Þjóðviljinn - 05.08.1988, Blaðsíða 8
9s tf.
A BEININU
Guðjón Petersen, framkvæmdastjóri
Almannavarna, rœðir um hversu
hörmulegar afleiðingar flugslyss í Kvos-
inni gœtu orðið. Fjarskiptakerfið myndi
lamast og alþingi, dómkirkja og vœnt-
anlegt ráðhús vœru í stórri hættu
Vamarlausir
gegn
flugslysi
í Kvosinni
Enn á ný hefur blossað upp
umræða um hversu heppi-
lega Reykjavíkurflugvöllur er
staðsettur, nú í kjölfar hörmu-
legs flugslyss. Staðsetningu
flugvallarins og hugsanlega
breytingu á henni má ræða út
frá mörgum forsendum, fag-
urfræðilegum, fjárhagsleg-
um, út frá uppbyggingu borg-
arinnar og kannski ekki síst út
frá öryggissjónarmiði. Al-
mannavarnir ríkisins er sú
stofnun sem kannski öðrum
fremur á að vaka yfir örygg-
ismálum þegnanna í breiðum
skilningi og því þótti vel við
hæfi að ræða við fram-
kvæmdastjóra þeirrar stofn-
unar, Guðjón Petersen. Guð-
jón var fyrst spurður að því
hvort hann teldi Reykjavíkur-
fiugvöll vel staðsettan út frá
öryggissjónarmiði.
„Það eru tvö horn á því máli,
flugvöllurinn er talinn þokkalega
vel staðsettur ef öryggi flugfar-
þega er haft í huga. Hins vegar er
ekki því að neita að völlurinn er í
jaðri byggðar og ein brautanna -
norður-suðurbraut liggur yfir
miðbæjarkvosina. Og einmitt í
þeirri brautarstefnu erum við
með mjög mikilvæg mannvirki og
mikinn mannfjölda oft. í fyrsta
Iagi liggur í þessari brautarstefnu
væntanlegt ráðhús Reykjavíkur, í
öðru lagi Alþingishúsið og vænt-
anlegar skrifstofur þess, þriðja
lagi Dómkirkjan, í fjórða lagi að-
alsímstöð landsins auk mjög
margra annarra mjög mikilvægra
fyrirtækja og mannfrekra. Hins
vegar eru aðrar aðflugsstefnur
yfir sjó eða yfir Fossvoginn.
Reyndar er Borgarspítalinn ekki
langt frá þeirri aðflugstefnunni.
Ef á því að svara þeirri spurn-
ingu hvort flugvöllurinn sé vel
staðsettur frá öryggi borgaranna,
þá held ég að það sé ekki hægt að
segja það. Hins vegar ef á að
ræða hvort eigi að fjarlægja flug-
völlinn vegna slysahættu, að þá
vil ég sjá aðrar hættur fjarlægðar
fyrr, sem eru meiri. Þá er ég að
tala um stórar eldsneytisstöðvar,
gasbirgðastöðvar sem ég tel að
borgarbúum stafi mun meiri
hætta af en af flugvellinum."
En nú eru einmitt eldsneytis-
tankar ekki fjarri flugvellinum í
Skerjafirði. Það yrði ekki félegt
ef að flugvél færi þar niður.
„Nei. En versta tilfelli sem ég
get séð fyrir mér og hef mikið velt
fyrir mér í sambandi við aðflug og
brottflug frá Reykjavík, það er
miðbæjarkvosin. Hún er krítísk."
Hafa Almannavarnir gert ráð-
stafanir um aðgerðir ef svo illa
færi að flugvél hrapaði í Kvosina?
Það er í gildi svokölluð stór-
slysaáætlun vegna Reykjavíkurf-
lugvallar, sem og stórslysaáætlun
fyrir Reykjavíkurborg. Stórslysa-
áætlun Reykjavíkurflugvallar
tekur aðeins til atburða innan
girðingar vallarins, en áætlun
Reykjavíkurborgar tæki til kvos-
arínnar.
En hafa Almannavarnir reynt
að meta hverjar líkurnar á því
eru að flugvél færi þarna niður?“
Nei, það höfum við ekki gert,
Almannavörnum hefur ekki ver-
ið fengið það hlutverk að hættu-
meta svæði vegna samgangna eða
atviniiulífs. Það er aðeins gert
gagnvart náttúruhamförum.
En hvað máqímynda sér að
gerist ef t.d. Fokker-vél fer niður
yfir miðbænum?
Það alsvakalegasta væri ef að
slík vél færi t.d. á Landsímahús-
ið, því ég geri ráð fyrir að við það
misstum við Landssímahúsið, Al-
þingishúsið, Dómkirkjuna og
jafnvel fleiri hús þar suður af.
Brot og logandi eldsneyti
dreifðust mjög víða og gætu sem
sagt valdið stórbruna í miðbæn-
um í mörgum húsum. Ef slíkt
gerðist þegar mikið væri af fólki í
bænum yrði manntjón eflaust
mjög mikið og gífurlegt slys. Þar
að auki yrðu afleiðingar miklar
fyrir þjóðfélagið, þarna er aðals-
ímstöðin, ög færi hún gæti það
valdið meiri háttrar samskipta-
örðugleikum við landið, nú Al-
þingishúsið og ráðhúsið. Þannig
að afleiðingarnar yrðu mjög víð-
tækar og alvarlegar af því að fá
flugvél þarna niður.
Þannig að út frá þessu sjónar-
horni yrði mikið öryggisatriði að
flytja Reykjavíkurflugvöllinn?
Já, eða að lengja austur-
vesturbrautina og skekkja hana
aðeins til og gera hana að aðalb-
raut í stað suður-norðurbrautar.
En nú kom fram í skýrslu Þró-
unarstofnunar Reykjavíkurborg-
ar frá 1979 að slysahætta væri
þrátt fyrir allt mest við austur-
vestur braut vegna nálægðar við
Öskjuhlíð.
Já, þess vegna þyrfti að
skekkja brautina lfka. Ef hægt
væri að lengja vesturbrautina
verulega yrðu vélar auðvitað
komnar í verulega hæð yfir Ös-
kjuhlíð. En vissulega er Öskju-
hlíðin hindrun nema að brautin
sé skekkt, en þá væri um leið búið
að beina flugumferðinni nokkuð
yfir innanverðan Kópavog á
móti.
En ef við höldum okkur við
flugslys í Kvosinni: Er til nægi-
legur tækjabúnaður til að ráða
við þær afleiðingar sem þú lýstir
hér áðan?
Ég leyfi mér nú að efast um að
við réðum við slíkt í Kvosinni,
með því slökkviliði sem við höf-
um hér í borginni. Það er reyndar
gert ráð fyrir að ef stóreldar
verða í borginni sem ekki ræðst
við að slökkvilið frá nágranna-
sveitarfélögum komi til hjálpar.
Það ætti því að vera búið að fá
mikið af aukaliði innan næstu 50-
60 mínútna. Auk þess yrði reynt
að fá mikið af öðrum mannskap
en slökkviliði til aðstoðar. En
það má gera ráð fyrir að mikill
hluti af því sem yrði að logum
myndi brenna niður. En þá vil ég
líka benda á olíubirgðastöðvarn-
ar sem að myndu sýna svipaða
mynd eða jafnvel verri. Ölíu-
birgðirnar í Skerjafirði eru
reyndar ekki í beinni aðflugss-
tefnu, en hins vegar fer flugið
beint yfir olíubirgðastöðvarnar í
Örfirisey, þó þær séu einang-
raðri.
Við höfum bent Almanna-
varnanefnd Reykjavíkur á að
gasbirgðir í Reykjavík séu sér-
staklega hættulegar gagnvart
byggðinni. Það er geymt gas í
Skerjafirðinum og í Holtagörð-
unum og sprengingar þar gætu
valdið gífurlegu tjóni og eru allt
of nálægt byggð að mínu mati.
En gætir þú svarað þeirri
spurningu, hvort þú vildir mæla
með því frá öryggissjónarmiði að
Reykjavíkurflugvöllur yrði færð-
ur?
Ég treysti mér nú ekki til að
svara því. Áhættumat þyrfti að
fram og það eru bæði rök með og
á móti.
Hver ætti að framkvæma slíkt
áhættumat?
Ég tel að það ættu að vera
borgaryfirvöld. Það væri hugsan-
legt að láta sér detta í hug að Al-
mannavarnanefnd Reykjavíkur
sem slík, fagnefnd borgarinnar á
þessu sviði beitti sér fyrir að láta
slíkt áhættumat fara fram.
Hver er formaður þeirrar
nefndar?
Það er Davíð Oddsson, borg-
arstjóri. phh
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ