Þjóðviljinn - 11.05.1990, Síða 3
Borgarstjórnarkosningar
Deilt um félagsfund í ÆFR
Akvörðun stjórnar ÆFR um að
hunsa beiðni um félagsfund er
ólýðræðisleg. Stjórnin fékk kröfu
23 félagsmanna um að halda fé-
lagsfund, en það er rétt að benda
á að aðeins fjórtán félagar tóku
ákvörðun um að styðja Nýjan
vettvang i borgarstjórnarkosn-
ingum, sagði Ástráður Haralds-
son í samtali við Þjóðviljann í
gær.
Ástráður krafðist þess ásamt
22 öðrum að haldinn yrði félags-
fundur í ÆFR til þess að ræða
framboðsmálin í Reykjavík.
Krafist var fundar fyrir fimmta
maí.
Stjórn ÆFR tók málið fyrir á
fundi 9. maí og hafnaði kröfunni.
Þess í stað var ákveðið að halda
fund 30. maí til þess að ræða
framboðsmál í Reykjavík í ljósi
kosningaúrslitanna.
í ályktun stjórnar ÆFR um
málið segir að stjórnin telji það
ekki þjóna hagsmunum félags-
hyggjufólks í komandi kosning-
um að efna til frekari átaka um
framboðsmál Alþýðubandalags-
manna í borginni.
„Við höfum verulegar áhyggj-
ur af því hvernig ÆFR hefur ver-
ið notað til skemmdarverkastarf-
semi í framboðsmálum í Reykja-
vík. Tilgangur stjórnarinnar með
þessari ályktun virðist vera að
verja hagsmuni Nýs vettvangs. en
ekki hagsmuni ÆFR,“ sagði Ást-
ráður í gær. -gg
Chevrolet Monza 1988og 1989
O ÁDA ÁDVDDrt oggreiðslutíminn
J MtíM r\D YnUti jafnve/enn /engri.
4
3
BÍLAR
1988 módel, sjálfskiptir,
2000 vél,
kr. 840.000,—
ORFAIR BIIAR / BOÐ!
BHAR
1989 módel, beinskiptir,
1800 vél,
kr. 895.000,—
3
BÍLAR
1989 módel, sjálfskiptir,
2000 vél,
kr. 986.000,-
1989 módel, Classic. Sjálfskiptir,
2000 vél, útvarp og segulband,
rafstýrðar rúður og speglar,
rafmagnslœsingar, veltistýri,
kr. 1.135.000,-
B/LAR
zu
4
ALLIR BÍLARNIR ERU FRAMDRIFNIR OG MEÐ AFLSTÝRI.
Komdu í bílasalinn okkar að Höfðabakka 9 í Reykjavík og taktu fjölskylduna með
svo hún geti prófað bílinn með þér.
§
!
- — SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SIMI 91 -670000 og 674300
Öll verð eru staðgreiðsluverð.
Bílarnlr eru ryðvaröir og skráðir.
FERÐAÞJÓNUSTA ER
ÞÝÐINGARMIKIL ATVINNUGREIN Á ÍSLANDI
Sýnum ferðamönnum hjálpsemi og vinsemd
-ferðamaður sem finnur að nann er velkominn
leitar aftur á sömu slóðir.
FERÐAMÁLAÁR EVRÓPU1990
I