Þjóðviljinn - 05.08.1988, Blaðsíða 22
Nína Gauta: Ég held að svarið viö spurningunni hvort ég sé orðin eitthvað annað en íslensk
sé ekki til. Með Nínu á myndinni er Freyja dóttir hennar. Mynd Ari.
Svolítil klakamanneskja...
Nína Gautadóttir gerir víðreist um landið í sumar eftir dulítið hlé. Fyrst sýning í Glerárkirkju, svo í
Gallerí Svart á hvítu. Börnin spyrja: „Hvað er þetta?“ þegar þau sjá myndirnar mínar
Nína Gautadóttir sýnir í Gallerí
Svart á hvítu þessa dagana verk
sem hún hefur málað 1987 og 88
í París en myndefnið sækir hún í
minninga- og hughrifasjóðinn.
Þarna eru myndir sem meðal
annars eru málaðar eftir íslands-
ferðir, myndir sem málaðar eru
eftir Afríkudvalir og myndir sem
málaðar eru undir áhrifum frá
bernskuminningum um heima-
haga og frá ýmsum tímum.
Nína Gauta nam myndlist í
París á árunum 1971 - 1976 og
hefur tekið þátt í fjölda samsýn-
inga í Frakklandi og víðar og
haldið einkasýningar. Hún hefur
verið búsett í París síðan 1970 en
einnig dvalið í Níger og Kamerún.
Nína hefur unnið til fjölda verð-
launa og viðurkenninga fyrir list
sína, nú síðast á alþjóðlegri sýn-
ingu í Aþenu í júní síðastliðnum.
Þetta er fimmta einkasýning Nínu
Gauta hér á landi. Fyrst sýndi
hún að Kjarvalsstöðum 1980,
1983 hélt hún sýningu í
Listmunahúsinu og 1986 aftur að
Kjarvalsstöðum. Um þarsíðustu
helgi lauk sýningu hennar í Gler-
árkirkju á Akureyri og nú er, eins-
og fyrr sagði, búið að setja upp
þá fimmtu í Gallerí Svart á hvítu.
- Það ersvo hreinsandi og gott
að koma hingað upp, segir Nína,
- því loftið er svo tært og svalt.
Það er gott að geta komið í sval-
ann af og til því oft getur hitinn
niðrí Evrópu, að ég nú tali ekki
um Afríku, orðið svo mikill að ég á
erfitt með að þola við. Ég er svo-
lítil klakamanneskja í mér svo ís-
lenskt loftslag á vel við mig.
- Þó máttu ekki skilja mig á
þann veg að það eigi ekki vel við
mig að búa í París. París er alltaf
París, drottning borganna, og ég
get ómögulega slitið mig frá
henni. Hún er segulmögnuð!
Loftfélagið. Það má vera að ekki verði úr meira hljómleikahaldi hjá þeim sveinum og því segja þeir að
Loftfélags nafnið eigi afburða vel við. Mynd E.ÓI.
Loftfélag
íslands
í kvöld, föstudagskvöld 5. ág-
úst, verður stofnkonsert Loftfé-
iags íslands í Norræna húsinu.
Spuni verður þar fyrst og fremst á
dagskránni en meðlimirnir segj-
ast ætla að leika frídjass, vera
með snarstefjun, estravagansa,
improvisation, experimental, fara
lítt troðnar slóðir og gera fleira
frjálslegt.
Meðlimir í Loftfélaginu, sem
Sigurður Björnsson segir vera
leifarnar af samruna Flugfélags
íslands og Loftleiða í Flug-
ieiðum, eru nefndur Sigurður
Björnsson gítar, Sigurður Hall-
dórsson bassi, selló og ýmiskonar
strengjahjóðfæri, Daníel Þor-
steinsson píanó og Birgir Bald-
ursson slagverk, en reyndar spila
þeir allir á slagverk á tónleikun-
um.
Loftfélagið er upprunnið úr
Vormönnum íslands, en það fé-
lag varð til 1982, og segir Sigurð-
ur Björnsson Loftfélagið vera
einskonar þróunarfyrirbæri út frá
Vormönnunum. - Við vorum að
pæla í s-afrískri tónlist og þá spil-
uðum við nær eingöngu hana en
nú færum við póly-rytmann úr
henni yfir í jafnvel nútíma marsa,
segir Sigurður. - Það gætir mik-
illa jassáhrifa í tónlistinni okkar.
Þetta er nútímatónlist sem við
léttum svolítið og reynum að gera
svolítið skemmtilega.
Póly-rytminn gengur þannig að
í laginu er kannski einn
grunnrytmi en ofaná hann bætast
svo fleiri rytmar. Rytmasveifl-
urnar hittast svo af og til.
En hvað er Tvdv? Sigurður
Halldórsson skýrir það á þann
veg að það sé nýyrði og fullkom-
lega rétt myndað en hafi enga
merkingu, sé einfaldlega gott
orð.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20.30, eru í aðalsalnum, og inná
þá kostar miðinn 500 krónur.
TT
22 SlöA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ