Þjóðviljinn - 22.10.1988, Blaðsíða 16
-SPURNINGIN-
Hvernig leggst veturinn í
þig?
Helgi Seljan, félagsmálafull-
trúi hjá Öryrkjabandalaginu:
Veturinn leggst vel í mig. Ég held
að hann eigi eftir að vera góður
veðurfarslega séð. En hins vegar
eru veður válynd í stjórnmálun-
um. Ég vona að núverandi ríkis-
stjórn lifi nú alla vega af veturinn.
Lísa Pálsdóttir, dagskrár-
gerðarmaður hjá RÚV:
Hann leggst bara vel í mig. Því er
ekki að neita að ég kvíði snjón-
um.
Rúnar Backmann, rafvirki:
Nú, hann leggst bærilega í mig,
nóg að gera framundan. Ég hef
ekkert upp á þennan árstíma að
klaga.
Kolbeinn Pálsson, formaður
Bláfjallanefndar:
Vel, ég vona að við eigum eftir að
fá nægan snjó í fjöllin og það sem
fyrst, þannig að við getum komist
á skíði sem fyrst. Það væri nú
ekki ónýtt að geta verið á skíðum
um jólahelgina.
Auður Sveinsdóttir, lands-
lagsarkitekt:
Mér líst Ijómandi vel á hann, svo
maður tali nú ekki um ef ríkis-
stjórnin fær vinnufrið. Ég held að
veðrið haldist svona fram að jól-
um, eftir áramót má svo skíða-
snjórinn gjarnan koma.
SIMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Áslaug Jónasdóttir og Dagný Bjarnadóttir sem báðar eru meðlimir í Ungmennahreyfingu Rauða krossins tóku á móti fatnaði í anddyri
Laugardalshallarinnar í vikunni. Hér eru þær að saman fatnaðinum saman og setja hann í svarta plastpoka sem síðan verða sendir til
Danmerkur. Mynd Jim Smart.
y »|||p| /
w . Á
í fts /'
' ■ ' 1 m
Rauði Krossinn
Takið til
í fataskápunum!
Rauði Krossinn með fatasöfnunarátak. Mikilþörfáfötum á hörmungasvœðum.
Við stöndum nú fyrir þessu
átaki vegna þess að birgða-
geymslur okkar eru tómar. Það
er víða mikli þörf fyrir fatnað og
þetta ákjósanlegt tækifæri til að
taka til í fataskápunum hjá sér,
sagði Hólmfríður Gísladóttir sem
sér um fatasöfnun Rauða krossins
að þessu sinni.
- Það hefur farið mikið af fö-
tum frá okkur til td. Unganda,
Mosambique og fleiri Afríkur-
íkja. Einnig höfum við sent
vetrarföt til Kúrda í Irak, og til
jarðskálftasvæðanna í Suður-
Ameríku. Við vorurn að fá bréf
frá tveimur sjálfboðaliðum sem
eru á okkar vegum í Eþíópíu, þar
segir að mikill þörf sé fyrir fatnað
á þeim slóðum, sagði Hólmfríð-
ur.
Fatasöfnunarátakið hefur
staðið þessa viku og að sögn
Hólmfríðar hefur það gengið vel.
Allir deildir Rauða krossins taka
við fötum. í Reykjavík er tekið á
móti fötum í húsum félagsins við
Rauðarárstíg og á Öldugötu,
einnig er tekið við fatnaði í and-
dyri Laugardalshallarinnar. Þar
voru þær Áslaug Jónasdóttir og
Dagný Bjarnadóttir að taka á
móti fatnaði sem var jafn óðum
troðið í svarta plastpoka. Að
þeirra sögn er það ótrúlegt hvað
fólk kemur með mikið af fötum.
Það mátti líka sjá í anddyri hallar-
innar að íslendingar hafa tekið
þessu kalli Rauða krossins vel því
þarna var stór haugur af svörtum
plastpokum sem verða sendir til
Danmerkur. En þar er fatnaður-
inn tekinn og flokkaður, gert er
við saumsprettur og fest á tölur ef
þarf, síðan er hann pressaður
saman og sendur á stað til þeirra
sem mest hafa þörf fyrir fatnað
hverju sinni.
Undanfarin tvö ár hafa íslend-
ingar gefið Rauða krossinum 102
tonn af fatnaði sem allur hefur
verið sendur til flóttamanna og
annarra sem hafa verið í þörf fyrir
hann. Þó nú sé í gangi sérstakt
átak til að safna fötum, tekur
Rauði krossinn við fötum allan
ársins hring, en hann hefur kom-
ið sér upp sérstökum móttöku-
stöðum sem eru til húsa í húsa-
kynnum Rauða krossins við
Rauðarárstíg. og Öldugötu í
Reykjavík. Nú um helgina verð-
ur tekið við fatnaði í Laugardals-
höllinni fá kl. 13-18, á sama tíma
á Rauðarárstígnum og á Öldu-
götunni, svo og hjá öllum
deildum Rauða krossins um allt
land. -sg