Þjóðviljinn - 12.01.1990, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 12.01.1990, Blaðsíða 11
Blessun og bölvun sjávarútvegsins Er óstjórní fiskveiðum helsta hindrun efnahagslegra framfara á Is- landi? Þorkell Helgason: Sjávarútvegurinn hefuralltaf búið við auðlindaskatt. VÍ9 íslendingar Iifum af fiski. Oll okkar efnahagslega af- koma snýst að meira eða minna leyti um það, hvernig okkur tekst að nýta þá gjöfulu auðlind sem fiskimiðin eru. Við erum okkur yflrleitt vel meðvituð um þetta og skýrum gjarnan þær miklu sveiflur og kollsteypur, sem gengið hafa yfir íslenskt efnahagslíf með þeirri einföldu fullyrðingu að fiskurinn sé kenjótt skepna og því sé ekki nema eðlilegt að öldugangur sé í efnahagslífinu. Galdurinn við stjórnun efnahagsmálanna sé í því fólginn að stíga ölduna og að- laga sig þessari kenjóttu skepnu. Þær raddir hafa þó heyrst á undanförnum árum og einkum á síðustu misserum, að sveiflurnar og áföllin í íslensku efnahagslífi eigi ekki rætur sínar í kenjum náttúrunnar eins og við höfum viljað trúa, heldur sé meinsemd- arinnar fyrst og fremst að leita í óskynsamlegri stjórnun, og að kjarna meinsemdarinnar sé ein- mitt að finna í því, hvernig staðið hefur verið að nýtingu okkar dýru auðlindar, fiskimiðanna. Vísbending Þorkels Á síðastliðnu ári birtust tvær greinar eftir dr. Þorkel Helgason prófessor í tímaritinu Vísbend- ingu, þar sem hann bendir á það, hvernig við íslendingar höfum á liðnum áratugum nýtt ágóðann af fiskimiðunum fyrir þjóðarbúið í heild. Hann bendir þar á að grund- vallaratriðið í íslenskri efnahags- stjórnun hafi ávallt falist í því að halda sjávarútveginum á svoköll- uðum núllpunkti, þannig að þar myndaðist ekki „óeðlilegur" hagnaður. Hagnaðurinn hafi ver- ið tekinn úr sjávarútveginum með tiltölulega hárri skráningu gengis krónunnar, þannig að al- menningur hafi getað keypt inn- fluttan varning á vægara verði en ella væri. Þannig hafi arðinum af fiskimiðunum verið miðlað til þjóðarinnar. Sjávarútvegurinn hafi í raun verið skattlagður með þeim hætti að hann fái ekki greitt fullt verð fyrir gjaldeyrinn sem hann skilar. Fyrir 1970 fór inn- heimta skattsins fram með þeim hætti að ríkið lagði háa innflutn- ingstolla á þann varning sem keyptur var fyrir gjaldeyrisfram- lag sjávarútvegsins. Innflutnings- tollarnir voru um leið stjórntæki til þess að bæta samkeppnisað- stöðu annarra atvinnugreina hér á landi. Eftir 1970 höfðu alþjóðavið- skipti tekið slíkum breytingum að verndartollastefnan var ekki lengur fær. Ríkið lagði þá sölu- skatt og síðan virðisaukaskatt á varninginn, um leið og gengis- stefnan sér til þess að arðurinn af sjávarútveginum sé hirtur jafn óðum. Þessi breyting hafði afdrif- aríkar afleiðingar fyrir allt það at- vinnulíf í landinu, sem ekki býr við þá yfirburðastöðu sem sjávar- útvegurinn hefur með ókeypis aðgang að fiskimiðunum, segir Þorkell. Þegar verndartollarnir voru aflagðir stóð iðnaðurinn (þar með talin fiskvinnslan) og aðrar þær atvinnugreinar sem áttu í erlendri samkeppni, ber- skjaldaðar og þurftu í reynd að selja sitt erlenda aflafé á sama afsláttarverðinu og sjávarútveg- urinn. Auðlindaskatturinn sem sjávarútvegurinn hefur í reynd greitt til samfélagsins, var þá einnig lagður á þær atvinnugrein- ar sem ekki höfðu úr neinni sambærilegri auðlind að moða og fiskimiðin eru. Jafnframt þurftu þær greinar að aðlaga sig að öllum þeim sveiflunum og kolls- teypum sem urðu í afkomu sjáv- arútvegsins. Þegar vel áraöi í sjáv- arútvegi hækkaði raungengi krónunnar þannig að allar aðrar útflutningsgreinar komust á von- arvöl. Við þetta bætist svo að mati Þorkels sú staðreynd að há geng- isskráning skapaði „falskan“ kaupmátt í landinu, olli miklum viðskiptahalla og halla á ríkis- sjóði og kallaði á erlendar lán- tökur, sem skrifaðar voru á reikning komandi kynslóða. Ný hugsun Þorkell tekur upp þráðinn frá hagfræðingum eins og Bjarna Braga Jónssyni og Gylfa Þ. Gísl- asyni og segir að hugsa þurfi dæmið upp á nýtt: rjúfa þurfi þau beinu tengsl sem eru á milli sjáv- arútvegs og annarra atvinnu- greina, ef skjóta eigi fleiri stoðum undir íslenskt atvinnulíf. Það verði ekki gert nema með því að hætta núgildandi skattlagningu á sjávarútveginn með háu raun- gengi krónunnar. Þess í stað eigi að innheimta arðinn af fiskimið- unum með veiðigjaldi og miða gengi krónunnar við hallalaus viðskipti við útlönd eins og tíð- kast í flestum löndum. Þessi ráð- stöfun sé í raun forsenda þess að aðrar atvinnugreinar fái þrifist hér á landi. Þorkell segir að tvær leiðir séu til þess að innheimta veiðigjald: annars vegar sé hugsanlegt að hafa uppboð á aflakvótum á frjálsum markaði, hins vegar megi hugsa sér ákveðna gjald- töku fyrir veittan aflakvóta. Sá kostur fylgi uppboðsaðferðinni, að þá þurfi yfirvöld ekki að á- kveða gjaldið. Þorkell segir jafn- framt að gengisfelling sé mikil- væg við álagningu veiðigjalds. Með þessum samræmdu aðgerð- um megi halda afkomu sjávarút- vegsins óbreyttri, en skapa starfs- grundvöll fyrir aðrar útflutnings- greinar um leið. Of stór fiskifloti Þessari kerfisbreytingu er ekki bara ætlað að losa aðrar atvinnu- greinar úr heljargreipum sjávar- útvegsins. Henni er líka ætlað að auka hagkvæmni í rekstri sjálfs sjávarútvegsins og minnka til- kostnað. Þótt öllum sé ljóst að núverandi kvótakerfi hafi bjarg- að fiskimiðunum frá algjörri eyðingu, þá eru menn yfirleitt sammála um að það hafi brugðist í því meginmarkmiði að draga úr tilkostnaði útgerðarinnar: fiski- skipastóllinn er talinn að minnsta kosti 20-30% of stór. Með þeirri yfirfjárfestingu fer stór hlutur af arði fiskimiðanna beint í súginn. Fræðimenn hafa bent á það að veiðigjald sé vænlegasta leiðin til þess að stuðla að fækkun fiski- skipa. Menn munu ekki kaupa Ólafur Gíslason skrifar eða gera út óþarfa skip þegar greiða þarf fyrirfram fyrir óveiddan fisk og þeir geta náð þeim afla með betri nýtingu færri skipa. Reikningur Þorkels Þorkell Helgason lætur ekki staðar numið við að leggja fram þessar hugmyndir. Hann býr til reiknilíkan um það, hver mögu- leg áhrif samvirkrar gengisfel- lingar og veiðigjaldheimtu gætu orðið og niðurstöðurnar eru einkar athyglisverðar (sjá með- fylgjandi töflu). Þar kemur fram að 15% gengisfelling jafngildi því að leggja megi 14% veiðigjald á tekjur útgerðarinnar. Þá er mið- að við óbreyttan rekstur útgerð- arinnar að öðru leyti. Áhrifin kæmu síðan fram í 5% hækkun framfærsluvísitölu miðað við það að tekjum af veiðigjaldi yrði meðal annars varið til þess að greiða niður virðisaukaskattinn um 6 stig. Þorkell segir hins vegar að ekki sé raunhæft að miða við óbreytt skilyrði útgerðarinnar að öðru leyti. Tíu prósent samdráttur í fiskveiðiflotanum gæfi tilefni til þess að hækka veiðigjaldið í 18%, sem aftur gæti þýtt lækkun söluskatts um 8% og hækkun framfærsluvísitölu um 4%. En sú endurskipulagning og endurreisn sjávarútvegsins sem stefnt er að með þessum breytingum kynni hins vegar fela í sér 25% fækkun fiskiskipaflot- ans. Þá er einnig gert ráð fyrir að 10% aukning verði í afla vegna hóflegrar sóknar. Þannig endur- skipulagður gæti sjávarútvegur- inn skilað 33% veiðigjaldi og þá þyrfti að nota veiðigjaldið til þess að greiða virðisaukaskattinn nið- ur um 14 prósentustig til þess að halda framfærsluvísitölunni óbreyttri frá því sem var. í síðasta dæminu er gert ráð fyrir því að ávinningurinn af hagræðingunni renni óskiptur í veiðigjaldið. f öllum tilfellum er reiknað út frá 15% gengisfellingu. Kjarabótin fyrir almenning fælist þá í að bægja því atvinnu- leysi frá, sem annars er fyrir- sjáanlegt. Því náist hagræðing í sjávarútveginum (sem er for- gangsverkefni ef halda á óbreyttum lífskjörum í landinu) og verði gengisskráningin áfram miðuð við afkomu hans, mun það ganga af öllum samkeppnisgrein- um í landinu dauðum. Jafnframt myndi kerfisbreytingin draga úr þörf fyrir skuldasöfnun erlendis og jafna viðskiptahalla við út- lönd. Álit Gylfa Útreikningar Þorkels byggja á þeim hugmyndum sem hagfræð- ingar eins og Bjarni Bragi Jóns- son og Gylfi Þ. Gíslason hafa fyrir löngu sett fram. Það nýstár- lega í framlagi Þorkels er, að hann setur þessar hugmyndir inn í fræðilegt líkan og reiknar fram möguleg áhrif. Við spurðum Gylfa Þ. Gísla- son hvort honum fyndust út- reikningar Þorkels vera trúverð- ugir: „Innlegg Þorkels Helgasonar í þessa umræðu er tvímælalaust mjög mikilvægt, og ég tel að þeir tölfræðilegu útreikningar sem hann setur fram í Vísbendingu séu fullkomlega raunhæfir. Hins vegar er mikilvægt að hafa það í huga í þessu sambandi, að engum dettur í hug að endanlegt veiði- gjald verði lagt á í einu vettvangi. Við sem höfum unnið að þessum hugmyndum leggjum áherslu á, að að þessu verði unnið í smáum skrefum, og við erum þeirrar skoðunar að veita beri heimild til þess að leggja slíkt veiðigjald á sjávarútveginn þegar á þessu ári. Fyrst þyrfti hins vegar að gera fræðilega könnun á því, hversu hátt gjaldið ætti að vera. Raun- gengi krónunnar er nú þegar orð- ið það lágt, að sú 15% gengisfell- ing, sem Þorkell talar um í Vís- bendingu væri ekki nauðsynleg. En ef frekari gengisfelling yrði framkvæmd, þá mætti nota tekj- ur af veiðigjaldinu til þess að vega upp á móti verðlagshækkun með lækkun virðisaukaskattsins.“ Hvers vegna er sjávarúvegurinn blóðmjólkaður? Þessar róttæku hugmyndir vekja efalaust margar spurningar og sumar flóknar. Sú augljósasta er þó þessi: Er það rétt að við- halda þeirri grundvallarreglu að „blóðmjólka“ sjávarútveginn, hvort sem það er gert með gengis- skráningu eða veiðigjaldi? Er ekki rétt að útgerðarmenn njóti sjálfir hagnaðarins af þeirri miklu hagræðingu, sem augljóslega má og þarf að framkvæma í greininni? Svar Gylfa Þ. Gíslasonar við þeirri spurningu er jafnframt helsta röksemd stuðningsmanna veiðigjaldsins fyrir þeirri breytingu: „Fiskimiðin eru sam- eign þjóðarinnar og það er ekki pólitískt eða siðferðilega rétt- lætanlegt að afhenda afrakstur þeirra fámennum hópi manna." Tilraunir meö veiöigjald Tilraunir Reikniforsendur Beinar verölagsaf leiöingar Floti eöa úthald Afli Gengi Veiöigjald - hlutfall af tekjum veiöa VSK-prósenta Framfærslu- vísitala 1. Jafnvægisgengi Veiðigjald 0% 0% -15% 14% -6 5% 2. Jafnvasgisgengi Veiöigjald Úthald -10% Afskriftir þó óbr. -10% 0% -15% 18% -8 4% 3. Jafnvægisgengi Hagkvæmur floti Hámarksafli Veiöigjald -25% 10% -15% 33% -14 0% _______________________________________________________________Heimild: Þorkell Helgason/Þjóöviljinn____________________________________________ Föstudagur 12. janúar 1990 (NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.