Þjóðviljinn - 26.02.1988, Síða 8
HEIMURINN
Kasparov heimsmeistari:
Mína beshi slcák
hefi ég enn ekki teflt
Iviðtali við sovéska dagblaðið
Ízvestía visar Kasparov
heimsmeistari í skák á bug ásök-
unum um að hann sé einskonar
Kortsnoj, einskonar „andófs-
maður i skák“. Hann gagnrýnir
bæði forystumenn i sovésku skák-
lífi og FIDE og setur nyög traust
sitt á þau alþjóðlegu samtök stór-
meistara sem hann hefur mjög
vasast i að stofna.
Blaðamaður Ízvestía spurði
Kasparov m.a. á þá leið, hvort
ekki væri tími til þess kominn að
helstu höfðingjar sovéska skák-
heimsins sættust, en eins og
kunnugt er hefur Kasparov eldað
grátt silfur við Karpov fyrrum
heimsmeistara og verndara hans í
sovéska skáksambandinu. Kasp-
arov svarar á þá leið, að hér sé
nokkuð seint í rassinn gripið.
Enginn hafi boðið honum frið
þegar þeir, sem þóttust hafa
skákina að léni, reyndu „að eyði-
leggja mig sem persónu" og
koma í veg fyrir það með öllum
ráðum að hann ætti möguleika á
að verða heimsmeistari.
Pólitískar ásakanir
Kapsarov gagnrýnir Karpov og
aðstoðarmann hans Batúrinski
fyrir að hafa látið að því að liggja
að með umdeildri bók um sinn
skákferil og baráttu hafi Kaspar-
ov gerst andófsmaður, einskonar
Kortsnoj. Með þessu segir Kasp-
arov er verið að særa heiður minn
sem sovésks þegns og sem kom-
múnista. Hann segir að margir
fordæmi bók sína án þess að hafa
lesið hana (hún var töluð á ensku
inn á segulband fyrir breskt út-
gáfufyrirtæki og hefur ekki kom-
ið út í Sovétríkjunum). f henni
tali hann vissulega um margt sem
ekki var áður hægt að ræða, en
allt sé það í anda glasnost, hinnar
opnu umræðu Gorbatsjovtíma.
Kasparov ræðir í viðtalinu þá
staðreynd að færri sovéskir skák-
menn komast nú í hóp allra
íremstu manna en áður „þegar
við gátum alltaf unnið hvern sem
var“. Hann sakar forystumenn í
sovéskum skákheimi um dáð-
leysi, þeir reyni að lifa á fornri
frægð þegar „við vorum næstum
því eina landið þar sem skák naut
opinbers stuðnings". Síðan hafa
komið til skjalanna ný skákveldi,
segir Kasparov, og nefnir sér-
staklega miklar framfarir í ensku
skáklífi. Og á meðan hafa verið
uppi hugmyndir hér í Sovétríkj-
unum, segir heimsmeistarinn,
um að loka þeim sérskólum fyrir
efnileg börn og unglinga þar sem
um 1000 nemendur nutu bestu
fáanlegrar tilsagnar í skák. Sem
betur fór, segir hann, tókst að
bjarga skólunum - en samt var
fækkað í þeim, starfsemi þeirra
var dregin saman.
Kasparov lýsir sig í viðtalinu
andvígan ýmsu því sem FIDE
hefur á prjónunum og segir að
stefni að því að fjölga mjög stór-
meisturunum. Hann telur var-
hugavert að gengisfella stór-
meistaratitilinn með þeim hætti.
Setur hann að því er varðar fram-
tíð skáklistar mjög traust sitt á
Kasparov: Ettir 120 skákir við Karpov var ég alveg tómur...
það stórmeistarasamband sem
hann hefur verið að koma á fót -
en til liðs við það hafa nú gengið
um 50 af þeim 80 stórmeisturum
sem Sovétríkin eiga og alls 130 af
250 „virkum stórmeisturum“ í
heiminum.
Þreyttur eftir
maraþonslag
Kasparov kvartar í viðtalinu
mjög yfir því að hin langa og
flókna barátta milli þeirri Karp-
ovs um heimsmeistaratitilinn hafi
gengið nærri hans kröftum - en
hún stóð alls í fjörtíu mánuði og
leiknar voru alls hundrað og tut-
tugu skákir. Engu líkara, segir
hann, en að FIDE vildi að við
spryngjum á því maraþonhlaupi.
Stundum finnst mér, segir
heimsmeistarinn að lokum, að ég
sé hættur að láta mér detta nokk-
uð nýtt í hug og það er afieitt. En
ég vil tefla betur - ég er sann-
færður um að mína bestu skák á
ég enn óteflda.
AB endursagði
- firnafeitur og á leiðinni yfir fjórar milljónir!
Á síðustu tveimur vikum hefur engin röð komið fram með tólf réttum.
Spáðu því vandlega í liðin og spilaðu með af þreföldum krafti,
- núna getur þekkingin fært þér milljónir!
ISLENSKAR GETRAUNIR
- eini lukkupotturinn þar sem þekking
margfaldar vinningslíkur.
-------------x----------------
Hægt er að spá í leikina símleiðis og
greiða fyrir með kreditkorti.
Þessi þjónusta er veitt alla
föstudagafrá kl. 9:00-17:00
og laugardaga frá kl. 9:00-13:30.
Síminn er 688 322
Upplýsingarum úrslit í síma 84590.