Þjóðviljinn - 05.08.1988, Blaðsíða 15
Þórunn Siguróardóttir
skrifar frá Spáni
íslendinga almennt dálítið
seinvakin, er sannarlega annað
uppá teningnum þegar nautaat er
annars vegar. Niðurlæging þeirra
örsnauðu milljóna sem búa í
Marokkó og áttu eitt merkasta
menningarsamfélag heims, þar til
kristnir menn eyddu því, vekur
ekki líkt því sömu viðbrögð og
samúð og nautið fær þegar því er
sleppt inn í hringinn. Þá vaknar
réttlætiskenndin heldur betur.
Og flestir vilja alls ekki horfa á
nautaat. Og það breytir litlu þótt
maður reyni að útskýra, að naut-
ið hlýtur betra atlæti og umönnun
en flest dýr önnur, allt frá þeirri
stundu er það sem kálfur er valið
úr fjölda dýra til að vera nauta-
atsdýr. Og það er ekki tilgangur
nautaatsins að kvelja dýrið.
Banderillurnar (spjótin) eru
auðvitað til óþæginda fyrir dýrið,
þegar þeim er skotið í það, en
sársaukinn á ekki að vera meiri
en eins og þegar við fáum sprautu
í handlegginn. Nautin eru gífur-
lega blóðríkar skepnur, en nauta-
bani, sem lætur skepnunni blæða
mikið eða kvelur hana er fyrir-
litinn bæði af sjálfum sér og áhor-
fendum.
Hins vegar skal ég fúslega
viðurkenna að nautaat er eitt
sérkennilegasta fyrirbæri, sem
mannskepnan hefur fundið upp,
- þróað í gegnum söguna og við-
haldið, sjálfri sér til dægrarstytt-
ingar. Hvort það er í raun rétt-
lætanlegt að drepa skepnu svona
meðvitað fyrir framan þúsundir
manna, etja fullfrískum karl-
manni út í þá lífshættu sem nauta-
atið vissulega er - það er siðfræði-
leg og heimspekileg spurning sem
verður ekki svarað hér á þessum
síðum. Fyrir mér er nautaatið
ekki bara fegurð, fullkomin
tækni og ótrúleg spenna, heldur
sérkennileg krufning á leyndum
þáttum í mannlegu eðli, ein-
kennilegum og frumstæðum sið-
venjum, sem hafa þróast með
trúarbrögðum í þennan dauða-
leik, sem á sér ekki sinn líka.
Kvalafýsn mannsins og úrkynjun
sést hins vegar miklu ljósar í þró-
uðum, markaðssetum
skemmtanaiðnaði Vesturlanda,
en í þessari frumstæðu alþýðu-
skemmtun. Og einmitt þetta eiga
íslendingar oft erfitt með að
skilja.
Manni dettur í hug það sem
Laxness lætur Örn Ulfar segja
um hinn kærleiksríka mann í
Heimsljósi. Auðvitað breyta
menn oftast um skoðun á nauta-
ati ef þeir kynnast því af raun og
þess vegna setur maður sig ekki
úr færi að kynna íslendingum
gott nautaat þegar það gefst. Og
það gafst heldur betur núna í júlí.
Þrír bestu banar Spánar í hringn-
um í Malaga, þar sem þeir Odón-
ez og Dominguín háðu einvígi sitt
árið 1959 og Hemmingway'lýsir
svo frábærlega í einni bestu bók
um nautaat sem skrifuð hefur
verið. „The Dangerous
Summer“.
Hið fullkomna
lokaaugnablik
Fjórtán þúsund manns mættu
til að horfa á þá Nino De La Cap-
ea, Ojeda og Espartaco, sem er
þeirra frægastur.
Því miður verður þó að segja
HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
að þetta nautaat olli dálitlum
vonbrigðum, ekki vegna þess að
nautabanarnir væru ekki glæsi-
legir og hugrakkir, heldur vegna
þess að í aðeins eitt skipti af sex
tókst lokaauknablikið fullkom-
lega. Því hversu vel sem nauta-
baninn temur nautið og hversu
fullkomið samræmi sem er í sam-
spili dýrs og manns, þá er loka-
augnablikið þó þýðingarmest.
Það sýnir hinn raunverulega
styrkleika og tækni nautabanans.
Og ekki bara það. Það sýnir líka
hinn raunverulega kærleika hans.
Því aðeins að nautabaninn þoli að
láta skepnunar þjást, mun hann
hafa þá hugrökku ró og ein-
beitingu sem þarf til að hitta ná-
kvæmlega hinn peningsstóra
blett milli herðablaðanna og
drepa nautið í einni stungu.
Óg það var ekki töffarinn Esp-
artaco sem átti þennan dag, þótt
hann fleygði sér á hnén frammi
fyrir nautinu, til að sníkja vin-
sældir hjá áhorfendum. Það var
heldur ekki hinn klassíski, yfir-
vegaði Ojeda, sem yfirleitt hefur
verið bestur í lokin. Nei, það var
sá minnsti þeirra og nettasti,
Capea, sem tókst snilldarlega við
annað nautið sitt og hlaut að
launum tvö eyru. Hann var ör-
uggur, laus við alla stæla og yfir-
borðsmennsku, hafði fullkomið
vald á tempóinu í öllum hinum
mismunandi hreyfingum sem
nautabaninn þarf að framkvæma
og lauk leiknum með hárná-
kvæmri stungu... Honum var
fagnað ákaft í lokin, en Espart-
aco gekk inn grautfúll gott ef
hann var ekki komin með hönd-
ina í fatla, eftir að hafa fengið
skeinu í viðureigninni við fyrra
nautið, sem setti hann alveg út af
laginu. Nautaat er einhver dá-
samlegasti skortur á málamiðlun
sem til er, fullkomin og algjör
einbeiting, fegurð og hugrekki.
Þess vegna mun ég fara á öll góð
nautaöt svo lengi sem ég er á
Spáni. Til að kynnast betur þess-
ari þjóð, mannkyninu - og sjálfri
mér.
Nú er Cohen þagnaður í út-
varpinu og myrkrið skollið á
þessa iðandi, litríku kös, sem
heitir Torremolinos. Það er eins
og hlemmur hafi lagst yfir borg-
ina, uppí fjöllunum hér í kring
eru karlarnir að reka geiturnar
sínar heim fullkomlega ósnortnir
af þessum túrisma. Og fiski-
mennirnir gera klárt til að fara út
eldsnemma í fyrramálið, löngur
áður en ég verð vöknuð, Og
næsta sunnudag verður ekkert
nautaat sem vit er í. Þá ætla ég að
leita mér að einskismanns strönd
og leggjast þar með Völsunga-
sögu og Rachmaninov. Hvar sú
strönd er segi ég auðvitað engum
En segi í staðinn: Hasta la vista.
AH CYLINDA
ASEA BROWN BOVERI
STORLÆKKAÐ VERÐ
ABB CYLINDA er hluti stórfyrirtækisins ABB (Asea
Brown Boveri), sem er heimsþekkt fyrir tækniiðn-
að í hæsta qæðaflokki. ABB CYLINDA sérhæfir
sig í framleiðslu þvottavéla, tauþurrkara og upp-
þvottavéla. Takmark ABB CYLINDA er einfalt:
„Aðeins það besta er nógu gott." Árangurinn er
vélar, sem hafa hlotið frábæra dóma í neytenda-
prófunum á kröfuhörðustu mörkuðum Evrópu.
Við bjóðum vélar við hvers manns hæfi - og nú á
STÓRLÆKKUÐU VERÐI. Vegna hagstæðra magn-
innkaupa lækkum við nú verðið um 10%. Við
bjóðum líka góð greiðslukjör: 5% aukaafsláttur
gegn staðgreiðslu, afborgunarkjör, VISA-rað-
greiðslur, EURO-kredit (engin útborgun).
ABB CYLINDA 1400
uppþvottavél
14-manna, 3-falt lekaöryggi,
barnaöryggislæsing, lyktar/
hljóð- og gufugildra. Þær gerast
ekki hljoðlátari (44 dB).
Verð nú: 56.040 (53.238)
ABB CYLINDA 11000
Þvottavél, framhlaðin
frjálst kerfisval, frjálst hitaval,
kerfi f/ull og viðkvæmt, E-hag
kvæmnisrofí, sparnaðarrofi,
áfangavinding, mesti vindu-
hraði 1200 sn/mín.
Einnig:
1300: 49.930 (47.434)
1500: 62.170 (59.062)
ABB CYLINDA 16000
Þvottavél, topphlaðin
margir velja topphlaðna
þvottavél frekar en fram-
nlaðna. Hafa alla sömu eig-
inleika og þær framhlöðnu,
en spara gólfpláss, og þú
þarft ekki að bogra við
þvottinn.
Verð nú: 56.530 (53.704)
Verð nú: 57.300 (54.435)
Einnig:
9500: 54.495 (51.770)
12000: 62.415 (59.294)
ABB CYLINDA 7000
tauþurrkari
114 Itr. tautunna úr ryðfríu
stáli, tvö hitastig, rakaskynj-
ari (sjálfvirk þurrkkerfi), kalt
loft eingöngu (til að viðra
fatnað), má standa ofan á
þvottavél.
Verð nú: 44.290 (42.076)
FRESCO FS-403
tauþurrkari
Bjóðum einnig margar gerð-
ir FRESCO þurrkara, t.d. FS-
403 með 92 Itr. tautunnu.
25 ára frábær reynsla hér-
lendis. Getur staðið ofaná
þvottavél, borði eða hangið
á vegg.
Verð nú: 23.980 (22.781)
Sjón er sögu ríkari. Komdu því í
heimsókn til okkar og skyggnstu
undir glæsilegt yfirborðið, því þar
er ekki síður að finna muninn sem
máli skiptir; trausta byggingu og
tækni í hæsta gæðaflokki.
Einnig:
13000: 49.930 (47.434)
Einnig:
Fleiri gerðir fást, t.d.
FS-501C, sem ekki þarf út-
blástursbarka.
Hin mm.
VfSA
mmamm
ASB Traust þjónusta ^onix
ASEA BROWN BOVERI ■ S Hátúni 6A Sími (91) 24420
EBNÝRDAGUR