Þjóðviljinn - 15.10.1988, Blaðsíða 16
Brynja Bergsveinsdóttir,
vinnurhjá Rafmagnsveitum ríkis-
ins:
Það miðar nú fremur hægl eins
og fram hefur komið hér á lands-
fundinum, og eins og allar skýrsl-
ur og kannanir sýna nú reyndar.
-SPURNINGIN-
Hvernig miðar í
jafnréttisbaráttunni?
(Spurt á landsfundi
Kvenréttindafélagsins)
Lára V. Júlíusdóttir,
formaður félagsins:
Hægt og bítandi, nema í laun-
amálunum, þar miöar ekki neitt.
þlÓÐVIUINN
Laugardagur 15. október 1988 226. tölublað 53. órgangur
SIMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Kristín Aradóttir,
bóndakona:
Það miðar mjög hægt; frekar i
hænufetum en einhverjum ris-
astökkum.
17. landsfundur Kvenréttindafélagsins stendur yfir. Ragnheiður
Harðardóttir: Sjónvarp gjarnan dragbítur á réttindabaráttu kvenna
Lára V. Júlíusdóttir, formaður
Kvenréttindafélags Islands.
Mynd: Jim Smart.
Gerður Steinþórsdóttir,
kennari:
Það er nú bæði og. Einstakar
konur hafa náð lengra en áður
var og það er jákvætt, en svarti
bletturinn er launakjör kvenna,
en þau eru mjög léleg.
Magdalena Schram,
ritari:
Skítsæmilega.
Kvenréttindafélag íslands
heldur nú sinn sautjánda lands-
fund, og sækja hann um sjötíu
fulltrúar hvaðanæva af landinu,
en fundað er í Sóknarsalnum í
Skipholtinu að þessu sinni.
Landsfundur er haldinn fjórða
hvert ár, og að sögn formannsins,
Láru V. Júlíusdóttur, er auk hefð-
bundinna landsfundarstarfa -
umfjöllun um stefnuskrá, laga-
breytingar osfrv. - einkum fjallað
um þrennt í þetta skipti; konur og
ijölmiðla, kjaramál kvenna og
konur og stjórnmál.
Lára sagði að hið fyrsta af meg-
inþemum þessum þremur, konur
og fjölmiðlar, væri þannig til
komið að á Nordisk Forum i
sumar leið hefði þetta viðfangs-
efni verið framlag Kvenréttinda-
félags íslands, en félögin á Norð-
urlöndum hefðu fjallað um konur
og völd. Sigrún Stefánsdóttir,
fjölmiðlafræðingur, og Ragn-
heiður Harðardóttir, þjóðfélags-
fræðingur, fluttu þá erindi hér að
lútandi, og aftur á landsfundinum
núna.
Framlag Ragnheiðar var erindi
um konur og völd í fjölmiðlum,
og kvaðst hún hafa nálgast við-
fangsefnið úr tveimur áttum:
Hvar eru konur í fjölmiðlum sem
stofnun; eru þær í ábyrgðarstöð-
um? Ráða þær einhverju? Eru
þær í aðstöðu til að móta fjöl-
miðlana og ákveða hvað skuli
teljast fréttnæmt og þar fram eftir
götunum? Niðurstaða þessa
hluta athugunarinnar sem að
mestu var unnin upp úr kanadí-
skri skýrslu frá í fyrra leiddi í sem
stystu máli í ljós að konur eru
ekki í ábyrgðarstöðum í fjölmiðl-
unum, og kemur sú niðurstaða
heim og saman við einu
rannsóknina sem gerð hefur ver-
ið í þessa veru hér heima, en Sig-
rún Stefánsdóttir átti veg og
vanda af henni.
í öðru lagi hugaði Ragnheiður
að ímynd kvenna í fjölmiðlum og
leitaði svara við því hvernig fjöl-
miðlar túlka konur, en þá einkum
út frá sjónvarpinu. Að sögn
hennar er til sægur af könnunum
á kvenímynd fjölmiðlanna, t.d.
viðamiklar athuganir á breskum
sjónvarpsþáttum undir þessu
sjónarhorni, og ber allt að þeim
sama brunni að ímyndin og raun-
veruleikinn eru sitt hvað. Frekar
sé verið að sýna hvernig ráðandi
gildismat í þjóðfélaginu vilji að
konur líti út en hvernig þær og
þeirra staða er í rauninni. Þá virð-
ist sjónvarp eiga erfitt með að að-
laga sig breytingum og þróun á
þessu sviði, og sé gjarnan um tíu
árum á eftir tímanum. Fyrir
bragðið sé sjónvarp í rauninni
dragbítur á réttindabaráttu
kvenna.
- Sjónvarpið hjálpar því ekki
til við að breyta ímynd kvenna í
samræmi við þær breytingar sem
hafa í rauninni átt sér stað, sagði
Ragnheiður, og sagði að þetta
væri sérstaklega slæmt vegna þess
hve áhrifaríkur miðill það væri og
hve sterk áhrif það hefði á börn-
in, og þar með mótandi um við-
horf næstu kynslóðar.
Aðrir frummælendur á lands-
fundinum voru Kristín Einars-
dóttir, alþingismaður, Sólveig
Pétursdóttir, formaður barna-
verndarnefndar Reykjavíkur og
Guðrún Agústsdóttir, borgar-
fulltrúi, og fluttu þær tölur um
konur og stjórnmál. Þóra Hjalta-
dóttir, formaður Alþýðusam-
bands Norðurlands, Elna Jóns-
dóttir, formaður BK og Lea Þór-
arinsdóttir, formaður Póst-
mannafélags íslands fjölluðu um
kjaramál kvenna. í þeim mála-
flokki er þungt undir fæti, og sem
lítinn vott um það má benda á
svör fimm fulltrúa við spurningu
dagsins hér á síðunni, eða með
orðum formanns Kvenréttinda-
félagsins. í launamálunum miðar
ekki neitt.
HS