.
JB1.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi I
næturútvarpi til morguns. Veðurfregnir
kl. 4.30. Fréttir kl. 2.00, 4.00, 5.00,
6.00,7.00,7.30,8.00,8.30,9.00,10.00,
11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00,
16.00, 17.00, 18.00, 19.00, 22.00 og
24.00
Svæðisútvarp á Rás 2...
08.07-08.30 Svæðisútvarp Norður-
lands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norður-
lands.
18.30-19.00 Svæðisútvarp Austur-
lands. Umsjón: Inga Rósa Þórðardóttir.
^C^ÚTVARP
11.30 Barnatími.
12.00 Fés. Unglingaþáttur.
12.30 Frá vfmu til veruleika.
13.00 Framhaldssaga Eyvindar Eirlks-
sonar.
13.30 Alþýðubandalagið.
14.00 SUJ
14.30 f Mlðneshelðni.
15.30 Elds er þörf
16.30 Úr fréttapotti.
17.00 Bókmenntir og llstir.
18.00 Kvennaútvarpið. Umsjón: Samtök
um kvennaathvarf, Kvennaráðgjöfin,
(slensk/lesbíska, Kvennalistinn, Vera,
Kvenréttindafélagið og Menningar- og
friðarsamtök íslenskra kvenna.
19.00 Tónafljót.
19.30 Barnatími.
20.00 Fés. Unglingaþáttur.
20.30 Dagskrá Esperantosambandsins.
Esperantokennsla og blandað efni flutt
á esperanto og islensku.
21.30 Samtökin ’78.
22.00 Framhaldssaga eftir Eyvind Eiríks-
son.
22.30 Umhverfið og við. Umsjón dag-
skrárhópur um umhverfismál á Útvarpi
Rót.
23.00 Rótardraugar.
07.00 Þorgeir Ástvaldsson. Lifleg og
þægileg tónlist, veður, færð og hagnýtar
upplýsingar auk frétta og viðtala sem
snerta málefni dagsins.
08.00 Fréttir.
09.00 Gunnlaugur Helgason. Góð tónlist
og Gunnlaugur rabbar við hlustendur.
10.00 og 12.00 Fréttir.
12.00 Hádeglsútvarp. Bjarni D. Jóns-
son. Bjarni Dagur veltir upp fréttnæmu
efni, innlendu jafnt sem erlendu í takt við
velvalda tónlist.
13.00 Helgl Rúnar Óskarsson. Leikið af
fingrum fram, með hæfilegri blöndu af
nýrri tónlist.
14.00 og 16.00 Frétlir.
16.00 Mannlegi þátturinn. Árni Magnús-
son leikur tónlist, talar við fólk um mál-
efni liðandi stundar.
18.00 Fréttir.
18.00 Islenskir tónar. Innlend dægurlög
að hætti hússins. Stillið á Stjörnuna.
19.00 Stjörnutiminn á FM 102.2 og 104.
Gullaldartónlistin í einn klukkutíma.
20.00 Siðkvöld á Stjörnunni. Gæðatón-
list leikin fyrir þig og þína.
00.00 Stjörnuvaktin til kl. 07.00.
07.00 Stefán Jökulsson og Morgun-
bylgjan. Góð morguntónlist hjá Stefáni,
hann tekur á móti gestum og lítur I morg-
unblöðin. Fréttir kl. 07.00, 08.00 og
09.00.
09.00 Páll Þorsteinsson á iéttum nótum.
Hressilegt morgunpoþp, gamalt og nýtt.
Fréttir kl. 10.00 og 11.00.
12.00 Hádegisfréttir.
12.10 Ásgeir Tómasson á hádegi. Létt
tónlist, gömlu. góður lögin og vinsælda-
listapopp I réttum hlutföllum. Saga
dagsins rakin kl. 13.30. Fréttir kl.
13.00, 14.00 og 15.00.
15.00 Pétur Steinn Guðmundsson og
sfðdegisbylgjan. Rétur Steinn leggur
áherslu á góða tónlist í lok vinnudags-
ins. Litið á helstu vinsældalistana kl.
15.30. Fréttir kl. 16.00 og 17.00.
18.00 Hallgrímur Thorsteinsson f
Reykjavik síðdegis. Kvöldfréttatími
Bylgjunnar. Hallgrímur lítur á fróttir
dagsins með fólkinu sem kemur við
sögu.
19.00 Anna Björk Birglsdóttir. Bylgju-
kvöldið hafið með góðri tónlist. Fréttir
kl. 19.00.
21.00 Júllus Brjánsson - Fyrir neðan
nefið. Július fær góðan gest í spjall.
24.00 Nætudagskrá Bylgjunnar - Felix
Bergsson til kl. 07.00.
17.50 Ritmálsfréttir.
18.00 Stundin okkar. Endursýndur þáttur
frá 31. janúar.
18.30 Anna og fólagar. Nýr ítalskur
myndaflokkur fyrir börn og unglinga.
Anna er 12 ára gömul og býr hjá ömmu
sinni. Hún eignast tvo góða vini og sam-
an lenda þau í ýmsum ævintýrum.
18.55 Fréttaágrip og táknmálsfróttir.
19.05 Iþróttasyrpa. Umsjónarmaður Arn-
ar Björnsson.
19.25 Austurbæíngar. (EastEnders)
Breskur myndaflokkur í léttum dúr.
20.00 Fróttlr og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Kastljós. Þáttur um innlend málefni.
21.15 Matlock. Bandarískur myndaflokk-
ur. Aðalhlutverk Andy Griffith, Linda
Purl og Kene Holliday.
22.05 Veturvist í Afganistan. (A Winter in
Herat). Sænskur sjónvarpsmaður
dvaldist með skæruliðum í Afganistan í
sex mánuði. Myndin er um þennan tíma
og þykir einstök í sinni röð.
22.45 Utvarpsfréttir f dagskrárlok.
16.45 # Líf í tuskunum. What's up Doc?
Gamanmynd um rólyndan tónlistar-
mann og stúlku sem á einstaklega
auðvelt með að koma fólki í klandur.
Aðalhlutverk: Barbra Streisand og Ryan
O'Neil. Leikstjóri: Peter Bogdanovich.
Framleiðandi: PeterBogdanovich. Þýð-
andi: Örnólfur Árnason. Warner Bros
1972. Sýningartími 95 mín.
18.20 # Litli Folinn og félagar. My Little
Pony and Friends. Teiknimynd með ís-
lensku tali. Leikraddir: Guðrún Þórðar-
dóttir, Júlíus Brjánsson og Saga Jóns-
dóttir. Þýðandi: Ástráður Haraldsson.
Sunbow Productions.
18.45 Handknattieikur. Sýnt frá helstu
mótum í handknattleik. Umsjón: Arna
Steinsen og Heimir Karlsson.
19.19 19:19 Klukkustundar langur þáttur
með fréttum og fréttaumfjöllun.
20.30 Skíðakennsla. Þulur er Heimir
Karlsson. Lanting, Wieling og partners.
20.40 Bjargvætturinn. Equalizer. Spenn-
andi sakamálaþáttur með Edward Woo-
dward í aðalhlutverki. Þýðandi: Ingunn
Ingólfsdóttir. Universal.
21.30 # Bítlar og blómabörn. Umsjónar-
maður er Þorsteinn Eggertsson. Stöð 2.
22.00 Lengstur dagur. The Longest Day.
Áhrifamikil stríðsmynd sem segir f rá að-
draganda innrásinnar í Normandi í júní
1944. Aðalhlutverk: John Wayne, Ro-
bert Mitchum, Henry Fonda o.fl. Leik-
stjóri: Ken Annakin. Framleiðandi: Darr-
yl F. Zanuck. 20th Century Fox 1962.
Sýningartími 170 mín.
01.00 Giftingarhugleiðingar frú Delafl-
eld. Mrs. Delafield Wants to Marry.
Auðug ekkja verður ástfangin af heimil-
islækni sínum. Ástarævintýrið verður að
fjölskyldumáli þegar uppkomin börn
hennar reyna að koma í veg fyrir sam-
drátt hjónaleysanna. Aðalhlutverk: Kat-
harine Hepburn, Harold Gould, Den-
, hom Elliott og Brenda Forbes. Leik-
stjóri: Gorge Schaefer. Framleiðandi:
Merril H. Karpf. Þýðandi: Svavar Lárus-
son. Gaylord 1986. Sýningartlmi 95
mín.
02.35 Dagskrárlok.
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 4. febrúar 1988