Þjóðviljinn - 27.10.1989, Síða 17
Það er nægur tími til að sofa og
sjálfur hef ég annað við tímann
að gera en að sofa eða framleiða
svefnmeðal fyrir fólk. Ég verð að
skapa tengsl. Ég get sofið seinna.
Maður getur hvílt sig þegar mað-
ur er dauður.
- Ákjósanlegasta afstöðu lista-
mannsins tel ég vera að hann
haldi sig alltaf á ystu nöf. Hann
þarf að vera til staðar þar sem
kviknað er í og skilja að þessi
eldsvoði er annað og meira en
lífshætta, hann getur líka verið
honum til hjálpar í lífinu. Allt
sem hættulegt er í listaheiminum
verður að vera listamanninum
ástríða. Og áhorfendur verða að
hafa hæfileikann til að sjá sýning-
una með opnum huga í stað þess
að mæta í leikhús með fyrirfram
ákveðnar skoðanir eða varðir
heimskulegum fordómum. Ég vil
áhorfendur mína sem félaga en
ekki sem dómara. Þeir verða að
vera opnir fyrir nýjum hugmynd-
um og tilbúnir tií skoðanaskipta
eftir sýninguna.
- Það er skrítin tilfinning að
kynna Caragiale, þennan suð-
ræna höfund, hér langt í norð-
rinu. En fólk er fólk, sama hvar
það býr og hér hef ég fundið hluta
af minni fjölskyldu, sem er þessi
stóra fjölskylda listamanna hvar
sem er í heiminum. Þegar ég fer
aftur heim til Rúmeníu skil ég
eftir hluta af minni sköpun og þar
með hluta af sálu minni og skiln-
ingi og ég veit að ég kem til með
að reyna að komast hingað aftur
til að treysta þau vináttubönd
sem ég hef bundið hér við kenn-
ara og nemendur Leiklistar-
skólans. Og sjálfsagt mun ég líka
á björtum sumardögum í Rúmen-
íu minnast þessa gráa og dapur-
lega íslenska himins. En ég veit
líka að jafnvel í dapurleikanum
er alltaf einhver gleði falin.
LG
Breyting verður á afgreiðslutíma Alþýðubankans
hinn 2. nóvember næstkomandi.
Frá og með þeim degi verður hætt að hafa opið
á milli kl. 17:00 og 18:00 á fimmtudögum.
Afgreiðslutími Alþýðubankans verður því frá
klukkan 9:15 til 16:00, mánudaga til föstudaga.
Alþýóubankinn hf
SVEITARFELOG
OG
FELAGASAMTOK
EINDAGIUMSÓKNA UM LÁN
a) til byggingar leiguíbúða
eða heimila fyrir aldraða,
b) dagvistarstofnana fyrir
börn og aldraða,
c) kaupa eða byggingar
sérhannaðra íbúða fyrir
fólk, 60 ára og eldra,
er 1. desember nk.
vegna framkvæmda sem heíjast eiga á næsta ári.
dp HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK SÍMI • 696900
DAGVIST BARIVA
Umsjónarfóstra óskast
Dagvist barna óskar aö ráöa umsjónarfóstru
meö daggæslu á einkaheimilum til starfa nú
þegar eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefur deildarstjóri fagdeildar í síma
27277.
Fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar 1990
Nú stendur yfir gerð fjárhagsáætlunar Reykja-
víkurborgar fyrir áriö 1990. Athygli borgarbúa,
svo og hagsmunasamtaka (t.d. íbúasamtaka),
er vakin á aö óskir, tillögur og ábendingar varö-
andi gerö fjárhagsáætlunarinnar þurfa að hafa
borist borgarráöi fyrir 15. desember n.k.
27. október 1989
Borgarstjórinn í Reykjavík
i
Komdu tll okkará
OSTA
DAGAbfA
UMHELGINA
Ljúfmeti af léttaia taginu
verður á boðstólum úr tilraunaeldhúsi Osta- og Smjörsölunnar.
Kynntu þér íslenska gæðamatið
Nú hefur þú tækifæri til að kynna þér niðurstöður íslenska gæðamatsins
á ostunum sem voru teknir til mats nú í vikunni.
Ostameistammir
veiða á staðnum
og sitja fyrir svörum um allt sem lýtur að ostum og ostagerð
og bjóða þér að bragða á ostunum sínum.
Ostar á kynningarverði
Ostarnir verða seldir á kynningarverði OSTADAGANA, notaðu tækifærið.
OPIÐ HÚS
ki.1-6
laugaidag & sunnudag
að Bitruhálsi 2
Verið velkomin
OSTA- OG SMJORSALAN