Þjóðviljinn - 26.01.1990, Blaðsíða 2
Systir Skaða skrifar
ROSA-
GARÐINUM
Svo hart getur það
verið, skemmtana-
líffið
Koma suður í djammið og leita
sér lækninga.
Tíminn
Fyrir unga uppa á
uppleið
Umsækjendur verða að vera
fæddir eftir 1. janúar 1958 enda
um fulltrúastörf að ræða.
Morgunblaðið
Upparnirallir
ónýtir?
Farsímar geta valdið skaða -
eistu, augu og fleiri líffæri í hættu
vegna geislunar.
DV
Vertu ekki með
þessi látalæti,
maður
Ég veit ekki hver verða örlög
pessara svonefndu bláu mynda á
stöðinni. Ég hef aldrei séð þessar
myndir. En kannski maður verði
að kynna sér þær núna, segir Þor-
varður Elíasson, skólastjóri
Verslunarskólans og nýráðinn
sjónvarpsstjóri Stöðvar 2.
DV
Erþaðjörðin
Vatnsendi?
Borgin skipuleggur „Dag jarðar-
innar“.
Morgunblaðið
Byrjað á öfugum
enda?
Beinagrind í fæðingu.
Tíminn
Við viljum íslenskt!
Eyðileggur útlend padda gróð-
urrækt í Hveragerði?
Tíminn
Hvers eigum við
Austurbæingar að
gjalda?
ekki þar með sagt að hún sé
viðurkennd í þjóðfélaginu. Það
er nú öðru nær!
En sko, sé karlremba víkjandi
verðum við að fara að huga að því
að kannski eru þeir sýktu að
deyja út. Þá mætti ímynda sér að
síðustu sóttargemsarnir væru
settir í dýragarða þar sem fólk
gæti komið og skoðað þá sér til
skemmtunar og kannski gefið
þeim hnetur. Þegar þeir svo gefa
þar upp öndina í hárri elli verður
svæsnasta eintakið tekið, stopp-
að upp og geymt á Náttúrugripa-
safninu við hliðina á geirfuglinum
(Homo porcus chauvinissimo).
Ég sting hér með upp á bróður-
mynd minni Skaða sem líklegu
eintaki til uppstoppunar og tel
mig hafa fullan rétt á því, enda er
mér málið skylt.
Ég var annars að fá fréttir af
eintakinu. Það var settur lög-
fræðingur í málið og hann er þess
vegna laus af spítalanum og ég
tek það fram að ég harðneitaði að
blanda mér í málið. Aðdáendur
hans, ef einhverjir eru, geta farið
að láta sig hlakka til...
Systir Skaða
Það er komið upp meiriháttar
mál. Rannsóknarefni fyrir sér-
fræðinga. Efni í námstefnu,
blaðagreinar, blaðadeilur og
margar vandamálabækur, svo
ekki sé minnst á tilefni til stofn-
unar samtaka. Þjóðarhreyfingar
og iafnvel stjórnmálaflokks.
Ástæðan er vitaskuld greinar-
kom mitt frá því um daginn. Ég
nenni ekki að rekja hér allar sím-
hringingarnar, mórölsku ræðurn-
ar og skammirnar sem þessar sak-
leysislegu línur ollu. Geymi það í
bók mína um þjóðarsálina
(mergjaðar sögur úr hversdagslífi
montnustu þjóðar á norðurhveli
jarðar). En, einn af mörgum sem
höfðu samband við mig vegna
hnýtinga minna í karlrembusvín-
ið Skaða sagði mér í fúlustu al-
vöru að sona mætti ég ekki láta.
Ég yrði að skilja að Skaði gæti
ekkert af þessu gert. Remba væri
nefnilega í genum kallpeningsins.
Þeir gætu barasta alls ekki ráðið
við þetta aumingja strákarnir. Og
þetta væri nærri því sannað.
Þarmeð er karlremba orðið
genetískt fyrirbæri og það að vera
karlrembusvín einhvers konar
erfðasjúkdómur, sem konur bera
en karlmenn fá svona á svipaðan
hátt og dreyrasýkin, erfðagóss
Viktoríu drottningar til karlkyns
afkomenda sinna. Vá! Þá er
spurningin hvort ekki megi rann-
saka þetta bíólógískt eins og aðra
sjúkdóma og finna svo upp lyf.
Ég sé fyrir mér miðann á pillu-
glasinu: Jón Jónsson, þrjár pillur
tvisvar á dag við karlrembu.
Það þarf að rannsaka þetta
erfðafræðilega. Finna út hvort
þetta er ríkjandi eiginleiki einsog
skalli eða víkjandi einsog blá
augu og tóneyra. Ef karlremban
reynist ríkjandi má ímynda sér að
hinn dæmigerði karlmaður verði
árið 2020 sköllótt, brúneygt og
laglaust karlrembusvín. Þá verð-
ur nú alldeilis gaman að lifa fyrir
suma. Verra fyrir aðra einsog
gengur. Ætli Nostradamus hafi
átt við þetta þegar hann spáði
heimsendi?
En það þarf auðvitað að gera
sambærilegar rannsóknir á kon-
um. Finna út hvort sumum þeirra
sé genetískt eðlilegt að láta troða
á sér. Ef til dæmis finnst svipað
hlutfall af genetískum undir-
lægjum og genetískum karlremb-
um er þar með hægt að hætta öllu
fjasi um uppeldis- og umhverfis-
áhrif, stofna hjúskaparmiðlun og
para liðið. Málið leyst og allir
ánægðir. Ég á við, það á ekkert
að vera að taka fram fyrir hend-
umar á fólki sem getur ekki ann-
að. Spumingin er hvort það ætti
ekki að gefa því færi á að stofna
sitt eigið samfélag svo það lendi
ekki í sálarkreppu. Sálarkreppa
er eins og allir vita mjög óheppi-
leg hverjum sem fyrir henni verð-
ur.
Kannski er það óskhyggja en
ég er viss um að karlremba
rey nist víkj andi, ef hún er þá gen-
etísk, sem er auðvitað ekki sann-
að en það má gera ráð fyrir að
einhver karlremban taki að sér að
reyna að sanna það hið bráðasta
til að hafa pottþétta afsökun fyrir
dónaskap sínum við kvenfólk. En
ég vil benda á það að ekki er sop-
ið kálið þótt í ausuna sé komið og
þótt það sé til dæmis sannað að
fólk geti ekkert að stelsýki gert er
Þrjár pillur
tvisvar á dag
viö karlrembu
2 SIÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 26. janúar 1990
Vel skipulagt vændi hefur þrifist
og dafnað í húsi í Vesturbænum
um margra ára skeið.
Pressan
Hvers konarfjöl-
breytni?
Konan sem þarna býr og starfar
hefur jafnframt á sínum snærum
nokkrar ungar stúlkur, sem eru
reiðubúnar að koma á staðinn ef
viðskiptavinir vilja fá fjöl-
breyttari þjónustu.
Pressan
I
i .