Þjóðviljinn - 12.01.1990, Page 3

Þjóðviljinn - 12.01.1990, Page 3
Sósíal- rómantík og nostalgía Síldarárin á Siglufirði í endurminningum Sigurjóns Jóhanns- sonar Sigurjón Jóhannsson leik- tjaidasmiður og listmálari opnar sýningu í Listasafni ASÍ á laugardag kl. 14. Þessi sýning er nokkuð óvenjuleg miðað við fyrri verk Sigurjóns, þar sem hún hef- ur að geyma vatnslitamyndir er lýsa mannlífi og umhverfi á Siglu- firði á síldarárunum þegar Sigur- jón var þar sem unglingspiltur. Myndirnar eru um leið eins konar sviðsetning minninganna þar sem síldarplanið er leiksviðið. Sigurjón var á sínum tíma þekktur fyrir róttæk viðhorf til myndlistar og má segja að hann hafi kynnt popplistina fyrir ís- lendingum. Hér eru þó engin róttæk sjónarmið á ferðinni, heldur öllu fremur' eins konar myndskreytingar við endurminn- inguna. Við spurðum Sigurjón hverju það sætti, að hann málaði nú með þessum hætti. -Þetta er verkefni sem sótt hef- ur á mig samfara endurminning- unni, og ég hef unnið að þessu með öðru undanfarin þrjú ár. Þetta er eins og hvert annað verk- efni sem maður tekur sér fyrir hendur, og það er í engu sam- hengi við mín fyrri myndlistar- verk. Er það tilviljun að það gerist á sama tíma að Birgir Sigurðsson skilar frá sér viðamiklu ritverki um sfldarárin og þú heldur þessa sýningu? Vissuð þið eitthvað af hvor öðrum á meðan þið voruð að vinna verkin? -Nei, við vissum hvorugur af hinum í þessu samhengi. En kannski er þetta engin tilviljun. Kannski er þetta einhver nostalg- ía eða eftirsjá eftir liðnum tíma. Eitthvað sem var og við erum búin að missa. Annars lifum við á undarlegum tímum. Menn segja að allt sé leyfilegt. Nú eru þeir farnir að mála popplist í Sovét- ríkjunum. Og við getum líka kall- að þessar myndir mínar eins kon- ar sósíalrómantík. Þá höfum við haft endaskipti á hlutunum. Manstu eftir því þegar við hitt- umst síðast. Þá komumst við að þeirri niðurstöðu að myndlistin ætti sér ekkert verðugt viðfangs- efni lengur. Hún væri orðin eins konar heimspeki um sig sjálfa. Þessar myndir mínar eru ekki slík heimspeki. Þær eru ekki merki- legri en þær sýnast. En þær eru tilkomnar af einhverri þörf. Við þetta má bæta eftirfarandi orðum Þorgeirs Þorgeirssonar úr sýningarskrá: - Hvers vegna er sæla okkar svona dapurleg í aðra röndina? - Það gerir uppruninn. - Hvaðan er sælan ættuð? - Úr Bernskulandinu. Bernskulandið er þessi staður sem þrá okkar allra stefnir til. Sigurjón Jóhannsson á sýningu sinni í Listasafni ASÍ. Ljósm. Kristinn. Samgöngur þangað eru meiren stopular. Tilgangslaust að búa sig neitt til farar. Þetta er staður sem kemur til manns innanúr sálinni þar sem græni liturinn er þögull og hlédrægur, blái liturinn ídreyminn, svarti liturinn flosmjúkur og jafnvel guli litur- inn hefur sig hægan. Einsog minning um minningu eða hróp vafið í þögn. -ólg GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ BORGAR UTSALA í FULLUM GANGI Þetta eru helgarferðir til London, Luxemborgar, Glasgow, Frankfurt og Stokkhólms. Brottfarir eru alla fimmtudaga, föstudaga og laugardaga og verðið er aðeins krónur Þetta er ekkert verð fyrir svona ferð. Bókið snemma - takmarkaður sætafjöldi. Fargjaldið gildir í brottfarir frá 1. jan. til 28. febr. Ferðir á ofangreindu fargjaldi eru aðeins til sölu I janúarmánuði. FLUGLEIÐIR NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 3 AUK/SlA klf

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.