Þjóðviljinn - 05.08.1988, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 05.08.1988, Blaðsíða 24
HELGARPISTILL ÁRNI BERGMANN Slaufa á saltfiskinn Af stuðningi einkaaðila við menningarstarfsemi í nýlegu hefti Stefnis, tíma- rits Sambands ungra sjálfs- tæðismanna, er fjallað í nokkrum greinum og viðtölum um fróðlegt efni: Hvar er Ragnar í Smára nútímans? Með öðrum orðum: um stuðn- ing einkaaðila og fyrirtækja við ýmislega menningarstarf- semi. En það fylgir sögunni, að þótt enginn geti um þessar mundir bent á mann sem beindi ágóða af fyrirtækjum til menningarstarfs með jafn- miklum tilþrifum og af þvílíku örlæti og Ragnar í Smára gerði, þá séu fyrirtæki íslensk í vaxandi mæli farin að taka við sér. Þau hafi t.d. komið meira við sögu á nýafstaðinni Listahátíð en á fyrri lista- hátíðum. Á kurteisum meöalvegi Þegar á heildina er litið er um- fjöllunin um þetta mál og svör þeirra sem spurðir eru fremur hófsöm. Þeir ætla sér ekki þá dul að bjarga menningunni upp á eigin spýtur eða kveða niður „ríkisafskipti" af henni. Þegar er- indreki Stefnis ber fram spurn- ingar í anda þeirrar frjálshyggju sem segir með lýðskrumstilburð- um nokkrum að „fiskverkakonan á Patreksfirði á ekki að greiða niður Þjóðleikhúsmiða fyrir tannlækni í Reykjavík", þá er þeim Hayekfreistingum vísað frá kurteislega. ÓlafurB. Thors, for- stjóri Almennra trygginga, segir blátt áfram: íslenska þjóðin er of fámenn til að halda úti Þjóðleik- húsi án þess að til komi stuðn- ingur frá skattgreiðendum (Það tekst reyndar ekki heldur miklu fjölmennari þjóðum). Og hann minnir á það, að menn reka margt í sameiningu án þess að all- ir geri sama tilkall til þjónustu - t.d. ber barnlaust fólk hluta af kostnaði við barnaheimili og uppeldi. Svörin eru semsagt í fremur umburðarlyndum anda þeirra sem fagna peningum til menning- ar hvaðan sem þeir koma. Og um slíka stefnu er reyndar lítil ástæða til að deila: ef fyrirtæki vilja leggja í menningarpúkkið þá er rétt að klappa fyrir þeim. En það er tvennt sem einn vinstrigaur vill leggja til þessarar umræðu. Ann- að er það, að það er varhugavert af ástæðum sem síðar verða nefndar að láta umræðuna teygj- ast í þá átt að menningin sé best komin á vegum einkafjármagns- ins. Hitt er það að menn mega ekki gleyma því, að stuðningur við listir er sjaldan eins „hlut- laus“ eða „fordómalaus" og menn vilja gjarna láta í veðri vaka. Borgaraskapur- inn, nískan og menningin í málsmeðferð Stefnis er stundum reynt að fegra mjög samband lista og borgara. Ingi- mundur í Heklu talar um að skáld og kaupsýslumenn eigi að geta verið samferða vegna þess að báðir eru reknir áfram af „ólg- andi athafnaþrá". Það má vel vera rétt, en segir fátt: því miður eru allskonar slúbbertar reknir áfram af „ólgandi athafnaþrá“, glæpamenn einkum og sér í lagi. Ingimundur segir líka: „Andúð margra listamanna á fésýslu og atvinnulífi er á misskilningi reist. Hinn borgaralegi húmanismi á Vesturlöndum, sem spratt upp í verslunarborgum Ítalíu og Belgíu á síðmiðöldum var það skjól sem listamenn þurftu þá, og enn sýnir reynslan okkur að listir þrífast hvergi og dafna betur en í borg- aralegu pjóðfélagi." Ekki er allt jafn einfalt og nota- legt og hér sýnist. Þess eru að vísu dæmi að rísandi borgarastétt er góður bakhjarl listum. En hún getur líka verið einstaklega búra- leg og nísk í samanburði við furst- ana til dæmis: rétt eins og borgar- arnir vildu fá guð á „góðum prís“ í mótmælendakirkjum (og út- rýmdu úr þeim listaverkum þar sem borgarastéttin varð kal- vínsk) - þá fannst borgurum listir einatt bruðl og synd og óþarfi. Það er einmitt hin útbreidda dýrkun ólistrænnar pyngjunnar hjá borgurunum sem stuðlar svo rækilega að því á rómantískum tímum og síðar, að gera skáldið og listamanninn að utangarðs- manni, einfara, uppreisnarmanni í reiðu andófi við viðurkenndar dyggðir. „Þjóöhagslega hagkvæm?“ f viðtölum í Stefni kemur öðru hvoru fram sú árátta, að færa af- skipti fyrirtækja af menningu yfir á „kalt“ viðskiptaplan: um er að ræða, segir áðurnefndur Ólafur B. Thors, að „styrkir til menning- ar geta haft jákvæð áhrif í kynn- ingu landsins sem skilar sér þann- ig í betri árangri í sölustarfi". Losum okkur, segir hann, við ölmusuhugsunarháttinn, þetta eru „hreinlega eðlilegir viðskipt- ahættir". Hann talar líka um að menn skuli líta á menninguna sem iðnað, sem „þjóðhagslega hagkvæma" iðju og þar fram eftir götum. Það er vitanlega tiltölulega saklaust athæfi að reyna að sætta bisnessmenn betur við menning- una með því að líkja henni við iðnað og koma henni fyrir í hag- vaxtarhugtökum. En það er samt ekki úr vegi að menn hafi það í huga um leið, að menningin mun ávallt sprengja hin hagrænu hugt- ök utan af sér, hennar „hag- kvæmni“ kemst ekki fyrir á línu- riti. Allt ofurkapp á að draga úr mun á menningariðju og öðrum rekstri í vitund manna er hlaðið misskilningi og skaðlegum von- brigðum. Þeir sem ekki fara troönar slóöir Og svo er að spyrja að því, hvort fyrirtækjafé til menningar sé líklegra en annað fé til að mis- muna listamönnum og jafnvel listgreinum. Ritstjóri Stefnis gef- ur sér þetta hér: „Mikilvægt er að greina að nokkru í sundur styrki éinkaaðila til menningarstarfsemi og út- deilingu á vegum hins opinbera til menningarmála. Heyrst hefur að oft gæti annarra sjónarmiða við útdeilingu listamanhastyrkja hjá hinu opinbera en listfræði- legra! Annaðhvort þurfi nýir listamenn að vera í „kreðsinum" eða vera jafnvel á svipaðri póli- tískri línu til að hljóta styrk. Auðvitað er slíkt aldrei algilt, en ljóst er þó, að tölfræðilega eru miklar líkur til þess að á meðal hundruða athafnamanna leynist einn sem fer „ótroðnar" slóðir fremur en í fámennri ríkisnefnd, þar sem meirihluta þarf til á- kvarðana“. Hér er komið víða við í einu og ekki kostur að fara út í kosti og galla tilhögunar á opinberum styrkjum. En þessi „líkindareikn- ingur" er samt rangur. Einkafyr- irtæki, sem hafa jafnan í huga auglýsingagildi menningar- styrkja sinna („eðlilegir viðskipt- ahættir" segir þar), eru einmitt mjög ólíkleg til að styrkja þá list sem ekki fer troðnar slóðir, að maður nú ekki tali um list sem er með einhverjum hætti utangarðs, í andófi. Einkafjármagn er líklegt til þess öðru fremur að kaupa list- averk í húsakynni sín (og þá helst af „viðurkenndum" nöfnum) - og svo til að styðja klassískt tónlist- arlíf. Menn vita það bæði úr Am- eríku og íslandi, að kaupsýslu- menn, iðjuhöldar, útgerðarmenn og (með leyfi að segja) mafíósar, eru öflugastir stuðningsmenn tenórsöngvara sem til eru - þeir vilja „fá slaufu á saltfiskinn" eins og þeir í Gúðmúndsensbúð sem kostuðu Garðar Hólm til söng- náms. Aftur á móti er næsta ólík- legt að virðulegt einkafjármagn komi við sögu þar sem fara skal með umdeilt leikverk, sérvisku- lega ljóðlist, hneykslanlega myndlist og þar fram eftir götum. Miklu líklegra, satt að segja, að „sérfræðingar" í ríkisnefndum falli í þá þörfu freistingu. Og það er ekki síst þess vegna, sem það getur verið beinlínis hættulegt viðgangi lista ef menn ætla að treysta mjög á framlög einkafyrirtækja og láta aðrar peningalindir dragast saman eftir því. Af Tarkovskí Leyfið mér að lokum að fara með dæmisögu. Hingað kom fyrir nokkrum árum sovéski kvik- myndastjórinn Andrei Tarkov- skí, sem þá var í útlegð frá heima- landi sínu. Hann hafði gert heima í Sovét mjög „erfiðar" og ljóð- rænar myndir, sem ekki voru lík- legar til fjöldaaðsóknar. Margir höfðu horn í síðu þessara mynda minna í Sovétríkjunum, sagði hann, vegna þess að þær væru „óskiljanlegar" og „formalísk- ar“. En það skrýtna var, að að- eins í Sovétríkjunum hefði ég fengið peninga til að gera svona myndir. Hér á Vesturlöndum hefði enginn hætt sínu fé í þær. Heima voru þó til menn sem voru nógu forvitnir - og ábyrgðar- lausir um ríkisfé - að þeir gáfu grænt ljós á þær. Svo þegar ég kom hingað vestur, þá tókst að skrapa saman fé úr fimm löndum í eina mynd - út á þann orðstír sem ég hafði með mér að heiman... 24 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.