Þjóðviljinn - 29.06.1988, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 29.06.1988, Qupperneq 2
FRETTIR Slippstöðin Hluthafafundurínn í dag Óvíst um sölu og verð Idag verður haldinn fundur hluthafa í Slippstöðinni á Ak- ureyri og þar verður væntanlega samþykkt tillaga fjármálaráð- herra um að hluthafar afsali sér forkaupsrétti á hlutabréfum fyrirtækisins, en Akureyrarbær hefur samþykkt það fyrir sitt leyti. Að sögn Jóns Baldvins Hanni- balssonar fjármálaráðherra hefur ekki verið tekin endanleg ákvörðun um það hvort hlutabréf ríkisins í fyrirtækinu verða seld eður ei. Þá liggur heldur ekki fyrir mat á eignarhluta ríkisins og þar af leiðandi ekki heldur hvað ríkið telur sig þurfa að fá fyrir sinn hlut ef af sölu verður. -grh SUF Þolinmæðin þratin Miðstjórnarfundur ungraframsóknarmanna: tekistáum stjórnarsamvinnuna. Gissur Pétursson, form. SUF: Kratar komiðfram ístjórninni sem dulbúið íhald. Ungir framsóknarmenn aflandsbyggðinni óánægðir með stjórnarbrölt Framsóknar Samstarfsviljinn innan ríkis- stjórnarinnar virðist vera gjörsamlega þrotinn. Það er stór hópur ungra framsóknarmanna sem hefur fengið sig fullsaddan á stjórnarbröltinu, sagði Gissur Pétursson, formaður Sambands ungra framsóknarmanna, en miðstjórnarfundur sambandsins verður haldinn á föstudag, þar sem búast má við fjörugum um- ræðum um ágæti ríkisstjórnar- innar. Með fundarboðinu fengu mið- stjórnarmenn send drög að stjórnmálaályktun þar sem er m.a. farið hörðum orðum um ríkisstjórnarsamvinnuna, en Gissur sagði að umræður á mið- stjórnarfundinum myndu að öllum líkindum snúast mest um afstöðuna til ríkisstjórnarinnar og þátt framsóknarmanna í henni. - Ég hef löngum verið hrifinn af krötum og talið þá til félags- hyggjuflokks. í stjórnarsamstarf- inu hafa þeir í reynd ekki reynst annað en dulbúið íhald sem er snöggtum verra en það opinbera, sagði Gissur. Gissur sagðist engu vilja spá um það hvort miðstjómin myndi álykta gegn ríkisstjórninni. - Andstaðan er einna hörðust sýnist mér hjá ungu fólki á lands- byggðinni og það eru þá einkum vaxta- og lánamálin sem tröllríða atvinnnuvegunum sem þessu fólki verður starsýnt á. Samband ungra framsóknar- manna er í ár 50 ára. Á afmælis- þingið eru ungliðarnir búnir að bjóða einum oddvita græningja í Vestur-Þýskalandi, Petru Kelly, og hefur hún að sögn þekkst boð- ið. -rk Borgarmálaráð Skákmóti norrænna atvinnubílstjóra var haldið áfram í Hreyfilshúsinu í gær en mótið var sett í fyrradag. Fjöldi þátttakenda er á mótinu sem haldið er til skiptis á Norðurlöndunum. Tvær umferðir eru tefldar á dag en mótinu lýkur síðar í vikunni. Mynd-Ari. Fundað um Fossvogsdalinn fundi Borgarmálaráðs Al- i þýðubandalagsins í dag verð- Barnavernd Norrænt þing Sautjánda norræna barna- verndarþingið var sett í Háskóla- bíói í gær, og hófst með fyrirlestri Sigurjóns Björnssonar prófess- ors. Þingið stendur í fjóra daga og er dagskráin mjög viðamikil: æskan og þjóðfélagsbreytingar; barnavernd í ljósi sögunnar; formleg og óformleg úrræði; böm og skilnaðir; réttur barn- anna og skyldur foreldranna; og börn þeirra foreldra sem neyta vímuefna. HS Dagvistun Hnifurinn enn í slíðrum Afundi borgarráðs í gær var Iögð fram tillaga frá stjórn Dagvistar barna um verulegar breytingar á gildandi reglum um styrki borgarinnar til barnaheim- ila sem rekin eru af öðrum en op- inberum aðilum. Ekki var tekin afstaða til tillögunnar og málinu frestað til næsta borgarráðsfund- ar eftir viku. Að sögn Kristínar Á. Ólafs- dóttur borgarfulltrúa, sem sæti á í stjórn Dagvistar, felur tillaga meirihluta stjórnarinnar, veru- legan niðurskurð til viðkomandi barnaheimila og þá sýnu mest til barnaheimilisins Óss sem for- eldrar viðkomandi barna hafa rekið í 15 ár. Sem dæmi um hvað tillaga meirihlutans í Dagvist barna hefðu þýtt fyrir þetta ár ef hún hefði verið samþykkt fyrir ári, hefði barnaheimilið Ós að- eins fengið tæpar 768 þúsund krónur en fékk samkvæmt núg- ildandi reglum tæpar 2,5 miljónir króna. t bréfi frá barnaheimilinu Ósi sem lá fyrir stjórnarfundi Dag- vistar barna þegar tillagan um breytingarnar var keyrð í gegn gegn atkvæðum fulltrúa Alþýðu- bandalagsins og Framsóknar, er bent á að rekstrargrundvöllur heimilisins sé brostinn, nái til- lagan fram að ganga. í dag þurfa foreldrar sem eiga börn á Ósi að greiða 16 þúsund krónur fyrir daginn en ef breyting meirihlut- ans tæki gildi um næstu áramót hækkaði daggjaldið í rúmar 24 þúsund krónur. -grh ur fjallað um framtíð Fossvogs- dalsins en sérstakir gestir og frummælendur á fundinum eru þeir Valþór Hlöðversson bæjar- fulltrúi AB í Kópavogi og Yngvi Þór Loftsson landslagsarkitekt sem unnið hefur sérstakt skipulag að útivistarsvæði í Fossvogsdaln- um. Þá mun Guðrún Ágústsdóttir fulltrúi í skipulagsnefnd Reykja- víkur flytja erindi á fundinum. Tryggvi Þór Aðalsteinsson framkstj. borgarmálaráðs sagði í samtali við Þjóðviljann í gær að að ástæða væri til að hvetja félaga til að mæta á fundinn og kynna sér stöðu mála og möguleika varðandi uppbyggingu dalsins. Fundurinn verður haldinn að Hverfisgötu 105 og hefst kl. 17.00. Rœkja Aðeins þrjár stöðvar famar Félag rækju-og hörpudiskframleiðenda: Klofningurinn verulega ýktur. Kusum samstarfvið sjávarútvegsráðuneytið fremur en að sitja hjá. Meðalkvóti á verksmiðju umþúsund tonn essar óánægjuraddir sc.u upp hafa komið vegna vinnslu- kvótans koma mér ekkert sér- staklega á óvart. En ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að 16 vinnslustöðvar séu á leiðinni út úr félagi rækju- og hörpudiskfram- leiðenda. Nær væri að tala um þrjár stöðvar, þe. Skelver í Garði, Rækjuverksmiðjuna á Bfldudal og Dögun á Sauðar- króki, sagði Jón Alfreðsson, kaupfélagsstjóri á Hólmavík og nýkjörinn formaður Félags rækju- og hörpudiskframleið- enda, í samtali við Þjóðviljann. Eiríkur Böðvarsson, fram- kvæmdastjóri Niðursuðuverk- smiðjunnar hf. á ísafirði, taldi einnig fráleitt að 16 vinnslustöðv- ar væru á leiðinni út úr félaginu vegna óánægju með nýsettan vinnslukvóta. Hann sagði að í fyrstu drögum að reglugerðinni hefði verið gert ráð fyrir 200 tonna lágmarkskvóta á verk- smiðjur og þá hefðu nokkrir verksmiðjueigendur lýst yfir ó- ánægju sinni en þeir hefðu þagn- að um leið og lágmarkskvótinn hefði verið hækkaður upp í 500 tonn. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 29. júní 1988 Óttar Yngvason hjá íslensku útflutningsmiðstöðinni staðhæfði við Þjóðviljann í gær að 16 rækju- vinnslustöðvar væru búnar að stofna með sér ný hagsmuna- samtök, Félag rækjuvinnslu- stöðva, vegna óánægju með framgang stjórnar Félags rækju- og hörpudiskframleiðenda varð- andi reglugerð sjávarútvegsráðu- neytisins um vinnslukvóta á rækj- uverksmiðjur vegna vinnslu á út- hafsrækju. Jón Alfreðsson sagði það vera rétt að samþykkt hefði verið á félagsfundi að mótmæla fyrirhug- aðri kvótasetningu en sagði jafn- framt að þegar ráðherra hefði til- kynnt þáverandi stjórn í byrjun árs að ætlunin væri að setja á vinnslukvóta hefði stjórnin metið það svo að betra væri að hafa samstarf um hann við ráðuneytið heldur en að gera það ekki. Jón sagði enga launung vera á því að kvótinn hefði verið og væri deilu- mál innan félagsins og að hann skerti athafnafrelsi manna, en við því væri ekkert að gera að svo stöddu; sjálfur hefði hann ekki vanist öðru en kvóta á innfjarð- arrækju og menn hefðu mátt bú- ast við því einnig að kvóti yrði settur á vinnslu úthafsrækju sem og annað sem viðkemur vinnslu sjávarafurða. Samkvæmt reglugerð sjávarút- vegsráðuneytisins hefur 41 rækjuverksmiðju með samtals 89 pillunarvélar verið úthlutað vinnslukvóta uppá 39.325 tonn sem er um 3.325 tonnum hærri kvóti en rækjukvóti veiðiskip- anna en hann er sem kunnugt er 36 þúsund tonn. Meðalkvóti á verksmiðju er því rúm þúsund tonn en 19 verksmiðjur fá 500 tonna kvóta hver. -grh

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.