Þjóðviljinn - 06.03.1988, Síða 12
Áhugi SÍS
gufaði upp
SÍS kom ekki Smárahvammi inn á landakortið. VarSÍS að hóta því
að flytja í Kópavog til að ná fram kröfum sínum í Reykjavík? KRON
fœrlóð undir stórmarkað ÍKópavogi
Hefurbæjarstjórn Kópavogs,
undirforystu Alþýðubanda-
lagsmanna, gengið í sveit
meðfrjálshyggjuliðinu sem
vill samvinnuhreyfinguna
feiga? Brá bæjarstjórn fæti
fyrir S(S þegar Kópavogsbær
var látinn neyta forkaupsrétt-
araðSmárahvammslandi?
Er það ekki ábyrgðarhluti að
ýta frá sér stórfyrirtæki á borð
við Sambandið þegarfréttiraf
álagningu fasteignagjalda
benda til að bæjarsjóður þurfi
á meiri tekjum að halda?
Þessarog margaraðrar
spurningar höfðu velkst fyrir
blaðamanni. Og þærvoru því
upphaf viðræðna hans við
Heimi Pálsson, bæjarfulltrúa
Alþýðubandalagsins og va-
raformann bæjarráðs í Kópa-
vogi.
Það er alveg rétt, bæjarsjóður
Kópavogs þyrfti að fá miklu
meira fé. Þess vegna liggur á að
hann fái nýja tekjustofna svo að
meginþorri teknanna sé ekki
fenginn með útsvari og fast-
eignagjöldum sem lögð eru á ein-
staklinga. Okkur vantar fleiri fyr-
irtæki í bæinn til að auka þar
veltu.
Ég verð að viðurkenna að mér
finnst það ekkert tiltakanlega
góð aðferð að sveitarfélög afli sér
tekna með því að leggja fast-
eignagjöld á íbúðarhúsnæði af
venjulegri stærð. Persónulega
hef ég þó talið að það ætti að vera
mönnum gleðiefni að þeir fái að
leggja fé í sameiginlega sjóði, en
þau sjónarmið eru án efa orðin
gamaldags.
Nú hafa tekjur Kópavogs
skroppið saman um 16 miljónir
króna við þá ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar að skerða framlög
til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Núna þakkar maður fyrir að það
var ákveðið að nota aðra tekju-
stofna til fulls.
Það þarf mikið fé til að standa
undir þjónustu og uppbyggingu í
sveitarfélgi sem er í jafn örum
vexti og Kópavogur. Par eru
mörg stór verkefni í gangi. Ég get
tekið sem dæmi annars vegar
endurbyggingu félagsheimilisins,
þar sem nú hafa orðið verklok, og
hins vegar sundlaugarbyggine-
una þar sem stórum áföngum er
enn ólokið.
En var þá ekki einmitt mikils
virði að fá Sambandið í Kópavog?
Ég vil gjarna gera grein fyrir
samskiptunum við SIS en þau
hafa gert okkur hissa, sár og reið.
Sem varaformaður bæjarráðs
leiddi ég þessar viðræður af hálfu
Kópavogsbæjar og hef af því til-
efni fengið gusur bæði í Tímanum
og Helgarpóstinum.
Það er misskilningur að enginn
hafi litið til Smárahvammslands
fýrr í haust. Það var ekki SÍS sem
kom Smárahvammi „inn á landa-
kortið". Bæjaryfirvöld hafa lengi
reiknað með að þarna verði
innan tíðar „hjarta“ Stór-
Reykjavíkursvæðisins. Upp-
byggingarhraði í nýjum hverfum
skiptir sköpum og einmitt þess
vegna gerði Kópavogsbær 1985-
86 samning við landeigendur um
að uppbyggingu svæðisins skyldi
lokið 1995. Austan við Smára-
hvammsland, hinum megin
Reykjanesbrautar, er stórt svæði
sem væntanlega mun byggjast
upp á næstu 10-15 árum. Þar
verður stór fbúðabyggð með sérs-
töku skólahverfi. Aður en SÍS
gerði kaupsamning um Smára-
hvammsland voru ýmsir aðrir að-
ilar búnir að velta fyrir sér
kaupum á því.
Bæjaryfirvöld í Kópavogi
glöddust mjög þegar það fréttist
þann 9. október sl. að SÍS ætlaði
að kaupa um 30 ha af Smára-
hvammslandi og það fylgdi sög-
unni að þangað yrðu höfuðstöðv-
ar Sambandsins fluttar. Svona
tíðindi hefðu að sjálfsögðu orðið
öllum sveitarstjórnum gleðiefni.
Skömmu síðar var haldinn
fundur með forystumönnum SÍS.
Það var ljóst að SÍS myndi ekki
nýta allt landið strax og að upp-
byggingu yrði ekki lokið 1995.
Bæjaryfirvöld töldu að stærð og
styrkleiki SÍS gæti nokkuð vegið
þar á móti. Þar sem ekki hafði
gefist tími til að gera stífar áætl-
anir var ákveðið að framlengja
forkaupsfrest bæjarins. SíS fékk
tíma fram í miðjan desember til
að láta vinna áætlanir um upp-
byggingu svæðisins.
Var það aðeins meirihluti Al-
þýðubandalags og Alþýðuflokks
sem ráðskaðist með svona veiga-
mikið mál?
Þess hefur verið gætt að
mmniHiuti Sjálfstæðisflokks og
Framsóknar fengi að fylgjast vel
með, enda hafa allar ákvarðanir
verið samþykktar einróma í bæj-
arstjórn af fulltrúum allra flokka.
Daginn fyrir Þorláksmessu var
haldinn fundur á skrifstofum SÍS
og þar urðum við fyrir miklum
vonbrigðum. Okkur var sagt að
höfuðstöðvar Sambandsins yrðu
innan tíðar fluttar inn á Kirkju-
sand. Breytingar á frystihúsinu
þar ættu að kosta svipað og sölu-
verð Sölvhólsgötueigna Sam-
bandsins eða um 220 miljónir
króna.
Guðjón Ólafsson forstjóri og
Kjartan P. Kjartansson fjármála-
stjóri boðuðu gjörbreytta afstöðu
SIS. Okkur var sýnt plastlíkan af
svæðinu og sagt að á því miðju
væri stórmarkaður. Við spurðum
hvort til stæði að flytja Holta-
garða en borgarstjórn Reykja-
víkur var þá nýbúin að fram-
lengja um 10 ár leyfi til að þar
væri verslunarstarfsemi.
Þá sagði Guðjón Ólafsson:
„Það getur verið að á næstu 5-10
árum komist menn að þeirri
niðurstöðu að byggja eigi stór-
markað af þessari stærð og gerð.“
Þegar við spurðum um frekari
áætlaða starfsemi á svæðinu, var
okkur sagt að kannski kæmi
þarna bensínstöð ESSO. Okkur
fannst það ekki mjög spennandi
þar sem bæjarstjórn var nýlega
búin að úthíuta lóð skammt frá
fyrir bensínstöð SHELL. Þá
fengum við að heyra almennan
fyrirlestur um starfsemi SÍS og
ýmis fyrirtæki sem Sambandið
rekur. Þegar við vildum fá meira
að heyra um uppbyggingu í
Smárahvammi, var okkur sagt að
kannski mætti hafa þarna hótel.
Líkanið var jafnmerkingarlaust
og ég eða þú hefðum búið til
húsaþyrpingu úr Legó-kubbum.
Okkur fannst þetta að vonum
þunnur þrettándi. Mörgum
spurningum var ósvarað en mikið
var til vinnandi að fá Sambandið
með starfsemi til bæjarins.
Bæjarráð samþykkti fyrir sitt
leyti að lengja enn forkaupsfrest-
inn, nú fram í miðjan febrúar, og
gefa þar með SÍS lengri tíma til að
koma fram með hugmyndir um
nýtingu svæðisins.
Þann 20. janúar hittum við aft-
ur þá Guðjón og Kjartan. Allt
var við hið sama: módelið á sín-
um stað og sami fyrirlesturinn um
SÍS. Okkur var sagt að SÍS myndi
aldrei nota nema helming lands-
ins, kannski þriðjung. Gjarna
mætti bærinn yfirtaka helming-
inn. Áhuginn virtist horfinn.
Auðvitað vissum við af við-
ræðum SÍS við borgaryfirvöld í
Reykjavík. Gat hótun þeirra um
að flytja í Kópavog hafa valdið
því leyfið fyrir Holtagarða var
framlengt? Búið var að sam-
þykkja lengingu á hafnargarði
inni í Holtagörðum og SÍS fékk
leyfi til að breyta frystihúsinu á
Kirkjusandi í verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði. Það gekk og fjöl-
lunum hærra að í fyllingu tímans
fengi SÍS lóð Strætisvagna
Reykjavíkur inni við Kirkjusand.
Auðvitað læddist að okkur sá
grunuraðíþessu formi, þ.e. ýms-
um leyfisveitingum Reykjavíkur-
borgar, teldi SIS sig hafa fengið
Smárahvamm endurgreiddan.
Það hefði svo sem ekki verið í
fyrsta skipti að fyrirtæki segðist
ætla að flytja frá Reykjavík í
Kópavog til að pressa á afgreiðslu
mála hjá borginni. Við þekkjum
þann leik.
Önnur fyrirtæki höfðu auga-
stað á landinu, m.a. BYKO í
samvinnu við önnur fyrirtæki, en
BYKO er eitt af öflugustu fyrir-
tækjunum í Kópavogi. Við viss-
um að búið var að leggja í nokkra
skipulagsvinnu og þar var verið
að tala um mun hraðari uppbygg-
ingu en hjá SÍS.
Það var ekki fyrr en for-
kaupsfresturinn var um það bil að
renna út að forsvarsmenn SÍS
skildu loks að bæjarstjórn Kópa-
vogs var alvara. Þá gripu þeir til
skyndiviðbragða. Ég hef fyrir satt
að þeir hafi föstudaginn 5. febrú-
ar falið Hagvirki hf. að gera drög
að skipulagi og áætlun um upp-
byggingu svæðisins og Hagvirkis-
menn voru búnir að skila af sér
næsta þriðjudag. Samkvæmt
þeim hugmyndum ætlaði SÍS
ekki að vera með starfsemi nema
á litlum hluta landsins. Megnið af
því átti að selja á almennum
markaði. Þótt mér sé ekki sama
um samvinnuhreyfinguna, met
ég hana ekki umfram önnur fyrir-
tæki ef um er að ræða lóðabrask.
Og bœjarstjórn var einhuga um
afgreiðslu málsins?
Eins og ég hef áður sagt unnu
meiri- og minnihlutinn saman í
málinu. Niðurstaða bæjarstjórn-
ar var einróma.
Var KRON ekkert inni í viðrœð-
unum með SÍS?
Á allra síðustu augnablikunum
höfðu fulltrúar KRON samband
við okkur en þá höfðu engar við-
ræður farið fram milli þeirra og
SÍS. Þeim þótti þó líklegt að
KRON fengi aðild að stórmark-
aði þarna með SÍS.
En nú eruð þið búin að úthluta
Kron lóð undir stórmarkað.
Á síðasta ári sótti KRON um
lóð og hefur nú endurnýjað hana.
Bæjarráð hefur samþykkt að
KRON fái lóð austan Reykjanes-
brautar. Eins og áður sagði á að
byggja þar stórt íbúðahverfi, það
stórt að reiknað er með sérstöku
skólahverfi eða skólahverfum.
Hér er verið að tala um svæði á
stærð við Kársnesið.
Hvað með skipulagsvinnu?
Nú hefur bæjarráð staðfest
fyrir sitt leyti samþykkt skipu-
lagsnefndar um að fram fari hug-
myndasamkeppni um skipulag á
svæði sem nær frá Reykjanes-
braut, milli landamæra við
Reykjavík og Arnarnesvegar,
allt að Elliðavatni. Svæðinu þarf
að skipta niður þannig að unnt
verði að skoða einn og einn hluta
þess við gerð deiliskipulags. Einn
slíkur hluti er það svæði sem
KRON hefur nú fengið lóð á.
Þetta er m j ög spennandi svæði.
Miðað við daglegt líf á höfuð-
borgarsvæðinu - og kannski má
segja á landinu öllu - verður
þetta miðdepill heimsins í ýmsum
skilningi. Þess vegna er mikilvægt
að safnað sé saman hugmyndum
um skipulag svæðisins og til þess
er hugmyndasamkeppni heppi-
legasta aðferðin.
ÓP
ni/Avf cavm lui aí^ aihh
nvovx sem pu en euni
Hrevfill bvður sætaferðir til Keflavíkur
Ef þú ert á lejð til útlanda er þægilegt að fara fyrsta spölinn í Heyfilsbíl.
Hringdu í okkur með góðum fyrirvara og greindu frá áætluðum flugtíma. Við vekjum þig
með hressilegri símhringingu, óskir þú þess.
68 55 22