Þjóðviljinn - 12.01.1990, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 12.01.1990, Blaðsíða 8
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson Ritstjórar: Árni Bergmann, Ólafur H. Torfason Umsjónarmaður Helgarblaös: Ólafur Gíslason Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson Útlit: Þröstur Haraldsson Auglýsingastjóri: Olga Clausen Afgreiðsla:@68 13 33 Auglýsingadeild:®^ 13 10-68 13 31 Símfax:68 19 35 Verð: í lausasölu 140 krónur Setning og umbrot: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Síðumúla 6, 108 Reykjavík Kjaramálin Mörgum hefur komiö á óvart aö kynnast þeim upplýsingum sem fram komu á forsíðu Þjóðviljans í gær, aö góöæri ríkti nú í fiskútflutningi, bæði hvað varðar útflutt magn og það verð sem fæst fyrir frystan fisk. Aðeins tvö ár frá stofnun Sölumiðstöðvar Hraðfrystihúsanna 1942 hefur fyrirtækið flutt út meira magn en 1989. Magnaukningin frá 1988 nam um 20% hjá SH í fyrra. Á sama tíma jókst sams konar útflutningur Sjávarafurðadeildar Sambandsins um rúm 15% frá 1988. Einnig var meira flutt af nær öllum öðrum afurðaflokkum en árið áður. Sjávarafurðir hala inn rúm 70% af gjaldeyristekjum þjóðar- innar. Það er von að fólk spyrji um orsakir kreppunnar, gjaldþ- rotanna og samdráttarins á sama tíma og betur árar hjá undir- stöðuatvinnuvegi þjóðarinnar. Varla þarf þó að tíunda lengur fyrir nokkrum þær hremmingar sem fjármagnskostnaður hefur valdið bæði einstaklingum og fyrirtækjum undanfarin misseri. Hins vegar spyr fólk óhjákvæmilega um fleiri þætti. Atvinnurekendur hafa boðað svonefnda núll-lausn og full- yrða að kjör launþega verði ekki tryggð með miklum launa- hækkunum við þau skilyrði sem nú ríkja. Kastað hefur verið fram hugmyndum um 3% beina launahækkun á árinu í tveim áföngum, lækkun vaxta og fast verðlag búvöru. Ýmsar hliðar- aðgerðir til hagsbóta fyrir almenning hafa líka verið ræddar, ekki síst varðandi lífeyrismál. Núverandi ríkisstjórn hefur lýst því oft yfir, að hún telji aðila vinnumarkaðarins eiga að bera ábyrgð á kjarasamningum, en ríkisvaldið eigi þar ekki að grípa inn í. Breytingar á fyrirkomulagi skatta, vaxta og lífeyrismála geta því reynst torsóttar. Launþegum þykir 3% kauphækkun ekki glæsileg, nema full vissa sé fyrir verulegum kjarabótum með öðrum hætti. Sjaldan hefur tekist að verðtryggja kauphækkanir eða sjá fyrir þær forsendur sem geta raskað öllum viðmiðunargrundvelli samn- inga á samningstímanum. Það er því eðlilegt að launþegasam- tökin vilji fá skýr og ákveðin svör við spurningum sínum. Miðstjórn Alþýðusambands íslands fól fulltrúum ASÍ að halda áfram samningaviðræðum við atvinnurekendur um kjarasamninga sem tækju ma. mið af því að halda verðbólgu í skefjum. Hins vegar leggur ASÍ nú áherslu, að kynna al- mennum félagsmönnum sínum sem gleggst stöðu samning- amálanna á fundum sem haldnir eru um land allt fram í næstu viku. Hugsanlegt er talið að verðbólga á íslandi á þessu ári yrði ekki langt yfir 6% ef gengi íslensku krónunnar helst óbreytt og launahækkanir verða nálægt 3%. Hitt er Ijóst, að þessi niður- staða ásamt öðrum aðgerðum veldur um 3% kaupmáttarrýrn- un. Með hliðsjón af hugmyndum sjómanna og samningum BHMR þarf talsvert að gerast áður en samkomulag næst um þessi markmið. Það hlýtur að vera ótvíræð krafa launþega, að mjög sterk trygging verði fyrir því að niðurstaða væntanlegra samninga haldi. Sveitarstjómarkosníngar Undirbúningur fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor er hafinn. Alþýðubandalagið hefur víða góða reynslu af samvinnu við aðra flokka í meiri hluta sveitarstjórna. Lengi hefur það verið draumsýn jafnaðar- og samvinnumanna að geta tekið höndum saman í stærstu þéttbýlisstöðunum. Sumum þykir sem breytingar í stjórnmálum Austur-Evrópu hljóti að skapa nýjan grundvöll fyrir slíku samstarfi núna. Með því er raunar verið að gefa í skyn, að einhvertímamót hafi orðið hjá íslenskum sósíal- istum á síðasta ári. Það er misskilningur. Áratugir eru síðan þeir straumar sigruðu sem nú ryðja sér rúms í hugmyndafræði Austur-Evrópu. Formaður fulltrúaráðs Alþýðuflokksins gefur þá yfirlýsingu í Morgunblaðinu í gær, að þreifingar um sameiginlegt framboð jafnaðarmanna í Reykjavík skapi „óskaplegt álag á nýrun", vegna kaffidrykkju á löngum samræðufundum. Á næstu dögum og vikum færist áherslupunktur samvinnuhugmynd- anna vonandi ofar í líkamina. ÓHT Setiö aö tafli á Skákþingi Reykjavíkur. Mynd: Jim Smart. Skákþing Reykiavíkur hafið Skákþing Reykjavíkur 1990 hófst í nýju félagsheimili Taflfé- Iags Reykjavíkur við Faxafen síð- astliðinn sunnudag. Þátttakendur á Skákþinginu eru 106, þar á meðal nokkrir sterkir skákmenn, eins og Dan Hansson, Þröstur Þórhallsson, Héðinn Steingrímsson, heims- meistari unglinga, og Sigurlaug R. Lamm, fyrrverandi Islands- meistari kvenna. Allrasterkustu skákmenn okkar taka hins vegar ekki þátt að þessu sinni. Tefldar verða ellefu umferðir eftir Monrad-kerfi. Keppt er á sunnudögum kl. 14, og miðviku- dögum og föstudögum kl. 19.30. Biðskákadagar verða inn á milli. Keppninni lýkur væntanlega 31. janúar. Keppni í flokki 14 ára og yngri hefst næstkomandi laugardag kl. 14. í þeim flokki verða tefldar níu umferðir eftir Monrad-kerfi og er umhugsunartími 40 mínútur fyrir hvern keppanda. Unglingarnir munu tefla næstu þrjá laugar- daga, þrjár umferðir hvern dag. Taflfélag Reykjavíkur hefur haldið skákþing Reykjavíkur ár- lega frá árinu 1931. Ingi R. Jó- hannsson hefur oftast sigrað, eða sex sinnum. Núverandi skák- meistari Reykjavíkur er Sævar Bjarnason, alþjóðlegur skák- meistari. Leiklist Norðmenn skoða Haustbrúði Salka Valka á fjalirnar í Osló í haust Þórunn Sigurðardóttir leik- stjóri og leikskáld heldur til Os- lóar í dag til viðræðna við for- ystumenn Det Norske Teatret, nýjasta og fínasta leikhússins þar í borg, um hugsanlega uppfærslu á leikriti sínu, Haustbrúði, sem var sýnt í Þjóðleikhúsinu síð- astliðið vor. Knut Ödegard hefur þýtt hluta leikritsins á norsku. Verkið fjall- ar um norskt fólk og m.a. þess vegna hafa Norðmenn sýnt því áhuga. í haust verður Salka Valka sýnd í þessu sama leikhúsi undir leikstjórn Stefáns Baldurssonar. Hér um að ræða sömu leikgerð og Leikfélag Reykjavíkur sýndi fyrir nokkrum árum. Stefán stýrði Sölku Völku í Ör- ebro í Danmörku í fyrra og á frumsýningarkvöldinu undirrit- aði hann samning um stjórn verksins í Osló við nýráðinn leikhússtjóra Det Norske Teatr- et. Leikhússtjórinn vildi að það yrði fyrsta verkið á fjalirnar eftir að hann tæki við. Um þessar mundir er Stefán í Árósum þar sem hann er að setja upp Villiöndina eftir Ibsen og í haust mun hann setja upp Dag Vonar eftir Birgi Sigurðsson í Ál- aborg. -gb Helgarveðrið 8 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 12. janúar 1990 Rigning, aðallega um sunnan- og vestanvert landið. Snýst í norðaustan og lægir aðfaranótt sunnudags, en gengur þá aftur í vaxandi suðaustanátt með rigningu, fyrst suðvestanlands. Hiti víðast 2-6 stig.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.