Þjóðviljinn - 19.04.1988, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 19.04.1988, Blaðsíða 16
SPURNINGIN—' Ferð þú oft á bókasöfn? Jón Hannes Karlsson Nei ég get ekki sagt það. Það gleður mig að nú stendur til að hefja útlán á geisladiskum. Anna Mjöll Ólafsdóttir, nemi Nei sjaldan, helst ef mig vantar eitthvað í ritgerðirnar mínar. Ólafur Einarsson, nemi Geri það örsjaldan, nema þegar ég þarfa á því að halda vegna skólans. Hef því miður lítinn tíma til að lesa mér til skemmtunar Guðmundur Jóhannesson, bílstjóri Nei mjög sjaldan. Gerði það meira á mínum yngri árum. Haraldur Ingólfsson brúðgumi Nei ekki síðan ég hætti skóla. Skemmti mér svo mikið að ég hefi ekki tíma fyrir lestur. þjómnuiNN Þriðjudagur 19. apríl 1988 88. tölublað 53. örgangur Sólveig Arngrímsdóttir, starfsmaður í útibúi Borgarbókasafnsins í Gerðubergi, heldur hér á hluta þeirra geisladiska sem nú eru til útláns hjá safninu. Borgarbókasafnið Yfirdrattur á téKKareiKninea launafólKs SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF 1 Elskhugar heimsins Úrskurður Germaine Greer Raunsæir menn þóttust hafa greitt goðsögunni um ástleikni og bólfimi ítalskra karla náðarhögg- ið. En staðreyndin er sú að niðjar Rómverja hinna fornu elska bet- ur en aðrir karlar. Sú er að minnsta kosti persónuleg reynsla frú Germaine Greer. „Frá mínum bæjardyrum séð eru ítalir bestu elskhugar í heimi. Þeir elska af lífi og sál,“ segir frú Greer í viðtali við kvennatímarit. Hún vísar sögnum um ágæti enska sjentilmannsins gersam- lega á bug, breskir karlar líti ekki á konur sem menn. „Þeir geta ekki einusinni séð konur sem tákn í heimsmynd sinni.“ Greer er sem kunnugt er ást- rölsk að ætt og uppruna og heimsfræg fyrir bókina „Kven- geldingurinn." Um landa sína af sterkara kyninu farast henni svo- hljóðandi orð: „Þeim líður illa séu þeir í hópi kvenna en vel hverjum með öðrum.“ Viöjiö þið geisladisk? Borgarbókasafnið er 65 ára um þessar mundir. í tilefni þeirra tímamóta hefur verið ákveðið að hefja útlán á geisladiskum, og fer sú starfsemi fram í útibúi safnsins í Gerðubergi í Breiðholti Borg- arbókasafnið tók við af Alþýðu- bókasafni Reykjavíkur en það tók til starfa 19. apríl 1923. í safn- inu voru þá 900 bækur, en nú um síðustu áramót var bókaeign safnsins þrjú hunduð sextíu og sjö þúsund bækur. Nú er tækifæri þeirra sem ekki hafa skilað bókum á réttum tíma, því ákveðið hefur verið, í tilefni afmælisins, að hafa sektarlausa viku. Sektarlausu dagarnir hefj- ast í dag, sjálfan afmælisdaginn, og standa til 26. apríl. sg Áfram heldur frúin að þræða sig áfram eftir landabréfinu, hvarvetna finnur hún okkur körlunum eitthvað til foráttu. Frakkar séu drýldnir um skör fram og arabar óttist líkamssnert- ingu einsog heitan eldinn. Bandaríkjamenn séu skíthræddir við konur en: „Þeir eru framúr- skarandi elskhugar því þeir leggja svo hart að sér. Hinsvegar verður það leiðinlegt til lengdar." Reuter/-ks. Hátíð 600.000 W Halldórs Á sunnudaginn héldu Breiða- blik, Augnablik og félagssam- tökin Aðall fjölskylduhátíð í Laugardalshöllinni til styrktar Halldóri Halldórssyni, fyrsta ís- lenska hjarta- og lungnaþegan- um. Margt var til skemmtunar, þingmenn kepptu gegn liði bæjarstjórnarinnar í Kópavogi í fótbolta, Breiðblik lék gegn úr- vali 1. deildarinnar í handbolta en Kristján Sigmundsson lék þar sinn síðasta leik og keppt var um titilinn vítakskytta I. deildar 1988. Er skemmst frá því að segja að þingmenn unnu fótboltann, úrvalið vann Blikana og Eggert Tryggvason KA vann vítaskyttu- titilinn. Einnig komu fram tón- listarmennirnir Bjartmar Guð- laugsson og Valgeir Guðjónsson í lok hátíðarinnar afhentu að- standendur hátíðarinnar fulltrúa Halldórs söfnunarféð sem nam rúmum 600.000 krónurn. ste Einsog sjá má fjölmennti fólk á fjölskylduhátíðina.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.