Þjóðviljinn - 05.08.1988, Page 2

Þjóðviljinn - 05.08.1988, Page 2
Einar Oddur „Við erum á leiðinni út á há- skólalóð í umræður um konur og völd, en Alþýðubandalagskonur eru með framsögu um það í dag. Þessi umræða hefur verið í gangi undanfarna daga hjá okkur og systraflokkum okkar á hinum Norðurlöndunum og þær hafa verið mjög gagnlegar og skemmtilegar,“ sagði Alfheiður Ingadóttir þegar við höfðum sam- band við hana í Osló laust fyrir hádegi í gær. Álfheiður sagði að atriðin á Kvennaþinginu skiptu þúsundum og því væri hræðilega erfitt að velja og hafna. Síðdegis í gær var hanastélsboð á vegum sendiherr- ans fyrir íslensku þátttakendurna á þinginu og þurfti Laugar- dalshöll þeirra Norðmanna sem samkomustað fyrir konurnar. „Þetta verður eina tækifærið okkar til þess að hittast allar sam- an í hóp. Hinsvegar höfum við Alþýðubandalagskonurnar hist. Við fórum saman út að borða á þriðjudagskvöldið, en um 50 Al- þýðubandalagskonur sækja þing- ið.“ Herkonurnar Það er ekki auðvelt að gera upp á milli atriða þegar svona mikið er í boði, en hinsvegar átti Álf- heiður ekki í neinum erfiðleikum með að ákveða hvað henni finnst ómerkilegast á þinginu, en það eru herkonurnar svokölluðu, sem krefjast þess í nafni jafnréttis og friðar að konur verði skyldað- ar í herinn. „Þær hafa umsnúið friðar- og jafnréttishugsjón kvenna. Þær ganga hér um í herklæðum og virðast hafa mikla fjármuni á bak við sig, því bæklingar þeirra eru litprentaðir og þær eru með stærsta kynningarbásinn á svæð- inu. Þær nota ýms tákn kven- leikans í dag, einsog t.d. vara- litinn. Þær hafa búið til tákn úr varalitnum, sem er einsog sprengja, og prentað það á vegg- spjöld og í áróðursbækling. Auðvitað vöktu þessar herkonur athygli fjölmiðlanna og það fyrsta sem sagt var frá þinginu í norskum sjónvarpsfréttum var frétt af þessum konum og vakti það mikla reiði á þinginu.“ \ Blendnar tilfinningar Én ef við snúum okkur að framlagi íslensku kvennanna? „Það að vera íslendingur hér vekur mjög blendnar tilfinning- ar; eina mínútuna er maður mjög hreykinn en þá næstu skammast maðuf sín. Tvö atriði hafa vakið athyglí allra. Annarsvegar er það söngleikur BSRB-kvenna, sem er saminn og fluttur af þeim. Þar er saga íslenskra kvenna rakin frá upphlutnum, í gegnum herinn, rauðsokkur, hippa og fram til dagsins í dag. Þessi söngleikur hefur verið fluttur hvað eftir ann- að og allir skemmt sér konung- lega. Hitt atriðið er stórkostlega fal- leg sýning 14 íbúa í Bjarkarási, sem Signður Eyþórsdóttir stjórn- ar. Á sýningunni er Síðasta blóm- ið, eftir James Turner, í þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar, m.a. flutt í tónum, tali og leik. Á sýn- ingunni táruðust allir viðstaddir. Svo skammast maður sín þegar maður þarf að útskýra fyrir öðr- um að íslenskir foreldrar verða að vinna samanlagt 118 vinnu- stundir á viku og einnig þegar tal- ið berst að dagvistunarmálum, sem eru í algjörum ólestri á ís- landi miðað við hin Norður- löndin. Ég tók þátt í pallborðs- umræðum um hversdagslífið á Norðurlöndum. Á vegum Norðurlandaráðs hefur verið starfandi rannsóknarnefnd um þessi mál, en íslendingar eru ekki með í henni. Mönnum brá mjög í brún þegar þeir heyrðu þetta. Það atriði sem hefur vakið lang mesta athygli hér á þinginu er fyrirlestur ástralska læknisins Helen Caldicott sl. sunnudag. Þar komust helmingi færri að en vildu og t.d. þurftu margar af ís- lensku konunum frá að hverfa og þar á meðal ég. Helen hefur ferð- ast um heiminn og barist fyrir af- vopnun. Hún þykir stórkostlegur fyrirlesari og við höfum rætt við hana um að koma til íslands og halda fyrirlestur og hún hefur- tekið vel í það, en það á eftir að finna stað og stund. Það er yndislegt að finna þann kraft sem er í konum hér. Þetta er vítamínsprauta sem á eftir að breiðast til fleiri en þessara 800 kvenna sem sækja þingið frá ís- landi.“ Ekki allar systur Hvernig er aðbúnaðurinn? „Hann er misjafn því hópurinn býr á mismunandi stöðum; sumir á hótelum, aðrir hjá vinum og kunningjum, enn aðrir á einka- heimilum og þannig mætti lengi upp telja. Eftir því sem ég veit best hefur ekkert slys eða neitt slæmt komið upp á hjá konunum. Það eina sem var erfitt var næt- urflugið sem 250 konur lentu í. Laugardagurinn varð því mörg- um mjög erfiður.“ Gott veður?" „Veðrið hefur verið yndislegt, við erum nánast á stuttbuxum upp á hvern einasta dag. Þá hefur allur undirbúningur þingsins ver- ið til fyrirmyndar." Láta karlarnir ekkert sjá sig á þinginu? „Jú, það var áberandi í gær að þá kom töluverður fjöldi karla á þingið til þess að fylgjast með, þeir hafa hinsvegar ekki tekið þátt í umræðunum." Nú eru konur úr öllum áttum og öllum stjórnmálaflokkum á þing- inu. Eruð þið allar systur? „Við erum auðvitað ekki allar systur hér. Það verður bara að viðurkennast einsog það er. Við konurnar í Alþýðubandalaginu vitum að við eigum ekki samleið með öllum konum, það sýna herkonurnar okkur. Eg á enga samleið með þeim. Það hefur verið í gangi umræða um að úti- loka herkonurnar, en sú umræða hefur ekki verið mjög gefandi. Ef útiloka á einn hóp vegna skoðana hans þá er það spumingin hvar eigi að draga mörkin og ef við dauðhreinsum þingið þá verður það fölsuð mynd af raunveruleik- anum. Thatcher er kona en ekki systir. Við getum lært margt af því að kynnast þessum viðhorf- um.“ En saknið þið ekki karlanna? „Nei.“ fyrir Einar K.? Það hefur vakið athygli manna að meðan sól Bolvík- ingsins Einars K. Guðfinns- sonar varaþingmanns Sjálf- stæðisflokksins hnígur á Vestfjörðum eykst sífellt veg- ur Einars Odds Kristjáns- sonar á Flateyri. Einar Oddur var skipaður í stefnuskrár- nefndina sem Davíð Oddsson er formaður í og á að fleyta flokknum frammyfir alda- mótin, það er talað við Einar Odd um stöðu fiskvinnslunnar og nýjar gengisfellingar á virðulegum stöðum í Morgun- blaðinu, og nú síðast var Ein- ar Oddur gerður fulltrúi Sjálf- stæðisflokksins og formaöur í forstjóranefndinni. Einar K. sést hinsvegar lítið. Þetta er auðvitað sagt vera í beinu samhengi við gengi fyrirtækj- anna sem kapparnir reka, -EG á Bolungarvík á ekki fyrir skuldum, en Hjálmur er enn sæmilega stöndugur. Er síð- an spáð útfrá þessu í spilin á framboðslistanum, að maður tali ekki um ef það yrði kosið í haust. ________Síðasti stofukomminn Össur Skarphéðinsson, fé- lagi í Alþýðubandalaginu viðr- aði skoðanir sínar á uppá- haldshugðarefnum sínum, fiskeldi og Alþýðubandalag- inu í fyrsta eintakinu af Nýja Helgarblaðinu. Síðan hefur mönnum orðið nokkuð tíðrætt um mynd þá sem birtist af össuri þar sem hann lá mak- indalega uppi í sófa. í þá daga sem til voru „alvöru" sósíalist- ar voru auðvitað til „plat“ sósí- alistar og var þeim gjarnan gefið skammarheitið „stofu- kommar" eða þá „sófakom- mar“. Spurningin er því sú hvort félagi Össur hafi viljandi viljað ögra „sönnunrT sósial- istum með vali á tökustað eða hvort að hann sé bara svona mikill „sófakommi" í sér...B Gjaldmælar í sturtuklefa Heyrst hefur að borgaryfir- völd ætli sér ekki að láta stað- ar numið í að plokka krónurn- ar af þeim sem ánægju og yndi hafa af því að sækja sundlaugar borgarinnar. Ný- lega hækkuðu þau aðgangs- eyrinn um lítil 33% og kostar nú 80 krónur að fá sér sundsprett og annað eins ef viðkomandi aetlar að renna sér í vatnsrennibrautinni í Laugardalnum. Það nýjasta úr herbúðum Davíðs er sú hugmynd að setja upp gjald- mæla í alla sturtuklefa lauganna. Ef fólk ætlar sér að vera lengur í sturtu en sem nemur 30 sekúndum verður það að borga aukagjald í sturtuna.B -Sáf 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.