Þjóðviljinn - 26.01.1990, Side 4

Þjóðviljinn - 26.01.1990, Side 4
Borgarstjórnarkosningar veröa aö vori og þegar er farið aö bolla- leggja um framboðsmál og sýnist sitt hverjum hvernig þau mál eigi að vera. Sumirvilja bjóöafram sameiginlegan lista til að fella meirihluta Sjálfstæðismanna í borgarstjórn en aðrir vilja halda sig við það form sem verið hefur. Þá hefur fyrsta umræöa um fjár- hagsáætlun borgarinnarfarið fram og finnst mörgum að flott- ræfilsháttur borgarstjóra og hans manna keyri úr hófi fram á kostn- að ýmissa félagslegra mála sem ekki hefur verið tekið á en brýnt er að leysa hið fyrsta. Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins svarar spurningum um þessi mál og fleiri á Beininu í dag. Hver er afstaða þín tíl sam- eiginlegs framboðs minnihluta- flokkanna í borgarstjórn og óf- lokksbundinna kjósenda fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor? - Ég hef mjög unnið að því að koma á sameiginlegu framboði allra minnihlutaflokkanna í borg- arstjórn en þá hef ég viljað gera það á flokksbundnum grundvelli og talið að óflokksbundnir aðilar, sem eru þá kjósendur einhverra stjórnmálaflokka, að þeir mundu þá fylkja sér um það framboð eins og alltaf hefur verið. Ég vil benda á það þegar menn eru að tala um stærðir og styrkleika þessara óflokksbundnu kjós- enda, sem vissulega er rétt, að þá þegar það er borið saman við fylgi AÍþýðubandalagsins og síð- an fjöldi flokksmanna, þá gefur það auga leið að fylgi Alþýðu- bandalagsins hefur verið allt að tífalt meira og hefur alltaf verið heldur en þeir sem hafa verið fé- lagar í flokknum. Það breytir því hins vegar ekki að við sem erum kjömir til að vera borgarfulltrúar eða fulltrúar flokkanna, að við erum fulltrúar þeirra en ekki okkar sjálfra. Við erum ekki bara kosnir til að vera fulltrúar okkar sjálfra eða einhverra óþekktra manneskja úti í bæ. Heldur emm við fulltrúar þeirra flokka sem bera ábyrgð á störfum okkar, eru okkar leiðbeinendur í starfi og við bemm ábyrgð gagnvart. Þess vegna vil ég vinna að framboði allra minnihlutaflokkanna í borg- arstjórn, mynda eitt sameigin- legt, sterkt og skipulegt afl gegn Sjálfstæðisflokknum og að því hefur verið unnið mjög lengi. Hins vegar er það alveg ljóst að tveir af flokkunum hafa lýst því yfir að þeir ætli sér ekki að vera með, og þá er ég að tala um þá flokka sem eru á vinstri væng, Borgaraflokkinn hef ég aldrei litið á í þessu sambandi. Ég leyfi mér að trúa því sem þetta fólk segir mér að það hafi samþykkt á fundum sínum og ég held að það þýði ekkert annað en trúa því sem þarna er sagt. Það dugir ekk- ert að gera samþykktir hjá Al- þýðubandalaginu um að hinir flokkarnir hafi aðra skoðun. Mótast kannski afstaða þín til þessa máls af ótta við að missa áhrif í málefnum borgarinnar? - Nei. Hún mótast ekki með neinum hætti af minni persónu- legu afstöðu. Ég er búinn að vera mjög lengi í borgarstjórn og það er alveg ljóst, og mér er það ljóst að minn tími er ekki eilífur. Og að því kemur og kannski komið að því að ég eigi að fara að víkja. Um það ætla ég enga ákvörðun að taka hér og nú eða á allra næstu dögum. Vika í pólitík er langur tími. Þessar hræringar verða að ganga yfir en ég hef ekki verið minn frambjóðandi síðustu tuttugu árin heldur Alþýðu- bandalagsins. Jafnframt er það ekki ég sem tek ákvörðun um það hvort ég verð áfram eða ekki. Ég get tekið ákvörðun um að hætta og það get ég einn gert. En um hitt ég get alls ekki tekið ákvörð- un einn. Er ekki sú hætta fyrir hendi þegar menn hafa setið jafn lengi og þú hefur gert í borgarstjórn, í nær tvo áratugi, að þeir verði samdauna kerflnu? - Jú, auðvitað er ákveðin hætta á því. Og kannski er það þess vegna sem það er styrkur af því að hafa að baki sér flokk sem ekki er samdauna kerfinu og sem verður það aldrei. Borgarmála- ráð flokksins sem starfar og er virt og sem ekki er samdauna kerfinu og verður það aldrei í því er fólgin ákveðin trygging. Kann- ski er það nú fyrsta einkenni þess að maður sé orðinn samdauna kerfinu að maður finnur það ekki sjálfur. Ég hef ekki orðið var við það né heldur að Borgarmáia- ráðinu finnist það og ekki flokkn- um yfirhöfuð. Þaðan af síður hjá mínum kjósendum. Þannig að þeir einu sem halda því fram að það eru auðvitað þeir sem eru okkar pólitísku andstæðingar sem vilja auðvitað koma á Al- þýðubandalagið og fulltrúa þess einhverjum stimpli um það að þeir séu vondir kallar og litlir. Telurðu að stofnun Birtingar og sá ágreiningur sem uppi er milli hennar og stjórnar ABR hafi skaðað flokkinn? - Já ég tel það og jafnframt að það sé aldrei neinum flokki til framdráttar að skipta sér upp. Ég tel að þá sé flokkur sterkastur þegar samstaðan er best. Það er enginn vafi á því að stofnun Birt- ingar og það að þeir yfirgefa fé- lagið í Reykjavík og telji sig geta starfað með hinum félögunum og starfað líka sér, það veikir flokk- inn í Reykjavík. Ég óttast að það muni hafa áhrif á kjósendafylgið og ég veit að það hefur þegar haft mikil áhrif á vilja manna til að starfa yfirhöfuð í þessum sam- tökum. Ég tel þetta mjög miður og hefði talið að það væri kannski fyrsta og verðugasta verkefni Al- þýðubandalagsins að sameina sjálft sig. Eru þessar væringar fremur persónulegar en málefnalegar? - Ég á voðalega erfitt með að dæma um það. Málefnalegur á- greiningur hefur ákaflega lítið komið upp og sést lítið að þessu frátöldu að ég og við hinir í ABR teljum okkur vera öðruvísi en Al- þýðuflokkurinn, en ég fæ ekki betur séð en að Birtingsfélagar leggi alla áherslu á að það sé eng- inn munur á þeim og Alþýðu- flokknum. Hver verða að þínu mati helstu kosningamálin í vor þegar kosið verður til borgarstjórnar? - Ég held nú að þau séu alveg augljós. Reykjavíkurborg er sennilega rikasta samfélagið á öllu íslandi. Hér hafa verið mjög miklir peningar í gangi og út úr síðustu skattkerfisbreytingunni, staðgreiðslunni, hefur borgin komið mjög vel út og væntanlega önnur sveitarfélög líka. En sökum þess hve borgin er stór og öflug þá hefur hún haft úr mjög miklum peningum að spila. Hvernig þeim fjármunum hefur verið varið er satt best að segja alveg hörmung. Hér gæti verið eitt besta samfélag á byggðu bóii ef þessir peningar væru nýttir rétt. Ég var nýlega að hlusta á fulltrúa Samtaka aldraðra, sem er forstöðumaður Skjóls, vera að lýsa því neyðarástandi sem ellilíf- eyrisþegar búa við sem er skortur á hjúkrunarheimili, skortir að- stöðu og eru inni á heimilum þar sem þeir eru ósjálfbjarga og fjöl- skyldurnar verða ósjálfbjarga líka. Þarna hefur mjög lítið verið gert. Ráðhúspeningarnar mundu duga til að Ieysa þennan vanda í einu lagi. Þannig á að nota pen- ingana. Um þetta verður meðal annars tekist á í komandi kosn- ingabaráttu. Hvað greinir ABR frá hinum minnihlutaflokkunum i borgar- stjórn varðandi málefni borgar- innar? - Ef þú vilt vinna að sameigin- legum málefnum þá geturðu það. Þá leggurðu allan ágreining til hliðar. Síðustu fjögur árin þá höf- um við unnið sameiginlega að öllum borgarmálum. Við höfum lagt þau málefni til hliðar sem á- greiningur hefur verið um og ekki leitað þau uppi. Og síst ætla ég nú, þegar þetta samstarf hefur tekist svona vel og svona lengi og líklegt að það haldi fram að kosn- ingum að fara að tíunda ágrein- ingsefnin. Af einstökum málum sem við höfum og erum sammála um er til dæmis afstaðan til þess hvemig eigi að verja fjármunum borgarinnar, byggja beri upp að- stöðu fyrir gamalt fólk, börn og æskulýð borgarinnar, það beri að tryggja umferðaröryggi og þá sér- staklega öryggi gangandi vegfar- enda. Um þetta allt erum við sammála. Formenn A-flokkanna hafa boðað stofnun nýs jafnaðar- mannaflokks fyrir næstu alþing- iskosningar að ári. Hefurðu trú á þvf? - Ég hef ekki mikla trú á því en út af fyrir sig þá hef ég góðan vilja til þess. Ég hef lengi talið og tel enn að það eigi og þurfi að sam- fylkja öllum vinstri öflunum í einn flokk. Ég hef hins vegar enga trú á þessu flokksleysi eða því stjórnleysi sem verið er að boða með þessu borgarstjórnarf- ramboði. Ég hef ekki trú á því en ég vona að það takist og mundi leggja mitt á vogarskálarnar til þess að það mundi takast. Hvert er þitt álit á Davíð Odds- syni? - Það er enginn vafi á því að Davíð Oddsson er hæfur stjóm- málamaður. Hann er frekur, fra- kkur og hann er duglegur. Þá hef- ur hann lag á því að koma fram með þeim hætti að eftir því er tekið. í þeim efnum nýtur hann einstakra þæginda þar sem hann hefur rfkisfjölmiðlana beinlínis í vasanum. Það er ekki bara að hann komi fram í sambandi við málefni borgarinnar eða í tengsl- um við hans pólitík, heldur er hann dreginn upp í sambandi við nánast allt. Hann er sýndur sem skemmtilegi maðurinn, sem góði maðurinn, sem vinur smælingj- ans, settur í hjólastól í einn dag og Ríkissjónvarpið eltir hann. Hann hefur ekki bara Morgun- blaðið og DV heldur líka Ríkisútvarpið-Sjónvarp til að auglýsa sína eigin persónu. Þetta hossar auðvitað mjög undir hann en ég verð líka að játa það og satt að segja gleðst yfir því að hann er mjög hæfur andstæðingur. Telurðu þá að Ríkisfjölmiðl- arnir ástundi ekki þá óhlutdrægni sem þeir ættu að gera? - Já það finnst mér og algjört hlutleysisbrot að mfnu mati. Það virðist vera sú stefna uppi hjá Ríkissjónvarpinu sérstaklega og raunar líka hjá Ríkisútvarpinu að það að fylgja stefnu Sjálfstæðis- flokksins sé óhlutdrægni, en að nefna stefnu annarra sé hlut- drægni. Ég vil bara minna á að þegar það gerðist að fulltrúar annarra flokka en Sjálfstæðis- flokksins höfðu meirihluta í Reykjavík árin 1978 til 1982 þá setti Ríkissjónvarpið sér aðrar reglur. Hún var sú að það skyldi aldrei talað við fulltrúa meirihlut- ans nema að fulltrúi minnihlutans fengi jafnframt að taka til máls. Það var réttlætisreglan vegna þess að það mátti ekki koma fram bara annað sjónarmiðið. Það hefði verið hlutdrægni. Þegar íhaldið var komið aftur í meiri- hluta var þessari reglu algjörlega snúið við. Núna er bara talað við fulltrúa íhaldsins vegna þess að það eru þeir sem ráða ferðinni og það er fréttnæmt sem þeir eru að gera. Þetta er auðvitað löstur á íslenskri fjölmiðlun og ég vil segja á málfreisi á íslandi að Ríkissjónvarpið sérstaklega skuli haga sér með þessum hætti. Að lokum Sigurjón. Munt þú gefa kost á þér til framboðs í vor og skiptir í því sambandi máli hvernig staðið verður að fram- boðsmálum? - Eins og ég sagði áðan þá tek ég ekki ákvörðun um það hvort ég verð í framboði. Ég get hins vegar tekið ákvörðun hvort ég verð ekki í framboði. Og það er alveg ljóst að það skiptir máli hvernig staðið verður að fram- boðsmálum hvort ég gef yfir- höfuð nokkurn kost á því eða ekki. Ég tel það ekkert sáluhjálp- aratriði hvorki fyrir mig né þjóð- ina eða borgina að ég verði í framboði. En ég hef hins vegar ekki hlaupist undan merkjum ef ég tel mín þörf og þess vegna ætla ég ekki að gefa neinar yfirlýsing- ar hér og nú. Eins og ég sagði áðan er vika í pólitík langur tími og á meðan allar þessar væringar eru að ganga yfir þá ætla ég ekki að taka neina afstöðu í þessu máli. -grh 4 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 26. janúar 1990 Mynd: Kristinn.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.