Þjóðviljinn - 24.04.1988, Qupperneq 15
The
Primitives
Lovely
Flestir ættu að kannast við
hljómsveitina The Jesus And
Mary Chain sem vakið hefur
mikla og verðskuldaða athygli
á síðustu árum og þá aðallega
fyrir byltingarkennt skerandi
gítar-„sánd“ sem hrist hefur
upp í mörgu tónlistarfólki.
Margirtónlistarmenn tóku
þennan þétta og skerandi gít-
arleik sér til fyrirmyndar og
upp spruttu hljómsveitir á
borðvið „BambiSlam",
„Primal Scream" og „Primitiv-
es“. Sú síðastnefnda var, ekki
allsfyrir löngu, að sendafrá
sérfyrstu breiðskífu sínasem
ber heitið „Lovely“ og eins
og við var að búast hlaut hún
hinar ágætustu viðtökur bæði
hjá bresku popppressunni og
hinum almennatónlistará-
hugamanni. Það hefurein-
kennt nokkuð þær hljóm-
sveitir sem sprottið hafa upp
úr J.A.M.C.-bylgjunni, að þær
hafa sótt nokkuð mikið afturtil
hippaáranna, bæði tónlistar-
lega séð og einnig í klæða-
burði, og er Primitives þar
engin undantekning þvítónlist
sveitarinnar er melódísk og
fremur Ijúf þó að hljómburður-
inn sé í harðari kantinum.
„Lovely" hefst á lagi sem ís-
lendingum ætti að vera góðkunn-
ugt því það hefur getið sér hljóðs
á vinsældarlistum hérlendis
undanfarnar vikur og heitir því
beinskeytta nafni „Crash“.
Skömmu fyrir útkomu plötunnar
GRAMMY-
vision
Peir sem af einhverjum or-
sökum sátu heima og horfðu á
sjónvarpið síðastlið laugardags-
kvöld (þ.e.a.s. fyrir viku) hafa
ekki getað komist hjá því að taka
eftir tveggja og hálfs klukku-
stunda löngum „tónlistar“þætti
þar sem fram fór afhending svo-
kallaðra Grammy verðlauna sem
eins og fram kom í kynningu, eru
veitt fyrir athyglisverðan árangur
á sviði dægurtónlistar. Nær hefði
þó verið að segja: „... sem veitt
eru fyrir skaðlegastan amerískan
iðnaðarúrgang“, því ekki man ég
eftir að hafa eytt tíma mínum jafn
óskynsamlega og þetta umrædda
kvöld fyrir framan imbann. Flest
tónlistin sem flutt var í þættinum
einkenndist af metnaðarlausri
fjöldaframleiðslu og var langt frá
því að vera vitræn, og yfirleitt allt
sem viðkom þættinum var yfir-
borðskennt og glamúrlegt svo ill-
an peningafnykinn lagði langar
leiðir.
Ég vona að sjónvarpið hugleiði
það hlutverk sitt að vera menn-
ingarstofnun öðru fremur, því
þessa stundina er Poppkorn eini
þátturinn þar sem smásmuga er
að rekast á góða rokk- og poppt-
ónlist og er það miður því að hálf-
tími á viku í dægurtónlist í ríkis-
sjónvarpi er fremur hlálegt.
OJ
skrifuðu Primitives undir útgáf-
usamning hjá hljómplöturisanum
RCA, en þangað til hafði sveitin
gefið allt sitt efni út á eigin hljóm-
plötufyrirtæki sem gengur undir
því hvetjandi nafni „Lazy Rec-
ords“. Greinilegt er að samning-
urinn við RCA hefur haft sín
áhrif á tónlist hljómsveitarinnar,
því allt yfirbragð tónlistarinnar er
orðið mun ljúfara og meðtæki-
legra en áður og á tónlistarleg rit-
skoðun áðurnefnds útgáfurisa,
örugglega stærstan þáttinn í því.
En hvað um það, „Lovely“ ein-
kennist af fremur hefðbundnum
og einföldum rokk-popp laga-
smíðum og eins og ég gat um
áðan þá má víða heyra áhrif frá
blómamúsík sjöunda áratugar-
ins. Lögin eru fíest hröð og nokk-
uð kraftmikil þar sem melódískur
söngur söngkonunnar og mátu-
lega einfaldur en krassandi gítarl-
eikurinn er í fremstu víglínu.
The Primitives er skólabókar-
dæmi um hljómsveit sem hefur
liðið fyrir það að skrifa undir
samning við peningalega háð fyr-
irtæki sem leggur mesta áherslu á
að laga tónlistina að markaðnum
í stað þess að laga markaðinn að
tónlistinni og ættu ungar hljóm-
sveitir á borð við Sykurmolana að
hugsa sig a.m.k. tvisvar um áður
en vaðið er út í slíkt. Það er ljóst
að sökum þessarar heflunar á
tónlist sveitarinnar hafa The Pri-
mitives ekki skapað neitt bylting-
arkennt listaverk, heldur er hér á
ferðinni nokkuð óvenjuleg
poppplata og sem slík er „Lo-
vely“ helv... góð.
OJ
Ameríska rokksveitin R.E.M.
hefur sagt skilið við útgáfufyrir-
tækið IRS og skrifað undir samn-
ing við WEA. Samningurinn
hljóðar upp á að sveitin sendi frá
sér fjórar breiðskífur hjá fyrirtæk-
inu og eru því sögusagnir um að
sveitin sé að hætta, foknar út í
veður og vind.
í júnímánuði á komandi sumri
mun verða haldin tveggja daga
tónlistarhátíð í Bretlandi til styrkt-
ar mannréttindasamtökunum
Amnesty International og
munu margar góðar sveitir koma
og leika til stuðnings þessu mál-
efni. í því sambandi hafa verið
nefndar sveitir á borð við The
Wedding Present, The Jesus
And Mary Chain, The Men
They Couldn’t Hang, Jimmy
Cliff, Big Audio Dynamite, New
Model Army og Joe Strummer.
Einnig er uppi orðrómur um að
Sykurmolarnir muni leika þarna
en hvað það verður veit nú eng-
inn.
The Housemartins voru um
daginn að gefa út svanasöng
sinn í smáskífuformi og nefnist
gripurinn „There’s Always
Something There To Remind
Me“. Einhver orðrómur er uppi
um að aðalgæjarnir í bandinu
séu að snúa sér að rapp-tónlist
öðru fremur, en þá frétt sel ég
ekki dýrar en ég keypti.
MEÐMÆLI: Nýja platan með
Martin Stephenson And The
Daintees er komin út og er vænt-
anleg hingað til lands von bráðar.
Sunnudagur 24. apríl 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15