Þjóðviljinn - 01.10.1988, Qupperneq 5
FRÉTTIR
Stöðuveitingar
Umdeildur maður
skipaður deildarstjóri
Erlendur Kristjánsson skipaður deildarstjóri í
menntamálaráðuneytinu. Birgir annar menntamálaráðherra
Sjálfstœðisflokksins sem hampar Erlendi
Asíðasta ríkisráðsfundi ríkis-
stjórnar Þorsteins Páissonar
var gengið frá nokkrum stöðu-
veitingum samráðherra hans.
Þar vekur einna mesta athygii að
Erlendur Kristjánsson var skip-
aður deildarstjóri í menntamála-
ráðuneytinu. En hann hefur heist
unnið sér til frægðar að eiga í erf-
iðleikum með að skilja muninn á
60 þúsund krónum íslenskum og
60 þúsund dönskum.
Erlendur sat í undirbúnings-
nefnd fyrir Norðurlandaráðsþing
æskunnar í Reykjavík 1985. Um-
samið var að hann fengi í hend-
urnar 60 þúsund krónur danskar
til að greiða kostnað við undir-
búning þingsins. En í fjárhags-
áætlun og öðrum pappírum talaði
Erlendur alltaf um 60 þúsund
krónur íslenskar. Um þetta
spunnust miklar deilur í sam-
starfsnefnd Norræna félagsins og
Æskulýðssambands íslands og
blandaðist danska Æskulýðssam-
bandið þar inn í en það bar fjár-
hagslega ábyrgð á þinginu.
Þetta mál var rakið í Helgar-
póstinum á sínum tíma en Sverrir
Hermannsson, þáverandi
menntamálaráðherra, reddaði
Erlendi fyrir horn. Þess var kraf-
ist að Erlendur greiddi mismun
60 þúsunda íslenskra og 60 þús-
unda danskra. Til að geta staðið í
skilum við danska Æskulýðssam-
bandið sótti ný samstarfsnefnd
Norræna félagsins og íslenska
Æskulýðssambandsins um styrk
hjá menntamálaráðuneytinu og
fékkst hann. Birgir ísleifur
Gunnarsson lét það síðan verða
eitt af sínum síðustu verkum að
gera Erlend að deildarstjóra í
menntamálaráðuneytinu.
Erlendur hefur einnig verið
umdeildur fyrir störf sín sem
æskulýðsfulltrúi ríkisins, en hann
lét breyta reglum um Æskulýðs-
ráð ríkisins þannig að minni
landssambönd koma ekki full-
trúa sínum í ráðið. Þar sitja nú
fulltrúar örfárra landssambanda
og vakti þetta mikla gremju hjá
smærri samböndunum.
Á ríkisráðsfundinum var
skipun Níelsar Árna Lund sem
deildarstjóra i landbúnaðarráðu-
neytinu einnig staðfest og Gunn-
ar H. Hall var skipaður skrif-
stofustjóri á Hagstofu íslands.
Ragnhildur Hjaltadóttir var
skipuð skrifstofustjóri í sam-
gönguráðuneytinu.
-hmp
150 þúsund dósir hafa safnast frá miðjum september.
Hreinsunarátak
Tómar dósir sjaldséðar
„Láttu ekki þitt eftir liggja“
Idag er síðasti móttökudagur séu afar sjáidséðar á almannafæri dós sem þau koma með. Mót-
fyrir tómar dósir á vegum um þessar mundir. tökustaðir fyrir dósirnar eru allar
hreinsunarátaks Reykjavíkur- félagsmiðstöðvar í borginni, auk
borgar sem staðið hefur frá miðj- Eftir nokkru er að slægjast Breiðholtsskóla, Foldaskóla,
um september. Á þeim tíma hafa fyrir höfuðborgarbörn að safna Ölduselsskóla, Laugarnesskóla
safnast yfir 150 þúsund tómar sem flestum dósum því þau fá 2 og á Fríkirkjuvegi 11.
dósir og er það mál manna að þær krónur í skilagjald fyrir hverja -grh
Reykjavík
Hundsama?
Viljið þér leyfa hundahald í
Reykjavík með þeim skilyrð-
um, sem gilt hafa síðustu fjögur
ár?“ er spurning sem borgarbú-
um gefst færi á að svara seinnip-
artinn í október, en borgarráð
hefur samþykkt að þá fari fram
kosningar um téð húsdýrahald.
Kosningar þessar verða ein-
hver mesta törn í beinu lýðræði
sem sögur fara af í borginni þar
sem þær munu standa í viku, frá
24. til 30. október, og verður
kjörstaður opinn frá kl. 16 til 19
virku dagana, en frá kl. 14 til 20
helgardagana. Kosið verður í
Laugardalshöllinni.
Meðal skilyrða sem gilt hafa í
þessu efni undanfarin ár má
nefna árlega skylduhreinsun á
hundum, heimild til að lóga
hættulegum hundum, merkingar
og ábyrgðartryggingar. Þá hefur
þurft skriflegt samþykki sam-
eigenda fyrir hundahaldi í sam-
býlishúsum.
HS
Auglýsing
Stjórn Kvikmyndasjóös íslands hefur ákveöiö aö
örva gerö kvikmynda fyrir börn meö því aö veita
nokkrum höfundum kvikmyndahandrita fyrir
barna- og unglingamyndir viðurkenningu fyrir
handrit sín. Viðurkenningin verður í formi fjár-
framlags til frekari vinnslu handritanna, og er til
hennar efnt í tengslum við „Markað mögu-
leikanna" sem haldinn verður hér á landi 17. -
21. október n.k. „Markaður möguleikanna", er
haldinn aö frumkvæöi Norræna starfshópsins
um börn og barnamenningu og veröur fjallað þar
um börn og lifandi myndir. Þriggja manna dóm-
nefnd, tilnefnd af stjórn Kvikmyndasjóös, mun
lesa þau handrit sem berast, og velja nokkur úrtil
viðurkenningar. Handrit, eöa handritsúrdrættir,
eigi lengri en nemur 20 vélrituöum síöum, berist
skrifstofu Kvikmyndasjóðs, pósthólfi 320, 121
Reykjavík, í lokuðu umslagi ásamt dulnefni, og
réttu höfundarnafni í öðru lokuöu umslagi, eigi
síðar en 15. janúar 1989.
Niðurstöður dómnefndar munu liggja fyrir 15. fe-
brúar 1989.
Auglýsing
um styrkveitingar til
kvi kmy ndagerðar
Kvikmyndasjóður íslands auglýsir eftir um-
sóknum um styrki tii kvikmyndagerðar.
Sérstök eyöublöö fást á skrifstofu Kvikmynda-
sjóös, Laugvegi 24, III. hæö, 101 Reykjavík og í
menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, 101
Reykjavík.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Kvikmynda-
sjóðs fyrir 1. desember 1988.
Reykjavík, 30. september 1988
Stjórn Kvikmyndasjóðs íslands
HEILBRIGÐISEFTIRLIT REYKJAVIKUR
Hundahreinsun
í Reykjavík
Samkvæmt 5. gr. reglugeröar nr. 201/1957 um
varnir gegn sullaveiki skulu allir hundar eldri en 6
mánaöa hreinsaöir af bandormum í október- eöa
nóvembermánuði ár hvert.
Eigendum hundanna er bent á aö snúa sér til
starfandi dýralækna í Reykjavík með hreinsun.
Viö greiöslu árlegra leyfisgjalda þarf aö framvísa
gildu hundahreinsunarvottorði.
Eldra vottorö en frá 1. september sl. verða ekki
tekin gild.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
Útboð
Snjómokstur á Norðurlandi
vestra veturna 1988-1989
og 1989-1990
Vegagerðin og flugmálastjórn óska eftir tilboð-
um í snjómokstur með vörubílum á eftirtöldum
köflum:
I. Sauðárkrókur - Sleitustaðir, ásamt Alex-
andersflugvelli.
II. Sauðárkrókur - Vatnsskarð - Norðurár-
dalur.
III. Blönduós - Skagaströnd - Húnaver.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkis-
ins á Sauðárkróki frá og með 3. október nk.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:0C
þann 17. október 1988.
Vegamálstjóri
l
Laugardagur 1. október 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5