Þjóðviljinn - 27.05.1988, Blaðsíða 1
Föstudagur 27. maí 1988 118. tölublað 53. örgangur
Ráðvillt ríkisstjórn
Viðaukabráðabirgðalög í undirbúningi. Þráttfyrir langafundi var undirbúningur bráðabirgðalaganna ónógur.
Hvað vildu ráðherrarnir í raun og veru? Verður stjórnaðmeðdagskipunum?
Stjórnartíðindi munu geyma stílœfingar ráðherranna. Bráðabirgðalögin koma í veg fyrir verðtryggingu á bankabókum.
SteingrímurHermannsson: Stóð ekki til strax
Bankamenn hafa bent á að í átt-
undu grein splunkunýrra bráða-
birgðalaga sé verið að koma í veg
fyrir að greiða megi vísitölubætur
á almennar sparifjárinnistæður
sem geymdar eru á stjörnureikn-
ingum, gullbókum, kjarabókum
eða öðrum nafnfögrum verð-
bótareikningum í bönkum og
sparisjóðum. Ákvæði bráða-
birgðalaganna eru skýr og ótví-
ræð en þau segja að eftir 1. júlí sé
óheimilt að verðtryggja nýjar
fjárskuldbindingar sem eru til
skemmri tíma en tveggja ára.
Svo virðist sem ráðherrunum
hafi ekki hugkvæmst að banka-
stofnanir takast á hendur fjár-
skuldbindingar við sparifjár-
eigendur þegar þær geyma fé á
vöxtum. Bankarnir eru í reynd
lántakendur hjá eigendum fjár-
ins. Talið er að ýmiss konar
verksamningar, sem kveða á um
verðtryggðar greiðslur, geti verið
lögbrot samkvæmt nýútkomnum
bráðabirgðalögum og snertir það
mál alla verktakastarfsemi í
landinu.
Ekki er ljóst hvað ráðherrarnir
voru að hugsa þegar þeir sömdu
lagagreinina en hún þykir benda
til hreint ótrúlegrar skammsýni.
Samkvæmt yfirlýsingum ráð-
herra munu þeir ekki hafa ætlað
sér að banna vísitölubætur á
innlán. „Ekki strax,“ hefur Tím-
inn í gær eftir Steingrími Her-
mannssyni.
Búist er við nýjum bráða-
birgðalögum í næstu viku og mun
það vera einsdæmi að sett séu lög
til að breyta vikugömlum lögum
sem eiga þó ekki að taka gildi fyrr
en eftir rúman mánuð.
Sjá bls. 3 og 4
Tveir baráttumenn á fundi Samtaka herstöðvaandstæðinga í gær. Þau María Kristjánsdóttir og Jóhannes Straumland bera saman
bækur sínar.
Herstöðvaandstœðingar
Gegn vígbúnaði
íhöfunum
í gær héldu herstöðvaandstæð-
ingar útifund á Lækjartorgi í
Reykjavík gegn vígbúnaði í höf-
unum. Stutt ávörp fluttu þeir Ingi
Hans Jónsson verkamaður frá
Grundarfirði og Hjörleifur Gutt-
ormsson alþingismaður.
í lok fundarins var kynnt
áskorun sem Samtök herstöðva-
andstæðinga höfðu gert í tilefni af
fyrirhuguðum fundi þeirra Reag-
ans og Gorbatsjovs í Moskvu.
Par er fagnað ávinningum sem
náðst hafa í afvopnunarmálum en
bent á að enn sé langt í land með
að friðvænlega horfi í heiminum.
Hörmuð er mikil hervæðing
við Norður-Atlantshaf og á það
bent að á sama tíma og verið er að
semja um fækkun kjarnorku-
vopna á landi eykst vígvæðing í
höfunum. Sú þróun valdi íbúum
við Norður-Átlanshaf miklum
áhyggjum. LJmferð kafbáta, flug-
véla og herskipa og hættan á stór-
slysum aukist sí og æ. Skorað er á
leiðtogana að taka upp samn-
ingaviðræður um afvopnun á
höfunum.
gjh
S-Afríka
Samtök gegn Apartheid
Rík nauðsyn á auknum alþjóðlegum þrýstingi
gegn ógnarstjórn hvíta minnihlutans íS-Afríku
Á morgun verða S- Afríku i Gerðubergi í Breiðholti
Afríkusamtökin stofnuð gegn og hefst stofnfundurinn kl. 14.
Apartheid-stefnu stjórnvalda í S- Markmiðið með stofnun samtak-
anna er að virkja fólk úr öllum
þjóðfélagshópum til virkrar and-
stöðu gegn ógnarstjórn hvíta
minnihlutans þar í landi.
Að sögn Kristínar Valgeirs-
dóttur sem er ein af þeim fjöl-
mörgu sem standa að stofnun
samtakanna er aukinn alþjóð-
legur þrýstingur á s-afrísk
stjórnvöld eina leiðin til að koma
i veg fyrir blóðbað í landinu þegar
blökkumenn rísa upp til lokaupp-
gjörs við kúgara sína.
Sjá bls 3 og 5
1928—1988
SVFI60 ára
f dag hefst 22. landsþing Slysa-
varnafélags íslands og verður 60
ára afmælisins sem var fyrr á ár-
inu sérstaklega minnst. Þingfull-
trúar eru um 200 frá öllu landinu.
í tengslum við þingið verður úti-
sýning á nýjustu tækni í björgun-
arbúnaði.
Sjá bls. 2
Noregur
Óstöðvandi helþörungar
Vísindamenn standa enn ráð- vegna sunnanáttar og ógnar nú
þrota andspænis þörungaplág- bestu fiskeldisstöðvum Norð-
unni við strendur sunnanverðs manna við Björgvin.
Noregs. Vágesturinn þokast enn - _.. . . Z
norður með vesturströndinni D,S-'-