Þjóðviljinn - 25.06.1988, Page 8
BREYTT
KÍLÓMETRAGJALD
OG DAGPENINGAR
í STAÐGREÐSLU
FRÁ 1. JÚNÍ1988
KÍLÓMETRAGJALD
Frá og með 1. júní 1988 breytist áður auglýst skattmat á kílómetragjaldi, sbr. auglýsingu
ríkisskattstjóra nr. 3 frá 4. janúar sl. og auglýsingu hans nr. 7 frá 25. maí sl.
Mattii tekna á endurgjaldslausum afnotum launamanns af bifreið sem launagreiðandi hans
lœtur honum í té hœkkar þannig:
Fyrirfyrstu 10.000 km afnotúr 16,55 pr. km íkr. 16,85 pr. km.
Fyrlrnœstu 10.000km afnotúr 14,85pr. km I kr. 15, lOpr. km.
Yflr20.000km afnotúr 13, lOpr. km í kr. 13,30 pr. km.
Mat á endurgreiddum kostnaði til launamanns vegna afnota launagreiðanda af bifreið
hans, sem halda má utan staðgreiðslu, hœkkar þannig:
Fyrir fyrstu 10.000km afnot úr 16,55 pr. km f kr. 16,85 pr. km.
Fyrirnœstu 10.000kmafnotúrl 4,85 pr.kmfkr. 15,10pr.km.
Yfir20.000km afnotúr 13, Wpr. km íkr. 13,30pr. km.
Fái launamaður greitt kílómetragjald frá oþinberum aðilum vegna aksturs í þágu þeirra sem
miðast við „sérstakt gjald' eða „torfœrugjald" sem Ferðakostnaðamefnd ákveður má hœkka
kílómetragjaldið sem hér segir:
Fyrir 1 -10.000kmakstur-sérstaktgjald hœkkun um 2,60 kr. pr. km.
torfœrugjald hœkkun um 7,00 kr. pr. km.
Fyrir 10.001-20.000km akstur - sérstakt gjald hœkkun um 2,30 kr. pr. km.
torfœrugjald hœkkun um 6,25 kr. pr. km.
Umfram 20.000km akstur-sérstakt gjald hœkkun um 2,05 kr. pr. km.
torfœrugjald hœkkun um 5,55 kr. pr. km.
DAGPENINGAR
Frá og með 1. júní 1988 breytist áður auglýst skattmat á dagpeningum, sem halda má utan
staðgreiðslu, sbr. auglýsingu ríkisskattstjóra nr. 3 frá 4. janúar sl., þannig:
Almennir dagpeningar vegna ferðalaga erlendis:
New York borg SDR150, óbreyttSDR 150
Noregur og Svfþjóð úr SDR165ÍSDR170
AnnarsstaðarúrSDR 150ÍSDR155
Við það skal miða að almennir dagpeningar vegna ferðalaga erlendis skiptisf þannig:
Vegna gistingar 50%. Vegna fœðis 35%. Vegna annars kostnaðar 15%.
Sé hluti af ferðakostnaði erlendis greiddur samkvœmt reikningi frá þriðja aðila og jafnframt
greiddir dagpeningar skal miða við framangreinda skiptingu við mat á því hvort greiða beri
staðgreiðslu af hluta greidöra dagpeninga.
Dagpeningar vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa:
New York borg SDR 95, óbreytt SDR 95.
Noregur og Svíþjóð úrSDR 105 ÍSDR110.
AnnarsstaðarúrSDR95íSDR 100.
Dagpeningar vegna ferðalaga innanlands:
RSK
RfWSSKATTSTJÓRI
Gisting og fœði í einn sólarhring úrkr. 3.960,- f kr. 4.665,-
Gistingfeinnsólarhrlngúrkr. 1.890,- íkr. 1.915,-
Fœði hvern heilan dag, minnst lOtfma ferðalag úrkr. 2.070,- í kr. 2.750,-
Fœðiíhálfandag,minnst6tímaferðalagúrkr. 1.035,-fkr. 1.375,-
Listahátíð
er lokið
Síðasta dag Listahátíðar spil-
aði Guarneri strengjakavartett-
inn í Óperunni fyrst kvartett K.
387 eftir Mozart sem er einn af
hinum svonefndu Haydnkvart-
ettnum. En þeir eru í dómi undir-
ritaðs Mozart eins og hann er
bestur og dýpstur. Par sýnir hann
langt inn í sál sína en þessi músík
er jafnframt svo afskaplega mikil
Iist. Mozart er þar komin inn í
undursamlegan heim sem er eins
og forsalur guðheima. Næst var
kvartett nr. 1 eftir Janácek.
Verkið er eins konar hugleiðing
um sögu Tolstojs Kreutzer-
sónötna. (Sagan fjallar um hjón-
abandið. f prógrammi tónl-
eikanna er eitthvað talað um von
bundna hinum göfugri tilfinning-
um mannsins í ástinni. Pá vil ég
nota tækifærið og minna á þá
staðreynd sem fremur hljótt hef-
ur verið um í nokkrar rómantísk-
ar aldir, að ástin er mjög dýrslegt
fyrirbæri. Hún stafar frá kyn-
hvötinni sem er kænskubragð
náttúrunnar til að deyja ekki út.
Allar skepnur jarðarinnar (líka
marflæmar og jötunuxarnir) hafa
bullandi kynhvöt og elskast ofsa-
lega. Ef ekki væri kynhvötin væri
engin ást. Maður sem er geltur
fyrir kynþroska verður ekki
ástfanginn en hamingjusamur og
glaður alla sína tíð. (Maður sem
er geltur eftir kynþroska er hins
vegar alveg í keng og á lífstíðar-
bömmer - En þetta var útúrdúr
innari í lengri útúrdúr.) Þess
vegna fær undirritaður eigi kom-
ið auga á hina rómantísku göfgi
þessara dýraláta sem spretta af
kynhvötinni. Þegar mann-
skepnan á í hlut eru þau kölluð
„ást“ og á hún að vera voða fall-
eg, hjartnæm og kannski guðleg.
En hjá dýrunum er þetta
ástand kallað gredda. Önnur orð
sömu merkingar sem mennirnir
nota reyndar oft um sjálfa sig eru
losti og girnd og fýsn. Hjóna-
bandið er reyndar meistaralegt
snjallræði homo sapiens til að
svala lostafýsnagirnd sinni á
staðnum og stundinni og þurfa
þar með ekki að standa í því hel-
víti að hlaupa berrassaðir út um
allan bæ í kulda og roki eins og
breimakettirnir sem eiga enn
eftir að uppgötva hagræði og
blessun hjónabandsins. - Pessi
listræna hugleiðing um ekta-
skapinn var nú annars útúrdúr
sem mér datt si sona í hug út frá
Kreutzer-sónötunni og kvartett
Janácecks.)
Að lokum flutti Guarneri hinn
guðdómlega kvartett Beethovens
op. 130. Beethoven lifði alltaf
einn. Hann horfðist ætíð í augu
við lífið eins og það er. Hann flýði
aldrei sjálfan sig né hina óhjá-
kvæmilegu einsemd mannsins á
jörðunni. En Beethoven komst
bak við hana. Hann fann landið
þar sem maðurinn er ekki lengur
einn. Af þeirri ástæðu að þar er
einstaklingurinn ekki lengur til.
Aðeins hinn mikli eilífi andi.
Guarneri kvartettinn er frá-
bær. Hann lék af óviðjafnanlegri
snilld og þarf ekki að hafa um það
fleiri orð.
Sigurður Þ6r Guðjónsson
Dómkórinn á
sautjándanum
Ætlar það að sannast á mér
eins og fleirum að enginn sé spá-
maður í sínu föðurlandi? Fyrir
nokkru birti ég tarotveðurspá
mína um frábært sumar. Og hafði
á orði að flýja land ef hún gengi
ekki eftir. Nú eru vinir og vanda-
menn farnir að ámálga það við
mig (en mjög vingjarnlega) hvort
ég sé ekki farinn að pakka niður.
En sá hlær best sem síðast hlær.
Og skulum við tala saman í haust.
En sautjánda júní fór ég þá svað-
ilför í rokinu og rigningunni að
brjótast upp á Landakotshæð.
Þar hélt Dómkórinn konsert í
Kristskirkju. Stjórnandi var
Martin H. Friðriksson.
Kórinn söng fyrst lag eftir Ros-
enmuiler og heitir það „Welt ade,
ich bin dein mde“. Heimshryggð-
in hefur löngum notið mikilla vin-
sælda. Og lifir enn góði lífi. Ég
þekki eina fína frú hver grætur
allar nætur af svartri heims-
hryggð en syngur alla daga af
sætri heimslyst. Svona er dýptin
mikil í mannlífinu. Og kraftur
söngsins. Þá flutti kórinn lag eftir
Heinrich Schutz sem ég þarf ekki
að taka fram rétt einu sinni að er
mesta tónskáld heimsins. Þá kom
Ave verum corpus eftir Mozart,
fallegt lag eftif Saint-Séns og ann-
að eftir Bruckner. Og nokkur ís-
lensk lög. Tveir sálmar úr Hóla-
bók Guðbrands Þorlákssonar í
útsetningu Jóns Þórarinssonar og
lag úr Hymnodíu frá 1742 í út-
setningu söngstjórans. Loks tvö
lög eftir Þorkel Sigurbjörnsson:
Áminning og Heyr himna smið-
ur. Fyrra lagið er mjög áhrifa-
mikið en hið seinna auðvitað
klassískt í fegurð sinni og látleysi.
Einsöngvarar voru Sigrún V.
Gestsdóttir, Anna S. Helgadótt-
ir, Sigursveinn K. Magnússon og
Ingólfur Helgason. Allt tókst
þetta bærilega nema Áminning
Þorkels. Þar voru smá slys.
Schútz fannst mér best sunginn,
mjög schútzlega og stílhreint.
Mozart var aftur á móti fremur
daufur og það vantaði þessa ein-
kennilegu brucknerisku mystik í
lag gamla góða Bruckners. En ís-
lensku lögin voru mjög falléga
sungin. Dómkórinn finnst mér
fágaður og fínn en skorta snerpu
og kraft. Nákvæmni var og stund-
um ábótavant. En smekkvísi og
listgáfa stjórnandans leynir sér
aldrei.
Það stóð til að syngja nkkra
madrigala úti á stétt en veðrið
drap það einsog annað. Nú er all-
ur gróður dauður í bænum. Öll
sumarsæla! Öll lífsgleði! Og
heimshryggðin mun gráta ein.
Sigurður Þór Guðjónsson