Þjóðviljinn - 12.01.1990, Síða 25
Máttur maricaðsins
Frönskkvikmyndagerðrísnúuppmeðhvertstórvirkiðaföðruenmá sín lítils í slakri markaðssetningu
Frönsk kvikmyndagerð er í
sjálfheldu. Enda þótt listsköpun-
in sem slík sé að mörgu leyti mjög
aðlaðandi háir það frönskum
kvikmyndum hve markaðurinn
er úreltur og dreifing kvikmynd-
anna ábótavant. Alþekkt er sú
staðreynd hér á hjara veraldar
hve þröngsýnir kvikmyndahúsa-
eigendur eru í vali á kvikmynd-
um. Þær verða að vera banda-
rískar til að hægt sé að tefla þeim
fram jafnfætis öðrum, með ör-
fáum undantekningum að vísu.
Þannig hefur lengi verið ergilegt
að vera kvikmyndaáhugamaður
á íslandi og fá aðeins brot af því
sem sjálfsagt þykir í öðrum
löndum. En þess ber að gæta, svo
haidið sé í hreint ágæta franska
kvikmyndagerð, að dreifing
kvikmynda frá öðrum þjóðum en
Bandaríkjunum er oft langt á
eftir tímanum og á þarafleiðandi
mjög erfitt uppdráttar gegn am-
eríska risanum frá Hollywood.
Við skulum skoða nokkur
dæmi. Frakkar hafa um langt
skeið farið manna mest í bíó í
Evrópu en fara nú minna í myrkr-
ið með hverju ári. Árið 1982 var
áhorfendafjöldi í Frakklandi
rösklega 200 miljónir, árið 1985
hafði hann fallið í 175 miljónir og
1988 seldust aðeins 135 miljón
miðar í landinu. Á svipaðan hátt
hafa franskar kvikmyndir misst
markaðshlutdeild gagnvart þeim
bandarísku, rétt einsog annars
staðar. Einnig fækkaði bíósölum
um 300 síðustu árin 1987 og 88.
Það var því sem vatn á myllu
franskrar kvikmyndagerðar þeg-
ar Jack Lang menningarmálaráð-
herra Frankaríkis ákvað árið
1988 að auka framlög til kvik-
myndaiðnaðarins um 34%. Það
varð til þess að þótt fjöldi fram-
leiddra kvikmynda væri nánast sá
sami (133 og 137), var nú 41 kvik-
mynd gerð fyrir meira en 20 milj-
ón franka í stað aðeins 23 árið
1987. Að vísu standa gæðin ekki
alltaf í réttu hlutfalli við kostnað-
inn en ætla má að þetta skili sér í
heild sinni í betri kvikmyndum og
fleiri nýliðar fá tækifæri.
Góðu fréttirnar eru því að að-
sókn hefur aukist á ný og einnig
hafa margir af annáluðustu kvik-
myndagerðarmönnum Frakka
staðið í ströngu að undanförnu.
Þegar á heildina er litið leikur
enginn vafi á að frönsk kvik-
myndagerð er í uppsveiflu á ný,
gallinn er bara að við fáum ekki
að sjá afraksturinn hér á íslandi.
Það þarf ekki að vera eingöngu
bíóhúsum að kenna, því frönsk-
um kvikmyndum er yfirhöfuð illa
dreift til annara landa. Sem dæmi
er Columbia eina stóra dreifing-
arfyrirtækið sem hefur franskar
myndir á sinni könnu.
En hvað hafa Frakkar þá verið
að sýsla að undanfömu? Því má
svara þannig að ótrúlega mörg at-
hyglisverð verk liggja eftir þá síð-
ustu misseri og það sem ofanrit-
aður hefur séð lofar vissulega
mjög góðu. Nær engar þeirra
hafa komið til íslands, nema þá
Björninn, Le grand bleu, og mas.
Kvikmyndahátíð tókst ekki að fá
hingað góða mynd frá Frakk-
landi. En lítum á örfá dæmi um
þær myndir sem vakið hafa mesta
athvgli.
Á kvikmyndahátíðinni í Cann-
es sl. vor vom þrjár franskar
myndir í keppninni. Þeirra
þekktust er væntanlega Trop
belle pour toi eftir Bertrand Blier
sem gerir ástarþríhyrningnum
nýstárleg skil. Gérard Depardieu
leikur þar mann sem virðist
einkar vel giftur, enda kona hans
sérlega falleg. Það kemur ekki í
veg fyrir að hann lendi í ástarsam-
bandi við konu sem í fyrstu virðist
svo venjuleg sem hugsast getur.
Patrice Leconte fékk enn betri
dóma margra gagnrýnenda fyrir
Monsieur Hire. Hún segir frá ros-
knum manni sem lifir mjög til-
breytingasnauðu lífi. Ungstúlka í
nágrenni hans veit hinsvegar ekki
að hann fylgist grannt með hverri
hreyfingu hennar. Þriðja myndin
sem tilnefnd var í Cannes er
Chimere eftir Claire Devers. Bé-
atrice Dalle, sem sló í gegn sem
Betty Blue um árið, leikur þar
stúlku sem ákveður að verða
barnshafandi án samþykkis el-
skuhuga síns. Hann tekur því afar
illa og afleiðingarnar eftir því.
Fleiri kvikmyndir gerðu það
gott á hátíðum á liðnu ári. Béatr-
ice Dalle hefur einnig leikið ný-
lega í myndinni Les bois noirs
eftir Jacques Deray og var hún
ma. eitt af stærstu númerum í
Montréal. Þá hefur mynd Bert-
rands Tavemiers, La vie et rien
dáutre farið á hátíðir víða um
heim og hvarvetna hlotið góðar
viðtökur, enda enn ein rósin í
hnappagat hans. Frönsk kvik-
mynd náði þó ekki að vinna gull-
ljónið í Feneyjum í haust, einsog
oft áður. En hvað mesta athygli á
hátíðinni hlaut einmitt frönsk
mynd, enda enginn meðalmaður
þar á ferð. Nýjasta verk Alain
Resnais heitir hinu engilsaxneska
nafni I Want to Go Home og er,
hvað sem öllu líður, ekta gaman-
samur farsi sem bæði aðdáendur
slíkra mynda og Resnais mega
ekki láta fara framhjá sér. Depar-
dieu leikur aðalhlutverk á móti
Adolph Green, sem er banda-
rískur teiknari og fer til Parísar
(og til EvrÖpu í fyrsta sinn) til að
hitta dóttur sína. Hún hefur þá
nýlokið doktorsgráðu um
Flaubert og prófessor hennar er
auðvitað Depardieu.
Fleiri eldri kvikmyndagerðar-
menn hafa verið í eldlínunni að
undanförnu. Jacques Demy
sendi frá sér Trois places pour le
26 sem er enn ein gamanmynd
hans tónlistarlegs eðlis. Yves
Montand leikur sjálfan sig í sýn-
ingu þarsem fram koma stjörnur
á borð við Edith Piaf, Simone
Signoret og Marilyn Monroe. Þá
fékk Jean-Paul Belmondo
eitthvert besta hlutverk sitt um
árabil í mynd Claude Lelouch, It-
inéraire d‘un enfant gaté.
Gamanmyndir hafa lengi verið
vinsælustu bíómyndir í Frakk-
landi og því ekki að furða að það-
an koma ávallt góðar slíkar
myndir. Önnur vinsælasta mynd-
in þar í landi í hitteðfyrra var hin
grátbroslega Le vie est un long
fleuve tranquille eftir Etienne
Chattiliez. Og á þessu ári tóku
áhorfendur ágætlega nýjustu
mynd Coline Serreau, Romuald
et Juliette, sem er hennar fyrsta
mynd frá því 3 hommes et un co-
uffin sló eftirminnilega í gegn.
Ein af umdeildari kvikmynd-
um frá Frakklandi er tvímæla-
laust nýjasta mynd Jean-Jacques
Beineix, Roselyne et les lions.
Þetta er fjórða mynd Beineix og
hefur önnur hver þeirra „flopp-
að“, sé þessi talin með sem slík.
Hans virtasta verk, Diva, hlaut
reyndar slæmar viðtökur í Frakk-
landi þar til hún sló í gegn í öðrum
löndum. La lune dans le caniveau
var síðan svefngengill ársins 1983
en Betty Blue gekk vel. Ekki er
sýnt enn hvort Roselyne flokkist
með Diva eða La luna. Frakkar
kunnu ekki að meta hana en hún
hefur ma. fengið mjög góða
Klippiboröið
Óháði leikstjórinn Spike Lee, sem hreif nær alla á síðasta ári með Do
the Right Thing (fyrir utan dómnefndina í Cannes auðvitað), er nú við
upptökur á nýrri kvikmynd, Love Supreme. Hún skartar Denzel Was-
hington (Cry Freedom) í aðalhlutverki, en einsog venjulega leikur Lee
aukahlutverk auk þess að skrifa, leikstýra og framleiða. Þessi mynd
verður varla eins umdeild og hin fyrrnefnda en Love Supreme segir
sögu djass-trompetleikara sem á erfitt með að sameina listina ástarlífi
sínu. Þá hefur það spurst að Lee hafi þegar ákveðið að næsta kvikmynd
hans verði útfærsla á Broadway-leikritinu Dreamgirls.
Mickey Rourke hefur loks orðið að ósk sinni um að leika á ný undir
stjórn Michael Cimino, en saman gerðu þeir Year of the Dragon. Nú á
að endurgera mynd Williams Wylers með sjálfum Humphrey Bogart í
aðalhlutverki, The Desperate Hours. Sú mynd var gerð árið 1955 eftir
sögu og leikriti Joseph Hayes og segir frá föngum á flótta sem leita
skjóls hjá saklausri fjölskyldu. Ogþá er bara að taka upp budduna fyrir
Cimino! Mickey Rourke lék reyndar nýlega í kvikmyndinni The Crew
sem Michelangelo Antonioni leikstýrir. Hún hefur tafist mjög lengi,
eða allt þar til Martin Scorsese tók til við framleiðsluna.
Scorsese hefur engu að síður haft í nógu að snúast eftir þriðjung New
York sagna. Hann er einnig framleiðandi nýjustu myndar Stephen
Frears (Dangerous Liaisons), The Grifters, með Melanie Griffith og
John Cusack. Þá hefur hann á ný hafið samstarf við Robert De Niro í
myndinni Good Fellas, og enn bíðum við eftir Wise Guy.
Systkinin Penny og Garry Marshall standa í stórræðum þessa dagana.
Penny (Big) er nú við tökur á Awakenings, sem segir frá geðlækni og
fórnarlömbum stjarfklofa. Robin Williams leikur geðlækninn, en hann
mun fljótlega sjást hérlendis í alvarlegu hlutverki í Dead Poet‘s Society
eftir Peter Weir og vonandi á móti Tim Robbins í Cadillac Man.
Sjúklinginn leikur hinsvegar altmuglig-maðurinn Robert De Niro
(skyldi þetta vera svar við leik Hoffmans í Rain Man?). Garry Mars-
hall leikstýrir hinsvegar knúsaranum Richard Gere í myndinni 3000
þarsem hann gerir hosur sínar grænar fyrir hinni eldheitu Laura San
Giacomo (Sex, lies and videotape). Hún hefur verið mjög eftirsótt
/ síðustu mánuði og meðal handrita sem hún valdi sér er Vital Signs.
KVIKMYNDIR
ÞORFINNUR
ÓMARSSON
Föstudagur 12. janúar 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 25
dóma í Englandi. Hinsvegar er
óhætt að segja að tilraun Depar-
dieu og Catherine Deneuve til að
leika saman á ný hafi ekki tekist
nógu vel í myndinni Droled'end-
roit pour un rencontre, sem er er
fyrsta verk Francoise Dupeyron.
Það er greinilega kominn tími á
franska kvikmyndahátíð en best
væri auðvitað að þeir sem völdin
hafa reyndu að krækja í eitthvað
af þessum verkum. Það má telja
fullvíst að með réttri markaðs-
setningu gætu allar þessar myndir
staðið vel undir sér, rétt einsog
þær örfáu sem hingað koma virð-
ast gera. Bandarískar kvikmynd-
ir verða eftir sem áður vinsælast-
ar, enda eru þær það hvarvetna á
vesturlöndum, en flest önnur
lönd eiga altént kost á sjá evróp-
skar kvikmyndir. Á meðan sækir
Kaninn í æ ríkari mæli efni sitt til
Evrópu og nægir að nefna eina
vinsælustu mynd síðustu ára
Three Men and a Baby (hefur ein-
hver haldið því fram að hún væri
betri eða fyndnari en franska
myndin?). Þess má geta að nú er
verið að endurgera á ameríska
vísu Nágrannakonu Truffauts og
hliðstætt dæmi er að brátt sjáum
við Amerískar konur á barmi
taugaáfalls.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Eskifjörður - Félagsfund-
ur
Alþýðubandalagið á Eskifirði heldur félags-
fund í Valhöll fimmtudaginn 18. janúar kl.
20.30
Dagskrá:
1. Landsmálin - staða og horfur. Hjörleifur
Guttormsson alþingismaður.
2. Félagsstarfið framundan.
3. Nýjungar í atvinnumálum.
Félagar - mætum öll. Stjórnin
Hjörleifur
Fundir á Austurlandi
Steingrímur J. Sigfússon samgöngu- og
landbúnaðarráðherra og Hjörleifur Gutt-
ormsson alþingismaður verða á opnum
fundum:
í Staðarborg í Breiðdal laugardaginn
13. janúar kl. 13:30.
Á Fáskrúðsfirði í Verkalýðshúsinu
laugardaginn 13. janúar kl. 17.
Á Reyðarfirði í Verkalýðshúsinu sunnu-
daginn 14. ianúar kl. 13:30.
Allirvelkomnir. Alþýðubandalagið
Steingrímur J.
Fundir á Austurlandi
Hjörleifur Guttormsson ræðir landsmál og
heimamálefni á opnum fundum á næstunni
sem hér segir:
Á Bakkafirði í félagsmiöstöðinni, mánu-
daginn 15. janúar kl. 20.30
Á Vopnafirði í Austurborg, þriðjudaginn
16. janúar kl. 20.30
Á Seyðisfirði í Herðubreið, miðvikudaginn
17. janúar kl. 20.30.
Allir velkomnir
Alþýðubandalagið
Hjörleifur
Alþýðubandalagið Kópavogi
Spilakvöld
Þriggja kvölda spilakeþþni hefst mánudaginn 15. janúar í Þinghól
Hamraborg 11 Kópavogi kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Stjórnin
Alþýðubandalag Héraðsmanna
Félagsfundur
Félagsfundur föstudagskvöldið 12. janúar kl. 20.30 að Selási 9,
Egilsstöðum.
Rætt verður um landsmálin og flokksstarfið í byrjun árs.
Steingrímur J. Sigfússon ráðherra og Hjörleifur Guttormsson al-
þingismaður verða á fundinum.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin
Alþýðubandalag Skagafjarðar
Félagsfundur
Almennur félagsfundur verður n.k. mánudagskvöld kl. 20.30 í
Villa Nova Sauðárkróki.
Dagskrár:
1. Bæjarmálin.
2. Önnur mál.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Ólafsvík
Bæjarmálafundur
Fundur í Alþýðubandalaginu á Ólafsvík á sunnudag kl. 13 í Mettu-
búð.
Fundarefni: Bæjarmálin og sveitarstjórnarkosningarnar.
Framsögumaður Herbert Hjelm.
Stjórnin
AB Kópavogi
Þorrablót
Hið vinsæla þorrablót Alþýðubandalags Kópavogs verður haldið í
Þinghóli Hamraborg 11, laugardaginn 3. febrúar kl 19
Nánar auglýst síðar.