Þjóðviljinn - 05.08.1988, Síða 29
Eitur
eitur,
eitur...
A1 Capone út, IBM inn...
Fjölþjóðaveldi rómansk amer-
ískra eiturbaróna gengur nú í
gegnum breytingarskeið. Þetta
sést glögglega á tvennu. Annars-
vegar á aukinni samkeppni milli
glæpahringa, einkum í Kólomb-
íu, með hrannvígum og hrotta-
skap a la A1 Capone. Hinsvegar á
tæknibyltingu. Kókaín-
barónarnir hafa hátækni og vís-
indi í hávegum nú og ráða fleiri
tölvufræðinga, grasafræðinga og
löggilta endurskoðendur í þjón-
ustusínaen vígamenn og vöðva-
tröll.
Það er alkunna að eiturhring-
arnir velta miljörðum dollara á
ári hverju og græða fjallháar
summur á kókaín- og heróínsölu í
Bandaríkjunum og Vestur-
Evrópu. En „eigendur“ þessara
arðbæru fyrirtækja, „guðfeðurn-
ir“ eða „barónarnir" einsog þeir
eru allajafna nefndir, mega muna
fífil sinn fegurri.
Innbyrðis samkeppni þeirra og
aukin drift yfirvalda á heimaslóð-
um og alþjóðlegrar eiturlögreglu
hafa saumað all verulega að þeim
undanfarna mánuði. Því eiga þeir
ekki lengur kost á því að berast
mikið á og hafa alla þræði rekst-
ursins í eigin höndum heldur
þurfa þeir að hrökklast úr einni
felusvítunni í aðra, hundeltir.
eftirlýstir, óttaslegnir miljarða-
mæringar. Fyrir vikið sjá nú alls-
kyns sérfræðingar og teknókratar
um vöxt og viðgang eiturhring-
anna.
Ef marka má fregnir frá banda-
rískri eiturlögreglu og rómön-
skum uppljóstrurum þá hafa
eiturhringarnir að undanförnu
komið sér upp herjum af allavega
sérfræðingum. Af handahófi má
nefna menn með doktorspróf í al-
þjóðlegu bankakei-fi, efna- og
eðlisfræðinga, erfðatæknimenn,
ratsjárfræðinga, sérfræðinga í
hverskyns fjarskiptum, búnað-
arkandídata og jarðræktarráðu-
nauta að ógleymdum tölvufræð-
ingum.
Án nýjustu tölvutækni væru
eiturhringarnir einsog fiskar á
þurru landi. Tölvurnar rekja sigl-
ingarleiðir eiturskipanna, stýra
örum flutningi eiturfjárins af ein-
um bankareikningi á annan út um
gervalla heimsbyggðina og hafa
auga með öllu starfsliði eitur-
hringanna. Þær geyma jafnvel
tryggilega í minni sér vaktaskýrsl-
ur tollþjóna í fjölmörgum
höfnum Bandaríkjanna.
„Sú tíð er horfin að menn geti
rekið öflug dópfyrirtæki með
„götuleikni“, mútum, vináttu við
stjórnmálamenn og ofbeldi,"
Kókaínbylur og engrar uppstyttu von. Að neðanverðu gefur að líta þá Pablo Escobar og Carlos Lehder, yst
til vinstri og hægri. Milli andlita þeirra eru ásjónur tveggja framliðinna manna, fórnarlamba Escobars og
Lehders. Rodrigo Lara, til vinstri, og Carlos Mauro Hoyo.
segir ónefndur Kólombíumaður.
„Nú er lausnarorðið ekki lengur
A1 Capone heldur IBM.“
Af heimsins
ríkasta glæpon
Medellin í Kólombíu er talinn
vera „heimshöfuðborg kókaín-
verslunarinnar". Þar í borg ríkir
barón barónanna ofar hverjum
manni. Hann heitir Pablo Esco-
bar og sögusagnir herma að hann
sé ríkasti afbrotamaður í heimi,
eigi fáeina miljarða dollara í
handraðanum.
Escobar kvað hafa „unnið sig
upp“ í bransanum og gerþekkja
allt ferli kókaínsins; úr grænu
laufblaði í ekki síður grænan doll-
araseðil, úr afskekktri sveit Kól-
ombíu í undirheima Miami. Akk-
ilesarhæll Escobars er sá, fullyrð-
ir „ólyginn", að hann hafi ekki
enn áttað sig á þvf að A1 Capone
er út en IBM inn.
Lengi vel hafði enginn áhuga á
því að hafa hendur í hári Pablos
Escobars. Hann naut virðingar
sem athafnamaður og „vinur litla
mannsins“ í Medellin. Hann var
varamaður í bæjarstjórn og hafði
forgöngu um smíði ódýrra íbúða
fyrir láglaunafólk. Hann opnaði
dýragarð rétt fyrir utan borgar-
hliðið. Við inngang hans stendur
minjagripur, gömul flugvél, rell-
an sem flutti fýrsta eiturfarm hins
unga Escobars á markað.
Það orð fer af Escobar að hon-
um sé laus höndin og að hann
veigri sér ekki við því að láta
fremja fjöldamorð. Örlæti og
tæplega 2 þúsund öryggisverðir
tryggðu að hann gat æ um frjálst
höfuð strokið þangað til fyrir
skemmstu. Nú eru her og lög-
regla Kólombíu á hælunum á
honum að ekki sé minnst á
leigumorðingja keppinautanna í
Calíborg.
Árið 1988 mun seint líða Esco-
bar úr minni, endist honum líf
fram yfir áramót. Útsendarar frá
Calí hafa í tvígang reynt að ráða
honum bana. Stjórnvöld í Bóg-
ótu hafa gefið út formlegar ákær-
ur á hendur honum fyrir hlutdeild
í morði ýmissa erkifjenda eitur-
barónanna. Escobar ræðst ekki á
garðinn þar sem hann er lægstur
því að á meðal fórnarlamba hans
eru dómsmálaráðherrann Ro-
drigo Lara og ríkissaksóknarinn
Carlos Mauro Hoyo.
Einn af nánustu samverka-
mönnum Escobars baróns var til
skamms tíma Carlos nokkur Leh-
der, barón. Lehder var þekktur
fyrir flottræfilshátt og saurlifnað
þar til hann gekk í greipar lög-
reglunni í fyrra. Hann var snimm-
hendis framseldur til Flórídafylk-
is í Bandaríkjunum og þar var
hann dæmdur til ævilangrar fang-
elsisvistar og 135 ára dýflissu-
dvalar að auki!!
Það vakti athygli við réttar-
höldin í máli Lehders þegar sak-
sóknarinn greip til líkingamáls og
kallaði hann „Henry Ford kókaín
dreifingarinnar". Orð þessi túlka
menn á tvo vegu. Annars vegar
lýsi þau veldi Medellin hringsins
og gífurlegum umsvifum. Hins-
vegar ýi ákærandinn að því að
eiturbarónarnir, A1 Caponar nú-
tímans, verði brátt veldi sem var.
Eiturhringarnir séu að verða
sjálfseignarstofnanir eða hlutafé-
lög sem sérfræðingar og teknókr-
atar reki einsog fram kemur í fyr-
ri hluta pistils þessa.
-ks.
Bylgjan í niðursveiflii
FJÓLMIÐLAR
ÞRÖSTUR
HARALDSSON
Fyrir skömmu var frá því greint
í fréttum að starfsfólki Bylgjunn-
ar hefði verið sagt upp störfum.
Flestir voru að vísu endurráðnir
en þó var um nokkurn niður-
skurð að ræða, einkum á frétt-
astofunni.
Þessi tíðindi þurftu ekki að
koma fólki á óvart. íslenska út-
varpsfélagið sem rekur Bylgjuna
hefur átt í nokkrum erfiðleikum
eins og sást þegar Ljósvakinn var
lagður niður í vor. Um svipað
leyti var hrókerað á toppi Bylgj-
unnar og skömmu síðar lét fyrr-
verandi útvarpsstjóri, Einar Sig-
urðsson, af störfum hjá fyrirtæk-
inu.
Ástæðuna fyrir þessum erfið-
leikum hefur mátt lesa af línurit-
um sem öðru hvoru birtast í fjöl-
miðlum og ganga undir heitinu
hlustendakannanir. Þar hefur
kúrvan stefnt nokkuð ákveðið
niður á við hjá Bylgjunni á sama
tíma og helsti keppinauturinn,
Stjaman, hefur blómstrað. Þess-
ar kannanir eru skoðaðar grannt
á auglýsingastofunum og í fyrir-
tækjunum og auglýsingastreym-
inu stjórnað út frá þeim. Þetta er
víst það sem kallast eðlileg og
heilbrigð samkeppni á frjálsum
markaði og hvarflar ekki að mér
að vefengja það.
Þegar niðurskurðurinn á
Bylgjunni hafði verið kunn-
gerður var Hallgrímur Thor-
steinsson fréttastjóri spurður að
því með hvaða hætti hann myndi
bitna á fréttaflutningi stöðvarinn-
ar. Hallgrímur bar sig mannalega
eins og honum bar skylda til og
taldi að fækkun oní 3 fréttamenn
myndi ekki draga umtalsvert úr
gæðum fréttanna, þær myndu
bara breytast.
Of snemmt er að dæma um það
hversu sannspár Hallgrímur
reynist. Hins vegar tók ég eftir
því að í staðinn fyrir fréttamagas-
ínið sem Bylgjan bauð upp á milli
kl. 18 og 19 á daginn var á mánu-
daginn kominn þáttur sem heitir
„Hvað finnst þér?“ eða eitthvað
svoleiðis. í staðinn fyrir unnar
fréttir hefur síminn verið opnað-
ur og hlustendur (þeir sem eftir
eru) geta tjáð sig og jafnvel deilt
um það sem þá lystir í beinni út-
sendingu. Þetta er í sjálfu sér
ágæt hugmynd. í augum frétta-
stofu Bylgjunnar er þó stærsti
kostur hennar vafalaust sá að hún
er afar ódýr í framkvæmd, miklu
ódýrari en unnar fréttir. Og því
sem er ódýrt hættir til að endast
stutt.
Hallgrímur neitaði því í áður-
nefndu viðtali að ætlunin væri að
fara inn á sömu braut og Stjarnan
í fréttaflutningi, og er það vel. En
hann bætti því við að í raun hefði
Stjarnan farið inn á braut Bylgj-
unnar (og reyndar allra almenni-
legra fréttastofa í heiminum), þe.
að reyna að spanna allt frétta-
sviðið, jafnt innan lands sem
utan, í stað þess að einskorða sig
við slúðrið. Ég hef satt að segja
ekki hlustað nógu mikið á
Bæði Bylgjan og Stjarnan fylgja í raun sömu formúlunni, enda lúta þær
stjórn manna, sem hafa farið nokkurn veginn samstíga í gegnum sitt
faglega líf.
Stjörnufréttir til að sannreyna
þessa fullyrðingu sem vonandi er
rétt. Ég heyri þó nógu mikið til
þess að vita að Stjarnan telur það
enn fréttnæmt að bæjarstjórar
fari til sólarlanda, þekktir leikar-
ar í megrun og fjölmiðlungar taki
bflpróf (af hverju segja þeir ekki
frekar frá frægu fólki sem missir
það?).
En þessi ummæli Hallgríms
finnst mér benda til þess hversu
þröngur stakkur þessum tveimur
flaggskipum ljósvakafrelsisins er
skorinn. Bæði Bylgjan og Stjarn-
an fylgja í raun sömu formúlunni,
enda lúta þær stjórn manna sem
hafa farið nokkurn veginn sam-
stíga í gegnum sitt faglega líf.
Munurinn hefur fyrst og fremst
verið fólginn í fréttunum. Að
öðru leyti er enginn munur á
stöðvunum tveimur. Og það
verður eitthvað róttækt að gerast
til þess að von sé einhverra
breytinga á formúlunni.
Þegar einokun Ríkisútvarpsins
var afnumin fyrir hálfu þriðja ári
renndu menn blint í sjóinn með
það hversu margar útvarpsstöðv-
ar væri raunhæft að reka í
Reykjavík. Enn er svarið við
þeirri spurningu ekki fengið.
Hins vegar virðist ekki ýkja langt
þangað til niðurstaða fæst um það
hversu margar útvarpsstöðvar af
tegund Stjörnunnar og Bylgjunn-
ar er pláss fyrir í loftinu yfir höf-
uðborginni.
NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 29