Þjóðviljinn - 05.08.1988, Blaðsíða 30

Þjóðviljinn - 05.08.1988, Blaðsíða 30
 MYNDLIST Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er lokað um óákveðinn tíma vegnaviðgerða. Eden, Hveragerði, Steingrímur Sigurðsson sýnir myndir unnar í olíu, með pastel, akrýl og vatns- litum. Sýningin ertileinkuð Vestmannaeyjum og Snæfells- nesi, þessumtveimurorkustöðv- um og stendurtil 7. ágúst. Ferstikla, Hvalfjarðarströnd, sýning á myndverkum eftir Bjarna Þór Bjarnason, Akranesi. Á sýningunni, sem stendur til 13. ágúst, eru olíukrítarmyndir, col- lage og grafík (einprent). Mynd- irnareru tilsölu. Gagnfræðaskólinn, Ólafsfirði, sunnudaginn 7. ágúst klukkan 14.00 opnar Þorvaldur Þorsteins- son sínafjórðu einkasýningu. Á sýningunni eru rúmlega tuttugu vatnslita- og tússmyndir. Sýning- in verður opin á virkum dögum klukkan 20.00 - 22.00 og um helgar klukkan 14.00 -17.00 en henni lýkur 14. ágúst. Gallerí Birgis Andréssonar, Vesturgötu 20, bakdyr, sýning á verkum þýska listamannsins Gerhard Amman opnuð í kvöld, föstudaginn 5. ágúst, klukkan 20.00. Galleríið er opið á kvöldin og eftirsamkomulagi, en áður hafa sýnt í galleríinu listamenn- irnir Halldór Ásgeirsson, Árni Ing- ólfsson, Bjarni H. Þórarinsson, Kees Visserog Ragna Róberts- dóttir. Sýning Gerhards stendur út mánuðinn. Gallerí Borg, Pósthússtræti 9, sýning á verkum sem galleríið hefurtil sölu eftir gömlu íslensku meistarana. Skipt verður um verk reglulega á sýningunni sem standa mun í sumar. Gallerí Borg eropið virka daga kl. 10:00- 18:00, ogkl. 14:00-18:00 um helgar. Grafíkgalleríið, Austurstræti 10, kynning ágrafíkmyndum Daða Guðbjörnssonarog keramik- verkum BorghildarÓskarsdóttur. Auk þess er til sölu úrval grafík- myndaeftirfjölda listamanna. Galleríið er opið virka daga kl. 10:00-18:00. Gallerí Gangskör, verk Gang- skörunga eru til sýnis og sölu í galleríinu semeropið kl. 12:00- 18:00 þriðjudaga til föstudaga. Gallerí Svart á hvítu, Laufás- vegi 17(fyrirofan Listasafnið), sýning á verkum Nínu Gautadótt- ur. Á sýningunni eru olíu- og akr- ýlmálverk unnin 1987 - ‘88 og lýkursýningunni 14. ágúst. Auk sýningarinnar er á efri hæð gall- erísins listaverkasala og eru til sölu verk ýmissa listamanna. Listaverkasalurinn eropinn á sama tíma og sýningarsalur gall- erísins, klukkan 14.00 -18.00 alla daga nema mánudaga. Hafnargallerí Gunnar Kristinn Ottósson sýnir3 verk, unnin með lituðu Ijósi og hreyfingu. Sýningin stendurtil 12.ágúst. Kjarvalsstaðir, austursalur: Sýning á verkum Jóhannesar S. Kjarvals, þar á meðal mörgum verkum sem ekki hafa komiðfyrir almenningssjónirfyrr. Sýningin stendurtil21.ágúst. Vestursalur: í syðri enda, sýning á verkum Guðlaugs Þórs Ás- geirssonar. Flestarmyndanna eru olíu- og pastelmyndir, unnar 1986 -1988. í eystri enda, sýning á verkum Rutar Rebekku Sigurj- ónsdóttur. Olíumálverk og grafík. Sýningarnar verða báðaar opn- aðar klukkan 14.00 laugardaginn 6. ágúst og þeim lýkur 21. ágúst. (vesturforsal: Ljósmyndasýning. Sýning á landslagsmyndum Bents S. Erikssons verður opnuð klukkan 14.00 laugardaginn 6. ágúst og lýkur 21. ágúst. Kjarvalsstaðir eru opnir daglega kl. 14:00-22:00. Listasafn ASI, Grensásvegi 16. Lokað fram í ágúst vegna sumar- leyfa. Listasafn Einars Jónssonar, Njarðargötu er opið alla daga nema mánudaga kl. 13:30- 16:00. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega kl. 11:00-17:00. Listasafn Islands, sýning á verkum MarcChagallseropin alla daga kl. 11:00-17:00. Sýn- ingin á verkum Chagalls stendur til 14. ágúst. Leiðsögn um Chagall-sýningunaferframá sunnudögum kl. 13.30. Kaffistofa Listasafnsins eropin á sama tíma og sýningarsalirnir. Mokka, Halldóra Emilsdóttir sýnir pastelmyndir. Verkin eru öll unnin á þessu ári og eru til sölu. Sýningin stendur út ágústmánuð. Norræna húsið, sumarsýning á verkum Jóns Stefánssonar „Landslag" stendur nú yfir. Sýn- ingin verðuropin daglega kl. 14.00-19.00 til 21. ágúst. Nýhöfn, Hafnarstræti 18, sumar- sýning á verkum ýmissa lista- manna. Verkin eru öll til sölu og afhendingar strax. Sýningin stendurfram í september, Ný- höfn er opin alla virka daga kl. 12:00-18:00, en lokuð um helgar. Nýiistasafnið v/ Vatnsstíg, Birgir Andrésson opnarmyndlist- arsýningu í efri sal laugardaginn 6. ágúst klukkan 16.00. Birgir sýnir2skúlptúraognokkur myndformog lýkursýningunni sunnudaginn 21. ágúst klukkan 20.00. Laugardaginn 6. ágúst mun Bjarni H. Þórarinsson standafyrir sjónþingi í Nýlistasafninu. Þar mun Bjarni kynna hugmyndir sínar um það sem hann kallar „sjónháttafræði" en þessi fræði leggja úr höfn brynjuð þremur sjónháttum; einbendu, tvíbendu og þríbendu. Sjónþinginu lýkur sunndaginn21.ágúst. Safnið er opið kl. 14:00-20:00. Þjóðminjasafnið, Bogasalur, sýning á verkum W.G. Colling- woods (1854-1932). Sýningin er opin alla daga nema mánudaga kl. 11:00-16:00, og stendurtil lokaseptember. LEIKLIST Ferðaleikhúsið, Tjarnarbíói, sýningar á Light Nights eru fjögur kvöld í viku, kl. 21:00, fimmtudaga til sunnudaga. TONLIST Norræna húsið, Loftfélag ís- lands heldur tónleika í aðalsal klukkan 20.30 í kvöld, föstudags- kvöld. Tónlistin er í ætt við spuna, framsækinn djass, improvisati- on, Afríkutónlist og fleira frum- legt. Sigurður Björnsson gítar, SigurðurHalldórsson bassi, Hvað á að gera um helgina? Fleyta friðarkertum Steinunn Harðardóttir, formaður Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna „Á föstudagskvöld mun ég mæta niður á Tjörn klukkan 10 stundvíslega, til þess að selja kerti til sem flestra, svo þeir geti lagt sitt af mörkum til varnaðar gegn þeim voða, sem átti sér stað fyrir 43 árum, þegar kjarnorkusprengjunni var varpað á Hírósíma.“ - Á að fara úr bœnum? „Nei, ég reikna ekki með því. Ég starfa sem leiðsögumaður og á von á Svíum, frá fyrirtækinu Tetrapack, sem ég ætla að leiða um borgina. Ég var með hóp frá Tetrapack í fyrra, sem kom hingað til þess að skoða nýjustu vélasamstæðuna frá fyrir- tækinu. Hún hafði ekki verið sett upp í Svíþjóð, heldur hjá Mjólkursamsölunni. Ég veit ekki hvað þessi hópur sem nú kemur ætlar að skoða, en ætli það verði ekki farið á söfn og verslað í Kringlunni t.d.“ — Helgin fer semsagt öll í vinnu, annarsvegar að hugsjóna- starfi og hinsvegar að þjónusta ferðamenn. ? „Nei, ekki öll. Ef veður verður sæmilegt reyni ég að dytta að garðinum.“ selló, strengjahljóðfæri, Daníel Þorsteinsson píanó, BirgirBald- ursson trommur. Miðaverð 500 krónur. IÞROTTIR Sólheimar í Grímsnesl, íþrótta- hátíð þroskaheftra, fatlaðra og aðstandenda þeirra verður hald- in sunnudaginn 7. ágúst og hefst dagskrá hennar klukkan 12.00. Sætaferðir eru frá BSÍ að morgni og aftur til baka að dansleik lokn- um. Þátttakaog aðgangur ókeypis. Allir velkomnir. Fótboltinn Laugardalsvöllur, landsleikur íslendinga og Búlgara á sunnu- daginn 7. ágúst klukkan 19.00. Leikurinn er vináttuleikur og jafn- framt fyrsti landsleikur þjóðanna. Verð aðgöngumiða: Stúka 600 krónur, stæði 400 krónur, börn 150 krónur. Föstudagur: 1 .d.ka.kl.20.00 Víkingur - Fram 2.d.ka.kl.20.00 KS-FH 2.d.ka.kl.20.00 Víðir - Tindastóll 1 .d.kv.kl.20.00 Stjarnan - Fram 1 .d.kv.kl.20.00 Valur- ÍA 2.d.kv.kl.20.00 ÞórA-UBK 2.d.kv.kl.20.00 FH - Afturelding Laugardagur: 2.d.ka.kl.14.00 ÍBV-Fylkir 1.d.kv.kl.14.00 KR-KA 1 .d.kv.kl.17.00 ÍBÍ - ÍBK Sunnudagur: 2.d.kv.kl.14.00 KS-UBK Auk þessara er að vanda fjöldi leikja í 3. og 4. deild karla, en línur eru teknar að skýrast á þeim slóðum. HITT OG ÞETTA Arnarstapi, Þrídrangurheldur útimótið Snæfellsás 88 nú um helgína. Gangandi Björn, indíáni af ættbálki Svartfætlinga, fræðir mótsgesti um töfralist og helgi- siði indíána, Jóna Ingibjörg Jóns- dóttir ræðir um kynlíf sem leið til andlegs þroska, félag Ný- alssinna heldur miðilsfund og Ken Cadigan kennirfólki að ganga á eldi, svo dæmi séu nefnd af dagskrá mótsins. Árbæjarsafn, ný sýning um Reykjavík og rafmagnið er í Mið- húsi (áður Lindargata 43a). Auk þess er uppi sýning um forn- leifauppgröftinn í Viðey sumarið 1987, og „gömlu" sýningarnar eru að sjálfsögðu á sínum stað. Safnið er opið alla daga nema mánudagakl. 10:00-18:00. Leið- sögnumsafniðerkl. 15:00ávirk- umdögum.og kl. 11:00og 15:00 um helgar. Veitingar í Dillonshúsi kl. 11:00-17:30, létturhádegi- sverðurframreiddurkl. 12:00- 14:00. Kl. 15:00-17:00 ásunnu- daginn leikurKolbeinn Bjarna- son, flautuleikari á barokkflautu, lögeftirG. P.Telemanní Dillons- húsi. Ferðafélagið, helgarferðir 5.-7. ágúst: 1. Fjallabaksleið nyrðri og syðri. 2. Þórsmörk. 3 Land- mannalaugar-Eldgjá. Upplýs- ingar og farmiðasala á skrifstofu félagsins Öldugötu 3. Hana nú, Kópavogi, lagt upp í laugardagsgönguna frá Digra- nesvegi 12, kl. 10:00 ífyrramálið. Verið með í bæjarröltinu í skemmtilegum félagsskap; sam- vera, súrefni, hreyfing og ný- lagað molakaffi. Templarahöllin við Eiríksgötu, Bókavarðan efnir til fjölbreytts uppboðs og hefst það stundvís- legaklukkan 15.00 sunnudaginn 7. ágúst. Seldarverðaýmsar bækur, bréfasöfn, myndirog fleira. Uppboðsgripirnir verða til sýnis hjá Bókavörðunni að Vatnsstíg 4 laugardaginn 6. ág- ústklukkan 11.00-15.00. Útivist, dagsferðir um helgina: Sunnudagsferðir7. ágúst: Klukk- an 8.00. Þórsmörk, einsdags- ferð. Verð 1200 krónur. Klukkan 10.30. Leggjabrjótur. Klukkan 13.00. Þingvellir-Hrauntúns- gata. Verð 900 krónur. Helgarferðir5.-7. ágúst: 1. Fjöl- skylduhelgi í Þórsmörk. Tilvalin ferð fyrir unga sem aldna. Afslátt- arverð og frítt fyrir börn yngri en 10 ára með foreldrum sínum. 2. Kjalarferð. 3. Þórsmörk. Venju- leg helgarferð sameiginleg fjöl- skylduhelginni og á sömu afslátt- arkjörum. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu ÚtivistarGrófinni 1, símar 14606 og 23732. Ef óhapp verður - skiptir öllu máli að vera með beltið spennt IUMFERÐAR 'RÁÐ 30 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.