Þjóðviljinn - 06.10.1989, Blaðsíða 15
OU.0£R.£/£75£
yijmnst ronEWPw
COLAKoppm
. uJ*6unB£E,irjE
. 1 CULOEfii PEKZAKX
ZEEBAHkeT 2TAtHr
***%&* 200 U11
^T" £U Nu o
\KCKSln DARm/
Leiðsögumaður Nýs Helgarblaðs um borgina sagði að blóm skipuðu
veglegan sess hjá Hollendingum. Fólk keypti ekki aðeins blóm til
gjafa, heldur gleddi það sjálft sig með því að kaupa blóm. Á markaðn-
um voru líka margir blómasalar.
Hann var svolítið skrautlegur þessi sölumaður sem hélt sig í jaðri útimarkaðarins.
Þessi náungi var ekki alls kostar hrifinn af því að vera myndaður og elti
Ijósmyndara niður götuna til að komast að því á hvers vegum hann
væri. Þegar hann var sannfærður um að Ijósmyndarinn væri ekki
njósnari „kerfisins" varð hann Ijúfur sem lamb.
í Amsterdam
ferðastfólk
mikiðumáhjóli.
Virðast hjól-
reiðamenn hafa
allan rétt í um-
ferðinni, bæði
gagnvartbílum
og gangandi
vegfarendum.
Þar sjást líka hjól
ítugaeðahund-
ruðatalisem
lagthefurveriðá
meðanfólksinn-
irerindumsín-
um.
Amsterdam er góð borg fyrir
ferðamenn þar sem flestir lands-
menn lifa á þjónustu. Þjónusta er
ær og kýr Hollendinga og í Am-
sterdam má finna góða matsölu-
staði í öllum verðflokkum. Fyrst
um sinn finnst fólki kannski erfitt
að átta sig á umhverfinu vegna
þess að miðborgin er krökk af
síkjum sem öll virðast vera eins.
Það þarf hins vegar aðeins að
læra nokkrar grundvallarreglur
um húsnúmerakerfið til að rata
eins og heima hjá sér á stuttum
tíma. Húsnúmerin lækka í átt að
aðalbrautarstöðinni við öll síkin,
og þegar maður gengur á móti
sléttum tölum færist maður nær
miðbænum en öfugt ef tölurnar
eru oddatölur.
Hægt er að fara á marga úti-
markaði í Amsterdam og mann-
lífið á þeim er fjörugt. Á mörgum
þessara markaða er hægt að gera
hagstæð kaup, bæði hvað varðar
fatnað og aðra hluti. Nýtt Helgar-
blað fékk velunnara blaðsins,
Janette Van den Brik, til að leiða
sig um einn markaðinn, sem er í
heimahverfi hennar í austurhluta
borgarinnar. Hér á opnunni
látum við myndirnar tala sínu
máli.
Á kvöldin má síðan tilla sér
niður á einhverjum útibarnum
við hin ýmsu torg í borginni. Þar
er gjarnan mikið mannlíf og tón-
listarfólk, leiklistarfólk og aðrir
skemmtikraftar stytta manni
stundir með frumlegum uppák-
omum.
-hmp
,
Föstudagur 6. október 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 15