Þjóðviljinn - 12.01.1990, Blaðsíða 26

Þjóðviljinn - 12.01.1990, Blaðsíða 26
Hvað á að gera um helgina? Alþýðubankinn, Akureyri, Ruth Hansen, málverk. Til 2.2.1990, opið á afgreiðslutíma bankans. FÍM-salurinn, Garðastræti 6, sam- sýning félagsmanna, 14-18 virka daga. Gallerí Borg, jólasýning á verkum „gömlu meistaranna". Grafíkgallerí- ið, blandað upphengi e/ fjölda höf- unda. Opnunartími verslana. Gallerí List, Skipholti 50 b, málverk, postulín, rakú og glerverk e/fjölda listamanna. List opnar 10:30 og lok- un fylgir verslunartíma. Guðný Guðmundsdóttir og Gunnar Kvaran leika einleik á tónleikum Sinfóníu- hljómsveitarinnar í íþróttahúsinu á Akranesi kl. 20.30 í kvöld. og hljómsveit, Sinfónía nr. 2. Einl. Guðný Guðmundsdóttir og Gunnar Kvaran, stjórnandi Petri Sakari. Gallerí Sævars Karls, Bankastræti 9, Málfríður Aðalsteinsdóttir, mynd- vefnaður. Til 25.1. Verslunartími. Hafnarborg, Hf, Safnasýning, söfn í eigu einstaklinga, ásamt hlutum úr Ásbúðarsafni og Byggðasafni Hafn- arfjarðar. Suogmán14-19, síðustu sýningardagar, lokað lau. Húsgagnaversl. Kristjáns Sig- geirssonar, Hestshálsi 2-4, Anna Gunnlaugsdóttir, málverk. Kjarvalsstaðir, 11-18 daglega, austursalur: Kjarval og landið, verk e/ Kjarval í eigu Rvíkurborgar. Vestur- salur: Margrét Jónsdóttir, olíumál- verk, vesturforsalur: Helgi Þorgils Friðjónsson og Hallgrímur Helgason, portrett. Listasafn ASÍ v/ Grensásveg, Sigur- jón Jóhannsson, málverk, opn lau kl. 14. Til 28.1.16-20 virka daga, 14-20 helgar. Listasafn íslands, allir salir, verk í eigu safnsins (1945-1989). 12-18 alla daga nema mán. kaffistofa opin á samatíma. Myndjanúarmán. „Mynd“ e/ Gunnar Örn Gunnarsson, ieiðsögn fi 13:30-13:45. Aðgangur og leiðsögn ókeypis. Llstasafn Einars Jonssonar opið helgar 13.30-16, höggmyndagarður- innalladaga 11-17. Listasafn Sigurjóns, járnmyndir Sigurjóns og gjafir sem safninu hafa borist undanfarin ár. Lau og su 14-17, þri 20-22. Norræna húsið, anddyri: Túlkanir- Ijósmyndir Bruno Ehrs af höggmynd- um.opn lau.Til 11.2.12-19su,9-19 aðra daga. Kjallari: Pétur Halldórs- son, málverk, opn lau kl. 14. Mjóddln, Halla Haraldsdóttir sýnir vatnslitamyndir og glerlist í versl. Hjartar Nielsen. Til janúarloka, 10- 18:30 virka daga, 10-16 lau. Nýhöfn, Hafnarstræti 18, jólasýning, verk e/ fjölda listamanna. 10-18 virka daga. Smiðagallerí, Mjóstræti 2B. Lilja Eiríksdóttir, málverk. Virkadaga 10- 18,laugardaga14-17. Riddarinn, Hafnarfirði, Við búðar- borðið, sýn. tengd verslun fyrri tíma, á vegum Byggðasafns Hf. Safn Ásgríms Jónssonar, Berg- staðastræti, ÞingvallamyndirÁs- gríms. Helgar, þri og fi 13:30-16 fram í feb. Sjóminjasafn fslands, Vesturgötu 8 Hf. Opið helgar 14-18, eða eftir samkomulagi. Þjóðminjasafnið, opið þri, fi, lau og su 11-16. Ölkjallarinn, Haukur Halldórsson, grafík. TÓNLISTIN Tónskólí Sigursveins D. Kristins- sonar, Hraunbergi 2, Hávarður Tryggvason kontrabassaleikari, Sig- urðurSveinn Þorbergsson básúnu- leikari og píanóleikararnir Brynja Guttormsdóttir og Clare Toomer flytja verk e/ Bottesini, Hoffmeister, We- ber, Martin o.fl. lau kl. 17. Sinfóníuhljómsveit íslands heldur Brahms tónleika í íþróttahúsinu á Akranesi kl. 20:30 í kvöld. T ragíski forleikurinn, Konsert fyrir fiðlu, selló Gunnar Guðbjörnsson tenór og Jónas Ingimundarson pianól. halda Ijóðatónleika á Egilsstöðum lau. Heiti potturinn, Duus húsi, jasstón- leikarsukl. 21:30. LEIKLISTIN Leikfélag Akureyrar, Eyrnalangirog annaðfólk. LH, Unglingaleikhús, Þú ert í blóma lífsins fíflið þitt, frums. lau. Leikfélag Reykjavíkur, Ljós heimsins, litla sviðinu í kvöld, lau og su kl. 20. Höll sumarlandsins, stóra sviðinu í kvöld og lau kl. 20. Töfra- sprotinn lau og su kl. 14. Þjóðleikhúsið, Heimili Vernhörðu Alba lau kl. 20. Lítið fjölskyldufyrir- tæki í kvöld og su kl. 20. Óvitar su kl.14. ÍÞRÓTTIR Handbolti. 1 .d.ka.: KA-Valur, ÍR- Stjarnan, ÍBV-HK, Grótta-Víkingur lau.kl. 16.30.1.d.kv.:Grótta-Haukar lau. kl. 15, Stjarnan-Fram sun. kl. 14.30, FH-Valurkl. 15.15.2.d.ka.: Þór-Selfossfös. kl. 20.15.2.d.kv.: iBV-ÍRfös. kl. 20 og lau. kl. 15, Þór- Selfossfös. kl.21.30. Karfa. Úrvalsd.: Þór-ÍBK, UMFG- UMFN, Valur-UMFT, Reynir-Haukar, ÍR-KR sun. kl. 20.1 .d.kv.: UMFN- UMFG lau. kl. 14, KR-ÍR sun. kl. 14, ÍS-ÍBK mán. kl. 20.1 .d.ka.: ÍA-iS fös. Mynd: Kristinn. Helga Guðrún Johnson fréttamaður Ég ætla út að borða í stórum vinahóp á laugardagskvöldið, en þá kveðjum við hjón sem eru að flýja land og hefja búsetu í Danmörku. Fátt annað er ákveðið, nema hvað ég mun örugglega hrekjast að heiman á föstudagskvöldið því maðurinn minn þarf næði til að lesa undir próf. Annars set ég bara tíu tær uppí loft og klára að lesa Jakann um helgina. kl. 20.30, UMFL-UMSB lau. kl. 13, Snæfell-UBKkl. 14. Badminton. Meistaramót TBR í TBR-húsumfrákl. 10lau.ogsun. Keppt í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik í meistarafl. A- og B-fl, ef þátttaka fæst. Þátttaka tilkynnist fyrir kl. 12fös. HITT OG ÞETTA Bíósalur MÍR, Vatnsstíg 10, su kl. 16: Sólaris e/Tarkovskí. Myndin er byggð á vísindaskáldsögu og gerist á rannsóknarstöð úti í himingeimnum. Hún var fullgerð árið 1972 og er tal- settáensku. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Dansnámskeiðin hefjast aftur í Nýja dansskólanum Ármúla 17 lau. Upplýs. í skólanum. Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3 su, kl. 14 frjáls'., spil og tafl, dansað frá kl. 20. Félag eldri borgara í Kópavogi, fé- lagsvist og dans á 1. hæð Félags- heimilis Kópavogs í kvöld kl. 20, hús- iðverðuropnað 19:30. Hljómsveit leikurfyrirdansi. Skemmtinefnd góðtemplara byrjar síðvetrarstarfið í kvöld kl. 21. Félags- vist og gömlu dansarnir á hverju föstudagskvöldiíTemplarahöllinni, Tíglarnir leika fyrir dansi, allir vel- komnir. Ferðafélag íslands, sunnudagsferð á Þingvelli, brottför kl. 11 frá BSI, austanm. heimkomaca. 16:30. Far- arstjóri Sigurður Kristinsson, verð 1000 kr. fríttfyrirbörn. Hana nú leggur upp í laugardags- gönguna frá Digranesvegi 12 kl. 10 í fyrramálið. Nýlagað molakaffi. Útivist, sunnud: Fyrsti áfangi Þórsmerkurgöngunnar, lagt af stað úr Grófinni kl. 13, síðasti áfangastað- ur gamli Árbærinn, boðið upp á rútu- ferð til baka. Skíðagöngunámskeið, lagt af stað frá BSÍ, bensínsölu kl. 13, heimkoma ca. 17:30, verð 600 kr. Dregið var í happdrætti Styrktarfé- lags vangef inna 24.12.89: 1 .vinningur nr. 75096,2. nr. 33404, 3.-10. nr. 1906-14582-19881- 37019-43848-60766-75455- 99410. höfundinn FJÖLMIÐLAR ÞROSTUR HARALDSSON Þegar söguefnið snýr á Ríkissjónvarpið hóf eftir ára- mótin sýningar á nýrri enskri þáttaröð sem byggð er á sögum breska spennusagnahöfundarins Len Deighton. Ég sá að vísu að- eins fyrsta þáttinn og kannaðist þar við flest því ég hef lesið þessa trílógíu Deightons. Einhvern veginn fór nú svo að ég var ekkert sérlega uppveðraðúr yfir þessum þáttum og er þó annálaður vel- unnari breskra spennuþátta. Ástæðan var sennilegast sú að bókmenntagreinin sem Deighton hefur tileinkað sér á í djúpstæðri tilvistarkreppu um þessar mund- ir. Að leikslokum, eins og þætt- irnir heita upp á íslensku, fjallar um breska spæjarann Bernard Samson sem starfar hjá leyni- þjónustunni og hefur Berlín sem sitt sérsvið. Myndin hófst á því að Samson var að smygla sér dulbú- inn í gegnum landamærastöð í Berlínarmúrnum frá austri til vesturs. Þetta átti að sjálfsögðu að vera afar spennandi og hefði eflaust verið það tveimur mánuð- um fyrr. En eftir fall Berlínar- múrsins reyndist mér afar erfitt að setja mig í þær kaldastríðs- stellingar sem spennan byggðist á. í nýlegu hefti af Time er fjallað um þann vanda sem nú steðjar að spæjarasögunni sem listgrein. Þar segir að allt útlit sé fyrir að heilum her frakkaklæddra manna á besta aldri verði sagt upp störf- um án þess að þeir eigi neina von um að komast á eftirlaun. Hins vegar sé nokkur munur á því hvernig höfundar snúi sig út úr þessari klípu. Einn frægasti spæjarahöfund- urinn er eflaust John Le Carré sem ma. á heiðurinn af þeirri bók sem næst kemst því að verða tákngervingur kalda stríðsins í bókmenntum: Njósnarinn sem kom inn úr kuldanum. Sú gerðist líka að mestu leyti í skugga Berl- ínarmúrsins sem þar var nýreistur og er því beinn fýrirrennari bók- anna um Bernd Samson. Það þótti tíðindum sæta þegar Le Carré fór í heimsókn til So- vétríkjanna fyrir 2-3 árum. Hann kvaðst vera að kynna sér aðstæð- ur fyrir nýja bók og urðu menn þá nokkuð skrýtnir á svip. Ætlar hann virkilega að skrifa enn einn kaldastríðsreyfarann? En Le Carré tókst að snúa á framvind- una og gaf í fyrra út bókina Rúss- landsdeildin sem nú er komin út á íslensku og gerist að verulegu leyti í Sovétríkjunum eftir glas- nost. Þar kveður við ailt annan tón en í fyrri bókum hans. Sumir höfundar voru hins veg- ar ekki eins fljótir að átta sig á framvindu heimsmálanna og meðal þeirra er Len Deighton. í sömu vikunni og Berlínar- múrinn féll kom nefniiega út ann- að bindið í annarri trílógíu Deightonsum Bernd Samson. Ég er búinn að lesa fyrsta bindið og hann er enn á sömu slóðum, að snuðra utan í múrnum og reyna að fjarstýra agentum sínum austan hans. Ætli þeir séu ekki flestir komnir vestur yfir í versl- unarleiðangur núna, eða þá farn- ir að stjórna ríkinu? Nú er bara að sjá hvernig Deighton snýr sig út úr þessari erfiðu klípu í þriðja bindinu. Annars er merkilegt að fylgjast með því hvernig óvinirnir, vondu gæjarnir í reyfurunum hafa verið að breytast smátt og smátt eftir að Gorbatsjov fór að taka til í Moskvu. Fyrst var algengt að reyfarahöfundar tækju það ráð að búa til góða og vonda gæja innan KGB og gekk sagan svo út á það að góðu gæjarnir tóku höndum saman við CIA eða jafnvel bara góðu gæjana þar því allt í einu kom í ljós að ekki var allt með felldu þar heldur. Svo var farið að horfa víðar. Ekki var hægt að nota kínverjana eða arabana því þeir höfðu verið þurrausnir á tímum menningar- byltingar og olíukreppu. Þá var augunum beint að írönskum ofs- tækismönnum, írska lýðveldis- hernum, og jafnvel kynþáttast- jórnin í Suður-Afríku reyndist brúkleg í spæjarasögur. Ekki treysti ég mér til að spá um framhaldið í leit njósna- söguhöfunda að söguefni. Ósennilegt verður þó að teljast að svo mikill friður komist á í ver- öldinni að þeir verði gersamlega verkefnalausir. Það hefur lengi þótt gott söguefni að töfra fram á sjónarsviðið steingervinga frá gömlum tímum, td. nasista eða japani úr síðari heimsstryjöld- inni, og reyndar eru þeir enn að skjóta upp kollinum, hafandi ver- ið í felum. Kannski fáum við að lesa um gamla kaldastríðshauka sem rotta sig saman eftir áratug eða svo og reyna að sölsa undir sig heiminn. Nú eða afdankaða liðsmenn Securitate í Rúmeníu sem birtast skyndilega eftir að hafa falið sig í fjöllunum hans Drakúla greifa í Transsylvaníu... Einhvern veginn þarf að skemmta okkur og skaffa efni til að fylla skjáinn á hverjum degi árið um kring. Hjá því verður ekki komist. 26 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 12. janúar 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.