Þjóðviljinn - 27.05.1988, Side 7
HEIMURINN
7
Noregur
Helþörungar þokast norður
Eitruðu þörungarnir sem þegar
hafa eytt miklum hluta sjávar-
lífs undan ströndum Svíþjóðar og
sunnanverðs Noregs héidu áfram
heiför sinni norður með strönd-
um í gær. Ogna þeir nú helstu og
bestu fiskeldisstöðvum Norð-
manna við Björgvin.
Sjávarlíffræðingar og aðrir sér-
fræðingar hafa lagt nótt við dag
undanfarna tvo sólarhringa í ör-
væntingarfullri leit sinni að ráði
til þess að vinna bug á þessum
vágesti. Sem kunnugt er telja vís-
indamenn að efnamengun hafi
orsakað offjölgun svipuþörunga
en þeir gefa frá sér eitur og stífla
að auki tálkn fiska og kæfa þá.
Vísindamenn sögðu að veður-
blíðan í gær hefði enn stuðlað að
fjölgun helþörunganna og mild
sunnanáttin blési þeim æ norðar
með vesturströndinni. Þeir hefðu
verið undan ströndum Stafangurs
um nónbil.
„Það getur vel verið að allur
þorsks- og rækjustofninn frá
svæðinu undan Friðriksstað allt
Ógna bestufiskeldisstöðvum Norðmanna undan ströndum
Björgvinjar
að Kristjánssandi hafin verið
þurrkaður út. Máski verður þetta
auður sjór næstu fimm árin,“
sagði Dagfinnur Iversen, framá-
maður í Norska fisksalasamband-
inu.
Sunnlenskir fiskeldismenn
reyndu að forða laxi sínum og sil-
ungi frá tortímingu í gær með því
að láta togara draga fiskeldiskví-
arnar undan sókn svipuþörung-
anna. Voru þær fluttar allt
norður til Stafangurs.
Bestu fiskeldisstöðvar Norð-
manna eru undan ströndum
Björgvinjar. Ef sunnanátt helst í
dag og næstu daga líður ekki á
löngu áður en helþörungarnir
berast þangað og drepa allt kvikt.
Kafarar segja sjóinn undan
sunnanverðum Noregi mettan af
dauðum og morknum fiski. Þetta
kemur heim og saman við upplýs-
ingar frá Svíþjóð um dauðaslóð
svipuþörunganna. Aðeins krabb-
ar, álar og fáeinir djúpfiskar virð-
ast þola heimsókn þessa vágests.
Reuter/-ks.
Fiskmarkaður í Björgvin.
Ferðbúnir sovéskir hermenn að morgni dags 15.maí. Þeir voru all;
100.300. , , A r .
SovétríkinlAfgamstan
Rúmlega 100 þúsund
Sovétmenn leysafrá skjóðunni um hernaðar-
ævintýrið íAfganistan. ígœrgreinduþeirfrá
fjölda hermanna sinna í landinu áður en
brottflutningur hófst
egar 15di dagur maímánaðar
rann upp voru 100.300 so-
véskir hermenn í Afganistan.
Þessar fréttir bar formaður her-
ráðs Sovétríkjanna á borð fyrir
fréttamenn í Moskvu í gær.
Nú virðist haldin einskonar
uppljóstranavika í Moskvu því í
fyrradag voru fréttamenn kvadd-
ir á fund annars framámanns í
Rauða hernum, Alexei Lizisjovs
hershöfðingja, sem skýrði þeim
frá fjölda fallinna Sovétmanna í
Afganistan.
Með hvort tveggja hafði um
átta og hálfs árs skeið verið farið
einsog mannsmorð eystra. Sergei
Akhromejev er annar valdamesti
maður Rauða hersins, aðeins
Jazov varnarmálaráðherra er
hærra settur. Hann mælti: „Ég
skýri ykkur frá því hér og nú að
100.300 sovéskir hermenn voru í
Afganistan þann 15da maí.“ Lizi-
sjov hafði áður greint frétta-
mönnum frá því að 13.310 Sovét-
menn hefðu fallið í Afganistan og
35.478 særst.
Sovéskir ráðamenn hafa ætíð
rætt um hernaðarumsvif sín í Af-
ganistan sem „minniháttar hern-
aðaraðstoð" en sérfræðingar
vestan tjalds maldað í móinn og
giskað á að 115 þúsund Sovét-
menn dveldu langdvölum í Asíu-
ríkinu. Upplýsingar Akhrome-
jevs renna því stoðum undir
ályktanir hinna síðarnefndu því
það verður að teljast „meirihátt-
ar hernaðaraðstoð“ að senda
100.300 hermenn til varnar ríkis-
stjórn sem riðar til falls.
Fréttamenn voru að vonum
fegnir að fá loks að vita allt af
létta um fjölda sovéskra her-
manna í Afganistan. En engu að
síður var Akhromejev spurður að
því hvers vegna hann hefði ekki
skýrt frá þessu fyrr. Formaður so-
véska herráðsins brosti breitt.
„Nú, jæja, „glasnost" hefur smátt
og smátt verið að vaxa ásmegin.
Ekki var skýrt frá þessu í gær en
ég er að því hér og nú.“
Reuter/-ks.
Danmörk
Þingmenn funda
En ný ríkisstjórn er ekki í sjónmáli
Danska þingið kom saman í gær
fyrsta sinni frá því fyrir kosn-
ingarnar þann 10. þessa mánað-
ar. Fundurinn var stuttur og
snerist mest um hefðbundin
formsatriði. Ekki bólar á nýrri
ríkisstjórn.
Þrír menn hafa fengið umboð
til stjórnarmyndunar frá drottn-
ingu og er Paul Schluter núver-
andi handhafi þess sem kunnugt
er. Þótt minnihlutastjórn hans
hafi nákvæmlega jafnmarga full-
trúa á þingi nú og fyrir kosningar,
70 talsins, þá er öldungis óvíst að
hún haldi lífi sökum sinnaskipta
félaga „Róttæka vinstriflokks-
ins“. Þeir héldu lífi í stjórn
Schluters síðastliðið kjörtímabil
ásamt flokksbræðrum Mogens
Glístrúps í „Framfaraflokknum“.
Níels Helveg Petersen, leiðtogi
„róttækra", er enn við sama
heygarðshornið og segist því að-
eins leggjast á sveif með forsætis-
ráðherranum að hann brjóti odd
af oflæti sínu og óski eftir sam-
vinnu jafnaðarmanna.
Þrátt fyrir þetta telja danskir
fréttaskýrendur líklegt að mynd-
uð verði minnihlutastjórn íhalds-
flokks, „Vinstriflokks" og „Rót-
tæks vinstriflokks". Eða að nú-
verandi minnihlutastjórn haldi
velli. Nema jafnaðarmenn myndi
stjórn með fulltingi vinstri- og
miðflokka. Skoðanir eru sem
sagt býsna skiptar meðal danskra
fréttaskýrenda ef marka má Re-
uter. Þó virðast þeir á einu máli
um að nokkuð verði liðið á jún-
ímánuð áður en oddviti nýrrar
ríkisstjórnar sver embættiseið í
viðurvist drottningar.
Reuter/-ks.
Hennar hátign, Margrét Þórhild-
ur: „Ósköp eruð þið lengi að
þessu strákar."
Leiðtogar
Fundimir verða fjórir
Ronald Reagan nýtur gestrisni Finna. Reynir að aðlaga sig tímamun
fyrir leiðtogafundinn í Moskvu
Ronald Reagan mun eiga fjóra
fundi með Míkhael Gorbat-
sjov í Moskvu. Þetta kom fram í
máli fréttafulltrúa hans, Marlins
Fitzwaters, í gær. Hann sagði að
lengi vel hefði verið ráðgert að
leiðtogarnir hittust fimm sinnum
að máli í alls sex klukkustundir en
vegna óska Sovétmanna hefði
fundum þeirra verið fækkað um
einn.
Reagan dvelur nú í Finnlandi,
sem kunnugt er, í boði þarlendra
stjórnvalda. í gær átti hann náð-
uga daga og lét fyrirberast í gesta-
hýsi ráðamanna við sjávarsíðuna.
Þar kvað allt vera til staðar til
þess að gera mönnum vistina
bærilega, sundlaug og sána svo
eitthvað sé nefnt.
Dvöl Reagans í Finnlandi hef-
ur þann tilgang fyrst og fremst að
venja hann við sjö klukkustunda
tímamun á Moskvu og Washing-
ton. Á sunnudaginn stígur hann
hinsvegar á ný uppí flugvél for-
setaembættisins og heldur í sína
fyrstu ferð til „heimsveldisins
illa“.
Reagan var nokkuð kok-
hraustur í viðtali við finnska dag-
blaðið „Helsingin Sanomat“ sem
birt var í gær. Hann gerði
mannréttindi að umtalsefni og
sagði umbótastefnu Gorbatsjovs
hvergi nærri róttæka á því sviði.
Mannréttindum væri enn mjög
ábótavant í Sovétríkjunum.
Á morgun eru tveir atburðir á
dagskrá forsetans. Hann mun
ganga á fund finnsks kollega síns
og gestgjafa, Maunos Koivistos,
og snæða með honum miðdegis-
verð. Síðar stígur hann í stól og
heldur ræðu um mannhelgi og
mannréttindi.
Reuter/-ks.
Föstudagur 27. mai 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7