Þjóðviljinn - 25.03.1988, Blaðsíða 10
Engarumræður
íheitapottinum
Hin nýja stefna meirihluta Sjálf-
stæðismanna í íþrótta- og tómstund-
aráði borgarinnar er í þann veginn að
drepa niður alla þjóðmálaumræðu í
heita pottinum þar sem menn hafa
hingað til rifist eins og kettir út af stór-
um sem smáum málum. Ástæðan er
sú að formaður ráðsins, Júlíus Haf-
stein, hefur gefið út þá yfirlýsingu að
sundstaðir borgarinnar séu griða-
staður fyrir fólk frá skarkala um-
hverfsins og það eigi að fá að njóta
þar kyrrðar og f riðar frá allri pólitískri
umræðu eða öðru sem ske kynni að
valda óbreyttum sundlaugargestum
ónæði.
í morgun eins og alla aðra daga fór
ég glaðbeittur og hress í sundlaugina
mína og eins og venjulega byrjaði ég
daginn, eftir að hafa farið í sturtu og
þrifið mig hátt og lágt, að fara í heita
pottinn minn áður en ég synti mína
500 metra í lauginni. En aldrei þessu
vant sátu fastagestirnir þegjandi og
heldur skömmustulegir í pottinum og
hvorki datt né draup af þeim. Ég hélt í
fyrstunni að einhver nákominn hefði
látist um nóttina svo daþrir voru þeir á
svipinn. Til að komast að hinu sanna í
málinu færði ég mig að einum kunn-
ingja mínum í pottinum og spurði
hann afhverju menn sætu svona
hljóðir og nánast sorgmæddir á svip-
inn. I stað þess að brýna raustina
eins og þessi kunningi minn er vanur
að gera þegar hann er spurður að
einhverju, þá sneri hann að mérofur-
hægt og nánast hvíslaði upp í ey rað á
mér: „Þaðerbannað, samkvæmttil-
skipun frá íþrótta- og tómstundaráði
að ræða pólitísk mál hér í sund-
lauginni pví það gæti valdið einhverj-
um ónæði. Ef því er ekki hlýtt megum
eiga von á því að vera reknir upþúr og
settir íbann," sagði þessi kunningi
minn og ef vel var að gáð mátti greina
táríaugunum.
Ég hélt í fyrstunni að maðurinn
væri að gera grín að mér og reyna að
hafa mig að fífli, svo ég brýndi raust-
ina ofurlítið og hélt smá tölu um
heilvítis svindlið íþjóðfélaginu, eins
og svo oft áður. Þegar ég var rétt að
komast á skrið og farinn að æsast
ofurlítið, var skyndilega þrifið í mig af
hvítklæddum manni sem benti mér á
þá staðreynd að svona umræða væri
bönnuð í pottinum eflirleiðis. En það
er erfitt að kenna gömlum hundi að
sitja, og til gera langa sögu stutta þá
lyktaði þessari sundlaugarferð minni
með því að ég verð um stundarsakir
að notast við baðkarið heima þar sem
ég er talinn óæskilegur gestur í sund-
stöðum borgarinnar.
-grh
ídager
25. mars, föstudagurí23. viku
vetrar, 85. dagurársins. Fjórði
dagurieinmánuði. Boðunardag-
ur Maríu, - Maríumessa á föstu.
Sól kemur upp f Reykjavík kl.
7.10ensólseturkl. 19.59.Tungl
hálftog vaxandi. Þjóðhátíðardag-
urGrikklands.
Atburöir
Danmörk gengur í Nató 1949.
Nóvudeilunni lýkur með sigri
verkamanna 1933.
Þjóðviljinnfyrir
50 árum
Launadeilan áSiglufirði. Eftirósk
ríkisverksmiðjustjórnarinnar
sneri sáttasemjari sértil verka-
lýðsfélagsins „Þróttur", þegar
verksmiðjustjorn sleit samninga-
umleitunum, og óskaði eftir að fé-
lagið sendi einn mann suður, og
útnefndi Erlend Þorsteinsson, al-
þingismann, til samningaumleit-
anameðfullnaðarumboði. Fél-
agsstjórnin lagöi til að sendir
yrðu tveir menn héðan og til-
nefna einnig Sigf ús Sigurhjartar-
son. Nokkrir hægri menn höfðu í
hótunum, ef félagið kysi ekki Er-
lend ttl samninganna. Á félags-
fundi ígærkvöldi varsamþykkt
að senda alla samninganefn-
dina, Gunnar Jóhannss., Kristján
á Eyri og Jón Jónsson til Rvíkur
ef sáttasemjari greiddi f erða-
kostnað þeirra og kaup, að öðr-
aum kosti færu samningaumleit-
anirframhéráSiglufirði.
. Fréttaritari
Sjón
sögu
ríkari
Sjónvarpið, föstudag kl. 22.25
Kvikmyndir vetrarins í sjón-
varpi allra landsmanna hafa fæst-
ar verið til að hrópa húrra fyrir,
og þessvegna er myndin í kvöld
óvænt ánægja. Sjón er sögu ríkari
(Stranger than Paradise) var gerð
í Bandaríkjunum 1984 af
leikstjóranum Jim Jarmusch og
var það fyrsta sem kvikmyndaá-
hugamenn fréttu af þeim manni.
Hún er búin til af litlum efnum
utanvið miðstöðvar
skemmtiiðnaðarins, en hefur síð-
an farið um öll lónd og orðið
„kúlt"-mynd einsog sagt er á
vondu máli; orðið gríðarvinsæl í
afmörkuðum hópum ungs fólks
og filmuinnvígðra. Myndin var
sýnd hér á listahátíð '85 og síðar í
litlum sal í Laugarásbíói, fékk
ekki mikla aðsókn í byrjun en
spurðist vel út og gekk mánuðum
saman. Næsta mynd Jarmusch,
Down by Law, var svo sýnd á
síðustu hátíð við mikla aðsókn.
Sjón er sögu ríkari er svarthvít,
og fellur helst í flokk flakkmynda
(„road-movies"); jaðartöffarar í
New York fá í heimsókn frænku
frá Ungverjalandi og vita ekki
betur hvað þeir eiga af henni að
gera en sér, - eftir ýmislegt rugl í
stórborginni er ákveðið að halda
á slóðir ættingja í Cleveland og
síðan á sólarstrendur í Flórída, -
gallinn er sá einn að það er miður
vetur og paradís auglýsingabæk-
UM ÚTVARP & SJONVARP
l
New York-töffarar komnir með ungversku frænkuna í sólarleysið á Flórídaströnd, - úr Sjón er sögu ríkan.
linganna víðs fjarri.
Ætli hinir djúpvitru mundu
ekki komast að því að umfjöllun-
arefnið sé tilgangslítil viðleitni
mannskepnunnar til að fylla útí
tómið, eða um það hve djúpt er á
uppfylling draumanna; - mestu
skiptir að hér hefur lukkast að
búa til mynd sem maður festist
við, hlýja án væmni og fulla af
lunknum húmor. Klippingin er
sérkennileg og tekur eiginlega
mið af ljósmyndaalbúminu, og
sennilega er myndin svarthvít af
ráðnum hug frekar en blankheit-
um. Fær þrjár stjörnur í hand-
bókinni og bestu meðmæli frá
þeim sem séð hafa. -m
Keisari norðursins
Stöð 2 kl.22. 45
Með eitt aðalhlutverkanna í kvik-
myndinni Keisari noðursins fer
Lee Marvin, en leikstjóri er Ro-
bert Aldrich. Mynd þessi fjallar
um umrenninga sem ferðast með
lestum. Aðalsöguhetjan stendur
sig vel í að gera járnbrautarvörð-
um gramt í geði og fær fyrir
bragðið titilinn Keisari norður-
sins. Mynd þessi er ekki við hæfi
barna.
mynd:
Lee Marvin leikur slagsmála-
hund í kvikmyndinni Keisari
norðursins.
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
Ekki láta hana taka mig upp!
Leggðu það ekki á mig að fara
upp að töflu í rifnum buxum!
Einhvern annan! Láttu hana taka
einhvern annan upp svo ég geri mig
ekki að fífli fyrir framan allan bekkinn!
FOLDA
10 SÍÐA - WÓOVILJINN Föstudagur 25. mars 1988