Þjóðviljinn - 04.02.1988, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöidsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓÐVIUIN
I
Fimmtudagur 4. febrúar 1988 27. tölublað 53. örgangur
Sparisjóösvextir
á téKKareiKninga
meö
hávaxtaKjörum
SAMVINNUBANKI
ISLANDS HF
Kynferðisafbrot
Landflutningar á fiski
40 kæmr
vegna bama
Á síðasta árl bárust
Rannsóknarlögreglu ríkisins 40
kærur vegna kynferðisafbrota
gagnvart börnum undir 16 ára
aldri, af þeim voru 11 mál send til
ákvörðunar ríkissaksóknara.
Þetta kemur fram í svari
dómsmálaráðherra við fyrir-
spurn Salome Þorkelsdóttur.
Yngsta barnið sem kært er
vegna er fætt árið 1982 og er þar
kært vegna skírlífisbrots, en flest-
ar kærumar eru vegna skírlífis-
brota, eða 18 talsins. Þá bárust
RLR tvær kærur vegna sifjasp-
ellsbrota, en önnur þeirra var
vegna gruns um slíkt brot. Tvær
af kærunum eru vegna Svefn-
eyjamálsins svokallaða.
Af þessum 40 kærum eru 17 af
málunum upplýst.
í svari dómsmálaráðherra
fylgja einnig kærur hjá flestum
lögsagnarumdæmum fyrir tíma-
bilið 1984-1987. Þar kemur fram
að í Kópavogi var kært vegna
fimm mála vegna kynferðisaf-
brota gegn börnum. Á Siglufirði
var sami maður kærður í tvígang í
janúar í fyrra en þeim málum
lauk með dómssátt í júlí. Ein
kæra kom í eftirfarandi lögsagn-
arumdæmum, ísafjarðarsýslu,
Húnavatnssýslu, Rangárvalla-
sýslu, Strandasýslu, Vestur-
Skaftafellssýslu og í Keflavík.
Tveimur af þeim málum lauk
með dómsátt.
-Sáf
Ríkisendurskoðun
Alþingi opni
sjúklinga-
bokhald
Úrskurður borgarfógeta um að
ríkisendurskoðun skuli ekki fá að
skoða sj úklingabókhald veikir
eftirlitshlutverk ríkisendurskoð-
unar, að mati Halldórs V. Sig-
urðssonar, ríkisendurskoðanda.
Segir hann hugsanlegt að Alþingi
setji skýr ákvæði um eftirlitsrétt í
lögin um rlkisendurskoðun.
Tildrög málsins eru að í des-
ember neitaði yfirlæknir Heilsu-
gæslustöðvarinnar í Árbæ starfs-
mönnum Tryggingastofnunar
ríkisins um aðgang að sjúkra-
skrám stöðvarinnar. Trygginga-
stofnun vildi skoða sjúklingabók-
ald eins læknis, því reikiningar
frá honum þóttu háir borið sam-
an við aðra heilsugæslulækna en
var synjað um aðgang að gögnu-
num þar sem sjúkraskrár væru
trúnaðarmál milli viðkomandi
læknis og sjúklings. Dómur borg-
arfógeta tekur enga afstöðu til
þeirra raka, heldur byggir hann á
túlkun á lögum um ríkisendur-
skoðun.
Ríkið greiðir gífurlegar upp-
hæðir árlega út á reikninga frá
læknum til Tryggingastofnunar
og sjúkrasamlaga. Halldór V.
Sigurðson, telur að á þessu ári
megi gera ráð fyrir að um
milljarður fari í greiðslu slíkra
reikninga. Hér er um almannafé
að ræða og ekki óeðlilegt að
fylgst sé með því að einungis sé
borgað fyrir unnið verk. Þegar
hafa verið höfðuð þrjú mál á
hendur læknum, sem svikið hafa
út fé með fölsuðum reikningum.
mj
Vítaverð skemmdaiveik
Vinnuveitendur við Breiðafjörð: Skorar á Ríkismat sjávarafurða að stöðva þessa
óheillaþróun. HalldórÁrnason, forstöðumaður: Höfum gert ítrekaðar
athugasemdir. Gerum allt sem í okkar valdi stendur
að eru fjölmörg dæmi um það
í gegnum tíðina og nú síðast á
vertíðinni f fyrra, að fiskur er
fluttur landleiðina suður til
vinnslu, án þess að nokkuð sé hirt
um að varðveita gæði hans. Eg
hef mætt stórum vörubflum,
drekkhlöðnum af óslægðum flski,
fullan af átu á leið suður. Það
segir sig sjálft að hér er vísvitandi
verið að skemma þetta dýrmæta
hráefni“, segir Hermann Hjart-
arsson, forstjóri Stakkholts hf. í
Ólafsvik við Þjóðviljann.
Fyrir skömmu sendi Vinnu-
veitendafélag Breiðafjarðar frá
sér ályktun til Ríkismats sjávar-
afurða, þar sem skorað er á matið
að stöðva þessa óheillaþróun nú
strax, fyrir komandi vetrarvertíð.
Eða eins og segir í ályktuninni:
„Ljóst er að þarna er um vítaverð
skemmdarverk að ræða, þegar
sameiginleg auðlind þjóðarinnar
er vísvitandi gerð að verðlausri
vöru“.
Að sögn Halldórs Árnasonar,
forstöðumanns Ríkismats sjávar-
afurða, hefur matið gert ítrekað-
ar athugasemdir við landflutn-
inga á fiski á lengri leiðum. Sagði
Halldór við Þjóðviljann að það
hafi oftlega komið fyrir að fiskur
hafi skemmst eða jafnvel eyði-
lagst í þessum ferðum. Hann
sagði jafnframt að þessir flutn-
ingar væru aðallega þegar afla-
hrotur væru og menn sæju sig
knúna til að bjarga fiskinum fyrir
hom, þar sem þeir hefðu ekki
undan að vinna hann.
„Sem betur fer, eru menn farn-
ir að huga betur að gæðum fisks-
ins nú en áður, en samt er þessi
ábending frá Vinnuveitendum
við Breiðafjörð þörf og við mun-
um að sjálfsögðu gera allt sem í
okkar valdi er til að koma í veg
fyrir að fiskurinn sé vísvitandi
skemmdur. Þetta mál snertir ekki
aðeins fiskflutninga frá Breiða-
firði, heldur úti um allt land“,
sagði Halldór Árnason, hjá Rík-
ismati sjávarafurða.
-grh
Þessir þrír heiðursmenn skoraáallan almenningaðgefaífjársöfnuninank. sunnudag7. febrúaráBiblíudaginn. Frá
vinstri: Einar J. Gíslason frá Hvítasunnusöfnuðinum, sr. Pétur Sigurgeirsson, biskup og Óskar Jónsson frá Hjálpræðis-
hernum. Mynd: E. Ól.
Biblíudagur
Biblíur
tilRússa
Á Biblíudaginn, 7. febrúar nk.,
fer fram almenn fjársöfnun við
guðþjónustur og samkomur I
kirkjum landsins og í hinum ýmsu
kristilegu félögum, fyrir Biblíum
sem senda á til Sovétríkjanna.
Þarlend stjórnvöld hafa heimilað
prentun og innflutning á 235 þús-
und Biblíum og 105 þúsund
skýringarritum á henni, vegna
1000 ára afmælis kristni þar í
landi I ár.
Það eru kirkjur á Norður-
löndum ásamt þarlendum Biblíu-
félögum sem hafa fengið leyfi til
þessa. Stefnt er að því að á sunnu-
daginn nk. náist að safna 1
milljón króna, sem er nálægt 1%
af heildarkostnaði norrænu gjaf-
arinnar fyrirhuguðu, en íslend-
ingar eru 247 þúsund talsins, eða
um 1% íbúa Norðurlandanna.
Um áratugi hefur Biblían verið
fágæt bók í Sovétríkjunum. Talið
er að 60 - 70 milljónir manna þar
telji sig kristna, auk fjölda kristi-
legs sinnaðs fólks, enda er mikill
skortur á trúarbók kristinna
manna þar í landi. -grh
Borgarstjórn
Úttekt á rekstri borgarinnar
Stjórnarandstaðan sameinuð í tillöguflutningi við afgreiðslufjárhagsáœtlunar í borgarstjórn í kvöld
Stjórnarandstaðan I borgar-
stjórn leggur fram í dag í
borgarstjórn sína eigin fjárhagsá-
ætlun þar sem lögð er áhersla á að
verja fjárinunum borgarinnar á
þessu ári til stórbættrar aðstöðu
fyrir börn, unglinga og aldraða í
stað þess að setja nær 300 miljón-
ir I ráðhússbyggingu og veitinga-
hús Hitaveitunnar I Öskjuhlíð
eins og fjárhagsáæltun Sjálfstæð-
isflokksins gerir ráð fyrir.
Meðal þeirra tillagna sem full-
trúar Alþýðubandalags, Alþýðu-
flokks, Framsóknarflokks og
Kvennalista leggja fram, er að
fengnir verði viðurkenndir sér-
fræðingar I hagræðingarmálum til
að gera heildarúttekt á rekstri
Reykjavíkurborgar og geri jafn-
framt tillögur um endurbætur á
skipulagi, stjórnun og rekstri
borgarinnar. Stjómarandstæð-
ingar segja að mikil þörf sé á að
taka allan rekstur borgarinnar til
gagngerðrar endurskoðunar, en
óeðlilega mikil yfirvinna, sem
lítið breytist frá ári til árs, bendi
til skorts á aðhaldi og virkri
stjórnun.
Þeim fjármunum sem Sjálf-
stæðismenn vilja setja í ráðhús og
veitingahús í Öskjuhlíð vill
stjórnarandstaðan m.a. verja í B-
álmu Borgarspítalans og hækka
framlög þangað um nær 65 milj-
ónir. Hafnar verði þegar fram-
kvæmdir við nýtt hjúkrunarheim-
ili fyrir aldraða. 5 ára áætlun
verði í stóruppbyggingu dagvist-
arheimila í borginni og varið til
þess 160 miljónum í ár og sú upp-
hæð látin halda fullu raungiidi
næstu 4 ár og varið verði 50 milj-
ónum til kaupa á leiguíbúðum.
Einnig að komið verði upp
unglingahúsi í miðbæ borgarinn-
ar, keypt hús í Grafarvogi fyrir
æskulýðsstarf, komið upp fé-
lagsmiðstöð fyrir börn og ung-
linga í Seljahverfi, svo nokkrar
tillögur í fjárhagsáæltun stjómar-
andstöðunnar séu nefndar.
-Jg-