Þjóðviljinn - 19.04.1988, Qupperneq 2
FRETTIR
Stálvík hf.
Verslunarmenn
Verkfall á föstudag
Magnús L Sveinsson: Verkfall óumflýjanlegt. Flug, verslun og dagblöð stopp
Fátt um
f ína drætti
Síðasta raðsmíða-
skipinu hleypt af
stokkunum
Fimmta og síðasta raðsmíða-
togaranum var hleypt af stokkun-
um sl. sunnudag, en hann var
smíðaður hjá Stálvík hf. í Garða-
bæ. Hann hlaut nafnið Jöfur KE
og er 300 brúttólesta rækjutogari
með 1000 tonna rækjukvóta en
engan þorskkvóta og er í eigu
útgerðarfélagsins Jarlsins hf. í
Keflavík. Samningsbundið
kaupverð er 206 miljónir króna.
Að sögn Bjarna Ásmunds-
sonar, tæknifræðings hjá Stálvík
hf. í Garðabæ, eru engin stór-
verkefni framundan hjá
skipasmíðastöðinni en gerðir
hafa verið samningar um smíði
4-5 9,9 tonna smábáta og er gert
ráð fyrir að þessi verkefni dugi
næstu þrjá mánuði. -grh
Fátt virðist geta komið í veg
fyrir að verkfall skelli á hjá
verslunarmönnum á föstudag.
Verslun mun lamast víða um land
og allt flug leggjast niður. Þá gæti
farið svo að blaðaútgáfa stöðvað-
ist.
Þau félög sem eftir eiga ósamið
ákváðu á fundi um helgina að
fara sameinuð fram gegn at-
vinnurekendum. Að sögn Magn-
úsar L Sveinssonar, formanns
VR, var einróma samþykkt að
fara fram á 42 þúsund krónur í
lágmarkslaun. En í miðlunartil-
lögu ríkissáttasemjara þann
8.apríl voru lágmarkslaunin
35.200 krónur. Að öðru leyti vísa
verslunarmenn í fyrri kröfugerð.
Magnús sagðist ekki bjartsýnn
á að komist yrði hjá verkfalli.
„Það er ótrúleg bjartsýni að
vænta þess að atvinnurekendur
vilji gefa okkur meira en önnur
félög hafa fengið.“ Magnús taldi
verkfall óumflýjanlegt.
Ef af verkfalli verður á föstu-
dag mun öll verslun lamast á höf-
uðborgarsvæðinu, Bolungarvík,
Árnessýslu, Borgarnesi, Akur-
eyri, og ísafirði, en á mánudag
tekur síðan gildi verkfallsboðun
verslunarmanna í Hafnarfirði og
á Suðurnesjum. Þá mun ýms
skrifstofustarfsemi raskast, sem
ma. hefur áhrif á allar flugsam-
göngur. Innanlandsflug Flug-
leiða stöðvast strax á föstudag og
millilandaflug á mánudag. Ovíst
er hvort til stöðvunar kemur hjá
Arnarflugi en flugfélagið er ekki
aðili að VSÍ.
í gær voru þegar teknar að ber-
ast undanþágubeiðnir til
verkfallsstjórna verslunar-
manna. Dagblöðin sækja m.a.
um undanþágu en samkvæmt
heimildum Þjóðviljans er óvíst að
hún verði veitt að þessu sinni.
Fundur samninganefnda versl-
unarmanna og atvinnurekenda
hjá ríkissáttasemjara í gær stóð
stutt og bar engan árangur. Ólík-
legt er að samninganefndir verði
kallaðar aftur saman fyrr en á
morgun miðvikudag. Magnús L.
Sveinsson sagðist í gær ekki hafa
búist við neinu bitastæðu frá at-
vinnurekendum. „Það er aldrei
annað en þetta venjulega NEI.
Þær raddir hafa heyrst að lög-
bann kunni að verða sett á verk-
fallið. Aðspurðursagðist Magnús
ekki vita „hvað þessi 63 á Alþingi
væru að hugsa, það væri helst að
vinnuveitendur óskuðu lög-
banns“. Hann taldi allar hugleið-
ingar í þá áttina langsóttar og best
væri að verslunarmenn og at-
vinnurekendur fengju að útkljá
sín mál í friði.
-hmp
13. þing MSÍ
Slökkvilið Hafnarfjarðar stóð í ströngu í fyrrinótt þegar kviknaði í Hjólbarðasólun Hafnarfjarðar. Talið er að
tjónið nemi tugum miljóna króna. Óvíst er um eldsupptök en grunur leikur á að kviknað hafi í út frá rafmagni.
Mynd: E.ÓI.
Hafnarfjörður
Vatnsskortur torveldaði
Stórbruni í Hjólbarðasólun Hafnarfjarðar. Tjónið nemur tugum milj-
óna króna. Sigurður Ólafsson brunavörður: Vatnsleysið komflatt
upp á slökkviliðið
Slökkvilið Hafnarfjarðar var
kallað út á fjórða tímauum í
fyrriíiótt þegar kviknaði í Hjól-
barðasólun Hafnarfjarðar sem er
til húsa í þremur sambyggðum
húsum að Drangahrauni 1. Erfið-
lega gekk að ráða niðurlögum
eldsins vegna vatnsskorts í nær-
liggjandi brunahönum, en
slökkvistarfl lauk undir morgun.
Talið er að tjónið af völdum elds-
voðans nemi tugum miljóna
króna. Óvíst er um eldsupptök en
grunur leikur á að kviknað hafi í
út frá rafmagni.
Vegna vatnsskortsins þurfti
tankbíll slökkviliðsins að fara
fjölmargar ferðir að brunahana
slökkvistöðvarinnar til að ná í
vatn en bíllinn tekur um 10 tonn
af vatni. Ástæðan fyrir því að
ekki var nægilegt vatn, að finna í
næstu brunahönum mun vera sú
að vegna smæðar sinnar ber
vatnsleiðslan í hverfinu ekki það
vatnsmagn sem til þarf þegar
Fiskvinnslan
Skulda 70-80 miljónir hvert
Guðmundur Malmquist: Hlöðum ekki endalaust nýjum lán-
um á gamlar eignir
Stóru fiskvinnslufyrirtækin
skulda nú Byggðastofnun allt
að 70-80 miljónir hvert og sagði
Guðmundur Malmquist ■ samtali
við Þjóðviljann að þetta væru
stórar upphæðir á okkar mælik-
varða. í máli hans kom ennfrem-
ur fram að þótt þessi fyrirtæki
eigi öll miklar eignir, sé Byggðast-
ofnun ekki tilbúin að hlaða
stöðugt nýjum lánum ofan á þær.
„Þessar skuldir ganga yfir alla
línuna og ástæðan fyrir þeim er
fyrst og fremst röng gengisskrán-
ing. Það er ljóst að fyrirtækin
bera sig ekki vegna hennar en
einnig má geta þátta eins og of-
fjárfestingar og að framleiðni og
hagræðing í þessum fyrirtækjum
er minni en hún þyrfti að vera,“
sagði Guðmundur Malquist.
_____________________ - FRI
Framtíðin
afar óviss
Atvinnuöryggi ótryggt í skipasmíðastöðvum.
Astœðan síaukinn útflutningur verkefna.
Guðjón Jónsson, formaður MSÍí 12 ár, gefur
ekki kost á sér til endurkjörs
koma upp eldsvoðar í líkingu við
þann sem varð í Hjólbarðasólun-
inni.
Að sögn Sigurðar Ólafssonar
brunavarðar kom vatnsskortur-
inn flatt upp á slökkviliðið, enda
kom eldurinn upp í nýbyggðu
iðnaðarhverfi sem ætti að öllu
jöfnu að vera búið stórum og öfl-
ugum vatnsleiðslum til að geta
annað þeirri vatnsþörf sem
nauðsynleg er hverju sinni þegar
eldsvoða ber að höndum.
-grh
Idag lýkur 13. þingi Málm- og
skipasmiðasambands Islands,
en þingið hefur staðið í þrjá daga.
Aðalmál þess hafa verið eftir-
menntun og starfsfræðsla málm-
iðnaðarmanna ásamt kjara-og at-
vinnumálum. Mikil óvissa ríkir
um framtíð skipasmíðaiðnaðar-
ins vegna gegndarlauss útflutn-
ings á verkefnum nýsmíða og
endurbóta á íslenskum skipum
sem er áætlað að verði fyrir um 3
miljarða á árinu. Núverandi for-
maður MSÍ, Guðjón Jónsson,
sem verið hefur formaður í 12 ár,
gefur ekki kost á sér til endur-
kjörs.
Að sögn Guðjóns Jónssonar,
fráfarandi formanns Málm- og
skipasmiðasambandsins, búa
starfsmenn skipasmíðastöðva við
mikið öryggisleysi í sínum at-
vinnumálum vegna eilífs verk-
efnaskorts, bæði í nýsmíði og
endurbótum og í viðhaldi skipa.
Á sama tíma er gert ráð fyrir því
að á þessu ári verði kostað um 3
miljörðum króna til slíkra verk-
efna sem unnin verða í erlendum
stöðvum.
Viðræður hafa farið fram við
stjórnvöld vegna þessa án þess að
vart hafi orðið nokkurra við-
bragða af þeirra hálfu. Guðjón
sagði að það væri ekki að undra
þó að viðskiptahallinn við útlönd
væri mikill um þessar mundir, en
hægur vandi væri að minnka hann
að nokkru ef eitthvað af þeim
verkefnum, sem útgerðarmenn
eru að láta vinna fyrir sig er-
lendis, yrði flutt hingað heim.
Þrátt fyrir óvissa framtíð í
skipasmíðaiðnaðinum hefur ver-
ið mikið rætt um endurmenntun
og starfsfræðslu málmiðnaðar-
manna á þinginu og sagði Guðjón
að tekist hefðu samningar á milli
MSÍ og vinnuveitenda um að þeir
tækju þátt í kostnaði starfsmanna
sem sæktu endurmenntunar- og
starfsfræðslunámskeið.
- Það er lífsnauðsynlegt fyrir
okkur að fylgjast vel með öllum
þeim nýjungum og framförum
sem orðið hafa í smíði skipa og
raunhæfar kjarabætur fást því að-
eins að þekking starfsmanna í
fyrirtækjum sé á við það besta í
heiminum," sagði Guðjón Jóns-
son, sem gegnt hefur formennsku
í MSÍ í 12 ár en gefur ekki kost á
sér til endurkjörs. _grj,
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Kennarar
Engin forfalla-
kennsla
Kennarar í grunn-
skólum Reykjavíkur
taka ekki að sérforf-
allakennslu fyrr en
samningar hafa náðst
Trúnaðarráð Kennarafélags
Reykjavíkur hefur samþykkt að
skora á kennara í Reykjavík að
taka ekki að sér forfallakennslu
fyrr cn samningar hafa náðst.
Foreldrar geta því vænst þess að
börn þeirra verði send heim fyrir-
varalítið ef kennari forfallast.
„Þetta er eina aðgerðin sem við
sjáum að hægt er að framkvæma
á þessu vori,“ segir Sigrún
Ágústsdóttir, formaður Kenn-
arafélags Reykjavíkur. Hún segir
þessa samþykkt trúnaðarráðsins
vera tilraun til að vekja athygli á
samningsstöðu kennara og því að
þeir eru orðnir hundleiðir á fuðr-
inu í samningamáiunum.
f samþykkt trúnaðarráðsins
kemur fram að „kennarar eru
orðnir langþreyttir á miklu
vinnuálagi og skilningsleysi ráða-
manna á gildi skólastarfs“.
-tt