Þjóðviljinn - 27.10.1989, Síða 10
Nóbelsskáldið svaraði nokkrum spurningum fjölmiðla og sagðist ma. hafa skrifað af þörf fyrir að koma Hér handleikur Halldór frumútgáfu „Barns náttúrunnar" sem kom út
ýmsum skoðunum á framfæri sem hann ýmist tók upp á vegi sínum eða fann hjá sjálfum sér. 26. október 1919, þegar skáldið var aðeins 17 ára gamalt.
„Þessi stóra máttuga sál“
Halldór Laxness: Skrifaði ekki til að verða frœgur. Gamall blaðadómur um „Barn náttúrunnar: Grunar mig
að hann eigi eftir að auðga íslenskar bókmenntir með góðum skáldskap
svo það hamingjulán sem hlýst af
fé.“
„Ég skrifaði ekki til að verða
frægur, heldur var þetta þörf sem
kom fram þegar annað fólk var
að borða eða þegar það svaf,“
sagði Halldór í gær. Hann hefði
stundum verið skammaður eins
og hundur í fjölmiðlum fyrir sín
skrif, en sér hefði líkað það vel.
Sér leiddust endalausar lofgerðir.
En væri þó ekki sama um fyrir
hvað hann væri skammaður.
Vaka Helgafell hefur ákveðið í
tilefni höfundarafmælis Halldórs
að hefja stórátak í kynningu á
verkum hans fyrir nýjum lesend-
um. Stofnaður hefur verið sér-
stakur Laxnessklúbbur, en það
mun vera í fyrsta skipti sem sér-
stakur bókaklúbbur er stofnaður
utan um verk eins manns hér á
landi. Forlagið mun í framtíðinni
gefa út vandað kynningarrit fyrir
klúbbfélaga sem á að koma út
mánaðarlega. í ritinu verður fjalí-
að ítarlega í máli og myndum um
eistök skáldverk Halldórs, feril
hans og vinnubrögð. Engar kvað-
ir fylgja því að vera í klúbbnum
og ekki er miðað við að félags-
menn geti verið lengur í honum
en tvö ár. Þeir sem bregðast fljótt
við við kynningartilboði Lax-
nessklúbbsins fá að gjöf snældu
með upplestri Halldórs úr eigin
verkum, þar sem hann les skáld-
sagnakafla, smásögur og ljóð.
Ritverk Halldórs verða ódýrari í
Laxnessklúbbnum en á al-
mennum markaði, eða á bilinu
20-25%.
- hmp
„Maðkur!
Aumlegi maðkur. Þarna ligg-
urðu varnarlaus, þarna skríðurðu
áfram með því að engjast sundur
og saman!
Hvað þú ert vesæll og van-
máttugur! - Bíddu! Bráðum
traðka ég þig sundur með fætin-
um. - Traðka þig sundur af því að
ég er máttugri en þú. - Eins og
Drottinn, þessi stóra máttuga sál,
sem nýtur yndis við að sjá mann-
sálina skríða í duftinu fyrir fótum
sér, dálitla stund, en treður hana
svo von bráðar sundur."
Þannig hófst fyrsta bók 17 ára
unglings sem hann gaf út á eigin
kostnað árið 1919 með stuðningi
móður sinnar. Höfundurinn,
Halldór Guðjónsson frá Laxnesi,
var mættur til leiks á íslenskum
ritvelli. Bókaforlag skáldsins,
Vaka Helgafell minntist þess í
gær á heimili Halldórs að 70 ár
eru liðin frá útkomu „Barns nátt-
úrunnar". Við það tækifæri sagði
Halldór ma. þegar hann handlék
frumútgáfu bókarinnar: „Þetta er
útdauður tími sem ég man ekki
einu sinni eftir í draumi“.
Ólafur Ragnarsson bókaútgef-
andi sagði í ávarpi til skáldsins,
að það væri ekki á hverjum degi
sem rithöfundur hefði tækifæri til
að halda upp á sjötugsafmæli
fyrstu bókar sinnar. Þess væru
líka fá dæmi að frumútgáfur höf-
undar væru orðnar nær jafn
margar og höfundarárin, þegar
hann minntist 70 ára starfsafmæl-
is. Ólafur vitnaði í blaðadóm sem
Jakob J. Smári skrifaðr á sínum
tíma um „Barn náttúrunnar“, þar
sem meðal annars var sagt um
þennan unga höfund: „Grunar
mig að hann eigi eftir að auðga
íslenskar bókmenntir með góð-
um skáldskap ef honum endist
aídur og heilsa.“
í ávarpi sínu vék ólafur að því
að Halldór hefði framan af sínum
ferli verið umdeildur höfundur
og með mörgum verka sinna bæði
hrifið menn og hneykslað í senn.
í dag teldu íslendingar hann hins
vegar fremstan nútímahöfunda
sinna og jafnframt væri hann að
margra dómi í hópi mestu rithöf-
unda veraldar á okkar dögum.
í þakkarræðu sinni á Nóbels-
hátíð í Stokkhólmi hefði Halldór
sagt að: „Ef íslenskt skáld
gleymir upphafi sínu í þjóðdjúp-
inu þar sem sagan býr, ef hann
missir samband sitt og skyldu við
það líf sem er aðþrengt, það líf
sem hún amma mín gamla kenndi
mér að búa öndvegi í huga mér -
þá er frægð næsta lítils virði; og
Það var glatt á hjalla á Gljúfrasteini í gær og hér hendir Halldór gaman að öllu saman eins og honum einum
er lagið og útgefenda hans, Ólafi Ragnarssyni, er greinilega skemmt. Myndir: Jim Smart.
10 SfÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 27. október 1989