Þjóðviljinn - 19.04.1988, Síða 8
í vörslu óskilamunadeildar
lögreglunnar
er margt óskilamuna svo sem:
reiðhjól, barnakerrur, fatnaður, lyklaveski, lyklar,
buddur, seðlaveski, kvenveski, skjalatöskur, úr,
glerauguo.fi.
Er þeim sem slíkum munum hafa glatað bent á að
spyrjast fyrir um þá á skrifstofu óskilamuna,
Hverfisgötu 113, (gengið inn frá Snorrabraut), frá
kl. 14.00-16.00 virkadaga.
Þeir óskilamunir sem eru búnir að vera í vörslu
lögreglunnar ár eða lengur verða seldir á upp-
boði í portinu að Borgartúni 7, laugardaginn 30.
apríl 1988.
Uppboðið hefst kl. 13.30.
Lögreglustjórinn í Reykjavík,
15. apríl 1988
Frá Grunnskólanum
í Mosfellsbæ
Innritun nýrra nemenda í Grunnskóla Mosfells-
bæjar, næsta skólaár, fer fram dagana 18. og 19.
apríl nk. kl. 10-14.
í Varmárskóla (&-12 ára) í síma 666154 og
Gagnfræðaskólanum (13-15 ára) í síma 666186.
Skólastjórar.
NÁMSGAGNASTOFNUN
PÓSTHÓLF 5192 • 125 REYKJAVÍK ■ SÍMI 28088 ~
Kynningarfulltrúi
Námsgagnastofnun vill ráða kynningarfulltrúa frá
1. ágúst nk. að telja. Áskilið er að umsækjandi sé
kennaramenntaður og hafi staðgóða þekkingu á
námsefni og reynslu af skólastarfi.
Starf kynningarfulltrúa mun m.a. felast í:
- kynningu á náms- og kennslugögnum.
- umsjón með kynningarfundum, námskeiðum,
sýningum o.fl.
- umsjón með útgáfu ýmissa kynningargagna.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá skrifstofu-
stjóra.
Umsóknum skal skila til Námsgagnastofnunar,
Laugavegi 166 eða í pósthólf 5192, 125 Reykja-
vík, fyrir 6. maí n.k. ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðar-
mál.
TONLIST/4RSKOLI
KOPPNOGS
Frá Tónlistarskóla
Kópavogs
Tónleikar verða haldnir miðvikudaginn 20. apríl
kl.20.30 í sal skólans, Hamraborg 11,3. hæð.
Lengra komnir nemendur leika.
Skólastjóri
Útlitsteiknari
Þjóðviljinn óskar að ráða útlitsteiknara. Þarf að
geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur til 22.
apríl. Nánari upplýsingar hjá framkvæmdastjóra.
lllÓaMIILJINN
SKAK
7-
Heimsbikarmótið í Briissel
Úrslitin í Saint John
sitja enn í Kortsnoj
Anatoly Karpov hefur örugga
forystu á 1. heimsbikarmóti
GMA (alþjóðasamband stór-
meistara) sem nú stendur yfir í
Brússel í Belgíu. Að loknum 13
umferðum hafði hann hlotið 9
vinninga en 14. umferðin var
tefld í gær og er úrslita að leita
annarsstaðar í blaðinu. Karpov
sat þá yfir en hann hefur í þessum
skrifuðum orðum teflt einni skák
meira en helstu keppinautar hans
en þó virðist fátt benda til þess að
sigur hans í mótinu sé í hættu.
Hann á t.d. eftir að tefla við
heimamanninn Winants sem er
langneðstur keppenda.
Eins og áður hefur verið drepið
á er þátttaka Karpovs íslenskum
skákáhugamönnum forvitnileg
fyrir þær sakir að hann mun mæta
Jóhanni Hjartarsyni í næstu hrinu
áskorendakeppninnar. Karpov
var seinn í gang en stórkostlegur
sigur hans yfir Jan Timman kom
honum á bragðið og síðan hefur
hann halað inn vinninga af miklu
öryggi. Alexander Beljavskí
vann Karpov snemma í mótinu
og virtist ætla að ógna gengi hans
verulega en úrslit í 12. umferð, er
Karpov lagði Viktor Kortsnoj að
velli og í þeirri þrettándu er Belj-
avskí tapaði fyrir John Nunn,
hafa mjög styrkt stöðu heims-
meistarans fyrrverandi.
1. Karpov 9 v. (af 13) 2. Salov V/i v.
(af 12) + 1 biðskák. 3.-4. Beljavskí og
Nunn l'/z v. (af 12) 5. Portisch 7 v. (af
12) 6. Andersson 7 v. (af 13) 7.-8.
Speelman og Nikolic 6Vi v. (af 12) 9.
Ljubojevic 6 (af 11) + 1 biðskák 10.-
12. Tal, Timman og Seirawan 6 v. (af
12) 13. Nogueiras 5Vz v. (af 13) 14.
Sokolov 5 v. (af 12) 15. Sax 4Vz v (af
12) 16. Kortsnoj 4 v. (af 12) 17. Win-
ants 1 Vz v. (af 12).
Eins og sjá má af þessari upp-
talningu er Viktor Kortsnoj langt
frá sínu besta. Það er ljóst að ein-
vígið í Saint John situr enn í hon-
um. Úrslitin virðast hafa valdið
Kortsnoj miklum vonbrigðum ef
marka má viðtal við hann í tíma-
ritinu Mannlíf. Eftir einvígið átti
ég þess kost að spjalla lítillega við
aðstoðarmann hans Dmitry Gur-
evic sem oft á tíðum virtist eins og
illa gerður hlutur milli þeirra
Petru Leewerjik og Viktors.
Gurevic vildi meina að hinn sam-
stæði íslenski hópur í Saint John
hefði sett sinn mann út af laginu.
Þar átti hann ekki aðeins við Jó-
hann, aðstoðarmenn og fulltrúa
Skáksambandsins, heldur einnig
blaða- og fréttamennina kátu Sig-
urdór Sigurdórsson DV, Pál
Magnússon Stöð 2, Guðmund
Hermannsson Morgunblaðinu,
Jón Gauta Kristjánsson Útvarp-
inu og Vigfús Geirdal frá Modern
Iceland. „Þetta er bara eins og
sovésk sendinefnd," sagði
galdramaðurinn frá Riga, Mikha-
el Tal og glotti.
Gurevic kvað Kortsnoj standa
í þeirri trú að Friðrik Olafsson
hefði verið sískrifandi bréf til
dómara einvígisins en mér vitan-
lega var aðeins eitt bréf sent.
Áður höfðu verið bornar fram ó-
formlegar kvartanir vegna hegð-
unar Kortsnojs.
Kannski er það að renna upp
fyrir Kortsnoj að hann verður
ekki heimsmeistari úr þessu og
þykjast ýmsir hafa séð teikn þar
um á iofti fyrir allnokkru. Skák-
menn eru oft býsna óraunsæir.
Dæmi er að finna þegar Vasily
Smyslov og Garrí Kasparov háðu
einvígi sitt vorið 1984 um réttinn
til að skora á Anatoly Karpov.
Smyslov hafði unnið Robert Hú-
12. Bg5-f6
13. Bd2-Be7
14. Bc3-0-0
15. Rd4
(Karpov skorðar veikleikann á
d5 áður en hann ræðst til atlögu
við það. Þessi staða minnir mann
ósjálfrátt á skákir þeirra úr ein-
vígjunum þegar Kortsnoj sat
hvað eftir annað uppi með stakt
peð á d5 en hélt jafnan vel á þeim
stöðum og komst Karpov lítið
áleiðis og er þó annálaður fyrir að
tefla vel gegn „staka peðinu“.)
15. .. Rxd4
16. Dxd4-Bc5
17. Dd2-Dd6
(Ekki 17. .. d4 18. Ba5 og vinn-
ur skiptamun.)
18. b4-Bb6
19. Bd4-Bf5
20. Hacl-Be4
21. Bh3-Hfe8
22. Hfdl-He7
23. a3-Kf8
24. Dd2-Hc7
25. Hxc7-Dxc7
26. Hd2-Hd6
27. Bg2-He6
28. e3-Ke7
29. h4-a6
(Staðan lætur ekki mikið yfir
sér en sannleikurinn er sá að hvít-
um bjóðast ýmis færi með smásp-
ili hér og þar. Pað er allt annað en
auðvelt að sitja í þessum töflum
mótspilslaus með öllu og ekki
bætir úr skák ef bullandi tíma-
hrak er yfirvofandi en þannig var
einmitt ástatt fyrir Kortsnoj.)
30. Bxb6-Dxb6
31. Hdl-Dc7
32. Dd4-Dc4
33. Da7-Dc7
(Dæmigerðir tímahraksleikir.)
34. Hd4-Kf7??
(Þessu mátti hann alls ekki
leika. Nú vinnur Karpov peð með
einfaldri fléttu og úrvinnslan er
tæknilegt atriði eitt.)
bner og Zoltan Ribli. Gott afrek
hjá 63 ára gömlum manni en ekki
var gefið mikið fyrir möguleika
hans gegn Garrí. Fáir vissu að
Smyslov var nánast sannfærður
um að hann næði að sigra Kaspar-
ov og endurheimta síðan
heimsmeistaratitilinn í einvígi við
Karpov.
Einvígin þrjú sem þeir Karpov
og Kortsnoj háðu á árunum 1974-
’81 voru geysihörð. Þessvegna
vekur það ávallt athygli þegar
þessir tveir setjast að tafli. í
Brússel var beðið með eftirvænt-
ingu eftir viðureign þeirra:
12. umferð:
Anatoly Karpov - Viktor Kortsnoj
1. Rf3-Rf6
2. c4-c5
3. Rc3-Rc6
4. d4-cxd4
5. Rxd4-e6
6. g3-Db6
7. Rb3-d5
(Fyrr í mótinu lék Ungverjinn
Guyla Sax. 7. ... Re5 gegn landa
sínum Portisch. Sá leikur leiðir til
flóknari stöðubaráttu.)
10. .. Be6
11. 0-0-Hd8
35. Hxd5!-Bxg2
(Drottningarendataflið sem
kæmi upp eftir 35. .. Bxd5 36.
Bxd5 er litlu skárra.)
36. Kxg2-Dc6
37. Dc5-Dxc5
38. Hxc5-He7
39. K13-Ke6
40. Ke4-Kd6+
41. Kd4-Kd7
42. g4-He8
43. e4-b6
44. Hd5+-Ke7
45. e5-Hf8
46. Hd6-b5
47. Hxa6-fxe5+
48. Kxe5-Hxf2
49. Ha7+-Kf8
50. h5-H13
51. Kd4-Hf4+
52. Kc5-Hxg4
53. Kxb5-Hg5+
54. Kc6-Hxh5
55. b5-Hh6+
56. Kc7-Hh3
57. b6-Ke7
58. b7-Hc3+
59. Kb6-Hb3+
60. Kc6
- og Kortsnoj gafst upp.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. apríl 1988