Þjóðviljinn - 15.10.1988, Blaðsíða 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Talið að ríkisstjórnir verði stöðugri
r
Italska þingið samþykkti á
fímmtudag að leynilcgar at-
kvæðagreiðslur skyidu afnumdar
á því þingi. Hingað til hafa at-
kvæðagreiðslur þess þings sem sé
verið leynilegar, þannig að þing-
menn hafa getað greitt atkvæði
með eða móti hinum og þessum
frumvörpum án þess að þurfa að
láta nokkuð uppi um afstöðu
sfna.
Frumvarpið var samþykkt eftir
mikið þjark, sem stóð yfir í marga
daga, og er samþykkt þess talin
mikill sigur fyrir Ciriaco de Mita,
forsætisráðherra Ítalíu, sem mjög
beitti sér fyrir því. Aðalstuðn-
ingsmaður de Mita í máli þessu
var Bettino Craxi, leiðtogi Sósíal-
istaflokksins, en þeir de Mita eru
annars harðir keppinautar í
stjórnmálum.
Leynilegar atkvæðagreiðslur
ítalska þingsins hafa ásamt með
öðru valdið því, að ríkisstjórnir
þar hafa jafnan verið óstöðugar
og skammlífar. Þingmenn í
stuðningsflokkum ríkisstjórna
hafa getað greitt atkvæði gegn
stjórnunum, ef þeim hefur sýnst
Júgóslavía
Heiréttur
dæmir
Slóvena
Æðsti herréttur Júgóslavíu
staðfesti í gær dóm undirherrétt-
ar yfir fjórum Slóvenum og tvö-
faldaði i ofanálag refsingu eins
þeirra. Þrír hinna dæmdu eru
blaðamenn, sá fjórði liðsforingi.
Einn hinna dæmdu blaða-
manna, David Tasic við vikuritið
Mladina, hafði haldið því fram í
blaðinu að hugsanlegt væri að
júgóslavneska hernum yrði beitt
til að bæla niður frjálslyndis-
hreyfingar í Slóveníu. í undirrétt-
inum var hann dæmdur til fimm
ára fangelsisvistar, en yfirréttur-
inn þyngdi dóminn upp í tíu mán-
aða refsivist. Dómamir yfir hin-
um þremur, upp á fjögurra ára
fangelsisvist yfir einum þeirra og
18 mánuði yfir hinum tveimur,
voru staðfestir í yfirherrétti. Allir
mennirnir fjórir vora ákærðir
fyrir að hafa ljóstrað upp her-
leyndarmálum.
Undirréttur dæmdi þá fjóra í
júh' s.l. eftir réttarhöld fyrir lukt-
um dyrum. Réttarhöldin vöktu
almenna gremju og mótmæli í
Slóveníu og kom í því sambandi
til harðra orðaskipta milli slóv-
enskra forustumanna og júgó-
slavneska hersins.
Slóvenía er eitt sex lýðvelda, er
Júgóslavía samanstendur af, og
stjórnarfar þar frjálslegra en í
hinum lýðveldunum og lífskjörin
þau bestu í landinu. Tungumál
Slóvena er að vísu slavneskt, en
frábrugðið nokkuð serbókróat-
ísku, aðaltungumáli landsins sem
tvær stærstu þjóðir þess, Serbar
og Króatar, tala. Frá því um
miðjar miðaldir heyrði Slóvenía
til Austurríki og stendur í menn-
ingarefnum á ýmsan hátt nær því
landi en öðrum Júgóslövum,
þrátt fyrir sitt slavneska mál.
Undanfarið hafa slóvenskir ráða-
menn látið í ljós áhyggjur út af
vaxandi þjóðernishyggju meðal
Serba.
Reuter/-dþ.
svo af einni eða annarri ástæðu,
án þess að upp um þá kæmist.
Líklegt er talið að hvað mest hafi
verið um þetta meðal þingmanna
kristilegra demókrata. Hjá þeim
hefur jafnan mikið verið um
klíkuskap og deilur innbyrðis og
ósjaldan komið fyrir, að hinir og
þessir flokksbroddar hafi notað
leynilegar atkvæðagreiðslur á
þingi til að fella stjórn fyrir keppi-
nautum sínum innan flokksins.
Þetta hefur oft leitt af sér mikla
óreiðu í stjórnarfari, sem hefur
svo aftur komið niður á efnahags-
hfi landsins. Síðustu fjóra áratug-
ina hefur Ítalía haft 48 ríkis-
stjórnir.
Margir þingmanna kristilegra
demókrata beittu sér gegn frum-
varpinu, eins og skiljanlegt er af
framangreindu. Það gerðu einnig
þingmenn Kommúnistaflokks-
ins, annars stærsta flokks lands-
ins. Honum hefur verið haldið
utan ríkisstjórna frá því á árunum
eftir heimsstyrjöldina síðari, en
vegna reglunnar um leynilegar
atkvæðagreiðslur hefur hann oft
haft betur í atkvæðagreiðslum
gegn ríkisstjórnum með stuðn-
ingi huldumanna úr öðrum flokk-
um. Af þessari ástæðu hafa ríkis-
stjómir oft orðið að leita meira
eða minna samstarfs við
Kommúnistaflokkinn. Talið er
að þessir möguleikar kommún-
ista muni hverfa að mestu með
leynilegu atkvæðagreiðslunum
og það leiði til aukinnar einangr-
unar þeirra í stjórnmálum. Lík-
legt er að Sósíalistaflokkurinn,
sem reynt hefur eftir mætti að
koma í veg fyrir samstarf tveggja
stærstu flokka landsins, kristi-
legra demókrata og kommúnista,
muni græða á því.
Reuter/-dþ.
De Mita - þessi þingsigur hans er talinn geta markað tímamót í
ítölskum stjórnmálum.
Bandaríska kosningabaráttan
Bush vann sjónvarpseinvígi
Er fimm prósentum fyrir ofan Dukakis
Stjórnmálasérfræðingar af
ýmsu tagi, kosningaspámenn
og skoðanakönnuðir í Bandaríkj-
unum virðast nokkurn veginn
sammála um, að Bush, varafor-
seti og frambjóðandi repúblíkana
til forsetaembættis, hafi unnið
verulegan sigur á Dukakis ríkis-
stjóra, frambjóðanda demó-
krata, í sjónvarpseinvígi þeirra á
fimmtudagsnótt.
Niðurstöður skoðanakannana,
sem gerðar voru í snarhasti eftir
einvígið, sem stóð yfir í hálfan
annan tíma, bentu til þess að
Bush hefði tekist miklu betur til
en andstæðingi sínum með að
ganga í augu og eyru kjósenda. í
niðurstöðum skoðanakannana
um fylgi frambjóðenda er Bush
nú að jafnaði fimm prósentum
fyrir ofan Dukakis. Nú eftir sjón-
varpseinvígið þykjast margir rep-
úblíkanar geta leyft sér að vera
vissir um sigur í forsetakosning-
unum.
Bush virtist rólegur og öruggur
með sig allan tímann meðan á
sjónvarpsviðræðunni stóð, en
Dukakis aftur á móti frekar
þreytulegur og stundum eins og
uppgefinn. Hið virta biað Wa-
hington Post segir hann hafa
misst hvert tækifærið eftir annað
til að snúa vöm upp í sókn í við-
ræðunni.
Reuter/-dþ.
Dukakis - missti hvert tækifærið
af öðru til að snúa vörn upp í
sókn.
Bush - nú er honum spáð sigri.
Nýskipan Ceausescus
Oddvitar í menningar-
málum mótmæla
Mþekktir menningarfrömuð-
ir af ýmsum þjóðernum
birtu I fyrradag I víðlesnu
svissnesku dagblaði mótmæli
gegn fyrirhugaðri nýskipan Ce-
ausescus Rúmeníuleiðtoga, sem
felast í því að þúsundir sveita-
þorpa verða jöfnuð við jörðu og
íbúunum safnað saman i stærri og
færri búsetu- og framleiðslu-
einingar, þar sem ætlast er til að
bæði iandbúnaður og iðnaður sé
stundaður.
í opnu bréfi til blaðsins segja
menningarfrömuðirnir, að þegar
sé byrjað að jafna þorpin við
jörðu samkvæmt téðri áætlun.
Væri enginn vafi á því, að með
eyðingu þorpanna myndu
ómetanleg menningarverðmæti
fara forgörðum, hvort heldur
þorpin væru byggð Rúmenum,
Ungverjum eða Þjóðverjum.
Ekki myndi þessi nýskipan held-
ur efla efnahag Rúmeníu, heldur
þvert á móti gera hana enn fátæk-
ari. Þar sem Rúmenía væri Evr-
ópuland, væri þetta mál sem allir
Ceausescu sýnir þjóðemis-
minnihlutum tennumar.
Evrópumenn ættu að láta til sín
taka.
Meðal þeirra sem undirrita
mótmælabréfið má nefna hinn
fræga sovéska vísindamann og
fyrrum andófsmann Andrej Sak-
En nú snýst Sakharov gegn hon-
um.
harov, vesturþýska rithöfundinn
Gunter Grass, fransk-rúmenska
leikritahöfundinn Eugene Ion-
esco, breska fiðluleikarann Ye-
hudi Menuhin og Sadruddin Aga
Khan prins, fyrrum forstjóra
Flóttamannastofnunar Samein-
uðu þjóðanna.
í bréfinu segir ennfremur, að
af hálfu Rúmeníustjórnar sé hér
um brot á mannréttindum að
ræða, og hvetja höfundar bréfs-
ins Sameinuðu þjóðiraar til þess
að láta málið til sín taka. Téðar
fyrirætlanir Rúmeníustjórnar
virðast einkum beinast að þorp-
um í Transsylvaníu, þar sem fjöl-
mennir ungverskir og þýskir
þjóðernisminnihlutar hafa búið
frá fomu fari. Talið er að þessi
nýskipan Ceausescus muni verða
mikið áfall fyrir sérmenningu
þjóðernisminnihlutanna, ef hún
kemst í framkvæmd, og hefur
þetta því valdið harðri deilu milli
Rúmeníu og Ungverjalands.
Vestur-Þýskaland hefur einnig
mótmælt téðri nýskipan, ekki þó
mjög harðlega og í staðinn leitast
við að greiða fyrir því fólki af
þýska þjóðernisminnihlutanum í
Rúmeníu, sem flytjast vill til
Þýskalands.
Reuter/-dþ.
Ítalíuþing
Leynilegar atkvæðagreiðslur afnumdar
Laugardagur 15. október 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11