Þjóðviljinn - 11.05.1989, Side 7
BILAR
Framboö af not-
uöum bílum á bíl-
asölum borgar-
innarhefuraldrei
veriömeira enum
þessarmundirog
gengursölu-
mönnumafar
misjafnlega að
selja á vel mettum
markaönum.
Mynd:Sig.Mar.
Bílasala
Utlitið og keyrslan
skipta mestu máli
Mikið framboð hefur verið
að undanförnu af notuðum
bílum á bílasölum borgarinnar
og ætti það í sjálfu sér ekki að
koma neinum á óvart. Hinn
almenni samdráttur sem verið
hefur í efnahagslífi íslendinga
kemur m.a. fram í því að þeir
sem átt hafa 2 bíla eða fleiri
hafa verið að minnka við sig
og ekki óalgengt að frúarbíl-
linn sé settur á sölu. Þrátt fyrir
samdráttinn kvarta bílasalar
ekki yfir sölu á notuðum bílum
og bera sig mannalega þó að
bílastæði þeirra séu yfirfull af
óseldum bílum. í núverandi
markaðsástandi þegar fram-
boðið er meira en eftirspurnin
skiptir það mestu fyrir þann
sem vill selja bílinn sinn fyrir
gott verð að útlit bílsins sé gott
og hann sé lítið keyrður. Ef
svo er ekki er hætt við að við-
komandi finni ekki kaupanda
að bílnum nema þá fyrir svo
lágt verð að það svari varla
kostnaði að selja hann.
Salan í hámarki vor
og haust
Pó að margt hafi tekið
breytingum í þjóðfélaginu að
undanförnu bæði til góðs og ills
hefur þó eitt ekki breyst og það er
aðal sölu- og kauptími á notuðum
bifreiðum sem er á vorin og á
haustin. í ár má búast við að bíl-
asalan taki kipp að lokinni einni
bestu vertíð sem komið hefur
hérlendis í mörg ár. Þá munu
vertíðajaxlarnir koma loðnir um
lófana á bflasölurnar í von um að
gera góð kaup. Hið sama gildir
um haustin þegar sumarvinnu er
lokið og viðkomandi hefur safn-
ast dágóður skildingur sem ætl-
unin er að fjárfesta í bfl fyrir vet-
urinn.
Sagt hefur verið með nokkrum
sanni að bílakaup séu næstmesta
fjárfesting sem einstaklingurinn
gerir fyrir utan að sjálfsögðu að
kaupa sér fbúð. Því er það
nauðsynlegt fyrir þann sem hefur
hug á að fjárfesta í notuðum bfl
að fara að öllu með mestu gát og
ekki flana að neinu, jafnvel þó að
gripurinn sé girnilegur og líti vel
út að öllu leyti. Það hefur nefni-
lega viljað brenna við að viðkom-
andi gripur sé ekki allur þar sem
hann er séður, og þeir eru ófáir
sem hafa keypt köttinn í sek-
knum með tilheyrandi óþægind-
um og kostnaðarauka sem því
hefur fylgt.
Það er því brýnt fyrir alla bfla-
kaupendur að ráðfæra sig við ein-
hvern sem þekkir til bíla áður en
skrifað er undir kaupsamning.
Best af öllu er að hafa aðgang að
bifreiðaverkstæði og fagmanni
sem getur skoðað viðkomandi bíl
hátt og lágt til að ganga úr skugga
um að búnaði hans sé ekki áfátt;
jafnvel þó að hann sé nýskoðað-
ur.
Gömlum bílum
úthýst
Fyrir þann sem á 10 ára gamlan
bfl og hefur hug á að selja hann á
bílasölu er eins gott að hætta við
þá hugmynd svo framarlega sem
bíllinn er ekki í því betra ástandi.
Þeim hinum sama er þá ráðlagt af
bflasölumönnum að auglýsa í
blöðum eftir kaupanda, fremur
en að reyna að selja hann á bíla-
sölu. Sem dæmi má nefna að
Mazda árgerð 1979 sem sett er á
70 - 80 þúsund krónur selst á 40
þúsund sé bíllinn staðgreiddur.
Þar af tekur bflasalan í sölulaun
10 þúsund krónur og jafnframt
þarf að greiða 12% í söluskatt.
Eftirstöðvarnar eru því orðnar
fremur rýrar fyrir seljandann og
koma að litlum notum hafi hann
hugsað sér að nota söluverðið
upp í kaup á nýrri árgerð.
Sé bflinn aftur á móti lítið
keyrður með gott útlit þó gamall
sé er hægt að selja hann með lítilli
fyrirhöfn. Nýlega var komið með
8 ára gamla Mözdu á eina bílasöl-
una sem var keyrð aðeins 50 þús-
und kflómetra. Hún stoppaði að-
eins í 2 tíma á bílasölunni þar til
kaupandi var fundinn.
Að prútta um
verðið
Það er ekki aðeins á mörkuð-
um suðrænna ferðamannastaða
sem það getur komið að gagni við
kaup að kunna þá list að prútta
um verðið. í því mikla framboði
sem er á notuðum bílum á mark-
aðnum hér geta kaupendur oft á
tíðum gert mjög hagstæð kaup
með því að prútta um kaupverðið
og algengt að það lækki allveru-
lega frá því sem það var upphaf-
lega. Þá fæst verulegur afsláttur
með staðgreiðslu og sem dæmi
um það má nefna að aigengt er að
slíkur afsláttur á verði 5 ára bíls sé
um 20% og allt upp í 45% sem er
þó einsdæmi. Eðlilegur stað-
greiðsluafsláttur á eins til tveggja
ára gömlum bíl er 10% - 15%.
En það sem einkennir bíla-
markaðinn á notuðum bílum er
hinn mikli munur sem er á verði
eins til tveggja ára bíla á bílasöl-
unum og því verði sem er hjá um-
boðunum. Sem dæmi má nefna
að 1988 árgerð af Daihatsu Char-
ade er verðlögð hjá bflasölum á
um 500 þúsund krónur en sams-
konar tegund hjá umboðinu kost-
ar um 800 þúsund. Þá er enn-
fremur allur gangur á hvernig
semst um greiðslu á kaupverði
bfla. Til dæmis er það algengt að
bfll sem seldur er á 500 þúsund
krónur að útborgun sé 200 þús-
und og eftirstöðvarnar greiddar á
jöfnum afborgunum. En hag-
kvæmast er fyrir eiganda eldri
bfls að skipta á honum og nýrri bfl
og greiða mismuninn í stað þess
að reyna að selja hann á bílasölu.
Gæðingarnir
að norðan
Það hefur löngum verið þekkt
staðreynd að hin gegndarlausa
saltdreifing starfsmanna gatna-
málastjóra í Reykjavík á götur
borgarinnar yfir vetrartímann
hefur mjög slæm áhrif á ytra útlit
reykvískra bíla. Afleiðingarnar
eftir veturinn eru ryðblettir út um
allan bílinn sem rýrir endursölu-
verð hans til muna. Þetta verða
bíleigendur svo sannarlega varir
við þegar þeir koma með bílinn á
bílasölu. Þetta fer alveg sérstak-
lega fyrir brjóstið á höfuðborgar-
búanum þegar samskonar árgerð
er til sölu á sömu bílasölunni, en
hefur verið ekið á götum Akur-
eyrar. Niðurstaðan er oftast sú að
sá norðlenski er ekki í neinum
vandræðum með að selja bílinn
sinn sem sjaldnast stoppar lengi á
bílasölunni, en höfuðborgarbú-
inn verður að slá af söluverðinu
fái hann tilboð í bflinn, jafnframt
sem það tekur hann mun lengri
tíma að selja.
Þar fyrir utan er sú þjóðtrú
harla lífseig meðal bílasölu-
manna að Akureyringar um-
gangist bfla sína mun betur að
öllu leyti en höfuðborgarbúar.
Að vísu hefur aldrei svo vitað sé
verið gerð vísindaleg úttekt á
þessum mun en á meðan hagnast
þeir norðlensku á kostnað höfuð-
borgarbúa.
-grh
Sumir
spara sér leígubíl
aörir taka enga áhættu!
Eftir einn
-ei aki neinn
VEISTU . .
að aftursætið
fer jafnhratt
og framsætið
SFENNUM BELTIN
tivar sem við sitjum
í bilnum
ÚUMfEROAH
HAO
©
VÆNLEGUR KOSTUR
Nissan Vanette er vænlegur kostur fyrir sendibílstjóra og
verktaka.
Ef boriö er saman verðið á Nissan Vanette og öðrum sambæri-
legum þá hefur Nissan Vanette vinninginn eins og á öðrum
sviðum.
Okkar verð: 840.000.-
Greiðslukjör sniðin að þínum þörfum. Sýningarbíll á staðnum.
3ja ára ábyrgð.
Sýningarsalurinn v/Sævarhöfða opinn frá kl. 14-17
laugardag og sunnudag
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2, sími 67-4000