Þjóðviljinn - 12.01.1990, Side 13

Þjóðviljinn - 12.01.1990, Side 13
Ráttinn til að stunda fisk- veiðar á ekki að selja Finnbogi Jónsson framkvœmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað svarar spurningum Nýs Helgarblaðs Hagfræðingar og hagsmuna- aðilar í sjávarútvegi virðast sam- mála um að þótt núgildandi kvót- akerfí í sjávarútvegi hafí skilað mikilvægum árangri, þá hafí það brugðist í því meginmarkmiði að ná hagkvæmni i rekstri útgerðar- innar. Fiskiskipaflotinn sé enn um 30-40% of stór. Margir hafa lýst þeirri skoðun að hagkvæmni muni ekki nást nema með frjálsri sölu veiðiheimilda til lengri tíma. Telur þú að slík sala sé æskileg og þá með hvaða hætti? Ég tel að þau lög sem nú eru í gildi um stjórn fiskveiða hafi þeg- ar leitt til umtalsverðs sparnaðar í útgerðarkostnaði og aukinnar verðmætasköpunar í sjávarú- tvegi. Það er hins vegar rétt að þau hafa ekki enn haft veruleg áhrif á stærð fiskiskipaflotans. Þó er ljóst að á allra síðustu misser- um hafa allmargir bátar horfið úr rekstri á grundvelli núgildandi laga og veiðiheimildir þeirra ver- ið sameinaður öðrum. Úthlutun veiðiheimilda til lengri tíma mun ýta enn frekar undir þessa þróun. Ég sé hins vegar ekki ástæðu til að auka sölu veiðiheimilda um- fram það sem nú gildir. Þvert á móti tel ég að slíkt geti verið mjög varhugavert og alls ekki nauðsyn- legt til að ná markmiðinu um aukna verðmætasköpun í sjávar- útvegi. Hagfræðingar hafa bent á það að sjávarútvegurinn hafi á und- anförnum árum verið „skatt- lagður“ með tiltölulega háu gengi krónunnar. Þessi ,.skattlagning“ hafí hins vegar bitnað mjög harkalega á öðrum atvinnugrein- um í landinu, einkum útflutning- siðnaði (þar með töldum físki- ðnaði) og ferðaþjónustu, og skapað óeðlilegan viðskiptahalla við útlönd. Ert þú sammála því að þessi „skattlagning“ hafí átt sér stað? Væri eðlilegra að „leiðrétta“ gengisskráninguna en taka um leið upp sölu veiðiheimilda til út- gerðarinnar? Það er rétt að þeirri verðmæta- sköpun sem sjávarútvegurinn hefur skapað hefur verið dreift til annarra greina og ails þjóðfélags- ins að hluta til með háu raun- gengi. Á síðustu árum hefur verið gengið það langt í þessum efnum að sjávarútvegurinn sjálfur hefur verið rekinn með verulegum halla og þjóðin í heild hefur eytt langt umfram tekjur í formi mik- ils viðskiptahalla við útlönd. Hér hefur hins vegar ekki verið um hugsaða eða markvissa skattlagn- ingu á sjávarútveginn að ræða heldur hafa þessar aðstæður skapast af þeirri viðleitni stjórnvalda að draga úr verð- bólgu. í því skyni var genginu haldið föstu sem út af fyrir sig er gott markmið en því miður gleymdist að taka á öllum öðrum þáttum sem áhrif hafa á verð- bólguþróunina. Hvort rétt væri að fella raungengið enn frekar eingöngu í því skyni að taka jafnhliða upp sölu veiðiheimilda dreg ég mjög í efa. Fyrir því eru margar ástæður sem of langt mál yrði að rekja. Ég læt nægja að minna áhrifin á verðlagsþróunina og áhrif á kaupmátt launafólks. Neikvæðu áhrifin yrðu að mínu mati margfalt meiri en þau hugs- anlega jákvæðu áhrif sem slíkt hefði í för með sér. Núverandi rikisstjórn hefur tekist að koma á jafnvægi í viðskiptum við útlönd, jafnvægi á lánamarkaðnum og að draga verulega úr þeim halla- rekstri sem hefur verið í okkar undirstöðuatvinnugreinum. Það er staðreynd að rekstrarskilyrðin ekki síst í sjávarútveginum voru- að steypa allri tilveru okkar á þessari úthafseyju fram af ystu bjargbrún. Það sem nú skiptir máli er að verkalýðshreyfingunni og atvinnurekendum takist með eða án aðstoðar ríkisvaldsins að gera samninga sem tryggi þann kaupmátt sem þjóðarbúið þolir og hefðu í för með sér að verð- bólgan færi í fyrsta skipti í tvo áratugi niður fyrir 10% Slíkur samningur er langstærsta kjara- bót sem launafólk og öll þjóðin hefur haft raunhæfan möguleika í langan tíma. Við eigum ekki að láta fræðilegar vangaveltur um auðlindaskatt og nýja gengis- skráningu rugla okkur í því að ná þessum markmiðum. Nú hefur skapast markaður hjá útgerðarmönnum með óveiddan físk í sjó í formi yfír- verðs á skipum með kvóta. Telur þú eðlilegt að ríkisvaldið úthluti slíkum verðmætum til útgerðar- manna án endurgreiðslu? Það hefur ríkt yfirverð á skipum allt frá því að innflutning- ur á skipum var takmarkaður. Það er ekkert að gerast eingöngu með tilkomu kvótakerfisins. Takmörkun á nýtingu tiltekinnar auðlindar skapar alltaf ákveðið yfirverð á aðgöngumiðanum sjálfum. Fyrir þjóðarbúið í heild er það hins vegar miklu meiri ávinningur að svo gerist heldur að auðlindinni. Það er líka rétt að hafa í huga, að fyrir þá sem hafa stundað útgerð og ætla að stunda áfram er slíkt yfirverð á skipum í raun einskis virði gagnvart rekstrarafkomunni. Það er eingöngu við sölu sem þessi svokallaða „ókeypis" út- hlutun verðmæta verður að raun- verulegum tekjum. Ég tel ekkert óeðlilegt við það að þegar tekj- urnar myndast verði þær skatt- lagðar, enda er það gert. Ef nú- gildandi tekjuskattskerfi er ekki fullnægjandi í þessum efnum þarf einfaldlega að endurskoða skatt- lagningarreglurnar. Það að ríkið færi að selja útgerðarmönnum, sjómönnum og fiskvinnslufólki réttinn til að starfa við íslenskan sjávarútveg, rétt sem íslenskar sjávarbyggðir hafa haft i áratugi og reyndar aldir, tel ég hins vegar fráleitt miðað við núverandi að- stæður. Sala veiðileyfa er lykill að hagræðingu í útgerð Már Guðmundsson efnahagsráðgjafifjármálaráðherra svarar spurningum Nýs Helgarblaðs Telur þú einhvers konar auðlindaskatt á sjávarútveg eða sölu veiðileyfa koma til greina? Ég tel að einhvers konar sala eða leiga veiðileyfa sé óhjá- kvæmilegur hluti af fisksveiði- stjórnun ef samtímis á að stuðla að hagkvæmni í sjávarútvegi, tryggja það að arðurinn af fisk- stofnunum renni til þjóðarinnar í heild og að aðrar útflutnings- og samkeppnisgreinar fái þrifist við hlið sjávarútvegsins. Til að stuðla að hagkvæmni í fiskveiðum er nauðsynlegt að úthluta kvótum eða veiðileyfum til langs tíma og helst þarf að skera á öll tengsl á milli kvót- aúthlutunar og eignar í fiski- skipum. Með þessum hætti myndi fiskiskipaflotinn stefna ört á hagkvæmustu stærð, bæði vegna þess að eign á skipsskrokk er ekki lengur forsenda kvót- aúthlutunar, og vegna þess að langtímakvótar gera langtímask- ipulagningu hjá útgerðum mögu- lega. Vandamálið við að úthluta kvótum eða veiðileyfum af þessu tagi ókeypis til útgerðarfyrir- tækja felst einkum í tvennu. í fyrsta lagi er verið að úthluta sameiginlegum verðmætum landsmanna til fárra útvalinna, sem auðvitað felur í sér þjóðfé- lagslegt óréttlæti. í öðru lagi get- ur sá mikli hagnaður sem mynd- ast í sjávarútvegi við þetta orðið til mikils óhagræðis fyrir aðrar útflutnings- og samkeppnisgrein- ar. Vegna vægis sjávarútvegs í út- flutningstekjum landsmanna er óhjákvæmilegt að þessi hagnaður leiði til hækkunar á raungengi krónunnar, enda nánast forsenda þess að allir landsmenn fái notið hlutdeildar í ávinningnum, þ.e. ef ekki er um að ræða auðlindask- att eða sölu veiðileyfa í einhverju formi. Eins og alkunna er hefur gengi krónunnar ráðist mikið af stöðu sjávarútvegsins, þannig að bætt staða hans felur í sér að raungengi krónunnar hækkar en það hefur aftur í för með sér að verðlag verður lægra en ella og kaupmáttur launa hærri. Þessi hækkun raungengis hefur hins vegar í för með sér verulegar þrengingar fyrir aðrar útflutnings- og samkeppnisgrein- ar og kæfa í fæðingu þá vaxtar- brodda sem þar kunna að leynast. Besta leiðin til að leysa bæði þessi vandamál er að selja eða leigja útgerðinni kvótana. Þá yrði tryggt að allir landsmenn nytu hlutdeildar í arðinum af fiskistofnunum án þess að óþarfa byrðar væru lagðar á aðrar atvinnugreinar í formi hás raun- gengis krónunnar. Ég tel að fyrir- komulag af þessu tagi geti sam- rýmst einhvers konar byggða- kvóta, t.d. þannig að hluti veiði- leyfaleigunnar sé á vegum byggð- arlaganna og að þau fái þannig leigugjaldið til sín. Er nauðsynlegt að lækka raungengi krónunnar og þar með kaupmátt launa samfara sölu eða Ieigu veiðiheimilda til útgerðar? Ég tel alls ekki gefið að svo sé. Því hefur verið haldið fram að sjávarútvegurinn hafi í raun bor- ið auðlindaskatt í formi hás gengis krónunnar. Málið er hins vegar ekki svona einfalt að mínu mati. Það er að nokkru leyti rétt að arðurinn af fiskstofnunum hefur dreifst til landsmanna í gegnum gengisskráninguna, þ.e. með því að gengið er hærra en ella, verðlag lægra og kaupmátt- ur hærri. Það er kannski eins gott, því á meðan sjávarútvegur- inn bjó ekki við kvótakerfi og fjárfesting í greininni var frjáls, er hætt við að sjávarútvegurinn hefði fjárfest allan ávinning í burtu. „Skattlagning", sem tekur á sig form hágengis kemur þó al- menningi til góða. „Skattlagn- ing“, sem tekur á sig form offjár- festingar í fiskiskipum kemur xhins vegar engum til góða. Hún er hrein sóun. En það er einmitt það sem hefur að nokkru leyti átt sér stað. Það er því að mínu mati vel hugsanlegl að hægt sé að koma við sölu eða leigu veiðileyfa, án þess að henni þurfi að fylgja lækkun raungengis krónunnar og kaupmáttar almennings, sérstak- lega ef henni er komið á í áföng- um. í því tilfelli myndi það hald- ast í hendur að sjávarútvegurinn verður smám saman hagkvæmari og full sala eða leiga á veiði- leyfum kemst á. Því á greinin að þola það án þess að endilega komi til lækkunar á raungengi krónunnar. Enda er það erfið byrjun á framkvæmd hugmyndar sem á að lokum að stuðla að hærri þjóðartekjum og þar með að hærri raunlaunum og betri lífs- kjörum, að þurfa að skerða þau sömu lífskjör. Hætt er við að framkvæmdin yrði þá andvana fædd. Endanlegt svar við spurning- unni veltur auðvitað á því hvert raungengið er þegar breytingin er framkvæmd. Miðað við raun- gengið eins og það er nú, en það hefur fallið mikið að undanförnu og er nú fyrir neðan sögulegt meðaltal, tel ég ekki ástæðu til að gera því skóna að til lækkunar raungengis þurfi að koma. / Föstudagur 12. janúar 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.