Þjóðviljinn - 05.08.1988, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 05.08.1988, Blaðsíða 3
Þó fyrr hefði verið Hlutskipti starfsmanna við- skiptadeildar utanríkisráðu- neytisins er ekki öfundsvert þessa dagana. Nýlega var settur kvóti á sölu fisks úr skipum og gámum á fisk- mörkuðum í Þýskalandi og Bretlandi en útvegsmenn og gámaútflytjendur hafa gefið kvótanum langt nef og flutt út mun meira magn en leyft hef- ur verið. Skipin hafa fiskað meira í sölutúrum og gámar hafa verið troðfylltir af fiski. Til að bregðast við þessari ósvinnu útflytjenda eru starfs- menn ráðuneytisins í óða önn að útbúa kvótareglurnar á þann veg að þær verði á ein- hvern hátt vitrænni en áður og taki tillit til aflaklóa og stærðar gáma. Þessu hafa útflytjendur fagnað mjög en ótti hefurgrip- ið um sig í öðrum ráðu- neytum, þar sem forsvars- menn sjá fram á ómælda vinnu starfsmanna sinna við að endurskoða lög og reglu- gerðir hins opinbera og koma þeim í vitrænna horf en nú er, enda af nógu að taka.B Bjórkjallari í Bolungarvík Á síðasta ári var tveggja miljóna króna tap á rekstri Félagsheimilisins í Bolungar- vík og hefur bæjarstjórnin þess vegna ákveðiö að yfir- taka rekstur þess en húsið er í eigu ýmissa félagssamtaka þar í bæ. Hefur verið ákveðið að gera ýmsar breytingar á húsinu og ma. á að koma þar upp matsölu og vínstúku. En það sem Víkarar eru hvað hrifnastir af er sú hugmynd bæjaryfirvalda að láta innrétta í húsinu bjórkjallara sem á að vera tilbúinn fyrir 1. mars nk. þegar neysla og bruggun bjórs verður lögleg á ný eftir hátt í aldarlangt hlé.B Sitthvað er karfi eða rauðmagi Það fór heldur betur titring- ur um stjórnendur fiskvinnslu- fyrirtækis norður í landi einn góðan veðurdag fyrir skömmu. Togari fyrirtækisins var nýkominn inn til löndunar og var fyrsti bíllinn í þann veg- inn að leggja að fiskmóttök- unni til losunar þegar ungur starfsmaður fyrirtækisins, bú- settur fyrir sunnan kemur móður upp á skrifstofuna þar sem framkvæmdastjórinn og verkstjórinn voru í kaffi og hrópar: „Það er kominn fullur bíll af rauðmaga! Hvað eigum við að gera við farminn?" Aumingja mönnum dauðbrá við tíðindin enda ekki á hverj- um degi sem togari kemur með heilan bílfarm af rauð- maga. En þegar þeir komu út og athuguðu bílfarminn kom í Ijós að hér var á ferðinni fullur bíll af karfa en ekki rauðmaga. Síðustu fréttir herma, að ungi maðurinn hafi ekki litið upp úr fiskabókinni síðan þá til að koma í veg fyrir að jafn hrika- leg mistök endurtækju sig í framtíðinni ■ íslenska landsliðið eins og það er skipað í dag. Myndin er tekin í Austur-Þýskalandi fyrir skömmu þar sem liðið hafnaði í þriðja sæti á sterku handknattleiksmóti. Strangara ert ólympíuleikar íslenska handboltalandsliðið tekur nú þátt í gífurlega erfiðu móti á Spáni. Ekki ólíklegt að landinn vermi botnsætið Eins og flestum er kunnugt eru handboltahetjur okkar nú á Spáni, þar sem þeir leika gegn sterkustu þjóðum heims í fimm landa undirbúnings- móti fyrir ólympíuleikana. Lið- in sem eigast þar við eru gestgjafarnir Spánverjar, Austur-Þjóðverjar, Sovét- menn og Svíar, auk íslend- inga. Öll liðin leika á ólympíu- leikunum í Seoul og eru því í miðjum lokaundirbúningi fyrir hina hörðu keppni þar. Fimm sterkustu þjóðir heims? Mót þetta á Spáni er skipað það sterkum handknattleikslið- um að riðlarnir í Seoul eru í tals- vert lægri klassa, sem sést á því að á Spáni eru engin slök lið, aðeins fremstu þjóðir heims. Það er kannski óþarfi að tíunda frekar um andstæðinga íslendinga þar syðra, en þó verður ekki hjá því komist að gera örlitla grein fyrir styrkleika þessara þjóða. Ef Sovétríkin eru undanskilin þá etjum við þarna kappi við þjóðir sem lentu í 3.-5. sæti í síð- ustu heimsmeistarakeppni, en Rússarnir voru í nokkurri lægð á þeim tíma. Þá féllu þeir niður í B-flokk en unnu síðan keppni B- þjóða með yfirburðum og hafa áunnið sér A-stimpil á nýjan leik. Uppbygging þeirra að undan- fömu hefur verið slík að í dag teljast þeir sigurstranglegastir í Seoul. „Tvær sterkustu handknatt- leiksþjóðir heims“, ef marka má síðustu heimsmeistarakeppni, Júgóslavar og Ungverjar, em því miður ekki meðal þátttakanda á Spáni en erfitt er að ákveða getu þeirra í dag. Ungverjar voru ein- faldlega nokkuð heppnir með að komast í úrslitaleikinn í Sviss og Júgóslavar hafa misst lykilmenn úr liði sínu og munu vafalaust eiga erfitt með að verja titil sinn í Seoul (þeir em einnig núverandi ólympíumeistarar). Það er því allt eins líklegt að þjóðirnar fimm á Spáni raði sér í fimm efstu sætin á ólympíuleikunum í Seoul. Úrslitin aukaatriöi Bogdan Kowalczyck landsliðs- þjálfari hefur oftar en ekki minnt á að úrslit æfingamóta skipti engu máli. Um árangur er eingöngu spurt á stórmótum og það eru að- eins heimsmeistarakeppnin og ólympíuleikamir sem ákvarða styrkleika þjóðanna. Þetta er allt gott og blessað og vitanlega þjóna mót eins og fimm landa keppnin þeim tilgangi að slípa leik liðanna og laga það sem laga þarf fyrir „alvöru lífsins“. Þá hefur hinn sami Bodgan einnig ítrekað að enda þótt yið töpum fyrir þessum þjóðum í dag getum við vel unnið þær í Seoul. Islenska liðið hefur ekki náð toppformi en kúnstin er að sjálf- sögðu sú að liðið nái hámarks- getu á réttum tíma. í þessari um- ræðu virðist oft gleymast sú staðr- eynd að mótherjar okkar hafa ef- laust ekki náð toppnum heldur. Þeir haga sínum undirbúningi á svipaðan hátt og notast við sama dagatal og við. Ef þeir eru betri en við nú, því skyldu þeir ekki verða betri í Seoul líka? Þetta er kannski ekki sann- gjörn spurning því önnur lið gætu vel farið að dala þegar að ólym- píuleikum kemur. Auk þess er það hluti af herkænsku Bogdans að sýna ekki öll trompin fyrir- fram og engan skyldi undra þótt hann geymdi nokkra ása uppi í erminni þar til alvaran hefst. En að sjálfsögðu sækjast allir eftir sem bestu gengi landsliðsins á Spáni þó að lsland gæti vermt botnsætið á mótinu. Eg held að margir taki það undir með mér að mikilvægasti leikur mótsins sé gegn Svíum því okkur hefur verið alveg fyrirmunað að vinna þá í gegnum tíðina. Það er því nú eða aldrei, ef þessi Svíagrýla á að hverfa fyrir ólympíuleika. Áfram ísland! -þóm NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.