Þjóðviljinn - 19.04.1988, Side 13

Þjóðviljinn - 19.04.1988, Side 13
ERLENDAR FRETTIR Khahil Al-Wazir, til hægri, skoðar ásamt Jassír Arafat vegsummerki eftir loftárás fsraelsmanna á höfuðstöðvar PLO í Túnis fyrir nokkrum Túnis/Palestína Israelar fremja hryðjuverk Leyniþjónusta, floti og landher ísraelsmanna skipulögðu morðið á Wazir Íranir/Kanar Sjóorrusta á Persaflóa Reagan kvartar óspart undan óábyrgri hegðan írana á Persaflóa Bandaríski flotinn sökkti fjölda íranskra herskipa og annarra víg- agnoða í sjóorrustu sem stóð í naer allan gærdag á Persaflóa. Fjölmörg fley löskuðust. Það sem í upphafi átti einvörðungu að vera „takmörkuð hefndarað- gerð“ Bandaríkjamanna óx semsé allmjög þegar á hólminn var komið. Talsmaður bandaríska varn- armálaráðuneytisins greindi frá því í gærkvöldi að eldflaugar sinna manna hefðu sökkt írön- skum eldflaugabáti og stór- skemmt tvær freigátur. Þrír árás- arharðbátar hefðu ýmist verið skotnir í kaf eða laskaðir mjög. Einnar bandarískrar þyrlu væri saknað. „Við gripum til þessara að- gerða til þess að tryggja að íranir ali ekki með sér neinar ranghug- myndir um afleiðingar óábyrgs háttalags," sagði Ronald Reagan Bandaríkjaforseti í gær, skömmu eftir að honum höfðu borist frétt- ir af orrahríðinni. „Ógni þeir okkur fá þeir að súpa seyðið af því,“ sagði forsetinn ábyrgi enn- fremur. Bandarískt herskip sigldi á dögunum á tundurdufl sem yfir- mennirnir segja að hafi verið persneskt. Nokkrir sjóliðar særð- ust. í gær átti síðan að hefna og réðust herskip Sáms frænda á tvo íranska olíuborpalla. En hið „óvænta“ gerðist, íranski flotinn snerist til „óábyrgrar" varnar og því fór sem fór. Reuter/-ks. Skák Kaipov efstur Anatólí Karpov, fyrrum heimsmeistari í skák, sat hjá þeg- ar fjórtánda umferð heimsbik- armótsins í Brussel var tefld í gærkveldi. Þrátt fyrir það heldur hann forystunni á mótinu og hef- ur hreppt níu vinninga úr 13 viðurcignum. Keppinautar hans hafa nefnilega þann háttinn á að rífa fjaðrirnar hver af öðrum. Þau óvæntu úrslit urðu í gær að Belgíumaðurinn lítt kunni, Luc Winants, sigraði Ungverjann Gy- ula Sax. Ulf Andersson sigraði Jasser Seirawan, Jesus Nogueiras sigraði Predrag Nikolic og Lju- bomir Ljubojevic sigraði Lajos Portisch. Valery Salov og Viktor Korsc- hnoi sættust á skiptan hlut. Sömu sögu er að segja af Mikhael Tal og Jónatani Speelman og Alex- ander Beljavskí og Andrei Sokol- ov. Skák Jans Timmans og Johns Nunns fór í bið. Einsog að ofan er getið trónar Karpov á toppinum. í öðru sæti er Salov landi hans með 8,5 vinn- inga úr 14 skákum. Þriðji er Belj- avskí en hann hefur 8 úr 13. Fjórði er Andersson með 8 úr 14. Fimmti er Nunn með 7,5 úr 12 + biðskák. í 6.-8. sæti eru Ljubojevic, Portisch og Speelman með sjö vinninga úr 13 skákum. 9.-10. eru Tal og Nicolic með 6,5 úr 13. 11. er Nogueiras með 6,5 úr 14. Tim- man hefur hreppt 6 vinninga úr 12 skákum en á eftir að útkljá viðureign sína við Nunn. Hann er í 12. sæti. 13.-14. Sokolov og Seirawan með 6 úr 13. 15.-16. Korchnoi og Sax með 4,5 úr 13. Lestina rekur heimamaðurinn Winants með 2,5 vinninga úr 13 skákum. Reuter/-ks. Israelskir heimildamenn skýrðu fréttamanni Reuters frá því í gær að þarlendir ráðamenn hefðu gefið fyrirskipun um morð PLO foringjans Khahil Al- Wazirs sem veginn var á heimili sínu í Túnis aðfaranótt laugar- dags. Þeir sögðu morðið hafa ver- ið skipulagt og framið í samein- ingu af leyniþjónustunni Mossad, ísraelska flotanum og sveit úr- valsdáta landhersins. í gær lýsti einn af félögum Waz- irs hinum örlagaríku atburðum laugardagsnæturinnar. Heimild- armaðurinn, sem sagður er náinn aðstoðarmaður Jassírs Arafats, vildi ekki láta nafns síns getið. Þótt frásögn hans stangist að ýmsu leyti á við fullyrðingar lög- Danskur varnarmálaráðherra, Johan Collet að nafni, sagði svo geta farið að Danir yrðu dregnir að kjörborði á næstunni. Orsök þessa væru hörð viðbrögð mikilsháttar bandamanna Dan- merkur í Nató við nýlegri þing- samþykkt um að auka eftirlit með vopnabúnaði gestkomandi her- skipa. „Ég er þeirrar skoðunar að efnt verði til þingkosninga vegna þeirra viðbragða sem við höfum orðið vitni að.“ Hann ítrekaði þó að valdið væri Pauls Schlúters. Sú saga gengur fjöllum hærra í Dan- mörku að forsætisráðherrann hyggist efna til kosninga í næsta mánuði, annaðhvort þriðjudag- inn lOnda eða 17da. Allar götur frá árinu 1957 hafa kjarnorkuvopn verið bannvara á dönsku yfirráðasvæði. En sú hefð hefur verið við lýði að ráðamenn hafa ekki spurt yfirmenn her- skipa bandamanna sinna óþægi- legra spurninga þótt þau hafi lagst við festar í dönskum höfnum. Einsog skýrt var frá hér í Þjóð- regluyfirvalda í Túnis þykir hún trúverðug. Hann stendur á því fastar en fótunum að árásarseggirnir hafi verið um 30 talsins. Þeir hafi ver- ið vopnaðir skammbyssum og vélbyssum búnum hljóðdeyfum. Þeir hafi slegið hring um heimili Wazirs í hafnarhverfi Sidi Bou Said, rofið símasamband og myrt einkabílstjóra Wazirs sem sat undir stýri og átti sér einskis ills von. Hryðjuverkamennirnir hafi augljóslega gjörþekkt húsa- skipan, svo örugglega gengu þeir til verks. A leiðinni inní húsið felldu þeir tvo lífverði Wazirs. Sjálfur var hann á fyrstu hæð hússins þegar honum var gert að- vart, hann dró upp skammbyssu viljanum samþykkti danska þing- ið á dögunum tillögu jafnaðar- manna um að rjúfa þá hefð. Héð- anífrá verða skipstjórar erlendra herfleyja inntir eftir því hvort kjarnorkuvopn séu um borð. Hinsvegar er óvíst til hvaða að- gerða yrði gripið svöruðu þeir játandi. Bæði Bandaríkjamenn og Bretar fylgja þeirri stefnu að halda því leyndu hvort herskip þeirra hafi kjarnorkuvopn innan- borðs. Þeir kvarta því sáran undan margumræddri samþykkt og Collet er ekki unt sel: „Öítkur hefur verið hótað því að hið hreyfanlega lið Breta muni ekki liðsinna okkur á ófriðartímum.“ Einsog menn rekur minni til fór ríkisstjórn Nýja-Sjálands fram á það við bandaríska ráða- menn í fyrra að þeir veittu henni tryggingu fyrir því að herskip þeirra sigldu ekki með kjarn- orkuvopn inní nýsjálenskar hafn- ir. Bandaríkjamenn brugðust ó- kvæða við þessari málaleitan og sögðu snimmhendis upp varnar- samningi ríkjanna. Reuter/-ks. sína en var um leið skotinn til bana í augsýn eiginkonu sinnar og tveggja dætra. Arafat var staddur í Bahrain við Persaflóa þegar Wazir var myrtur en sneri strax heim til Túnis þegar honum bárust fréttir um hryðjuverkið. Til gífurlegra mótmæla kom á herteknu svæðunum á laugardag- inn eftir að fréttir bárust um morð Wazirs í Túnis. Að sögn Reuters höfðu fréttirnar hinsveg- ar góð áhrif á baráttuandann í sveitum ísraelshers enda skutu þeir hvorki fleiri né færri en 14 manns til bana á laugardag. Átökin voru ekki jafn hatrömm í fyrradag en í gær voru tveir Pal- estínumenn skotnir til bana á Gazasvæðinu, annar þeirra var 26 ára gömul sex barna móðir að sögn Reuters. Æðsta stjórn PLO lýsti því yfir í fyrradag að Wazir yrði jarð- sunginn í Amman, höfuðborg Jórdaníu, en ígær voru þær fréttir bornar til baka. Wazir verður til moldar borinn í Damaskus í Sýr- landi en þar eru háaldraðir for- eldrar hans búsettir. Svo virðist sem samkomulag hafi tekist með Arafat og Assad forseta unt að allir forystumenn PLO geti verið viðstaddir útförina. Gera ýmsir fréttaskýrendur því skóna að þessir tveir fjendur sættist yfir moldum Wazirs og leiðir þá dauði hans til annarrar niður- stöðu en ísraelskir ráðamenn hugðu er þeir lögðu á ráðin um vígið. John Demjanjuk eða „ívan grimmi" hlýðir á málflutning í Jerúsalem. ísrael Demjanjuk er hran Israelskur dómstóll úrskurðarað bandaríski iðnverkamaðurinn John Demjanjuk sé böðullinn sem gekk undir viðurnefninu „Ivan grimmi“ í Treblinka og sé því meðsekur um 870 þúsund morð Israelskur dómstóll fann í gær John Dentjanjuk sekan um stríðsglæpi og sagði hann vera böðulinn sem gekk undir heitinu „ívan grimmi“ í Treblinka út- rýmingarbúðum nasista. A mán- udaginn verður greint frá hegn- ingu Johns/ívans en svo kann að fara að hann vcrði hengdur. „Við höfum fundið hinn ákærða sekan um glæpi gegn gyð- ingaþjóðinni, glæpi gegn mannkyni, stríðsglæpi og glæpi gegn ofsóttu fólki,“ sagði Dov Levin dómari meðal annarra orða í gær. Það tók 12 klukkustundir að reifa málið og lesa úrskurðinn í gær en sjálfur hélt Demjanjuk kyrru fyrir í klefa sínum. Lög- ntaður hans, Joram Sheftel, kvað skjóistæðing sinn hafa ákveðið að fylgjast með lestrinum úr fjar- lægð þar eð hann hafi rennt grun í hver niðurstaðan yrði. Demjanjuk hefur ætíð haldið fram sakleysi sínu og segist vera talinn allt annar ívan en hann sé í raun og veru. Því fari fjarri að hann sé ívan sá er með glöðu geði tók þátt í útrýmingu 870 þúsund gyðinga í gasklefum Treblinka. En Levin dómari segir að rétt- urinn sé algerlega sannfærður um að John Demjanjuk og „ívan grintmi“ séu einn og sami maður- inn. „Við staðhæfum hiklaust og án Tiokkurs vafa að hinn ákærði er ívan sá er gekk undir heitinu „ívan grimmi“ í Treblinka dauðabúðunum." Reuter/-ks. Danmörk Kosningar ínánd? Eru kjarnorkuvopn um borð eður ei? Spurningþessi kann að hafa kollvarpað dönsku stjórninni Þriðjudagur 19. apríl 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.