Þjóðviljinn - 08.11.1988, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 08.11.1988, Qupperneq 6
FLÓAMARKAÐURINN Til sölu Stórt sófaborð til sölu. Upplýsingar í síma 681333 til kl. 13.00 og 31197 eftir hádegi. Tímaritið Satt til sölu, 13 innbundnar bækur. Upp- lýsingar í síma 672215. Til söju svefnbekkur, skrifborð, stólar, nátt- borð, skápur og þvottavél, ódýrt. Upplýsingar í síma 33266 eftir kl. 20.30 Kettlingur óskast (kvenkyns) Sími 13297 í hádeginu eða á kvöld- in. Óskast gefins eða fyrir lítinn pening Fataskápur, kókosmotta á gang, útidyramotta, notaðar tuskumottur, gamaldags miðstöðvarofn. Upplýs- ingar í síma 13297 í hádeginu eða á kvöldin. íbúð óskast Reglusöm stúlka óskar eftir íbúð til leigu í miðbænum eða nágrenni Háskólans. Upplýsingar í síma 73628 eftir kl. 19.00. Vetrardekk Vantar vetrardekk undir Skoda. Upplýsingar í síma 73311. MMC Lancer árg. '80 í toppstandi, til sölu. Áhvíl- andi skuldabréf getur fylgt. Vetrar- dekk. Upplýsingar í síma 24769 og 22188. Óska eftir að kaupa notaðar Beta-myndbandssnældur. Upplýsingar í síma 12014. Herbergi til leigu Lítið herbergi með aðgangi að baði til leigu nálægt Háskólanum. Upp- lýsingar í síma 27411. Til sölu Silver Cross barnavagn, verð ca. 10.000 kr. og Chicco baðborð, verð kr. 5.000. Einnig til sölu 5 vetra hestur. Upplýsingar í síma 46108 eftir kl. 19.00. Til sölu nýlegur, vel með farinn Yamaha RBX 5,5, strengjabassi sem selst á góðu verði. Einnig ódýr Roland PR 100 sequencer með diskadrifi. Á sama stað óskast ódýr trompett. Upplýsingar í síma 40460 á daginn og 623692 á kvöldin. Kojur óskast keyptar eða gefins. Heimasími 15708 eftir kl. 16.30. Barnagæsfa Gæsla óskast fyrir 10 mánaða gamalt barn eftir hádegi. Sími 18681. Vil kaupa statív fyrir umbúðapappír. Upplýsingar í síma 23218 og 29474. Seðlaveski tapaðíst Bleikt seðlaveski tapaðist í Kringl- unni síðastliðinn laugardag 5. nóv- ember. í veskinu eru skólaskilríki með nafni eiganda, peningar, Ijós- akort og fleira sem eiganda er óljúft að tapa. Skilvís finnandi vinsam- legast hringi í síma 681333 á dag- inn, Olga. Til sölu unglingakoja með skrifborði, 2 tepparenningar, 3 og 4 metrar, loft- Ijós, sófaborð og spegill. Gefins á sama stað dýnulaust hjónarúm. Upplýsingar í síma 612315. Til sölu Lada Lux árg. ’88. Ekinn 8.000 km. Hliðarlistar, sílsalistar, lakkvernd, lugtargvendur, grjótvarnargrind, út- varp. Verð kr. 290.000. Upplýsing- ar í síma 18866 (símsvari) á kvöld- in. Römer Peggy barnabílstóli til söiu barnakerra án skerms með grind og vindgalla, 2 springdýnur, lítið notaðar, 195x75 sm, ömmustangir 140x258 sm, 2 stk. ídökkum við,40 sm. Upplýsingar í síma 32178. 78 snúninga plötur óskast keyptar ódýrt eða á flóamarkaðsverði. Helst vel með farnar. Upplýsingar í síma 91-42768. Til sölu toppgrind á Colt á kr. 2.000, IKEA borð/barnastóll á kr. 1.500, tvennir hjólaskautar, sem nýir, nr. 41 -42 og 31-32. Verð kr. 1.800. Upplýsingar í síma 611354. Sófaborð óskast Óska eftir háu, gamaldags sófa- borði, ekki lægra en 65 sm. Upplýs- ingar í síma 611354. Myntsafnarar Gömul mynt til sölu, 6 kíló, selst í einu lagi ódýrt. Upplýsingar í síma 681455. Gefins Svefnsófi fyrir einn í góðu ásig- komulagi fæst gefins. Sími 28372. Oyrasfma- og rafvirkjaþjónusta Set upp og geri við dyrasíma ásamt almennri rafvirkjaþjónustu. Upplýs- ingar í síma 686645. Bill til sölu Daihatsu Charade '80 til sölu. Skoðaður ’88, ný snjódekk, útvarp og segulband. Verð kr. 60.000. Á sama stað óskast notaður ís- skápur, helst gefins. Vinsamlegast leggíð inn nafn og símanúmer á auglýsingadeild í síma 681310 eða 681333. Húsnæði óskast Óskum eftir lítilli íbúð eða rúmgóðu herbergi með sérinngangi og snyrt- ingu. Erum 2 í heimili. Meðmæli ef óskað er, Reglusemi og skilvísum greiðslum heitið. Vinsamlegast skiljið eftir nafn og símanúmer hjá auglýsingadeild í síma 681310 eða 681331. Nett hjónarúm með góðri dýnu til sölu ódýrt. Sími i70C0 J Ökukennsla Kenni á Lada Samara ’89. Valur Haraldsson, sími 28852. Til sölu Peugeot 205 árgerð 87, ekinn 15 þús. km. Góður bíll í toppstandi.l Vetrardekk fylgja. Upplýsingar í síma 29819. Hafnarfjörður Verkakvennafélagið Framtíðin Tillögur stjórnar og trúnaðarmannaráðs félags- ins, um stjórn og aðrar trúnaðarstöður, fyrir árið 1988, liggja frammi á skrifstofu félagsins, Strand- götu 11, frá og með þriðjudeginum 8. nóvember til föstudagsins 11. nóvember, til kl. 16.00. Öðr- um tillögum ber að skila fyrir kl. 16.00 föstudag- inn 11. nóvember og er þá framboðsfrestur út- runninn. Tillögum ber að fylgja meðmæli 20 fullgildra félagsmanna. Verkakvennafélagið Framtíðin Auglýsið í Þjóðviljanum 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. nóvember 1988 tíTTA jjjjSKKIHÆÖ* VINNUR ÞU Á LAUGARDÖGUM? Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111 VIÐHORF Framhald af bls. 5 Fyrst hann tók upp á þessum fjára gat hann þó sýnt að hann tæki a.m.k. alvarlega ákvæði stjórnarsáttmála nýsoðið og enn glóandi heitt um eflingu Fram- kvæmdasjóðs fatlaðra. Aður en ég vissi um happ- drættissýkina hafði ég sagt Ólafi það beint að svartalágmarkið í sjóðinn væri 200 miljónir, og hefði bætt þar við 20 sem öðru svartalágmarki, ef mig hefði órað fyrir hinum ósköpunum. Og þá var ég og er að tala í takt við allan sönginn um erfiðu tímana og taka þau fölsku tónbrigði inn í mynd- ina. Nú, framkvæmdasjóðurinn margsvikni er því miður auðvitað svikinn af Ólafi eins og öðrum, en það er sýnu alvarlegra vegna þess sem ríkið ætlar að hirða af ágóðahlut öryrkja af lottóinu. Svo einfalt er það og ekki getur það verið hluti af félagslegu um- byltingunni, sem gumað hefur verið af - alveg sérstaklega af Ólafi Ragnari sjálfum. En Ólafur Ragnar á enn leið sér til afbötun- ar og yrði honum þá ýmislegt fyrirgefið og ég bið hann opinber- lega hér um. Ekki skal Útvegsbankaóáránin upprifjuð hér, en í Kópavogi var húseign nokkur og er enn, sem þessi glæsibanki gulli rúinn átti. Nú ákvað ríkið það að kaupa (af sjálfu sér) þessa húseign að miklu fyrir ágæta starfsemi Greiningar- stöðvar ríkisins - lykilstofnunar í málefnum fatlaðra. Greiðsla skyldi fara fram á 10 árum, en það snjallræði fundið upp, að af því fé sem fram- kvæmdasjóði fatlaðra væri út- hlutað árlega skyldi greiðslan koma, þ.e. af því að ríkið er nú þama yfir og allt umkring, þá skyldi framkvæmdafé sjóðsins næstu 10 ár skerðast sem næmi afborgunum og vöxtum af öllu saman. Framkvæmdasjóður fatlaðra átti sem sé sérlega að blæða fyrir Útvegsbanka - Hafskipsóreiðu- sukkið. Þetta er upphæð, sem nálgast að nægja fyrir einu sam- býli á ári -10 sambýli fyrir fatlaða töpuð, þegar Hafskipstollurinn hefur að fullu verið greiddur. Þessu afléttir Ólafur Ragnar einfaldlega af Framkvæmdasjóði fatlaðra og ákveður að framlag til sjóðsins skerðist ekki um þetta, hvorki í ár né á næstu árum. Og svona í leiðinni og ekki síðra þá bið ég þess að lagt verði fram nægilegt fé úr ríkissjóði á móti framkvæmdasjóðnum á næsta ári í vist- og hjúkrunar- heimili fyrir þá sem mest hafa skaðast í slysum, því komi helm- ingsframlag til þess úr ríkissjóði, mun reynt úr rýrum Fram- kvæmdasjóði fatlaðra að sjá um hitt. Og við skulum gæta þess að þetta hvoru tveggja er nú ekki nema svo sem tæp 10% af því sem ætlað er til „uppáhaldsins" okkar beggja - flugstöðvar okkar og Kanans á Miðnesheiði. Og þá verður sagt um höfund Ólafsbókar hinnar nýju á beztu bæjum: Svona eiga sýslumenn að vera. Helgi Seljan Helgi er félagsmálafulltrúi hjá Öryrkjabandalaginu og forðum þingmaður að austan. 200 á dag Verulegur samdráttur í innflutningi nýrra bíla í september og október skiptu rúmiega 200 bílar um eigendur daglega. Þannig voru sendar inn til Bifreiðaeftirlits ríkisins í sept- ember 212 sölutilkynningar á dag. í alit bárust 4460 sölutil- kynningar í þeim mánuði. í októ- ber bárust 4280 tilkynningar eða 204 á dag. Verulegur samdráttur er í bíla- innflutningi til landsins. Þannig var skráður 721 bíll hjá Bifreiða- eftirliti rfkisins í október í ár, en 1.886 bílar í fyrra. Þetta er fækk- un um 1165 bíla. Á fyrstu tíu mánuðum ársins hefur nýskráningum fækkað um 6.780 miðað við sama tímabil í fyrra. Þá voru fluttir inn rúmlega tuttugu þúsund bílar en í ár voru fluttir inn rúmlega þrettán þús- und. 1. október voru 140.294 bíl- ar á skrá hér á landi. -*g VINNUR ÞÚ X Íaugardogum- 29 33 I’ I ✓ Vinningstölurnar 5. nóvember 1988 Heildarvinningsupphæð: Kr. 8.882.920,- Fimm tölur réttar kr. 5.094.750,- Aðeins einn þátttakandi var með 5 réttar tölur. BÓNUSTALA + fjórar tölur réttar kr. 561.232,- skiptast á 2 vinningshafa, kr. 280.616,- á mann. Fjórar tölur réttar kr. 968.058,- skiptast á 117 vinningshafa, kr. 8.274,- á mann. Þrjár tölur réttar kr. 2.258.880,- skiptast á 4706 vinningshafa, kr. 480,- á mann.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.