Þjóðviljinn - 03.12.1988, Page 3
________________________ FRETTIR____________
Stöðuveitingar
Sérstakt Hannesarhaft
Háskólaráð leggur tilbreytingar álögum um stöðuveitingar sem tryggi
að Hannesarslys endurtaki sig ekki. Sennilega ísamrœmi við sam-
komulag rektors og menntamálaráðherra
Háskólaráð samþykkti í vik-
unni breytingar á 11. grein
háskólalaga um skipan í prófess-
orsembætti, dósentsstöður og
lektorsstöður. Breytingarnar
eiga að tryggja að að mál í ætt við
Hannesar Hólmsteins málið
endurtaki sig ekki. Rektor Há-
skólans og menntamálaráðherra
hafa átt í viðræðum og eru þessar
breytingartillögur í samræmi við
samkomulag þeirra á milli. ráð-
herra hefur tillögurnar nú til
skoðunar.
í tillögum Háskólaráðs felast
tvenn nýmæli. Það fyrra er svo-
hljóðandi: „Engum manni má
veita prófessorsembætti, dós-
entsstarf eða lektorsstarf við Há-
skóla íslands, nema meirihluti
dómnefndar telji hann hæfan og
meirihluti deildarfundar mæli
með honum í starfið,“ eins og
segir orðrétt. En þegar Birgir fs-
leifur Gunnarsson veitti Hannesi
Hólmsteini Gissurarsyni lektors-
stöðu í stjórnmálafræði í sumar,
hunsaði hann bæði vilja dóm-
nefndar og deildarfundar.
Hitt nýmælið er að Háskólaráð
skipi ritara dómnefnda, þeim til
ráðuneytis, leiðbeininga og ann-
arrar aðstoðar. Háskólaráð setji
reglur um starfshætti dómnefnda
SH
og hlutverk ritara, og skuli þær
lagðar fyrir menntamálaráðherra
til staðfestingar. í dómnefnd
þeirri sem mat umsækjendur í
lektorsstöðu í stjórnmálafræði,
sat sérstakur fulltrúi Rektors en
ekkert mælti með því í lögum.
Með þessum breytingum eru
ntöguleikar menntamálaráð-
herra til pólitískra embætti-
sveitinga stórlega skertir.
-hmp
Möskvar
Mælingar
samræmdar
Stefnt aðfundi allra
hlutaðeigandi aðila í
nœstu viku. Mœlir
Gœslunnar með danska
löggildingarstmipilinn en
ekki íslenskan
Stefnt er að í næstu viku að
koma á fundi allra hlutaðeigandi
hagsmunaaðila í sjávarútvegi til
að samræma mælingar á möskv-
um veiðarfæra.
Ráðgert var að funda um málið
í þessari viku en af því gat ekki
orðið vegna dvalar sérfræðinga
Hampiðjunnar erlendis. Mikill
urgur er meðal skipstjórnar-
manna vegna mælinga Landhelg-
isgæslunnar á möskvastærð
veiðarfæra og virðist sem danski
möskvamælir Gæslunnar mæli þá
of litla miðað við þau mælispjöld
sem notuð hafa verið hingað til
bæði af framleiðendum og not-
endum.
Eins og kunnugt er var togar-
inn Skipaskagi AK færður til
hafnar á ísafirði á dögunum eftir
að varðskipsmenn höfðu mælt
trollmöskva togarans of litla.
Samkvæmt mælingunum reynd-
ust þeir vera 151, 05 mm en eiga
með réttu að vera 155 nim.
Að sögn Gunnars Bergsveins-
sonar forstjóra Landhelgisgæsl-
unnar er þeirra mælir stimplaður
frá dönsku löggildingarskrif-
stofunni en ekki þeirri íslensku.
Þó hefur Gæslan bréf frá íslensku
löggildingarskrifstofunni um að
hún rnegi nota danska mælinn
innan íslenskrar landhelgi.
-grh
Mál og menning bauð öllum krökkum á Barnaspítala Hringsins til ævintýraveislu í gær í tilefni
útkomu bókarinnar, Ég á afmæli í dag, eftir þær Björgu Árnadóttur og Ragnheiði Gestsdóttur.
Boðið var upp á glæsilega Þyrnirósarköku, sungið og farið í skemmtilega leiki. Það er ekki annað
að sjá en allir hafi skemmt sér konunglega, jafnt börn sem fullorðnir. Mynd: ÞÓM.
Verðlag
Verðstöðvunin gengur að óskum
Guðmundur Sigurðsson: Verðgœsla almenning hefur sitt að segja.
Nokkrar vörutegundir hafa hækkað að undanförnu
Sleginn nýr
tónn
Hafin er framleiðsla á tilbún-
um sjávarrcttum fyrir evrópskan
og japanskan markað undir vöru-
merkinu Marico hjá dótturfyrir-
tæki Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna Icelandic Freezing
Plants Limited í Grimsby.
Með þessari framleiðslu er
brotið blað í framleiðslusögu
fyrirtækisins en hingað til hefur
það að mestu framleitt sjávaraf-
urðir fyrir ýmis stór matvælafyrir-
tæki og verslunarkeðjur. Þegar
eru framleiddir fimm' fiskréttir
undir Marico - vörumerkinu sem
eru sniðnir að þörfum fólks sem
ekki hefur mikinn tíma aflögu til
eldamennsku.
-grh
I
að liggja fyrir nokkrar
beiðnir um verðhækkanir
hér. Það er að mestu leiti óskir frá
sveitarfélögum sem vilja hækka
ýmis þjónustugjöld s.s. leigu á
íþróttasölum og aðgöngumiða-
verð á sundstaði, sagði Guð-
mundur Sigurðson hjá Verð-
lagsstofnun. Að undanförnu hcf-
ur verð á ýmsum vörutegendum
og þjónustu hækkað nokkuð,
þrátt fyrir að verðstöðvun ríki í
landinu. Á næstu dögum verða
hins vegar kynntir nýir útreikn-
ingar á hækkun framfærsluvísi-
tölu, sem sýna að enn hefur verð-
bólguhraðinn hægt á sér. - Það
er mat okkar hér á Verðlagss-
tofnun að verðstöðvunin gangi
vel, mér sýnist að þeir sem fást
við að selja vörur og þjónustu séu
ragir við að hækka verðlag hjá
sér, ekki bara vegna verðstöðv-
unarinnar heldur einnig, að nú
þegar að þrengir, þá vita þeir að
fólk kaupir það sem er ódýrt og
jafnframt fylgjast neytendur bet-
ur með verðlagi áður, sagði Guð-
mundur.
Hann sagði að flestar þær
hækkanir sem samþykktar hefðu
verið stöfuðu af kostnaðarhækk-
unum á hráefni. Einnig hefði
gengisfelling haft sitt að segja.
Þannig hefði brauð hækkað ný-
verið um 3,8% og kökur urn
4,8%, Erlent sælgæti hefði hækk-
að um 10% og innlendar máling-
avörur um 7 - 8%. Þá hefði nauta-
og svínakjöt einnig hækkað í
verði þegar tekið var upp nýtt
gæðamat á á því, Það hafði í för
með sér 4% hækkun að meðaltali
í smásölu. Einnig hafa kjúklingar
hækkað um 8% í heildsölu vegna
hækkaðs fóðurverðs. Verð-
lagsstofnun gerði fyrir skömmu
athugasemd við verðhækkanir
hjá nokkrunt veitingahúsum sem
höfðu hækkað hjá sér án sýni-
legrar ástæðu. Guðmundur sagði
að veitingarhúsamenn hefðu
flestir þegar gert grein fyrir þess-
um hækkunum og sumir dregið
þær til baka. Enn væri eftir að
afgreiða mál þeirra sem enn
þrjóskuðust við. Hann sagði að
búast mætti við aðgerðum þá og
þegar í þeirra málum.
-sg
RRJÁR FALLiGAR SÖGUBÆKUR FYRIR BÖRNIN
BRÁDUM KOMA
BLESSUÐ JÓLIN
Einstaklega falleg og vönduð bók með sögum um
jólaundirbúning, tilhlökkun, jólahald og fleira
sem tengist jólunum. í bókinni eru ennfremur
fjölmargar jólavísur, leikir og skemmtanir. Bók
sem iðar af sannkallaðri jólagleði.
Stefán Júlíusson þýddi, valdi og endursagði efnið.
TVÆR HEIDU-BÆKUR
Bækurnar um Heiðu eru líklega með þekktustu
barnasögum, sem komið hafa út. Bækumar tvær
sem hér um ræðir heita HEIÐ A FER AÐ
HEIMAN og HEIÐA HEIMSÆKIR AFA og eru
þær endursagðar á góðu máh með ským letri.
Fallegar, litprentaðar bækur í þýðingu Óskars
Ingimarssonar.
SETBERG