Þjóðviljinn - 06.03.1988, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 06.03.1988, Qupperneq 10
Bjami Thorarensen skáld og einn helsti fulltrúi þjóðernisrómantíkur í sjálfstæð- isbaráttu fslendinga á 19. öldinni. „Hið undarlega sambland af borgaralegri 19. aldar þjóðernisrómantík og Al- baníukommúnisma sem virðist lifa með sumumfé- lögum Alþýðubandalags- ins er vísasta leiðin til þess að gera flokkinn að þeim sértrúarsöfnuði sem þau Birna Þórðardóttir og Jón Torfason virðast hafa svo mikla þörf fyrir... “ ÓLAFUR GfSLASON Enver Hoxha, leiðtogi Albaníu og helsti fulltrúi hreinlífisstefnu og einangrunar- hyggju í heimshreyfingu kommúnista. Þann 8. janúar síðastliðinn skrifaði ég grein hér í biaðið, þar sem vakin var athygli á nokkrum spurningum um utanríkismál, sem Svavar Gestsson hafði bryddað á í viðtali við Þjóðviljann fyrirára- mótin. Setti ég þarfram nokkraraðkallandi spurning- ar um utanríkis- og öryggis- málastefnu Alþýðubanda- lagsins. Þótt grein þessi hafi greinilega valdið nokkrum titringi og við- brögðum, þá ollu viðbrögð þau sem fram komu hér í blaðinu mér nokkrum vonbrigðum, en þó fyrst og fremst furðu. Því allir þeir sem töldu sig vera að svara grein minni Ieiddu meðvitað eða ómeðvitað hjá sér þær spumingar sem þar vom lagðar fram, að ég held á einföldu og ským máli. Þessar spurningar vörðuðu brottför Bandaríkjahers frá ís- landi og úrsögn íslands úr NATO, eða öllu heldur í hvaða alþjóðlega samhengi Alþýðu- bandalagið hugsaði sér þessi stefnumál, hver væri framtíðar- sýn þess og hvernig stefna þess samræmdist nýjum aðstæðum í samskiptum austurs og vesturs. Vígbúnaðar- eftirlitið og herstöðin Ég benti á það í grein minni að þróunin í samskiptum austurs og vesturs væri á góðri leið með að gera vígbúnaðareftirlitið að mik- ilvægari öryggisþætti en sjálf vopnin og varpaði fram þeirri spurningu hvort það gæti verið heppilegt framlag fslands til friðar og öryggis í heiminum að allt vígbúnaðareftirlit yrði lagt niður hér á landi, eða hvort taka ætti upp samvinnu við aðra aðila en Bandaríkjamenn um fram- kvæmd slíks eftirlits. Hvers vegna hefur enginn af þeim sem svöruðu tilskrifum mínum, ekki einu sinni Svavar Gestsson, treyst sér til þess að svara þessari spurningu? Alþýðubandalagið hefur að minnsta kosti í orði fylgt þeirri stefnu að Norðurlöndin yrðu lýst kjamorkuvopnalaust svæði með samningum sem tryggðir yrðu af kjarnorkuveldunum og hemað- arblokkunum báðum. Ljóst er að slíkt samkomulag verður ekki gert nema fram fari eftirlit með framkvæmd þess frá íslandi. Hver á að framkvæma slíkt eftir- lit? Hvernig hugsar Alþýðubanda- lagið sér að væntanlegu samkomulagi hemaðarblokk- anna um takmörkun vígbúnaðar í Norðurhöfum verði framfylgt? Er það liður í „víðtækari þátttöku í að tryggja öryggi og frið“ eins og Svavar Gestsson orðaði það, að girða fyrir allt slíkt eftirlit hér á landi? Ég held að enginn geti af heil- indum svarað slíkri spumingu játandi, og það er með ólíkindum að innan Alþýðubandalagsins skuii það vera talið tilefni brigsl- yrða um svik að vekja athygli á jafn augljósum vanda sem stafar einfaldlega af landfræðilegri stöðu íslands í Norður-Atlants- hafinu miðju. Ég vil hins vegar halda því fram að þeir sem halda fram kröfunni um brottför hers- ins án þess að svo mikið sem huga að því hvert framhaldið skuli vera geri sig seka um annað af tvennu: hreina glópsku, eða þá að krafan sé alls ekki meint í alvöru, heldur sé hún bara upp á punt. Inf-samning- urinn og Evrópa Annað atriði sem ég vakti at- hygli á í grein minni og hafði komið fram í viðtalinu við Svavar Gestsson fyrir áramótin voru þau breyttu viðhorf sem skapast hafa með samningum stórveldanna um eyðingu allra meðaldrægra kjarnorkuvopna. Þótt Bima Þórðardóttir virðist ekki hafa frétt af þessum samningum (sbr. grein hennar „Er nokkuð nýtt í NATO?“), þá gerði Svavar Gestsson sér grein fyrir því að þessir samningar marka tímamót í samskiptum austurs og vesturs og að þeir munu hafa mótandi áhrif á alla öryggismálaumræðu í framtíðinni. Þessir samningar, sagði Svavar, „opna fyrir nýjum viðhorfum og nýjum mögu- leikum, einnig fyrir okkur sem smáþjóð, og geta haft í för með sér að við þurfum að nálgast Evr- ópu markvissar en við höfum gert til þessa. Bæði til þess að koma í veg fyrir að annað hvort stórveld- ið gleypi okkur - eða þau bæði I sameiginlega - og einnig til þess; að taka þátt í því að styrkja V- j Evrópu almennt í alþjóðlegu samhengi.“ Það sem Svavar á væntanlega j við með þessum orðum er að ör- yggishagsmunir okkar fari að ein-! hverju leyti saman með ná-i grannaþjóðum okkar í V-Evrópu og þá jafnframt að Inf-samning- urinn um brottflutning banda- rísku meðaldrægu eldflauganna frá Evrópu hafi orðið til þess að í þrýsta Evrópuþjóðunum frekar saman í kröfunni um áframhald-, andi afvopnun og slökun spennu. Og að Alþýðubandalagið eigi að taka þátt í því að styrkja þennan sameiginlega vilja. Alþjóðahyggja eða þjóðernis- hyggja Með þessu er jafnframt gengið út frá því að grundvöllur öryggis- 10 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 6. mars 1988 og utanríkisstefnunnar sé alþjóð- legur en ekki þjóðlegur, og að þau markmið sem hún beri að stefna að séu áframhaldandi af- vopnun og slökun spennu. En það þýðir jafnframt að sagt yrði skilið við þá þjóðemisrómantík sem löngum hefur verið rík í Al- þýðubandalaginu og rekja má allt aftur til Bjama Thorarensen og sjálfstæðisbaráttunnar á 19. öld- inni. Bjarni Thorarensen taidi ís- landi best vöm búin í úfnu hafinu allt í kring og einangmn þess langt í norðri. Nú emm við í þjóðbraut vopnanna og þessar röksemdir duga ekki í öryggis- málaumræðu 20. aldarinnar. í grein minni benti ég á að fljótt á litið virtist það þversögn að ætla sér að gera það tvennt í einu að styrkja V-Evrópu í alþjóðlegu samhengi og um leið að segja skilið við NATO og girða fyrir allt vígbúnaðareftirlit í N- Atlantshafinu. Ekki síst á tímum þegar loksins virðist vera kominn samningsgrundvöllur fyrir hem- aðarblokkirnar um frekari fækk- un vopna og virkara vígbúnaðar- eftirlit. Það kann að vera að þetta sé ekki þversögn, en hvorki í viðtal- inu né í síðari skrifum sínum hér í blaðinu hefur Svavar Gestsson leyst úr þessari spurningu. Að vísu sagði Svavar í grein sinni frá 25. janúar að hinar breyttu að- stæður væra enn frekari röksemd fyrir réttmæti kröfunnar um úr- sögn úr NATO, og að hún væri „í betra samræmi við þróunina en nokkrar aðrar tillögur sem uppi eru í alþjóðamálum". Þessi fullyrðing skýrir sig ekki sjálf, og sjálfum finnst mér Svav- ar vera þarna að falla ofan í hug- myndaheim Bjama Thorarensen og missa af því meginmarkmiði sem utanríkisstefnan hlýtur alltaf að hafa að leiðarljósi: raunvem- legan árangur í eyðingu vopna og minnkun spennu. Ég held til dæmis að tillögur þær sem komið hafa fram innan NATO og Var- sjárbandalagsins um eyðingu allra skammdrægra kjarnorku- vopna séu í betra samræmi við þróunina. Eða tillögur um sam- drátt og jafnvægi í hefðbundnum herafla í Evrópu. Og það er alls ekki sjálfgefið að úrsögn íslands úr NATO við núverandi aðstæð- ur yrði til þess failin að hrinda þeim mikilvægu áföngum til friðvænlegri heims í framkvæmd. Hins vegar má færa fyrir því sterk rök að frekari árangur í samning- um hernaðarblokkanna um af- vopnun og slökun spennu sé for- senda þess að hernaðarbandalög- in verði í framtíðinni úrelt eða það breytt að við geti tekið nýtt öryggiskerfi, þar sem hvort tveggja sé betur tryggt en nú, fullveldi þjóðanna og samvinna þeirra á milli. Á grundvelli sam- eiginlegra öryggishagsmuna. Það þarf ekki að fjölyrða um það hér í blaðinu hvemig Banda- ríkin hafa á undangengnum ára- tugum notfært sér Atlantshafs- bandalagið í þeim tilgangi að kynda undir vígbúnaðarkapp- hlaúpinu á kostnað Evrópuríkj- anna. Það hefur gerst í krafti þess að Evrópa hefur verið sjálfri sér sundurþykk og í sárum eftir heimsstyrjöldina síðari. Nú em teikn á lofti um að þarna sé að verða á breyting. Ein forsenda hennar er efling Evrópubanda- lagsins. Önnur er þau breyttu viðhorf sem nú eru uppi í Sovét- ríkjunum og hafa til dæmis gert Inf-samninginn um eyðingu með- aldrægu kjamorkuvopnanna mögulegan. Þriðja og afdrifarík- asta forsendan er kannski sú að nú er komin fram ný kynslóð í álfunni sem er ekki mótuð af styrjaldarámnum að sama skapi og sú sem kynti undir kalda strið- inu. Hvarvetna í álfunni tala menn nú um nauðsyn samstöðu og sámvinnu, og þótt forsendurn- ar séu auðvitað misjafnar, þá væri það glópska að taka ekki mið af þessum breyttu viðhorf- um. í reynd komu þessi breyttu viðhorf fram á NATO-fundinum í Briissel í vikunni þar sem Frakk- ar og V-Þjóðverjar komu í veg fyrir að NATO hrynti í fram- kvæmd endurnýjun skamm- drægu eldflauganna í álfunni, svo dæmi sé tekið. Meginatriðið í þessu máli er þó það, að ef afvopnunarmálin hafa forgang í utanríkismálaumræð- unni, þá eigum við að reka herinn og segja okkur úr NATO þegar það er tryggt að slíkar aðgerðir verði til þess að frekari árangur náist á þeim vettvangi. En verði ekki fundið samband þar á milji eigum við að taka þessar kröfur til endurskoðunar eða endur- mótunar í ljósi þess yfirlýsta mar- kmiðs að raunvemleg gagnkvæm afvopnun og tryggt vígbúnaða- reftirlit njóti forgangs í utanríkis- stefnu Alþýðubandalagsins. NATO-ferðin til Brussel Ég þykist vita að þessum skrif- um mínum muni fylgja enn frek- ari brigslyrði um svik og að doll- ararnir frá Menningarstofnun Bandaríkjanna hafi endanlega komið mér á mála hjá þeirri stofnun. Að ég hafi verið heila- þveginn í NATO-ferðinni til Brussel. En för mín til Brussel varð ekki til þess að breyta við- horfum mínum til þessara mála. Hins vegar varð ferð mín til þess til dæmis, að við vitum nú að NATO hefur það á 10 ára starfs- áætlun sinni að byggja 5 langd- rægar ratsjárstöðvar á íslandi. Og að á vegum Framkvæmda- sjóðs NATO er nú starfandi nefnd sem er að vinna að áætlun um lagningu nýs herflugvallar á íslandi. Heimsókn mín varð einnig til þess að það upplýstist frá trúverðugum heimildum að íslensk stjómvöld komu í veg fyrir það að ritstjóri Þjóðviljans fengi að fylgja öðmm íslenskum blaðamönnum inn í höfuðstöðvar NATO fyrir 4 ámm. Og hún varð einnig til þess að við vitum það nú að íslenskir fjölmiðlar, þar á meðai Ríkisútvarpið, þiggja og hafa þegið peninga frá Menning- arstofnun Bandaríkjanna í kynn- isferðum sínum til Brussel gegn- um árin. Og svo hefur það einnig komið í ljós að ferðir þessar virðast feimnismál fyrir alla fjölmiðla nema Þjóðviljann. Albanfu- kommúnismi og þjóðernisrómantík Ef Alþýðubandalagið ætlar að halda áfram að stinga höfðinu í sandinn þegar horfast þarf í augu við raunvemleikann, eða horfa bara til fortíðarinnar eins og Bima Þórðardóttir og Jón Torfa- son og nota ásakanir um svik í staðinn fyrir rök, þá þykir mér ljóst að hlutur flokksins í því mik- ilvæga verkefni að koma á frið- vænlegri heimi verður vart annað en hlutur dragbítsins. Með slíku háttarlagi dæmir flokkurinn sig úr leik í allri alvarlegri umræðu um þessi mál. Þar með missir hann einnig möguleika til að hafa áhrif á gang þeirra. íslenska þjóðin er ekki það skyni skroppin að hún átti sig ekki á því að það er ekki hægt að loka herstöðinni hér ef ekki er um leið hugað að því hvert framhaldið á að vera og hvemig framkvæma eigi það víg- búnaðareftirlit sem við emm nánast dæmd til að taka á okkur þó ekki væri nema af Iandfræði- legum ástæðum. Og það undar- lega sambland af Albaníu-kommúnisma og borg- aralegri 19. aldar þjóðernisróm- antík, sem birst hefur í skrifum sumra um þessi mál hér á síðum blaðsins, er ömgglega vísasta leiðin til þess að gera Alþýðu- bandalagið að þeim sértrúars- öfnuði sem þau Birna Þórðar- dóttir og Jón Torfason virðast hafa svo ríka þörf fyrir. Nei, góðir félagar, nú skulum við hafa umræðuna hreinskilna og umfram allt málefnalega! Full lenglna og útvíkkunbeina á sér oftaststað til20 ára aldurs. Mesta vaxtarskeið drengja er í kringum 12-14 ára aldurinn og stúlkna um 10-12 ára. w s ■ólksem hreyfir sigmikið hefurmeiri beinmassa á efri árum enþeirsem hreyfa sig lítið. Þéttni og bykkt beinaeykst þar til um fertugsaldur. Mikilvægt erað bein hafi náð fullum styrk og þroska þegar úrkölkun ágerist. Einnig verðurað gæta þess að fá nægilegt kalk úr fæðunni til að hamla á móti beingisnun. VIð eðlllegar aðstæðurgetur mjólk dregið úr tannskemmd- um. Hið háa hlutfall kaiks, fosfórs og magnium er verndandi fyrir tennurnar. \ beinabygging verði eðlileg þarf hlutfall hinna ýmsu steinefna í fæðunniað vera rétt. í mjólk eru þessi hlutföll mjög hagstæð. Hvernig ertu inn við beinið? Hefurðu hugsað út í þaðað beinin eru kalkbanki líkamans-banki sem er í stöðugri endumýjun, líka á fullorðinsárum. Ef líkaminn fær ekki nægilegt kalk úrfæðunni gengur hann áforða kalkbankans og úrkölkun beina (beingisnun) á sér stað. Þess vegna er afar mikilvægt að tryggja sér nægilegt magn af kalki úr fæðunni alla ævi. Mjólkog mjólkurvörureru lang mikilvægasti kalkgjafinn og alhliða næringargildi mjólkurinnar er með því besta sem við þekkjum. Kalkþörfin er mismunandi eftir kyni og aldri frá 2-4 mjólkurglös á dag.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.