Þjóðviljinn - 27.10.1989, Blaðsíða 18
SKÁK
HELGI
ÓLAFSSON
Karpov og Timman voni taugasterkari
Drœmt gengi Islands í 8-landa keppninni
Þeir Anatoly Karpov og Jan
Timman munu keppa um réttinn til
að skora á heimsmeistarann Garrí
Kasparov. Það er helsta niðurstaða
áskorendaeinvígjanna sem lauk í
London í síðustu viku. Þessir tveir
voru álitnir sigurstranglegastir fyrir-
fram en sigur þeirra hékk þó á blá-
þræði. Fyrir síðustu skákirnar var
staðan í einvígjunum jöfn, 3Vi:3Vi
Þeir Karpov og Timman voru greini-
lega taugasterkari í lokaskákunum og
unnu sannfærandi sigra.
Það er alveg á mörkunum að sigur
Karpovs geti talist sanngjarn. Jusup-
ov veitti harðvígugt viðnám allt ein-
vígið, fékk t.d. aðeins jafntefli úr
þriðju og sjöttu skák þar sem hann
átti unnar stöður. Sennilega hefur
Karpov talið það aðeins formsatriði
að vinna þetta einvígi. Jusupov mætti
afar vel undirbúinn til leiks og á alla
virðingu skilda þrátt fyrir ósigurinn.
Sigur Timmans var á hinn bóginn
sanngjarn. Hann réð lögum og lofum
í fyrstu skákum einvígisins og Spe-
elman gat þakkað góðri endatafls-
þekkingu fyrir að ekki fór enn verr.
Hann jafnaði metin óvænt í sjöundu
skákinni meðþví að taka í sína þjón-
ustu ævagamalt afbrigði, Janisch-
bragð, einhverskonar útgáfu af
kóngsbragði.
En lítum á úrslitaskákirnar tvær.
Taugarnar eru spenntar til hins ítrasta
og andrúmsloftið hlaðið spennu.
Undir slíkum kringumstæðum reynir
á manninn. Karpov hefur margoft
lent í svipuðum aðstæðum og honum
tókst loks að sýna sitt rétta andlit í
afbragðs vel tefldri skák:
8. einvígisskák
Anatoly Karpov -
Arthur Jusupov
Drottningarbragð
1. d4 Rf6
2. c4 e6
3. Rf3 dS
4. Rc3 Be7
5. BgS 0-0
6. e3 h6
7. Bh4 Re4
8. Bxe7 Dxe7
9. Hcl
(Karpov lék 9. Dc2 í 4. skák, 9.
cxd5 í 6. skák en fékk lakara tafl í
báðum skákunum.)
9. .. c6
10. Bd3 Rxc3
11. Hxc3 dxc4
12. Bxc4 Rd7
13. 0-0 e5
14. Bb3exd4
15. exd4 Rf6
16. Hel Dd6
17. ReSRdS
18. Hg3!
(Með því að koma hróknum í ógn-
andi aðstöðu á kóngsvæng nær Karp-
ov fljótlega að veikja varnir Jusup-
ovs.)
18. .. Bf5
19. Dh5 Bh7?
(Sennilega eru þetta úrslitamistök
Jusupovs. Meðþví að leika 19. .. De6
gat hann haldið fyllilega í horfinu.
Jafnvel þó svo vígstaðan eftir e-
línunni sé dálítið óþægileg á það ekki
að koma að sök.)
20. Dg4! gS
21. h4 f6
22. hxg5 hxg5
23. f4 Hae8
a b c d e f g h
24. fxg5!
(Hvítur vinnur manninn til baka
fljótlega en það er ekki aðalmálið.
Með þessum leik tryggir hvitur sér
unnið endatafl.)
24. .. fxe5
25. g6 Bxg6
26. dxe5 De6
27. Bxd5 cxd5
28. Dxg6+ Dxg6
29. Hxg6+ Kh7
30. Hd6 Hc8
31. He3 Hc2
32. Hd7+ Kg6
33. Hxb7 He8
34. a3 d4
35. Hd3 Hxe5
36. Hxd4 Hg5
37. Hd6+ Kh5
38. Hh7+ Kg4
39. Hd4+ Kf5
40. Hd5+ Kg6
41. Hg7+ Kxg7
42. Hxg5+ Kf6
43. Hb5 a6
44. Hb6+ Ke7
45. Kh2 Kd7
46. Kh3 Kc7
47. Hb3 Kd6
48. g4 Ke5
49. Kh4 Kf6
50. Hb6+ Kg7
51. Kh5 a5
52. Hb7+ Kg8
53. a4
- og svartur gafst upp.
Lokastaðan: Karpov4’/2- Jusupov
3'/2
Það var dálítið einkennilegt að í
áttundu og síðustu skák Speelmans
og Timmans sá Englendingurinn
loksins stöðu. Þeir tefldu afbrigði af
enska leiknum sem Garrí Kasparov
hefur gert vinsælt nýlega og Speel-
man var aldrei þessu vant vel heima í
öllum krókaleiðum þess. Hann kom
þó ekki að tómum kofanum hjá Tim-
man sem varðist af mikilli útsjónar-
semi í erfiðri stöðu. Sú áætlun sem
hann hefur með sínum 16. leik, Rb4
er glæsileg útfærð. Hápunkturinn er
23. leikurinn, Rxa2+. Hvíturmáekki
leika 24. Rxa2 vegna 24. .. Rb3+ 25.
Kc2 Bxa4+! og vinnur. Með því að
létta þannig á stöðunni og leika síðan
27. .. h6 nær svartur örlítið betra tafli.
Speelman lendir í tímahraki og
taugarnar bresta. 28. h4 var betra en
28... b4. Timman vinnur peð og dreg-
ur vinninginn að landi af óbifanlegu
öryggi.
8. einvígisskák:
Jonathan Speelman -
Jan Timman
Enskur leikur
1. Rf3 Rf6
2. c4 c5
3. Rc3 Rc6
4. d4 cxd4
5. Rxd4 e6
6. g3 Db6
7. Rdb5 Re5
8. Bg2 a6
9. Da4 Hb8
10. Be3 Bc5
11. Bxc5Dxc5
12. Da3 Dxa3
13. Rxa3 d6
14. f4Rc6
15. 0-0-0 Ke7
16. Hd2 Rb4
17. Bf3 Bd7
18. Hhdl d5
19. g4 Bc6
20. g5 Re4
21. Hd4 Hbc8
22. Rabl Rc5
23. cxd5 Rxa2+
24. Kc2 Rxc3
25. Rxc3 exd5
26. Rxd5+ Bxd5
27. Hxd5 h6
28. b4 Re6+
29. Kb3 Hc7
30. gxh6 Hxh6
31. He5 Hxh2
32. Hdd5g6
33. Hc5 Hd7
34. Hcc5 Hc7
35. Hc5 Hd7
36. Hcd5 Hxd5
37. Bxd5 b6
38. Bb7 Kd6
39. Hd5+ Kc7
40. Bxa6 Rxf4
41. Hd2 Hh5
42. Bc4 f6
43. Hd4 Hf5
44. Ka4 g5
45. e3 Rg2
46. Bb5 Rxe3
47. Hd7+ Kc8
48. Hf7 Hf4
49. Bd3 Rd5
50. Kb5 Kd8
51. Bh7 Re7
52. Hf8+ Kc7
53. Ka6 Rd5
54. Hf7+ Kd6
- og hvítur gafst upp.
Lokastaðan:
Timman 4Vi - Speelman 3'/2.
Einvígi Karpovs og Timmans fer
sennilega fram í febrúar á næsta ári
eða byrjun mars. Einvígið um
heimsmeistaratitilinn verður háð í
Lyon ■ Frakklandi seint á næsta ári.
Dræmtgengi Í8-
landa keppninni
ísland hafnaði í 4. sæti í 8-landa
keppninni í skák sem lauk í Álaborg
um síðustu helgi. Það er lakari árang-
ur en búast mátti við og vonast var
eftir. fslendingum hefur raunar aldrei
gengið vel í þessari keppni. Bestur
árangur náðist sennilega í Osió fyrir
sex árum er ísiendingar voru efstir
fyrir síðustu umferð en töpuðu stórt
fyrir Dönum. Eiginlega má segja að
fyrstu tvær umferðirnar hafi ráðið
mestu um úrslitin. Klaufalegt tap
fyrir Pólverjum og síðan naumur
sigur fyrir Færeyingum sem voru
raunar styrktir af tveimur dönskum
skákmönnum. Undirritaður og Jón
L. Árnason náðu árangri sem teljast
verður viðunandi, 5. v. úr 7 skákum á
þriðja og fjórða borði. Margeirs ár-
angur var heldur lakari, 4 v. af 7 og
búast hefði mátt við meiru af Hannesi
sem hlaut 50% vinningshlutfall. Jó-
hann Hjartarson var í miklu óstuði á
1. borði og fékk aðeins 2 vinninga. Á
kvennaborðinu stóð Guðfríður Lilja
fyllilega fyrir sínu, hlaut 2 vinninga.
Stöllur hennar hafa allar mun meiri
reynslu en hún og þetta mót hennar
hlýtur að skoðast sem góð æfing fyrir
millisvæðamót kvenna á næsta ári.
Danir unnu sanngjarnan sigur,
hlutu 27V5 v., V-Þjóðverjar urðu í 2.
sæti með 27 vinninga, þá komu Pól-
verjar með 26 vinninga, íslendingar
með 21'/2 vinnig, Svíar með 2OV2
vinning, Norðmenn með 18 vinninga,
Finnar með 17 vinninga og Færeying-
ar með 10/2 vinning.
Tímamóta ársþing
Ársþing Bridgesambandsins verð-
ur á morgun, laugardag, í Sigtúni 9 og
hefst kl. 10 árdegis. A dagskrá eru
venjuieg aðalfundarstörf, skv. 7.
grein laga sambandsins.
Það mál sem ber hæst á þessu árs-
þingi, er að nv. forseti BSÍ, Jón
Steinar Gunnlaugsson, gefur ekki
kost á sér til áframhaldandi starfa
fyrir sambandið. f hans stað hefur
Morgunblaðið greint okkur hinum
frá því, að Helgi Jóhannsson gefi kost
á sér til starfa sem næsti forseti.
Nokkuð óvenjuleg aðferð, sem ekki
hefur tíðkast áður í röðum bridge-
manna.
Á þessari stundu, er þetta er skrif-
að, er ekki vitað um mótframboð
gegn Helga, en undirbúningur að
framboði í stjórn sambandsins hefur
staðið yfir. Markmiðið með framboð-
inu er fyrst og fremst að „blokkera”
völd Bridgefélagsmanna í Reykjavfk,
sem hafa haft tögl og hagldir frá upp-
hafi vega, í yfirstjórnun Bridge-
sambands íslands. Með sigri á morg-
un, tekst þessum hópi að breyta
valdahlutföllum í stjórn og þarmeð
koma með nýjar áherslur inn í starf-
semi sambandsins. Að áhersla verði
lögð á grasrótarstarfið innan
hreyfingarinnar. Að gert verði átak í
kennslu- ogútbreiðslumálum. Skipan
verði komið á keppnisstjóramál hér á
landi. Meistarastig endurskoðuð frá
grunni með það í huga að aðlaga þau
nútíma keppnisformi. Landsmót
verði nútímalegri og aðgengilegri
fyrir landsbyggðina, hugsanlega með
breytingu á keppnisformi. Athugað
með að gera félögin í landinu virkari í
starfi, ekki bara í héraði heldur á
landsvísu.
Til þessa hefur aðaláhersla ráða-
manna í stjórn sambandsins verið
lögð á landsliðsmál. Undantekning er
þó forsetatíð Björns Theódórssonar,
þarsem mikið átak var gert í út-
breiðslumálum og afar mikil gróska
var í starfj-semi sambandsins.
Landsliðsmál eru jú hluti starfsemi
BSÍ, en geta aldrei orðið aðalmál
hreyfingarinnar. Allar hreyfingar í
þeim málum verða að fylgja almennri
starfsemi sambandsins, sem hluti af
því starfi sem markað er á hverju ári.
Opin umræða um þau mál sem önnur,
er varða markmið bridge-
iþróttarinnar er af hinu góða.
Væntanleg tilkoma Helga í starf
forseta og kjör þeirrar stjórnar sem
meirihluti ársþingsfulltrúa mun velja
BRIDGE
18 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ
Ólafur
Lárusson
með honum til starfa, stjórn sem
skipuð verður allt öðru en fulltrúum
frá Bridgefélagi Reykjavíkur, er
eitthvað sem félagar í BSÍ mega
vænta góðs af. Að mínu mati hefur
verið mikil lægð í bridgestarfinu síð-
ustu misseri og vantað hvetjandi afl í
forystuna. Sífelld hagsmunagæsla ör-
fárra félaga, þar sem allt snýst um
valdahlutföll til að koma sínu á fram-
færi, sama hvað það kostar hreyfing-
una, er liðin saga. Þeir sem trúa á slíkt
ættu að snúa sér að allt öðru en
bridgestarfi.
Ársþing Bridgesambands íslands á
morgun, laugardag, mun marka á-
kveðin tímamót í sögu bridge-
íþróttarinnar hér á landi. f fyrsta
skipti í sögunni munu áhrif Bridge-
félags Reykjavíkur vera svipuð og
hvers annars félags innan sambands-
ins. Eins og vera ber í heilbrigðu sam-
stafi. Eða hvað hafa menn frá bridge-
félaginu umfram aðra? Fleiri meist-
arastig?
Áheyrnarfulltrúar eru velkomnir á
þingið, sem gestir sambandsstjórnar
hverju sinni. (Sjá 6. grein laga BSI).
Esther Jakobsdóttir og dóttir henn-
ar, Anna Þóra Jónsdóttir, urðu
íslandsmeistarar kvenna í tvímenning
1989. Þær hlutu 124 stig, í keppni 19
para. f 2. sæti urðu Guðbjörg Þor-
varðardóttir og Stefanía
Skarphéðinsdóttir með 84 stig og Erla
Sigurjónsdóttir og Kristjana Stein-
grímsdóttir hlutu 3. sætið, með 66
stig.
Matthías Þorvaldsson og Hrannar
Erlingsson urðu fslandsmeistarar í
yngri flokki spilara (25 ára og yngri).
Þeir hlutu 64 stig í keppni 13 para. í 2.
sæti urðu Jón Hersir Elíasson og Sig-
urpáll Ingibergsson með 50 stig og
Hjördís Eyþórsdóttir og Júlíus Sigur-
jónsson náðu 3. sætinu, með 21 stig.
Minnt er á skráninguna í Opna
sveitamótið á Húsavík, sem spilað
verður um næstu helgi. Björgvin
Leifsson á Húsavík annast skráningu.
Búast má við að töluvert af nýjum
hugmyndum berist inn á Ársþing
Bridgesambandsins. Ein af hug-
myndunum varðar gjörbreytt form í
íslandsmótinu í tvímenning og
gengur út á að gera svæðamót um
land allt virkari í beinu samhengi við
úrslitakeppni fslandsmótsins.
Ásmundur Pálsson hefur af mörg-
um verið kallaður síðasti „heiðurs-
maðurinn” í íslenskum bridge. Ás-
mundur hefur verið viðloðandi topp-
inn síðustu 30 árin eða svo er löngu
landsþekktur fyrir framlag sitt til
íþróttarinnar. Sannkallaður heiðurs-
maður þar á ferð. Lítum á hand-
bragðið hjá honum:
Spilið er frá landsleik á EM í Ost-
ende ’73, úr leik við Finna:
Vestur
S: ÁD105
H: ÁKG9
T: ÁG3
L: K10
Austur
S: KG76
H: 875
T: D8
L: Á654
Ásmundur var sagnhafi í 6 spöðum
í Austur. Fékk út tromp, sem hann
tók á gosa heima. Tíguldrottning,
kóngur og ás og síðan laufatía upp á
ás og hjartagosa svínað. Drepið á
drottningu, en spilið unnið því hjart-
að lá 3-3. Ekkert mál?
Lítum á hvað gerðist hinum megin,
í sama samning, sama útspil. Döm-
unni í tígli spilað, kóngur, ás og nú
tók Finninn laufakóng(?) og meira
lauf upp á ás og svínaði hjarta. Drep-
ið á drottningu og þriðja laufinu
splað. Suður atti ekki meira lauf og
henti jarta. Nú var spilið tapað, því
spaðinn lá 4-1 og sagnhafi var kominn
í þá óþægilegu stöðu, að styttast á
báðum höndum. Einn niður og 17 stig
til íslands, sem vann leikinn 124-40
eða 20 mínus 3.
Einna athyglisverðast við þetta spil
er þó spilaíferð beggja sagnhafa. Eftir
vel heppnaða tígulíferð er nokkuð
ljóst, að besta spilamennskan í þeirri
stöðu, er að leggja niður ás og kóng í
hjarta, fara inn borð á trompi og spila
þriðja hjartanu að gosa og níu. En ég
býst við að Ásmundur hafi haft sínar
ástæður fyrir íferðinni og þær eru ekki
allar fengnar úr bókum, ekki satt?
Tekið úr Bridgebl. Jóns Ásbjörnss.
frá ’74.