Þjóðviljinn - 25.06.1988, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 25.06.1988, Qupperneq 1
Laugardagur 25. júní 142. tölublað 53. árgangur Hitaveita Reykjavíkur 11.4% hækkun taxta Hækkun gjaldskrár Hitaveitu Reykjavíkur um næstu mánaða- mót færir hitaveitunni 80 milljónir í tekjur umfram áætlun. Pessi hækkun er meiri en sem nemur kostnaðarhækkunum hit- aveitunnar vegna ógerðra útboða við Nesjavallaveitu. Verksamn- ingar hafa ekki verið frágengnir vegna byggingar hringveitinga- húss í Öskjuhlíð en ákveðið hefur verið að setja 125 milljónir í byggingu þess á árinu. Þó framkvæmdarfé til bygging- ar hringveitingahússins yrði skert um 80 milljónir á þessu ári væru samt eftir 45 milljónir til fram- kvæmda. Aðeins hefur verið gengið frá verksamningum við ís- tak um byggingu botnplötu húss- ins en það er aðeins lítið brot af heildarverkinu. Sjá síðu 3 Bessastaðir Kjósum! „Allir á kjörstað" er fyrirsögn síðari leiðara Pjóðviljans í dag og er þar hvatt til þess „að hver mað- ur sýni lýðveldinu og æðsta emb- ætti þess sjálfsagðan sóma og neyti síns atkvæðisréttar“. Sjá síður 4, 5 og 16 Útflutningur Dollarinn hækkar Fleiri krónurfástfyrir útflutningsafurðir á Bandaríkjamarkaði Kaupverð dollarans hefur hækkað all verulega frá því gengi íslensku króunnar var síðast fellt um miðjan maí sl en jafnframt hefur kaupverð breska sterlings- pundsins og japanska yensins lækkað þó nokkuð. Eftir síðustu gengisfellingu var dollarinn á 43,50 en er kominn í 45,16 krónur sem er 4,6% hækk- un. Sterlingspundið hefur lækkað um 3,4% og yenið um hvorki meira né minna en 10%. Breytingar á þessum gjaldmiðl- um hafa leitt til þess að fleiri krónur fást nú fyrir dollarann en áður og kemur það fiskvinnslunni til góða en til hins gagnstæða fyrir afurðir sem seldar eru á breska og japanska markaðinn. Sjá síðu 2 Efnahagsmálin Verðbólgumetið slegið ÓlafurRagnar Grímsson: Þörfin á nýrri efnahagsstefnu aldrei verið brýnni. Svavar Gestsson: Almenningur greiðirfyrir stefnu stjórnarinnar íþriðja sinn. Skuldabaggi tveggja miljón króna húsnœðisláns þyngist um rúma miljón á tveimur árum New York Skuggahliðamar Það var ekki fyrr en ég var komin hingað heim að ég fann hvað þetta umhverfi hafði fengið óskaplega á mig; hringlið í betlar- abaukunum, umferðargnýrinn og óhreinindin, heimilislaust fólk að búa um sig í pappakössum fyrir nóttina fyrir framan dýrustu tískuverslanir í heimi með aleiguna í tveimur eða þremur plastpokum, og þannig má áfram telja, segir Guðrún Kristinsdótt- ir, starfandi námsstjóri í fé- lagsráðgjöf við Háskólann, í við- tali við Þjóðviljann. Guðrún fór með hópi félagsráðgjafamema til New York í vor í námsferð, og kynntu þau sér fátækt í heimsborginni og afleiðingar hennar í ýmsum myndum. Sjá Sunnudagsblað Öll stefnumarkmið ríkisstjórn- arinnar í efnahagsmálum eru fall- in. Gengið hefur verið fellt, verð- bólga er 10 til 20 sinnum meiri en í viðskiptalöndum okkar, rekstr- arvandi atvinnuveganna er leystur til bráðabirgða með stöðugt auknum erlendum lán- tökum og það stefnir í hálfs milj- arðs króna halla á ríkissjóði í ár. Þetta kemur m.a. fram í viðtölum Þjóðviljans við Ólaf Ragnar Grímsson og Svavar Gestsson í blaðinu í dag. Ólafur Ragnar segir að á dag- inn hafi komið að allar viðvaranir Alþýðubandalagsmanna í fyrra og það sem af er þessu ári, hafi reynst réttar. - Þörfin á nýrri efnahagsstefnu hefur ekki verið brýnni í langan tíma og við mun- um á næstu vikum setja fram að nýju okkar tillögur og sýna framá hvernig leggja skal nýjan grund- völl að endurreisn efnahagslífs- ins. - Almenningur hefur verið látinn greiða í tvígang fyrir óráðs- íu stjórnvalda í efnahagsmálum. Fyrst með matarskattinum og síðan hærra innflutningsverði. Nú á hann að greiða í þriðja sinn með aukinni skuldabyrði af áhvíl- andi lánum, segir Svavar. Samkvæmt upplýsingum úr Húsnæðisstofnun sem Þjóðvilj- inn fékk í gær, hefur skuldabyrði húsnæðisláns sem var 2 miljónir og 226 þúsund fyrir réttum tveimur árum er það var tekið, þyngst um rúma miljón og er komið í 3.311.000 krónur. Sjá síðu 3 ■ - 50% 163% ■150% - -100% Línuritið sýnir hækkun byggingarvísitölu síðustu mánuðina. Hækkun vísitölunnar milli mánaða er framreiknuð til 12 mánaða þannig að sjá má hvað hækkanir yrðu miklar á einu ári ef verðbólguhraðinn héldist óbreyttur í eitt ár. Það kemur vel fram að verðbólguhraðinn hefur tekið kipp eftir að ríkisstjórnin greip til fálmkenndra efnahagsráðstafanna sinna. Ef ekki verður lát á mun byggingarvísitalan hækka um 163% á einu ári. < - 10% —I— Desember Janúar Febrúar -I- Mars -4- Apríl -4- Maí -4- Júní

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.