Þjóðviljinn - 27.10.1989, Síða 3
Félagamir Guð-
mundurStein-
grímsson ogGuð-
mundurlngólfs-
son eiga 110 ára
afmæli um þessar
mundirogbjóðatil
stón/eislu. Ljósm.
eik.
VIÐSKIPTAVINIR ATHUGIÐ!
Frá og með 1. nóvember n.k. falla
niður síðdegisafgreiðslur bankans á
fimmtudögum á eftirtöldum stöðum:
Bankastræti, Háaleitisbraut,
Bíldshöfða, Hafnarfirði, Selfossi
og Sauðárkróki. Afram verður opið á
Suðurlandsbraut 1 8 og á Akranesi.
$
SAMVINNUBANKIÍSLANDS HF.
Rætt við Andrés Indriðason rithöfund
Halda stórveislu að Kjarvalsstöðum
Jazzleikararnir og nafnarnir
Guðmundur Ingólfsson og Guð-
mundur Steingrímsson eiga sam-
an 110 ára afmæli um þessar
mundir. Að því tilefni býður
Jazzvakning til veglegra afmælis-
tónleika að Kjarvalsstöðum
næstkomandi þriðjudag, þar sem
Tríó Guðmundar Ingólfssonar
mun leika ásamt með rjómanum
af jazz- og blúsleikurum okkar.
Meðal gesta á tónleikunum verða
jazz- og blússöngvararnir Andrea
Gylfadóttir, Bubbi Mortens og
Megas, Helgi Guðmundsson
blús-munnhörpuleikari, Rúnar
Georgsson saxófónleikari, Björn
Thoroddsen gítarleikari, Stefán
Stefánsson saxófónleikari og
Steingrfmur Guðmundsson
tablaleikari. í Tríói Guðmundar
Ingólfssonar eru þeir nafnarnir
ásamt með Gunnari Hrafnssyni
sem leikur á rafmagnshljómborð.
Guðmundur Steingrímsson
trommuleikari hefur leikið jazz
frá því hann var 16 ára 1945. Það
var í Gúttó í Hafnarfirði með
Gunnari Ormslev og fleirum.
Sama ár byrjaði Guðmundur að
leika á dansæfingum í Flensborg-
arskóla með Eyþóri Þorlákssyni
gítarleikara og fleirum.
Guðmundur lék með KK-
sextett og Hljómsveit Hauks
Morthens og hefur leikið með
fjölda jazzleikara, innlendum og
erlendum, og leikið inn á fjölda
hljómplatna. Hann var einn af
stofnendum Jazzvakningar 1975
og lék á slagverk með Sinfóníu-
hljómsveit lslands 1967.
Guðmundur Ingólfsson hóf
nám í píanóleik 6 ára hjá
Rögnvaldi Sigurjónssyni og var
farinn að leika fyrir dansi 12 ára
gamall. Fimmtán ára var hann
kominn í píanónám hjá Axel
Arnfjörð í Kaupmannahöfn, og
hefur haft atvinnu af píanóleik
upp frá því. Guðmundur hefur
stjórnað ótal tríóum og hljóm-
sveitum og leikið með erlendum
dans- og jazzhljómsveitum. Guð-
mundur hefur gefið út þrjár
hljómplötur, Jazzvaka, Nafnak-
all og Þjóðlegur fróðleikur, sem
hafa að geyma jazzútsetningar
Guðmundar og einnig frumsamin
verk.
Þess er að vænta að jazzunn-
endur muni fjölmenna á Kjar-
valsstaði á þriðjudag kl. 21, en
aðgangur verður ókeypis. -ólg
Andrés Indriðason rithöfundursýnirþeim Einari og Gunnari Þór hvern-
ig skáldsaga verður til. Mynd Jim.
110 ára
jazzgeggjarar
Tveir nemendur úr 9. bekk Álfta-
mýrarskóla, þeir Einar Guðna-
son og Gunnar Þór Þórisson voru
í starfskynningu á Þjóðviljanum.
í tilefni málræktarvikunnar
spjölluðu þeir við Andrés Ind-
riðason rithöfund um málræktar-
vikuna og nýja bók eftir Andrés
sem væntanleg er á næstu dögum.
0
Ert þú að vinna eithvað í sam-
baridi við málrœktarvikuna sem
stendur yfir þessa dagana?
Já ég fer í skólanna og spjalla
við krakkana og les fyrir þá úr
bók sem á að koma út nú á næstu
dögum.
Hvað heitir hún ?
Sólarsaga.
Er hún fyrir unglinga?
Já hún er sjálfstætt framhald af
bókinni Alveg milljón.
Hvaðfinnst þér um málrœktar-
vikuna sem stendur yfir þessa
daganna ?
Mér finnst það mjög ánægju-
legt og gott að bókum sem eru
skrifaðar fyrir börn og unglinga
skuli vera sýnd góð virðing með
þessu móti.
Finnstþér að börn og unglingar
lesi minna af bókum nú en hér
áður fyrr?
Ég veit náttúrulega ekki ná -
kvæmlega um lestrarvenjur þessa
aldurshóps en ég býst við að það
sé lesið minna núna en áður en
sjónvarp og þess háttar kom til
sögunnar. Samt hef ég á tilfinn-
ingunni að það sé lesið talsvert.
Heldurðu að þessi málrœktar-
vika geri eithvert gagn og að hún
verði til þess að krakkarnir lesi
meira af bókum?
Já, það gæti nú verið. Það þyrf-
ti að vera svona átak í gangi árið
um kring, það þarf í rauninni
hver einasta vika að vera mál-
ræktarvika.
Hvernig heldurðu að heimur-
inn yrði án bóka?
Hann yrði dauflegur, blindur
er bóklaus maður.
Hvað er þér efst í huga þegar þú
skrifar bók ?
Bækur eiga fyrst og fremst að
vera skemmtilegar. Það hef ég að
leiðarljósi. Skemmti sjálfum mér
og lesandanum vonandi um leið.
Hvað tekurþað þig langan tíma
að skrifa bók?
Svona 6 mánuði og þá geri ég
ekkert annað.
Verðurþetta jólabókin þín í ár?
Já. Ég hef líka verið að skrifa
kvikmyndahandrit eftir sögunni
Alveg milljón - en það er önnur
saga.
Einar Guðnason og
Gunnar Þór Þórisson
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVEF®
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍWSSJÓES
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1983-2. fl. 01.11.89-01.05.90 kr. 418,93
1984-3. fl. 12.11.89-12.05.90 kr. 421,84
*lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs ferfram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þarjafnframtframmi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, október 1989
SEÐLABANKIÍSLANDS
Auglýsing
Staða sendimanns í fjármálaráðuneytinu er
laus til umsóknar.
Umsóknum skal skilað til ráðuneytisins eigi síð-
ar en 8. nóvember 1989.
Fjármálaráðuneytið,
23. október 1989
'cii.uiJ
Blindur er bóklaus maður
Föstudagur 27. október 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 3