Þjóðviljinn - 19.04.1988, Qupperneq 10
Brostnar
vonir
Jón Baldvin mun hafa gert sér von-
ir um það að geta myndað stjórn með
íhaldinu einu eftirsíðustu Alþingis-
kosningar. Fyrirfram sýndist það ekki
svo fráleitur möguleiki. Að vísu
slaevðust þær vonir við hin klúðurs-
legu vinnubrögð Þorsteins Páls-
sonar, sem leiddu til myndunar Borg-
araflokksins. Á móti kom að Jóni
Baldvin tókst að gleypa Bandalag
jafnaðarmanna. Þar reyndust þó um-
búðirnar fyrirferðarmeiri en innihald-
ið.
Bandalag jafnaðarmana hafði
alltaf skrölt innan í skinninu frá því að
Vilmundar heitins Gylfasonar missti
við. Það sveif nánast í lausu lofti.
Sameiningin við Alþýðuflokkinn
sundraði þessu liði endanlega. Þing-
menn þess fengu hvergi að fara í
framboð þar sem nokkur lífsvon var
nema ef vera skyldi Guðmundur Ein-
arsson á Austfjörðum, en þar átti Al-
þýðuflokkurinn minna fylgi aö fagna
en í nokkru kjördæmi öðru. Mátti þvi
teljast hættulítið að lofa Guðmundi
þar í framboð. Jón Baldvin glotti kalt
því nú hafði Guðmundur gengiö á
hönd því kerfi, sem hann hafði áður
harðast gagnrýnt. Og þar kúrir Guð-
mundur nú og er ekki annað vitaö en
hann uni hag sínum hið besta.
Þessi óverulega blóðgjöf nægði
engan veginn til þess að vega upp á
móti tapi íhaldsins. Úrslit kosning-
anna feyktu vonum Jóns um sambúð
við íhaldið eitt út í veður og vind. Sam-
starf við Framsókn þótti honum ekki
fýsilegur kostur, enda hafði hann far-
ið hinum hraklegustu orðum um þann
flokk í kosningabaráttunni. Nú voru
góð ráð dýr. Þorsteinn þurfti og vildi
vera ráðherra áfram. Jón langaði út
af lífinu í ríkisstjórn en fyrir hann var
ráðherrastóll ekki pólitísk nauðsyn.
Fangaráð þeirra félaga varð að
biðla til Kvennalistans. Hann lét ekki
ólíklega, að fullnægðum ákveðnum
skilyrðum auðvitað. Krafan um lág-
markslaun þótti alþýðuforingjanum,
Jóni Baldvin, ekki aðgengileg og Þor-
steini auðvitað ekki heldur. Tilraun-
irnar með Kvennalistannn runnu því
út í sandinn. Síðan er Kvennalistan-
um borið á brýn ábyrgðarleysi. Hann
vilji fiska í gruggugu vatni og þori ekki
að taka þátt í alvörupólitík, rétt eins og
stjórnarflokkarnir reki slíka pólitík. En
„flestir kjósa friðar líf“. Samstarf við
íhald og krata hefði reynst Kvenna-
listanum banvæntfaðmlag. Það
skildu konurnar.
Þá reyndist Framsókn hendi næst
og sú aldraða var fús til framlaganna.
Steingrímur, Halldór og Jón gátu allir
verið ráðherrar áfram en Alexander
varð að víkja fyrir Jóhönnu og mun
aldrei verða svo gamall að hann
gleymi þeirri móðgun. Og þar með
var Jón Baldvin orðinn ráðherra og
kaus sér til samfylgdar Jón hinn þjóð-
haga, þótt einhverjum reyndari þing-
mönnum Alþýðuflokksins kunni að
hafa þótt ómaklega fram hjá sér
gengið. Síöan fékk Jóhanna að fljóta
með, kannski af því að hún er kona
auk þess sem það var skynsamlegt
a.m.k. eins og málin horfðu þegar
stjórnin var mynduð, og hafa einn
raunverulegan Alþýðuflokksmann
með í ríkisstjórn, sem Alþýðuflokkur-
inn stendur aö. Út á tryggð við hinar
gömlu rætur hefur Jóhanna unnið sér
vinsældir og traust. Það er hinsvegar
óskiljanlegt þeim, sem jafnan eru fús-
ir til að fórna stefnunni fyrir völdin.
-mhg
í dag er
19. apríl, þriðjudagur í síðustu viku
vetrar, 29. dagur Einmánaðar. Sólin
kemur upp í Reykjavík kl. 5,41 en
sólsetur er kl. 21,15 - Þjóðhátíðar-
dagurSierra Leone.
Atburðir:
Hauganesbardagi 1246.
UM ÚTVARP & SJONVARPf_
1001 nótt
Útvarp, rás 1, kl. 16.20
Ævintýrasafnið Þúsund og ein
nótt hefur mörgum þótt heillandi
lesning. Kannski líta færri í „næt-
urnar“ nú á tímum hraðans, sjón-
varpsins og hinnar fjölbreyttu út-
gáfustarfsemi, enda er Þúsund og
ein nótt ekki beint árennileg bók,
svona utanað að sjá. Sögurnar
koma úr ýmsum áttum: Frá flest-
um Arabaríkjunum, Indlandi,
Persíu, Kína, jafnvel Grikklandi.
Þarna koma fram kunnar per-
sónur eins og Ali Baba, Sindbað
sæfari, Harún Arjasjid og Alla-
dín, og ótölulegur grúi annars
merkisfólks kemur þarna við
sögu. - í Barnaútvarpinu í dag og
næstu daga verður lesið úr þessari
skemmtilegu, austrænu ævintýra-
bók.
- mhg
Lent í
sandbleytu
Útvarp, rás 1, kl. 22,20
Þriðjudagsleikrit Rásar 1 er að
þessu sinni „Auövitað verður
yður bjargað“, eftir Þorstein
Marelsson, en 14 ár eru nú liðin
síðan það var frumflutt í Útvarp-
inu. Leikstjóri er Pétur Einars-
son. - Leikurinn gerist að kvöld-
lagi í skemmtigarði. Ungur mað-
ur er þar á rölti. En oftast sannast
það að betri er krókur en kelda.
Hann ætlar að stytta sér leið
gegnum garðinn en lendir þá í
sandbleytu og situr þar fastur.
Hvort maður kannast nú ekki við
sandbleytuna úr Héraðsvötnu-
num. Auðvitað ætti það að vera
hegningarvert athæfi að hafa
sandbleytupytti í skemmtigarði.
Ungi maðurinn í pyttinum getur
enga björg sér veitt og setur allt
Þorstein Marelsson
sitt traust á að einhver rekist á
hann þarna og dragi hann upp úr
foraðinu. Vonandi byrjar hann
ekki á því að brjótast mikið um
því þá býð ég ekki fé við honum. -
Með helstu hlutverk fara: Sig-
mundur Örn Arngrímsson, Arni
Tryggvason, Lárus Ingólfsson,
Þórunn Magnea Magnúsdóttir,
Karl Guðmundsson og Jón Sigur-
björnsson. - mhg
Heims-
metin
Stöð 2, þriðjudag, kl. 18.25
Þátturinn er byggður á Heims-
metabók Guinnes. Þar er að
finna alla hugsanlega methafa:
Þyngstu menn og léttustu, hæstu
menn og lægstu, elstu menn (en
ekki yngstu), þar er einn, sem lét
sig ekki muna um að skálma 36,8
km með fulla mjólkurflösku á
hvirflinum og tvo blinda Eng-
lendinga, sem plokkuðu skurnið
utan af 12.600 eggjum á 7V4 klst.
Við íslendingar eigum svo sem
þarna okkar fulltrúa og hver
skyldi það annar vera en Jón Páll
Sigmarsson. - í þessum þáttum
Stöðvar 2 er leitast við að sýna
spennuna, dramatíkina og jafn-
vel fyndnina, sem fylgir meta-
fíkninni.
- mhg
Þessi kona er frá San Antonio í
Chile. Börn hennar eru 54. Áður
en hún varð 22 ára hafði hún 5
sinnum eignast þríbura og fer nú
að verða lítið úr „vífinu í Skálkas-
kjóli 2“.
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
Jæja Kobbi, í þurrkarann
með þig.
FOLDA
Ég leik mér heldur ein
en með svona
slúbbertum sem ekki
bera virðingu fyrir
móðurhlutverkinu.
5
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. apríl 1988